Morgunblaðið - 24.02.2004, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 47
MARKÚS Máni Michaelsson,
handknattleiksmaður úr Val,
heldur í dag til Þýskalands þar
sem hann verður til reynslu hjá 2.
deildarliðinu HSG Düsseldorf.
Markús fékk boð frá forráða-
mönnum Düsseldorf og verður
hann við æfingar hjá liðinu fram
að helgi en ekkert verður leikið í
úrvalsdeildinni hér heima fyrr en
í byrjun mars vegna bikarúrslita-
leiksins um næstu helgi.
„Það er lítið hægt að segja um
þetta að svo stöddu. Mér bauðst
að fara út og skoða mig um hjá
félaginu og svo verður bara að
koma í ljós hvert framhaldið verð-
ur,“ sagði Markús Máni við Morg-
unblaðið í gær.
Alexander Peterson, fyrrver-
andi leikmaður Gróttu/KR, leikur
með Düsseldorf, sem er í efsta
sæti suðurhluta 2. deildarinnar
með 40 stig, þremur meira en Os-
weil en Düsseldorf á leik til góða.
„Mér skilst að Düsseldorf sé
mjög gott félag, sem á góða
möguleika á að komast upp í 1.
deildarkeppnina. Ég gæti vel
hugsað mér að ganga til liðs við
félagið svo framarlega sem það
býðst.
Það hafa einhver frönsk lið ver-
ið í sambandi við mig þannig að
einhverjir fleiri möguleikar eru í
stöðunni. Ég útskrifast úr Háskól-
anum í Reykjavík í vor svo það er
góður tími að halda utan og reyna
eitthvað nýtt,“ sagði Markús Máni
Michaelsson.
Markús Máni til skoðunar
hjá HSG Düsseldorf
MICHAEL Owen verður áfram lát-
inn taka vítaspyrnur Liverpool-liðs-
ins þrátt fyrir að honum hafi brugðist
bogalistin í bikarleiknum gegn
Portsmouth. Owen hefur ekki verið
allt of öruggur af vítapunktinum en
þrátt fyrir það segist Gerard Houl-
lier hafa fulla trú á Owen og að hann
taki vítin áfram.
PAUL Scholes, leikmaður Man-
chester United, á yfir höfði sér allt að
fimm leikja bann eftir að upp komst
að hann hefði sýnt af sér óíþrótta-
mannslega framkomu í viðureign
Middlesbrough og Manchester Unit-
ed í síðustu viku. Þá hrinti hann ein-
um leikmanna Middlesbrough, dóm-
arinn sá ekki atvikið, en það náðist
upp á myndband sem aganefnd enska
knattspyrnusambandsins hefur til
skoðunar um þessar mundir.
THAKSIN Shinawatra, forsætis-
ráðherra Taílands, hefur áhuga á að
kaupa meirihluta í Liverpool. Shina-
watra er milljarðamæringur og hefur
áður rennt hýru auga til enskra
knattspyrnuliða, m.a. sýndi hann Ful-
ham áhuga í haust sem leið en hafði
ekki erindi sem erfiði.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, hefur boðið landa sín-
um Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóra Liverpool, stuðning en
Houllier sætir nú vaxandi gagnrýni
fyrir störf sín hjá Liverpool, ekki síst
eftir að liðið féll úr leik í ensku bik-
arkeppninni á sunnudag. Wenger
segir Liverpool-liðið hafa verið afar
óheppið á leiktíðinni og fráleitt sé að
skella skuldinni á Houllier sem eigi
ekki að gjalda fyrir óheppnina með
því að missa starf sitt. Þvert á móti
eigi menn á Anfield að bíta í skjald-
arrendur og leggja allt kapp á að
tryggja sér fjórða sætið í úrvalsdeild-
inni en það gefur rétt til þátttöku í
Meistaradeild Evrópu í haust.
MATT Holmes, fyrrverandi mið-
vallarleikmaður Charlton, var í gær
dæmdar 250.000 pund, um 30 millj-
ónir króna í skaðabætur, fyrir örkuml
sem hann hlaut fyrir eina verstu
tæklingu seinni tíma í enskri knatt-
spyrnu. Holmes var tæklaður afar
harkalega af Kevin Muscat, varnar-
manni Wolves, fyrir sex árum, með
þeim afleiðingum að hann varð að
leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
Holmes hafði farið fram á 2 millj.
punda í skaðabætur, um 250 millj.
króna.
OLIVER Kahn, markvörður Bay-
ern München, stendur í marki liðsins
í kvöld gegn Real Madrid í Meistara-
deild Evrópu, en hann gat ekki tekið
þátt í viðureign Bayern og Stuttgart
á laugardaginn vegna meiðsla. Þá
fékk Michael Ballack grænt ljós frá
lækni Bayern í gærkvöldi um að hann
megi taka þátt í leiknum. Ballack hef-
ur verið frá keppni upp á síðkastið
sökum mjög slæms kvefs.
FÓLK
DENNIS Bergkamp, framherji Arsenal, gaf sterklega til kynna í viðtölum
við breska fjölmiðla í gær að hann ætli að leika eitt tímabil í viðbót. Við því
var búist að Hollendingurinn, sem verður 35 ára gamall í maí, hygðist
leggja knattspyrnuskóna á hilluna í sumar en Bergkamp segist njóta þess
að spila fótbolta í hæsta gæðaflokki og meðan svo er þá sé hann ekki að
hugleiða að hætta. Bergkamp vonast eftir því að Arsene Wenger bjóði sér
nýjan samning enda komi ekki til greina að leika með öðru liði en Arsenal.
„Mér líður ákaflega vel og það hefur ekki hvarflað að mér að hugsa um
að hætta. Þegar maður er á eins árs samningi er alltaf möguleiki á að það
geti verið manns síðasta en eins og staðan er í dag finnst mér svo gaman að
spila að ég er ekkert í þeim hugleiðingum að hætta,“ segir Bergkamp.
Arsenal keypti Bergkamp frá Inter í Mílanó fyrir 7 milljónir punda árið
1995. Hann hefur spilað 341 leik fyrir Lundúnaliðið og skorað í þeim leikj-
um 107 mörk.
Halldór birti í síðustu viku á vefKSÍ ítarlega úttekt á því hvaða
forsendur þarf að hafa til hliðsjónar
þegar Íslandsmótinu
í ár er raðað upp. Þar
kemur meðal annars
fram að tímabilið í ár
verður 20 vikur í
stað 19 vikna í fyrra. Lengingin er
fólgin í því að undanúrslit og úrslita-
leikur í bikarkeppni karla verða leik-
in á tveimur helgum eftir að Íslands-
mótinu lýkur.
Halldór tekur dæmi um að leik-
menn í efstu deild spili frá 20 til 32
leiki á þessum 20 vikum, að meðtöld-
um bikarleikjum, Evrópuleikjum og
landsliðsverkefnum. Við þessa 32
leiki þurfi að miða, og taka tillit til
fjölmargra annarra þátta þegar
tímabilið sé skipulagt. Evrópuleikja,
landsleikja, innlendra sem erlendra
sjónvarpsútsendinga, annarra móta
og viðburða, ásamt fleiru.
„Eitt sem gerir okkur erfiðara fyr-
ir í ár en áður, en er um leið ánægju-
legt, er að í UEFA-bikarnum verða
leiknar tvær umferðir í forkeppni í
stað einnar áður, og byrjað í júlí í
stað ágúst. Þetta þýðir að íslensku
liðin eiga möguleika á léttari mót-
herjum í fyrstu umferð og ættu að
vera líklegri en áður til að komast
áfram,“ sagði Halldór.
Talsverð umræða hefur verið um
fjölgun liða í efstu deild úr tíu í tólf
og ljóst að sú hugmynd á miklu fylgi
að fagna meðal leikmanna og al-
mennra áhugamanna. Á ársþingi
KSÍ 2002 var stefnan sett á fjölgun
árið 2006 og þó tillaga til ályktunar
um hvort hægt væri að flýta því til
2005 hafi verið samþykkt á þinginu
fyrr í þessum mánuði, telur Halldór
að fjölgun árið 2005 sé ekki inni í
myndinni.
Aðalmál á formannafundi
í október
„Það hefur í raun ekkert breyst
frá því þetta kom fram fyrir tveimur
árum. Málið er í höndum stjórnar
KSÍ og ég reikna með því að fjölg-
unin verði aðalmál formannafundar
með forsvarsmönnum félaganna í
október. Út frá því verður síðan
hægt að halda málinu áfram.
Það sem stjórn KSÍ og félögin
þurfa fyrst og fremst að gera upp við
sig eru fjárhagshliðin og þær kröfur
sem gera skuli um vallarskilyrði
fyrstu tvær vikur tímabilsins. Veðr-
áttan er svo misjöfn að það er mjög
óalgengt að grasvellirnir séu tilbúnir
hinn 1. maí. Það er hins vegar mjög
æskilegt að stefna á þá dagsetningu,
í maíbyrjun er sól komin hátt á loft
og áhuginn á knattspyrnunni geysi-
lega mikill, en þá eru það vellirnir
sem þarf að skoða betur. Ég sé ekk-
ert að því að spila leiki á Íslandsmóti
í Egilshöll ef með þarf en menn
þurfa að taka afstöðu til þess hvort
þeir vilji spila í Fífunni, Boganum,
Reykjaneshöll og á öðrum gervi-
grasvöllum ef grasvellirnir reynast
ekki tilbúnir þegar að þessu kemur.
Það eru reyndar mjög spennandi
hlutir að gerast í vallarmálum,
Stjarnan ætlar til dæmis að leggja
gervigras á sinn aðalvöll, eins og fé-
lög eru farin að gera víðs vegar um
Evrópu og á örugglega eftir að verða
mjög útbreitt á Norðurlöndum innan
örfárra ára.
Auðveldara að fjölga í 1. deild
En með því að byrja 1. maí yrði
mjög auðvelt að raða upp tímabilinu
á þann veg að það rúmi tólf liða efstu
deild,“ sagði Halldór ennfremur.
Í flestum löndum er næstefsta
deild skipuð fleiri liðum en efsta
deild. Í Noregi og Svíþjóð eru t.d. 14
lið í úrvalsdeild og 16 lið í 1. deild, í
Englandi 20 í úrvalsdeild og 24 í 1.
deild, og mörg fleiri slík dæmi má
nefna. Þetta gæti enn verið fram-
kvæmanlegt fyrir næsta tímabil,
2005, en þegar Halldór var spurður
hvort fjölgun í 1. deild hefði komið til
umræðu hjá KSÍ eða félögunum
sagði hann svo ekki vera.
„Nei, menn hafa haft tvær efstu
deildirnar í samhengi að þessu leyti.
Það er hins vegar rétt að leikjaálag í
1. deild er minna en í efstu deild,
færri bikarleikir og engir Evrópu-
leikir, og það yrði vissulega auðveld-
ara að fjölga liðum 1. deildar úr tíu í
tólf. Það er eftir sem áður að mörgu
að hyggja ef menn ætla að ráðast í
slíka fjölgun,“ sagði Halldór B. Jóns-
son.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Halldór B. Jónsson, varaformaður Knattspyrnusambands Íslands og formaður mótanefndar KSÍ.
Halldór B. Jónsson, formaður mótanefndar KSÍ, um fjölgun liða í efstu deild
Gengur upp með
því að byrja 1. maí
TIL þess að hægt sé að fjölga liðum í efstu deild karla í knattspyrnu
þarf að hefja Íslandsmótið hinn 1. maí, eða tveimur vikum fyrr en
gert er í ár. Þetta er mat Halldórs B. Jónssonar, formanns móta-
nefndar Knattspyrnusambands Íslands og varaformanns sam-
bandsins. Tímabilið í ár hefst 15. maí með fyrstu umferð úrvals-
deildar karla og lýkur með bikarúrslitaleiknum 2. október, og það er
lengra en nokkru sinni fyrr.
Eftir
Víði
Sigurðsson
SVERRIR Garðarsson,mið-
vörðurinn ungi og efnilegi
sem lék mjög vel með FH-
ingum í úrvalsdeildinni á síð-
ustu leiktíð, skrifaði í gær
undir þriggja ára samning við
Hafnarfjarðarliðið. Sverrir,
sem er 19 ára, var á mála hjá
Molde í Noregi en var í láni
hjá FH-ingum á síðasta sumri.
Hann fór þess á leit við for-
ráðamenn Molde á dögunum
að samningi hans við félagið
yrði rift og urðu Molde-menn
við beiðni hans.
Sverrir
áfram í FH
Bergkamp vill halda áfram