Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 9
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl-
mann á þrítugsaldri í sex mánaða
fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðs-
bundið, fyrir líkamsárás á veitinga-
húsi í Sandgerði. Sló hann mann í
andlitið með bjórglasi sem brotnaði
við höggið.
Sá sem fyrir árásinni varð skarst á
nefi, hlaut djúpan skurð vinstra meg-
in á efri vör og smáskurð á enni. Sak-
borningurinn var dæmdur til að
greiða fórnarlambinu rúmlega 340
þúsund krónur í bætur, auk máls-
kostnaðar.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs-
dóms Reykjaness í málinu. Í forsend-
um héraðsdóms segir, að árásin hafi
verið með öllu tilefnislaus og hrotta-
fengin og hefði hæglega getað leitt til
stórkostlegra líkamsmeiðsla og ör-
kumla. Í ljósi þess hversu háskaleg
árásin var þótti ekki fært að skilorðs-
binda refsingu sakborningsins í heild
sinni.
Í fangelsi fyrir líkamsárás
INDRIÐI Þorláksson ríkisskattstjóri
segir skyldur erlendra fyrirtækja sem
starfa hér á landi til að greiða skatta,
hinar sömu og innlendra fyrirtækja.
Í yfirlýsingu frá Ríkisskattstjóra í
gær segir að þessar skyldur taki m.a.
til staðgreiðslu af launum erlendra
starfsmanna, sem eru skattskyldir hér
á landi skv. 3. gr. tekjuskattslaganna
óháð því hvort launþeginn starfar hér
lengur eða skemur.
Erlend fyrirtæki með
sama rétt og innlend
„Skattyfirvöld framfylgja því að fyr-
irtæki hér á landi fari að settum
reglum án tillits til þess hvort innlend
eða erlend fyrirtæki eiga í hlut. Skatt-
yfirvöld eru bundin trúnaði um mál
einstakra skattaðila innlendra sem er-
lendra og tjá sig ekki um þau opinber-
lega né gagnvart þriðja aðila. Erlend
fyrirtæki, sem starfa hér á landi, hafa
sama rétt og innlend fyrirtæki til að
skattamál þeirra fái málefnalega með-
ferð hjá skattyfirvöldum í samræmi
við gildandi málsmeðferðarreglur.
Skattaðili, sem greinir á við skatt-
yfirvöld um einstök mál eða málsatriði,
á þess kost að leita eftir úrskurði yf-
irskattanefndar og eftir atvikum dóm-
stóla um þann ágreining. Meðan hans
er beðið ber þeim að fara að ákvörð-
unum skattyfirvalda. Ágreiningi sem
uppi er ber að beina til réttra úrskurð-
araðila. Hann getur ekki verið skýring
eða afsökun fyrir því að ekki sé farið að
löglega gefnum fyrirmælum skattyfir-
valda,“ segir í yfirlýsingu ríkisskatt-
stjóra.
Ríkisskattstjóri
Sömu skyld-
ur og hvíla
á innlendum
fyrirtækjum
NÁNAST jafnmargir lands-
menn eru fylgjandi og andvígir
því að efla frekar sérsveit lög-
reglunnar með því að bæta 16
sérsveitarlögreglumönnum við
þá 21 sem fyrir eru, eins og til-
laga Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra gerir ráð fyrir.
Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi
Gallup.
Rösklega 45% eru fylgjandi en
rúmlega 43% eru andvíg og
11,5% eru hvorki fylgjandi né
andvíg því að efla sérsveit lög-
reglu.
Gallup segir, að þegar viðhorf
fólks séu skoðuð eftir bakgrunni
komi í ljós að ekki sé marktækur
munur á viðhorfum eftir kyni,
aldri, menntun eða búsetu. Tals-
verður munur sé hins vegar á
viðhorfum eftir því hvaða flokk
fólk segist ætla að kjósa. Rúm-
lega 63% þeirra sem styðja Sjálf-
stæðisflokkinn, tæplega 54%
kjósenda Framsóknarflokksins,
32% stuðningsfólks Samfylking-
arinnar og tæplega 29% þeirra
sem styðja Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð séu fylgjandi því
að efla sérsveit lögreglunnar.
Álíka marg-
ir fylgjandi
og andvígir
því að efla
sérsveitina
REYKJAVÍKURVEGI 66 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 565 4100 - FAX 565 2580
Borðstofusett FRANCY
Petra borð 120 x 80 stækkun 2 x 30 cm og 4 stólar
Francy STGR. kr. 47.700
Nýtt frá
Kjóldragtir - pilsdragtir
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Flottir toppar
flottir litir
stærðir 36-56
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030.
Opið mán–fös. frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-16
Laugavegi og Smáralind
www.drangey.is
Nytsamar fermingargjafir
Seðlaveski með
nafngyllingu
Skartgripaskrín -
„Bjútý“ box -
Ferðatöskur
Laugavegi 101, sími 5521260
Höfum opnað brúðarkjólaleigu
Verið velkomin
Opið í dag frá kl.10-17
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið i dag kl. 10 - 14
Útsala - Lagersala
50% afsláttur
Tilboðsslár kr 1000 eða 3000
ÚTSÖLULOK
Síðasti dagur útsölunnar - Mikill afsláttur.
Erum að taka upp glæsilega microboli, toppa og sett í
sumarlitum.
Hraunbæ 119 – Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00 – 18:00
Opið laugardaga kl. 11:00 – 16:00
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag frá kl. 12-17 í Síðumúla 35 – 3. hæð
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
Silkipeysur, lítil númer ..kr. 1.900
Silkináttfatnaður frá .....kr. 1.900
Stutterma silkipeysur ...kr. 2.500
Langerma silkipeysur ...kr. 3.500
Silki-peysusett .............kr. 6.500
Organzadúkar .............kr. 4.000Engin kort Lægra verð
Ljóðasamkeppni
MENOR og HEIMA ER BEZT 2004
MENOR efnir til samkeppni í ljóðagerð í vetur í samstarfi við
tímaritið HEIMA ER BEZT.
Skilafrestur í keppnina er til 1. maí nk.
en áætlað er að dómnefnd ljúki störfum seinni hluta maí.
Þriggja manna dómnefnd mun velja 3 bestu ljóðin til verðlauna.
Veitt verða vegleg bókaverðlaun.
Ljóðunum á að skila inn í lokuðu umslagi, ásamt réttu nafni
höfundar, heimilisfangi og símanúmeri.
Umslagið skal merkt með dulnefni höfundar.
Keppnin er öllum opin og ekki bundin við Norðurland.
Handritum í keppnina á að skila inn til:
MENOR
Pósthólf 384
602 Akureyri
merktum „Ljóðasamkeppni MENOR og HEIMA ER BEZT 2004“