Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 68
ÍÞRÓTTIR 68 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ REINER Calmund, framkvæmdastjóri Bayer Leverkus- en, segist vilja sjá Rudi Völler, landsliðsþjálfara Þýska- lands í knattspyrnu, setjast í sinn stól þegar hann hættir stjórnunarstörfum hjá Leverkusen 2006. „Þegar ég dreg mig í hlé er Rudi besti kosturinn til að taka við,“ sagði Calmund í gær í viðtali við þýska blaðið Express. „Hann er efstur á óskalistanum og hefur verið það lengi. Ástæðan er einföld – hann er maðurinn sem getur náð árangri, þar sem hann hefur yfirburðaþekkingu á knattspyrnu og er vel liðinn og vinsæll.“ Völler lauk glæsilegum keppnisferli sínum sem leik- maður Leverkusen 1996, en gerðist síðan tæknilegur ráðgjafi liðsins þar til hann tók við starfi landsliðsþjálf- ara af Berti Vogts 2000. Samingur hans við þýska knattspyrnusambandið rennur út eftir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi 2006 en gríðarlegur áhugi er á keppninni þar í landi á meðal stuðningsmanna þýska landsliðsins. Vill fá Rudi Völler til Bayer Leverkusen LANDSLIÐ kvenna í knattspyrnu, skipað leik- mönnum undir 19 ára aldri, leikur í riðli með Sviss, Írlandi og Grikklandi í undankeppni Evrópukeppni 19 ára liða, sem hefst í haust. Dregið var í riðla í gær. Stúlkurnar sem skipa liðið eru fæddar 1986 og síðar. Ólafur Þ. Guðbjörnsson er þjálfari liðsins. Þess má geta til gamans að 19 ára stúlknaliðið, skipað leikmönnum fæddum 1985 og síðar, var ósigrað á síðasta ári og tryggði sér rétt til að leika í milliriðli, sem verður í Póllandi 19.–25. apríl, þar sem leikið verður við Pólland, Þýskaland og Ung- verjaland. Ef Ísland nær efsta sætinu þar tryggir liðið sér rétt til að leika í úrslitakeppni EM í Finn- landi í júlí. Á þessu sést að það verður síðan nýtt lið, annar aldursflokkur, sem fer á ferðina næsta haust. Stúlkurnar leika við Sviss, Írland og Grikkland FÓLK  BJARNI Þór Viðarsson, drengja- landsliðsmaður í knattspyrnu úr FH, dvelur í rúma viku hjá And- erlecht í Belgíu, og síðan í nokkra daga hjá Everton í Englandi. Þetta skolaðist aðeins til í frétt af ferða- lögum Bjarna í blaðinu í gær en hann fer utan á morgun.  INGA Birna Friðjónsdóttir, 17 ára stúlka úr Tindastóli, er gengin til liðs við úrvalsdeildarlið Þórs/ KA/KS. Inga Birna varð marka- hæst í 1. deild í fyrra, skoraði þá 24 mörk í 12 leikjum fyrir Tindastól og lék ennfremur með stúlkna- landsliðinu.  JÓHANN Helgason, leikmaður með úrvalsdeildarliði KA í knatt- spyrnu, ristarbrotnaði á æfingu í vikunni og verður tæpast orðinn leikfær þegar Íslandsmótið hefst um miðjan maí.  BJARNÓLFUR Lárusson og Ian Jeffs skoruðu mörk ÍBV sem gerði jafntefli við portúgalska 2. deild- arliðið Imortal, 2:2, í fyrradag. Eyjamenn dvelja í æfingabúðum í Portúgal þessa dagana.  CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, var í gær útnefndur knattspyrnustjóri marsmánaðar. Leikmaður mánaðarins er Finninn Mikael Forssell, miðherji Birming- ham, sem er í láni hjá liðinu frá Chelsea. Hann skoraði sex mörk í fimm leikjum.  BARCELONA reynir nú allt til að fá franska landsliðsmanninn David Trezeguet til sín frá Juventus og segir spænska blaðið Marca að hon- um hafi verið boðnar 250 millj. ísl. kr. í árslaun ef hann skrifi undir þriggja ára samning. ÚRVALSDEILDARLIÐ Víkings í knattspyrnu karla tapaði í gær 3:1 gegn rússneska úrvalsdeild- arliðinu Cobonik en liðin áttust við í Antalya í Tyrklandi. Þor- valdur Már Guðmundsson skor- aði mark Víkings. Aðalsteinn Guðjónsson fram- kvæmdastjóri Víkings sagði að markvörðurinn Martin Trancík frá Slóvakíu, sem er til reynslu hjá félaginu hefði leikið vel það sem af er æf- ingaferðinni í Tyrklandi en hann er 28 ára gamall. „Við höfum ekki tekið ákvörðun um hvort samið verður við Trancík og væntanlega verður ekkert gert í þeim málum fyrr en við komum heim. En hann hefur staðið sig vel og er góður markvörður.“ Á miðvikudaginn lék Víkingur gegn Qizilqum frá Kasakstan og tapaði íslenska liðið, 1:0. Martin Trancík hefur staðið sig vel í Tyrklandi Platini sagði í viðtali við vefFIFA að hann óttaðist að inn- an fárra ára færi að draga úr vin- sældum knattspyrnunnar ef blaðinu yrði ekki snúið við. „Við þurfum að opna umræðuna um hvernig sem flestir eigi mögu- leika á að stunda íþróttina. Er í lagi að sum félagslið tefli nánast ein- göngu fram erlendum leikmönnum? Er í lagi að Beveren skuli vera með heila tylft af Afríkubúum í sínu liði – í Belgíu? Hvers vegna er félagið ennþá kallað Beveren og hvers vegna spilar það ennþá í Belgíu? Ég spyr mig svona spurninga æ oftar,“ sagði Platini, sem jafnframt sakar evrópsk félög um að ræna hæfileikaríkum piltum frá Afríku. „Evrópufélögin sem setja á stofn æfingamiðstöðvar í Afríku gera það af eigin hagsmunum, ekki til að hjálpa til við að þróa afríska knatt- spyrnu. Afríkubúar ættu sjálfir að taka frumkvæðið í því að þróa og þroska sína knattspyrnumenn, til dæmis með því að nota fjármunina sem þeir fá frá FIFA. Ef þetta heldur svona áfram, hver á þá að sinna krökkunum í Evrópu? Hvers vegna ætti ungur strákur í Beveren að leggja á sig það erfiði að reyna að verða betri knattspyrnumaður, ef hann á enga möguleika á að spila með knatt- spyrnuliði bæjarins? Verðum að fara yfir reglurnar á ný Platini sagði að hann hefði sjálfur aldrei orðið atvinnumaður í knatt- spyrnu ef hann hefði ekki fengið tækifæri til þess að spila með sínu bæjarliði þegar hann var strákur. „Ég tel að knattspyrnuyfirvöld þurfi að setjast niður á ný með Evrópubandalaginu og fara yfir reglurnar um óheft flæði vinnuafls. Ef við lítum nokkur ár aftur í tím- ann sjáum við svo ekki verður um villst að Evrópusambandið og íþróttaforystan höndluðu þessi mál ekki rétt. Við gleymdum að leggja línurnar fyrir knattspyrnu framtíð- arinnar, bæði á fjárhagslegan hátt og hvernig ætti að standa að fé- lagaskiptum á milli landa.“ Platini sagði að knattspyrnufélög víðs vegar um Evrópu hefðu geysi- lega mikla þjóðfélagslega þýðingu. „Það eru knattspyrnusamböndin og félögin, sem víða hafa að miklu leyti verið skipuð sjálfboðaliðum, sem hafa fengið börn til að snúa sér að knattspyrnunni í stað þess að slæp- ast um á götum úti. Núna eru fé- lögin farin að sækja sér efniviðinn annað og hvað verður þá um þessi börn?“ Stóru liðin vilja ekki spila í Gdansk og Reykjavík Platini varð á sínum tíma Evr- ópumeistari með Juventus á Ítalíu og lék þá meðal annars gegn Vals- mönnum á Laugardalsvellinum, ár- ið 1986. Þá hét keppnin Evrópu- keppni meistaraliða, og hann er óhress með hvernig Meistaradeild Evrópu hefur þróast. „Það er synd að bestu lið Evrópu skuli nú aðeins leika hvert gegn öðru. Þegar ég lék með Juventus, spiluðum við í Gdansk og í Reykja- vík, í fyrstu umferð, gegn svoköll- uðum „smáþjóðum“ þar sem vell- irnir voru troðfullir og stemningin stórkostleg. Nú vilja stóru félögin ekki lengur leika gegn litlu félögun- um og telja að með því að mætast stöðugt innbyrðis, leysi þau sín fjárhagslegu vandamál. En um þetta á knattspyrnan ekki að snú- ast. Er það rétt að meistaralið allra þjóða skuli ekki taka þátt í sömu keppninni?“ Hann er þó ekki á því að of mikil knattspyrna muni smám saman leiða til minnkandi áhuga. „Sjónvarpsstöðvum fjölgar stöð- ugt. Ef leikjum fjölgar, hafa sjón- varpsáhorfendur úr meira að velja. Þetta snýst um gæði. Eftir því sem leikurinn er áhugaverðari, því fleiri horfa á hann, og þar með eykst gildi hans. Áhuginn beinist að þrennu, deildakeppni viðkomandi lands, Meistaradeild Evrópu og heimsmeistarakeppninni. Urðum að stækka heims- meistarakeppni félagsliða Platini var spurður hvernig stæði þá á því að FIFA hefði beitt sér fyrir því að stækka heimsmeistara- keppni félagsliða en til þessa hafa meistaralið Evrópu og Suður-Am- eríku leikið árlega um heimsbik- arinn. Frá og með árinu 2005 leika Morgunblaðið/Árni Sæberg Michel Platini, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, kom til Íslands á síðasta ári en þar var Frakkinn heiðursgestur í loka- hófi íslenskra knattspyrnumanna á Broadway í Reykjavík. Michel Platini, fyrrverandi knattspyrnukappi, stjórnarmaður í FIFA og UEFA, hefur áhyggjur af þróun knattspyrnunnar „Hver á að sinna krökkunum í Evrópu?“ MICHEL Platini, frægasti knattspyrnumaður Frakklands á sínum tíma og núverandi stjórnarmaður í Alþjóða knattspyrnusamband- inu, FIFA, og Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, hefur miklar áhyggjur af þróun mála í íþróttinni. Sérstaklega hvað varðar óheft- an innflutning á erlendum leikmönnum og takmarkaða möguleika barna og unglinga til að ná langt í knattspyrnunni á sínum heima- slóðum. ’ Þegar ég lék meðJuventus, spiluðum við í Gdansk og í Reykjavík, í fyrstu umferð, gegn svo- kölluðum „smáþjóð- um“ þar sem vell- irnir voru troðfullir og stemningin stór- kostleg. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.