Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 70
ÍÞRÓTTIR
70 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
SKÍÐI
Skíðamót Íslands
Stórsvig á Ísafirði
KONUR:
Emma Furuvik, Ármanni ...............2.06,33
Áslaug Eva Björnsdóttir, Akureyri
..........................................................2.09,13
Helga Árnadóttir, Ármanni............2.09,69
KARLAR:
Kristján Uni Óskarsson, Ólafsf. ....1.51,88
Sindri M. Pálsson, Breiðabiki ........1.55,38
Kristinn Ingi Valsson, Dalvík ........1:55,60
Stigamót í stórsvigi
Keppnin á skíðamótinu var jafnframt al-
þjóðlegt stigamót, FIS, Icelandair Cup:
KONUR:
Emma Furuvik, Ísl. ........................2.06,33
Leah McLaughry, Ban. ..................2.07,27
Áslaug Eva Björnsdóttir, Ísl. ........2.09,13
Helga Árnadóttir, Ísl. .....................2.09,69
Hrefna Dagbjartsdóttir, Ísl. ..........2.10,34
Elín Arnardóttir, Ísl .......................2.10,76
KARLAR:
Andreas Nilsen, Nor.......................1.51,38
Aksel Lund Svindal, Nor................1.51,85
Kristján Uni Óskarsson, Ísl. ..........1.51,88
Kjetil Jansrud, Nor.........................1.52,67
Skíðaganga á Ísafirði
10 km ganga með frjálsri aðferð í flokki
karla 20 ára og eldri:
Ólafur Th. Árnason, Ísafirði .............28.40
Jakob Einar Jakobsson, Ísaf. ...........30.07
Ólafur H. Björnsson, Akureyri.........31.26
Gísli Einar Árnason, Ísafirði ............32.21
Birgir Gunnarsson, Skr. ....................33.44
Norðmaðurinn Thomas Alsgaard
keppti sem gestur og varð annar á 28.58
mín.
10 km ganga með frjálsri aðferð í flokki
17–19 ára karla:
Markús Þór Björnsson, Ísafirði........29.33
Arnar Björgvinsson, Ísafirði.............31.57
Andri Steindórsson, Akureyri ..........32.20
Kristján Óskar Ástvalsson, Ísafirði .32.48
5 km ganga með frjálsri aðferð í flokki
kvenna 17 ára og eldri:
Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsf.........16.48
Guðbjörg Helga Andrésd., Ólafsf. ....21.46
Hulda María Harðardóttir, Ólafsf. ...23.11
Elsa fékk þriðju gullverðlaun sín á
mótinu í gær en hún sigraði í sprett-
göngu og 5. km með hefðbundinni aðferð.
Markús hefur sigrað í þremur greinum
en hann vann sprettgönguna, og sigraði í
5 og 10 km göngu í flokki 17–19 ára.
Ólafur hefur fengið tvenn gullverðlaun
en hann sigraði einnig í 15 km göngu
með hefðbundinni aðferð.
Ísfirðingar hafa fengið 5 gull, 6 silfur
og 3 brons.
Ólafsfirðingar hafa fengið 3 gull, 1 silf-
ur og 2 brons.
Akureyringar hafa fengið 1 silfur og 3
brons.
HANDKNATTLEIKUR
ÍBV – KA/Þór Frestað
Ekkert varð af leik ÍBV og KA/Þórs í
átta liða úrslitum kvenna í gærkvöld þar
sem ekki var flogið til Eyja. Leikurinn
fer fram í dag, en leikmenn KA/Þórs
komu til Eyja með Herjólfi í gærkvöld.
Þýskaland
Magdeburg - Kronau/Östringen.......35:29
Eisenach - Wallau Massenheim........21:27
Staðan:
Flensburg 27 22 2 3 884:705 46
Kiel 27 21 2 4 871:718 44
Magdeburg 26 20 1 5 804:692 41
Lemgo 26 19 2 5 847:720 40
Hamburg 27 19 1 7 760:690 39
Gummersb. 26 17 1 8 742:682 35
Essen 27 14 4 9 736:689 32
Wallau 27 12 3 12 830:836 27
Großwallst. 26 9 6 11 630:687 24
Wetzlar 26 9 4 13 664:730 22
Nordhorn 25 10 2 13 740:730 22
Wilhelmshav. 27 7 4 16 711:760 18
Minden 26 8 1 17 679:773 17
Pfullingen 27 6 4 17 720:789 16
Stralsunder 27 8 0 19 607:738 16
Göppingen 27 7 1 19 696:760 15
Eisenach 27 5 3 19 686:818 13
Kr-Östringen 27 5 1 21 721:811 11
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni
Efri deild karla, A-riðill:
Haukar – Þór.........................................2.4
Sævar Eyjólfsson 2 – Sigurður Donys
Sigurðsson 2, Þórður Halldórsson, Hall-
grímur Jónasson.
Staðan:
KA 5 4 0 1 14:3 12
KR 5 3 1 1 9:5 10
Þór 4 3 0 1 8:7 9
Grindavík 5 3 0 2 9:9 9
Fylkir 4 2 0 2 7:9 6
Víkingur R. 3 1 1 1 4:4 4
Haukar 5 1 0 4 9:10 3
Njarðvík 5 0 0 5 6:17 0
Neðri deild karla, B-riðill:
Selfoss – Reynir S. ................................3:4
Canela-bikarinn
Æfingamót á Spáni:
Fram - Valur..........................................1:3
Heiðar Geir Júlíusson 80. – Birgir Már
Sævarsson 57., 70., Hálfdán Gíslason 75.
FH - Fylkir.............................................1:1
Emil Hallfreðsson 5. – Sævar Þór Gísla-
son 29. Rautt spjald: Ólafur Davíð Jó-
hannesson, FH, 20 mín.
Lokastaðan:
Valur 3 2 0 1 7:5 6
Fylkir 3 1 1 1 4:2 4
FH 3 1 1 1 4:6 4
Fram 3 1 0 2 3:5 3
SUND
Íris Edda Heimisdóttir, ÍRB., varð sjö-
unda í 50 m bringusundi á 34,09 sek. á
alþjóðlega móti í Amsterdam í gær. Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA., varð 13. í
100 m flugsundi á 1.05,04 mín.
ÍSHOKKÍ
Heimsmeistarakeppni 18 ára drengja-
landsliða, 2. deild A, í Ungverjalandi:
Ungverjaland - Ísland .........................13:4
Gauti Þórmóðsson, Karl Erik Daníel Er-
icsson, Kolbeinn Sveinbjörnsson og Þór-
hallur Viðarsson settu mörkin.
SKÍÐAMAÐURINN Kristján Uni Óskarsson frá Ólafsfirði varð Ís-
landsmeistari í stórsvigi í dag en keppt var á Siglufirði. Kristján
kom í mark á tímanum 1:51,88 mínútum en annar varð Sindri M.
Pálsson úr Breiðabliki á 1:55,38 mín., og Kristinn Ingi Valsson frá
Dalvík varð þriðji á 1:55,60. Gríðarlega margir erlendir keppendur
tóku þátt í stórsviginu í dag og voru tveir Norðmenn fljótari í förum
en Kristján Uni í dag, og ef allir keppendur eru teknir með í reikn-
inginn endaði Sindri í 11. sæti og Kristinn í því 13. Alls luku 47
keppendur keppni í stórsvigi en alls var 21 erlendur keppandi á Al-
þjóðlega FIS-mótinu sem fram fór samhliða stórsvigsmótinu.
Emma með yfirburði
Emma Furuvik úr Ármanni varð Íslandsmeistari í stórsvigi
kvenna en hún kom í mark á tímanum 2:06,33 mínútum en Áslaug
Eva Björnsdóttir varð önnur á 2:09,13. Helga Árnadóttir kom þriðja
í mark á 2:09,69 mínútum. Alls tóku 25 keppendur þátt í stórsvigi
kvenna og var einn keppandi frá Bandaríkjunum, Leah McLaughry,
en hún varð önnur á eftir Emmu í Alþjóðlega FIS-mótinu sem fram
fór samhliða stórsvigskeppninni.
Kristján Uni og Emma
fögnuðu sigri í stórsvigi
CANDACE Parker, 17 ára gömul stúlka
sem leikur körfuknattleik með mennta-
skólaliði í Bandaríkjunum, gerði sér lítið
fyrir og sigraði í troðkeppni sem haldin var
á mánudag. Parker átti þar í höggi við bestu
leikmenn landsins og var hún eina konan á
meðal keppenda í fimm manna úrslitum.
Keppnin vekur gríðarlega athygli á
hverju ári í Bandaríkjunum þar sem leik-
menn úrvalsliða úr menntaskólum er einnig
að leika á þessum viðburði. Parker er 1,91
m á hæð og vöktu tilþrif hennar mikla lukku
á meðal dómnefndar, enda ekki á hverjum
degi sem konur eru í því hlutverki að troða
knettinum í körfuna sem er í 3,05 m. hæð.
„Ég hef troðið frá því ég var 15 ára gömul,“
sagði Parker. LeBron James (Cleveland),
sigraði í troðkeppninni í fyrra líkt og Baron
Davis og Vince Carter.
Stúlka bar af
í troðkeppni
Arsenal er bikarmeistari tveggjasíðustu ára og hefur enska
meistaratitilinn í sjónmáli þetta ár-
ið. Það er að margra mati besta lið
Englands um þessar mundir og
þótt víðar væri leitað. Leikurinn í
dag er líklega síðasta tækifæri
Manchester United til þess eiga
möguleika á einhverjum meirihátt-
ar verðlaunum á þessari leiktíð.
Allt frá því að liðin áttust við á
Highbury fyrir sex dögum í ensku
deildinni hafa knattspyrnustjórarn-
ir, Arsene Wenger hjá Arsenal og
Sir Alex Ferguson hjá Manchester
United, legið undir feldi og velt
stöðunni fyrir sér hvor í sínu horni,
hvernig á ég að fara að því að
vinna? Jafntefli nægir ekki að
þessu sinni, annað liðið verður að
vinna.
Ljóst er að hvorugt liðið getur
stillt upp sínum vöskustu sveitum.
Gilberto og Ashley Cole verða
örugglega ekki með Lundúnaliðinu
og þótt Silvain Wiltord hafi skorað
fyrir varaliðið í kappleik á fimmtu-
daginn segist Wenger ekki ætla að
tefla honum fram. „Wiltord hefur
ekki leikið með aðalliðinu síðan í
desember vegna meiðsla í ökkla og
þótt hann sé kominn af stað á ný
þá tel ég hann ekki vera reiðubúinn
í þennan slag sem framundan er,“
sagði Wenger í gær sem hefur
slegið úr og í síðustu vikuna með
hvort hann tefli fram markahrókn-
um Thierry Henry. Wenger hefur
sagt að hann vilji gefa Henry frí til
þess að safna kröftum fyrir þau
átök sem Arsenal stendur frami
fyrir á næstu vikum, m.a. leikj-
unum í Meistaradeild Evrópu.
„Mér stendur til boða að tefla
Henry fram en ég hef ekkert
ákveðið í þeim efnum. Við verðum
að huga að fleiri atriðum en þess-
um tiltekna leik og ég er að velta
ýmsum kostum fyrir mér. Vonandi
tekst mér að finna réttu leiðina,“
sagði Wenger í gær, en þess má
geta að hann lét Henry byrja á
varamannabekknum þegar Arsenal
vann Man. Utd. á Old Trafford í
fimmtu umferðinni á sl. keppnis-
tímabil, 2:0. Edu og Wiltord skor-
uðu mörkin
Stærsti vandi Fergusons liggur í
því hvort Hollendingurinn Ruud
van Nistelrooy getur leikið með eða
ekki. Hann meiddist í leiknum við
Arsenal á sunnudaginn og versnaði
síðan til muna þegar hann æfði
með hollenska landsliðinu í vikunni
í undanfara vináttulandsleiksins við
Frakka í Rotterdam. „Nistelrooy
er stórt spurningamerki. Það eina
sem við getum gert á næsta sólar-
hring er að vona það besta,“ sagði
Ferguson í gær. Frakkinn Luis
Saha getur ekki leyst Nistelrooy af
í framlínunni þar sem hann lék með
Fulham í bikarkeppninni áður en
hann gekk til liðs við ensku meist-
arana snemma árs. Þar með er
ljóst að Ferguson verður að tefla
Diego Forlan fram í fremstu víg-
línu, en Ferguson hefur verið mjög
spar á Úrúgvæbúann síðustu vikur.
Forlan kom til Englands í gær-
morgun eftir að hafa leikið með
landsliði sínu gegn Venesúela í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins. Auk Forlans gæti Ferguson
sett Ole Gunnar Solskjær, Paul
Schoels, Ryan Giggs eða hinn unga
David Belion í fremstu víglínu.
„Það verður stórmál fyrir okkur ef
Nistelrooy getur ekki leikið með,
hann er maðurinn sem getur unnið
leik sem þennan fyrir okkur,“ sagði
Ferguson sem auk þess vanda
verður að spá í spilin sem Wenger
hefur á hendi, þá sérstaklega vegna
óvissunnar um Henry.
Í leikjum sem þessum er oft sagt
að sagan og hefðin hafi sitt að
segja og víst er að Manchester
United kann vel við sig á Villa Park
í Birmingham. Fjórum sinnum hef-
ur liðið leikið til undanúrslita á
vellinum og ævinlega unnið, m.a.
Arsenal 1999, 2:1, þegar Giggs
tryggði sigurinn í framlengingu eft-
ir stórkostlegan einleik upp allan
völlinn. Áður hafði Peter Schmeich-
el varið vítaspyrnu frá Dennis
Bergkamp undir lok venjulegs leik-
tíma. „Þetta er besta mark sem ég
hef gert á ferlinum en það verður
ekki talið með að þessu sinni, gefur
okkur ekkert forskot,“ sagði Giggs
í vikunni þegar hann rifjaði markið
góða upp.
Þótt Wenger gefi lítið upp er
ljóst að hann ætlar sér að vinna
þrefalt á þessu ári, þ.e. Meistara-
deild Evrópu, ensku deildina og
bikarkeppnina en verði hann að
fórna einhverjum þessara titla er
talið sennilegast að hann vilji helst
fórna bikarkeppninni, þess vegna
hefur hann gefið sterklega í skyn
að til greina komi að hinn stórkost-
legi markaskorari liðsins, Thierry
Henry, fái að hvíla sig í leiknum,
a.m.k. frá byrjunarliðinu.
Hvað sem því líður þá getur Ars-
enal með sigri brotið blað í sögu
sinni því takist liðinu að vinna bik-
arkeppnina í vor þá hefur það unn-
ið hana í tíu skipti og jafnað þar
með met Manchester United. Þá
gæti Arsenal orðið fyrsta liðið í 118
ár til þess að vinna bikarkeppnina
þrjú ár í röð. Þeim áfanga hafa að-
eins tvö lið náð, Wanderers 1876,
1877 og 1878 og Blackburn á ár-
unum 1884 til 1886.
Hvað sem þessu líður þá er ljóst
að refskák þeirra Wengers og
Fergusons stendur fram á síðustu
stundu, báðir eru tilbúnir í langt og
spennandi endatafl.
Nýta meistararnir frá Manchester síðasta möguleikann?
Meistaraorrusta
háð á Villa Park
„VIÐ verðskuldum það svo
sannarlega að komast í úrslita-
leik bikarkeppninnar, en ég veit
að Arsenal-menn telja sig einn-
ig verðskulda það svo ljóst er að
það verða mikil vonbrigði í röð-
um annars liðsins þegar flautað
verður til leiksloka,“ segir fyr-
irliði Manchester United, Roy
Keane, um væntanlegan bar-
daga bikarmeistara Arsenal og
Englandsmeistara Manchester
United í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar á Villa Park um
hádegisbil í dag.
Reuters
Verður Thierry Henry í byrjunarliði Arsenal, eða mun hann
verma varamannabekkinn eins og í fyrra gegn Man. Utd.?
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Úrvalsdeild, Intersportdeildin, úrslit –
annar leikur:
Keflavík: Keflavík – Snæfell......................17
Mánudagur:
Þriðji leikur:
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík......19.15
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin, 8 liða
úrslit:
Seltjarnarnes: Grótta/KR – Stjarnan .16.30
Vestmannaeyjar: KA/Þór – ÍBV...............13
Víkin: Víkingur – Valur.........................16.15
1. deild karla:
Akureyri: Þór A. – FH...............................16
Vestmannaeyjar: ÍBV – Afturelding........16
Víkin: Víkingur – Breiðablik ................18.30
Sunnudagur:
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin, 8 liða
úrslit, annar leikur:
Kaplakriki: FH – Haukar .....................19.15
Vestmannaeyjar: ÍBV - KA/Þór ...............12
Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deildin:
Ásgarður: Stjarnan – ÍR.......................16.15
Ásvellir: Haukar – KA ..........................16.15
Seltjarnarnes: Grótta/KR – Fram.......16.15
Hlíðarendi: Valur – HK ........................16.15
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikarkeppnin
Efri deild karla, B-riðill:
Fífan: Stjarnan – ÍA...................................14
Neðri deild karla, A-riðill:
Reykjaneshöllin: Víðir – ÍH ......................11
Leiknisvöllur: BÍ – Fjölnir ........................16
Neðri deild kvenna:
Boginn: Tindastóll – Þróttur R. ...........15.15
Sunnudagur:
Efri deild karla, A-riðill:
Fífan: Njarðvík – Þór.................................13
Neðri deild karla, B-riðill:
Leiknisvöllur: Númi – KFS.......................14
Egilshöll: ÍR – Breiðablik..........................20
Neðri deild karla, C-riðill:
Fífan: Huginn – HK ...................................15
Mánudagur:
Efri deild karla, B-riðill:
Reykjaneshöllin: FH – Stjarnan...............20
Neðri deild karla, A-riðill:
Egilshöll: Leiknir R. – Fjölnir .............20.30
Efri deild kvenna:
Laugardalur: ÍBV– KR .............................19
Reykjavíkurmót kvenna, neðri deild:
Egilshöll: HK/Víkingur – ÍR................18.30
SKÍÐI
Skíðamót Íslands
Laugardagur:
Keppni í svigi fer fram á Siglufirði.
Keppt verður í boðgöngu karla og
kvenna á Ísafirði kl. 13. Verðlaunaafhend-
ing fer fram á Silfurtorgi kl. 17.
BLAK
Laugardagur:
Úrslitakeppni kvenna, fyrri leikir:
Hagaskóli: Þróttur R. - HK..................13.30
Neskaupstaður: Þróttur N - KA...............15
Úrslitakeppni karla, fyrri leikir:
Hagaskóli: ÍS - HK.....................................16
Ásgarður: Stjarnan - Þróttur R. ..........16.30
Sunnudagur:
Úrslitakeppni kvenna, seinni leikur:
Digranes: HK - Þróttur R. ........................14
JÚDÓ
Vormót Júdósambands Íslands fer fram í
dag kl. 11 í húsakynnum Júdófélags
Reykjavíkur í Ármúla 17a.
BADMINTON
Íslandsmótið verður um helgina í TBR-
húsinu. Úrslitaleikir fara fram kl. 13.30 á
morgun, sunnudag.
FIMLEIKAR
Áhaldafimleikamót verður í Íþróttamið-
stöðinni Björk kl. 14 í dag. Keppt í þrepum
íslenska fimleikastigans.
UM HELGINA