Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hið sögufræga | Einarshús hefur verið
selt fyrir 50 þúsund krónur. Nýlega var
ákveðið á fundi bæjarstjórnar Bolung-
arvíkur að taka tilboði Jóns Bjarna Geirs-
sonar í húseignina að Hafnargötu 41 sem
gengur undir nafninu Einarshús en það er
nefnt eftir athafnamanninum Einari Guð-
finnssyni sem þar bjó á sínum uppgangs-
árum, en húsið hefur einnig frá öðrum at-
hafnamanni að segja því áður bjó í húsinu
Pétur Oddsson sem einnig var stórtækur í
atvinnulífi Bolungarvíkur. Jón Bjarni ætlar
sér að gera húsið upp í upprunalegt horf og
stefnir að því að vera þar með veit-
ingarekstur og þjónustu fyrir ferðamenn.
Menningarráð Bolungarvíkur lagði til við
gerð samningsins að tryggt yrði eins og
hægt væri að saga húsins yrði varðveitt og í
húsinu verði komið upp safni þar sem saga
Péturs Oddssonar og Einars Guðfinnssonar
verði sögð í máli og myndum.
Ekki var einhugur um söluna í bæj-
arstjórn þegar samningurinn var tekin til
afgreiðslu fyrir stuttu. Soffía Vagnsdóttir
bæjarfulltrúi var mótfallin því að húsið yrði
selt.
Vonandi tekst vel til og húsið og saga
þess fái að lifa um ókomna tíð.
Sjálfsbjörg í Bolungarvík stóð fyrir
spurningakeppni fyrirtækja í marsmánuði.
Tuttugu fyrirtæki í bæjarfélaginu sendu
þriggja manna lið í keppnina. Fyrst var
keppt í undanrásum þar til átta lið voru eft-
ir í undanúrslitum og í úrslitakeppninni
voru fjögur lið.
Leikar fór þannig að lið Grunnskólans
vann lið sýslumannsembættisins í hörku
viðureign þar sem liðin stóðu jöfn að vígi í
leikslok þannig að grípa varð til bráðabana
til að knýja fram úrslit. Í þriðja sæti varð lið
Djúpmars og í því fjórða lið Löggiltra end-
urskoðenda. Lið Grunnskólans var skipað
þeim Guðfinnu Magnúsdóttur, Rúnari Arn-
arssyni og Sólrúnu Geirsdóttur og lið
Sýslumansembætisins var skipað þeim Jó-
hanni Tómassyni, Jónasi Guðmundssyni og
Sigríði Bragadóttur.
Spurningakeppnin vakti mikla athygli í
bænum og var þéttsetinn salurinn í félags-
heimilinu Víkurbæ alla dagana sem keppn-
in fór fram. Sjálfsbjörg á heiður skilið fyrir
þetta framtak sitt til að lifga uppá mann-
lífið.
Úr
bæjarlífinu
BOLUNGARVÍK
EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA
Ákveðið hefur veriðað Leifshátíð verðihaldin á Eiríks-
stöðum í Dalabyggð í júlí,
eins og undanfarin ár. Að
þessu sinni verður hátíðin
helgina 9. til 11. júlí. Há-
tíðin verður með svipuðum
hætti og áður, að því er
fram kemur í fréttabréfi
Dalabyggðar.
Mikið hefur verið um að
vera á Leifshátíð Dala-
manna undanfarin ár. Á
síðasta ári gátu gestir til
dæmis fylgst með vík-
ingum við leik og störf.
Víkingabærinn á Ei-
ríksstöðum í Haukadal er
opinn ferðafólki á sumrin.
Hreppsnefnd Dalabyggð-
ar hefur samþykkt að
hjónin á Vatni, Helga
Ágústsdóttir og Sigurður
Jökulsson, taki að sér
rekstur Eiríksstaða í sum-
ar. Þau eru ráðin í þetta
verkefni sem verktakar og
er það nýbreytni, að því er
sveitarstjórinn segir.
Leifshátíð
Reykjanesbær | Tveir
gestir frá Kerava, vinabæ
Reykjanesbæjar í Finn-
landi, voru í heimsókn í
nokkra daga í boði menn-
ingar-, íþrótta- og tóm-
stundasviðs Reykjanes-
bæjar (MÍT). Kynntu þeir
sér starfsemi Reykjanes-
bæjar á þessum sviði sem
og stjórnsýslu-, ferða- og
markaðsmála.
Fulltrúar Kerava voru
Jarmo Leskinen, fulltrúi
íþróttasviðs, og Petri
Harkonen, fram-
kvæmdastjóri þróun-
arsviðs og staðgengill
bæjarstjóra. Á myndinni
sjást þeir með Ragnari
Erni Péturssyni, æsku-
lýðs- og forvarnafulltrúa
Reykjanesbæjar, og Stef-
áni Bjarkasyni, fram-
kvæmdastjóra MÍT.
Þeir fengu að kynnast
því helsta sem var á döf-
inni á meðan á heimsókn-
inni stóð. Sóttu meðal
annars leiki í úr-
slitakeppninni í körfu-
knattleik og sáu stúlk-
urnar í Keflavík vinna
Íslandsmeistaratitilinn.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gestir frá Kerava
Sigurður Nordal seg-ir það varla ofdjarfa ágiskun að
lausavísur Íslendinga frá
16. öld til 20. aldar hafi
skipt milljónum. – „Og
þótt ekki nema ein af þús-
und hefði lánast að hitta í
mark, væri það mikil auð-
legð,“ segir hann og bæt-
ir við, að slíkt vísnasafn
yrði mikil þjóðargersemi.
En þá yrði að leita dauða-
leit í öllum rímunum að
bestu vísunum, „tína gull-
korn úr Símonardrít“.
Hann nefnir vísu sem
Þorsteinn Erlingsson hafi
kennt sér og sagt einu
góðu vísuna, sem hann
hefði fundið í heilum rím-
um, sem hann hefði lesið:
Æskan mín var ástargjörn,
að því megið hlæja,
þá var eg eins og önnur börn
– enn er eg barn, og jæja.
Sigurður bætir við að vís-
an sé úr rímum af Selikó
og Berissu eftir Hallgrím
Jónsson, „sem sannarlega
eru yfirleitt hálfgert
klambur“.
Úr Sím-
onardrít
pebl@mbl.is
Keflavík |Hart var tekist á í ár-
legu starfshlaupi nemenda Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja í Kefla-
vík sem fram fór í gær. Keppnin
hófst með hópgöngu í Reykja-
neshöllinni og síðan kepptu liðin
í ýmsum starfs- og íþróttagrein-
um. Meðal fjölmargra greina
sem keppt var í er hárgreiðsla,
sund, trésmíðar og járnsmíðar.
Þessir piltar voru saman í liði og
unnu við að saga út pínulita
járnplötu. Ekki virðist þeim
með sögina þó líka hjálpin sem
hann fékk hjá félaga sínum.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Keppt í að saga járnplötu
Starfshlaup
AF SEX valkostum í samgöngubótum á
Vestfjörðum telja flestir íbúar fjórðungsins,
eða 51%, að vegur um Arnkötludal myndi
breyta aðstæðum þeirra til hins betra. Arn-
kötludalur er í Tröllatunguheiði sem liggur
milli Steingrímsfjarðar og Gilsfjarðar. Þetta
kemur fram í könnun meðal Vestfirðinga á
viðhorfum til samgöngumála sem Rann-
sóknastofnun Háskólans á Akureyri vann
fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga. Nið-
urstöðurnar eru birtar á fréttavefnum bb.is.
Næst flestir, eða 45%, töldu sig hafa hag
af gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Arn-
arfjarðar. Þá nefndu 41% samgöngur milli
Ísafjarðar og Súðavíkur, 37% nefndu lag-
færingu vega á Barðaströnd, 29% sam-
göngubætur milli Ísafjarðar og Bolungar-
víkur og loks nefndu 21% aukna ferðatíðni
Baldurs. Jarðgöngin, lagfæringar á Barða-
strönd og aukin ferðatíðni Baldurs naut
mestrar hylli á sunnanverðum Vestfjörðum
og vegur um Arnkötludal átti flesta fylg-
ismenn á Ströndum. Samgöngubætur milli
Ísafjarðar og Bolungarvíkur annars vegar
og Ísafjarðar og Súðavíkur hins vegar nutu
mestrar hylli á norðanverðum Vestfjörðum.
Á vefnum kemur fram að svarendum
gafst ekki kostur á að segja afstöðu sína til
framkvæmda á Djúpvegi, sem flestir að-
hylltust í fyrri hluta könnunarinnar þar sem
spurt var opinnar spurningar um hvaða
framkvæmd þeim hugnaðist best.
Flestir telja
veg um Arn-
kötludal breyta
aðstæðum
GERT er ráð fyrir því að ráðist verði í
stækkun leikskólans í Garði á árinu 2006
og framkvæmdinni lokið á árinu 2007. Á
því ári verði byrjað á stækkun Gerðaskóla
og íþróttamiðstöðvarinnar í Garði. Koma
þessi áform fram í tillögu að þriggja ára
áætlun Sveitarfélagsins Garðs, fyrir árin
2005 til 2007, sem lögð hefur verið fram til
fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Á áætluninni er miðað við að haldið verði
áfram framkvæmdum við lagningu gang-
stétta og malbikun gatna og afleggjara.
Framkvæmdir við stækkun Byggðasafns-
ins í Garði hefjast í ár og er miðað við að
þeim ljúki á næsta ári.
Stefnt að stækkun
skólanna og
íþróttamiðstöðvar
♦♦♦