Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið í dag frá kl. 12-16 og sunnudag frá kl. 13-16
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 R, sími 517 0220, netsalan@itn.is
Legan 251, lágþekja Legan 410, háþekja
Munið Viking fellihýsin - landsins
langbesta verð 695.000
með bremsum.
Landsins mesta úrval af húsbílum
SÝNUM Í DAG OG SUNNUDAG VINSÆLUSTU
HÚSBÍLANA Á SÍÐASTA ÁRI
annars eðlis en samningar við einka-
aðila, það sé með öðrum orðum ekki
verið að einkavæða eða fela einkaað-
ilum framkvæmdina. Hins vegar sé
það algengt viðhorf að sjálfseignar-
stofnanir, í ljósi þess að arður sem
verði til í rekstri þeirra sé ekki
greiddur út, geti veitt þjónustuna
með hagkvæmari hætti en til dæmis
hlutafélög.
Þetta segir Þór vera á misskiln-
ingi byggt. Líta beri á samninga við
sjálfseignarstofnanir eins og samn-
inga við einkaaðila og í þeim tilvik-
um þar sem tekjur sjálfseignarstofn-
ana komi að mestu frá opinberum
aðilum hafi þessum stofnunum
óbeint verið falið að fara með al-
mannafé og fara þá með eignarhald
á fjármunum án þess að vera raun-
verulegir eigendur. Þá segir Þór
ekki hægt að færa nein rök fyrir því
að sjálfseignarformið sé hagkvæm-
ara en hlutafélagaformið, enda
mætti þá allt eins halda því fram að
ríkisstofnanir væru hagkvæmari en
einkafyrirtæki.
Ríkisstofnanir fái
nafn með rentu
Þór segir aðstæður og umhverfi
margra sjálfseignarstofnana hafa
breyst umtalsvert á undanförnum
árum, og nefnir í því sambandi með-
al annars að nýleg inngrip í rekstur
sjálfseignarstofnunar SPRON hljóti
að vekja ugg hjá þeim sem hafi talað
fyrir sjálfseignarforminu. Segja
Þá gagnrýnir hann hugmyndir um
að hið opinbera setji á fót sjálfseign-
arstofnanir sem séu í raun nýjar rík-
isstofnanir.
Þór segir að tæplega 300 sjálfs-
eignarstofnanir séu starfandi hér á
landi, margar hverjar með umtals-
verðar eignir og umsvif. Þær starfi
meðal annars að öldrunarþjónustu,
heilbrigðisþjónustu, félagsmálum,
skólamálum og fjármálaþjónustu.
Margar njóti greiðslu frá ríkissjóði
til að standa undir hluta eða bróð-
urparti rekstrarins.
Misskilningur um
sjálfseignarstofnanir
Að sögn Þórs hafa nýir markaðir
opnast, til að mynda á sviði heil-
brigðis- og menntamála, vegna
breyttra áherslna og viðhorfa í
rekstri opinberrar þjónustu. Með
nýjum verkefnum hafi sjálfseignar-
stofnanir sprottið upp sem samn-
ingsaðilar ríkis eða sveitarfélaga og
þá yfirleitt með beinum samningum
án undangengis útboðs. Fyrir þessu
virðist einkum tvær ástæður, annars
vegar að hið opinbera telji að samn-
ingar við sjálfseignarstofnanir séu
megi að á einni nóttu geti sjálfseign-
arstofnanir breyst í hálf-opinber fyr-
irtæki. Hann nefnir einnig að eitt
mikilvægasta tækið til hagræðingar
á markaði séu möguleikar á sam-
rekstri og ef til vill sameiningu. Í
mörgum tilfellum henti sjálfseignar-
formið afar illa til slíkra breytinga.
Þekking fyrirtækjastjórnenda á
sjálfseignarfyrirkomulaginu sé einn-
ig lítil, sem geri það að verkum að
þeir laðist síður að stjórnun þessara
stofnana. Þetta valdi því að þær njóti
síður þekkingar og reynslu úr fyr-
irtækjageiranum.
Þór Sigfússon segir hugsanlegt að
bregðast á þrennan hátt við þeim
vanda sem hann lýsir. Í fyrsta lagi sé
hyggilegt fyrir sjálfseignarstofnanir
að endurmeta rekstur sinn og skoða
stjórnarhætti sína og rekstrarform
með hliðsjón af þeim breytingum
sem orðið hafi. Í öðru lagi kunni að
henta sjálfseignarstofnunum að
starfa sem eignarhaldsfélög, en
stofnanirnar sem þau reki verði
starfræktar á hlutafélagsgrunni.
Í þriðja lagi verði að hvetja til
þess að nýjar ríkisstofnanir, sem
stjórnvöld hyggist setja á laggirnar,
fái nafn með rentu en ekki sé reynt
að fegra þær með því að nefna þær
sjálfseignarstofnanir þar sem það
veiki þær raunverulegu sjálfseignar-
stofnanir sem fyrir séu. Nefnir hann
í þessu sambandi hugmyndir félags-
málaráðherra um stofnun sjálfseign-
arstofnunar um innflytjendamál.
Sjálfseignarstofnanir
gallað rekstrarform
Verslunarráðið telur hlutafélagaformið hafa sýnt yfirburði sína
AÐGERÐIR og nýjar hugmyndir stjórnvalda um sjálfseignarstofnanir hljóta
að vekja spurningar um stöðu sjálfseignarstofnana almennt og hvort þær séu
hentugt eða æskilegt form á rekstri, að því er segir í pistli Þórs Sigfússonar,
framkvæmdastjóra Verslunarráðs Íslands, á vef ráðsins. Í pistlinum kemur
fram að hlutafélagaformið hafi sýnt yfirburði sína gagnvart öðrum fé-
lagsformum og leikreglur þess séu þekktar. Það sé því að mörgu leyti farsæl-
ast að þetta form verði ráðandi við stofnun nýrra félaga á ólíkum sviðum.
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra hefur þegar skipað nefnd sem
hefur það verkefni að athuga með
hvaða hætti bændur geti selt afurðir
sínar beint frá búunum. Guðni segist
í samtali við Morgunblaðið telja
stranga matvælalöggjöf nauðsyn-
lega en kveðst vilja kanna hvort ekki
sé hægt að auka sveigjanleika svo
bændur geti selt heimagerðar land-
búnaðarafurðir beint til neytenda
líkt og þekkist víða í Evrópu.
„Við þurfum að skapa meiri fjöl-
breytni og leyfa þeirri sérþekkingu
sem til er í sveitum landsins að njóta
sín. Sveitafólkið er mjög vel að sér í
matvælagerð og margir bændur
hafa komið til mín og sýnt mér ým-
islegt sem þeir eru að búa til heima
fyrir sitt fólk. Áhugi hefur verið
meðal bæði innlendra og erlendra
aðila að fá þetta keypt, en vegna
stranga reglna hefur það verið mjög
erfitt. Þess vegna skipaði ég þessa
nefnd í von um að það myndi liðka
fyrir þessari þróun.,“ sagði Guðni.
Styrkir sveitirnar
„Ég sé fyrir mér að þetta styrki
hlut sveitanna í þjóðfélaginu, þetta
getur skapað nýja þróun og nýja
menningu. Fólk sem ferðast um
landið kynnist sveitafólkinu betur.
En afurðirnar verða að vera fram-
leiddar undir miklu öryggi.
Við þekkjum það með mjólkina,
hún er gerilsneydd af heilbrigðis-
ástæðum og ég held að til dæmis
læknarnir myndu nú ekki vilja
breyta því af öryggisástæðum. Við
erum mjög ströng og eigum að vera
það en það þarf kannski meiri
sveigjanleika,“ segir Guðni.
Í nefndinni, sem skipuð var 10.
febrúar sl., sitja Ingibjörg Ólöf Vil-
hjálmsdóttir lögfræðingur í land-
búnaðarráðuneytinu og formaður
nefndar, Marteinn Njálsson formað-
ur Félags ferðaþjónustubænda,
Baldvin Valgarðsson fagstjóri á
matvælasviði Umhverfisstofnunar,
Laufey Haraldsdóttir dýralækir og
kennari við Hólaskóla og Bjarni
Guðmundsson prófessor við Land-
búnaðarháskólannn á Hvanneyri.
Ekki er tekið fram í tilkynningu um
nefndarskipan hvenær nefndinni er
ætlað að skila inn tillögum að úrbót-
um. Henni er uppálagt að hafa hlið-
sjón af reglum sem gilda um við-
skipti með heimagerðar
landbúnaðarvörur í nágrannalönd-
unum.
Kannað hvort hægt
sé að leyfa sölu
heimagerðra búvara
Nefnd skipuð um
málið í febrúar
Morgunblaðið/Kristinn
Frá landbúnaðarsýningu. Ráðherra landbúnaðar lætur kanna hvort hægt
sé að auka sveigjanleika matvælalöggjafar svo bændur geti selt afurðir
beint af búum sínum. Nefnd er nú að störfum sem fjallar um þetta.
ingar bíða iðinna handa, því skipin
þurfa að vera klár í slaginn þegar
landfestar eru leystar.
Þessi erlendi sjómaður lét það
bíða að skjótast í land þegar hann
vann í skipi sínu sem lá við bryggju
í Reykjavíkurhöfn.
ÞVÍ er ekki að heilsa að verkum
sjómanna sé lokið þegar skip leggj-
ast að bryggju. Þrátt fyrir að tím-
inn í landi sé gjarnan notaður til
hvíldar og endurnæringar er að
mörgu að hyggja og ærin verkefni
liggja fyrir. Viðgerðir og lagfær-
Morgunblaðið/Ásdís
Ekki setið auðum höndum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fyrrverandi starfs-
mann Sölunefndar varnarliðseigna
í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að fjárdrátt upp á 2,3 millj-
ónir króna auk skalafals, umboðss-
vika og skjalamisnotkunar.
Meðal þess sem ákærði var sak-
felldur fyrir var sala á tveimur flat-
vögnum í eigu sölunefndarinnar.
Breytti hann staðgreiðslukvittun
vegna annarra viðskipta frá Sölu-
nefndinni þannig að frumrit hennar
sýndi sölu upp á 600 þúsund krón-
ur en afrit hennar í bókhaldi sölu-
nefndarinnar sýndi 6 þúsund krón-
ur. Mismuninn, 594 þúsund krónur
dró ákærði sér.
Þá dró ákærði sér á svipaðan
hátt 820 þúsund krónur með því að
selja þvottavélar og ýmis tæki fyrir
rúma milljón kr. og gefa kaupanda
kvittun úr gömlu og útrunnu kvitt-
anahefti með þeirri upphæð, en í
bókhald sölunefndar fór kvittun
upp á 250 þúsund krónur.
Að mati héraðsdóms var aðferð
ákærða við fjárdráttarbrotin talin
sýna einbeittan brotavilja hans en
dómurinn tók tillit til þess að
ákærði hafði aldrei gerst sekur um
brot gegn hegningarlögum áður.
Þá sýndi hann viðleitni til að láta af
hendi hagnað af hluta ólöglegra
viðskipta sinna.
Ákærði játaði brot sín skýlaust.
Málið dæmdi Þorgeir Ingi Njáls-
son héraðsdómari. Verjandi
ákærða var Örn Clausen hrl og
sækjandi Eyjólfur Kristjánsson
fulltrúi sýslumannsins á Keflavík-
urflugvelli.
Dæmdur fyrir
fjárdrátt hjá
Sölunefndinni