Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.plusferdir.is Benidorm 29.900 kr. N E T á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur á Gemelos XXII, Gemelos XX og Levante Club, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Enginn barnaafsláttur. NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is 15. -22. apríl UPPLÝSINGUM um fjárhags- stöðu Eddu útgáfu, sem lágu til grundvallar kaupum Ólafsfells ehf., fyrirtækis Björgólfs Guðmunds- sonar, á 68% hlut í maí 2002, var verulega ábótavant. Að sögn for- stjóra Eddu útgáfu, Páls Braga Kristjónssonar hefur verið ákveðið að fá óháðan endurskoðanda til að fara yfir fjárhagsupplýsingar sem fyrrverandi eigendur félagsins lögðu fram þegar hluturinn var seldur. Hann segir athuganir hafa leitt í ljós að bráðbirgðauppgjör Eddu út- gáfu (þá Eddu – miðlunar og út- gáfu) fyrir árið 2001, sem var það skjal sem lá til grundvallar kaupum núverandi eigenda á meirihluta í fé- laginu, hafa verið í litlu samræmi við sanna fjárhagsstöðu félagsins. Ofmat eigna hafi valdið því að efna- hagsreikningur félagsins sýndi 150–200 milljónum króna betri eignastöðu en raun var. Að auki hafi matsreglur birgða félagsins, sem núverandi eigendur hafi tekið upp, leitt til 100–150 milljóna króna niðurfærslu. Samanlagt hafi fjár- hagsstaðan því verið 250–300 millj- ónum króna verri en gert var ráð fyrir í maí 2002. Páll Bragi segir ljóst að fyrrverandi stjórnendum og stjórn félagsins hafi verið kunn- ugt um óreiðu í bókhaldinu. Hlutafé fært niður um allt að 212 milljónir króna „Við viljum að óháður endurskoð- andi fari í þetta mál, þetta eru bara orðnir það miklir fjármunir sem um er að tefla. Það er grafalvarlegt mál. Við fellum enga dóma. En það liggur fyrir að við fengum ekki rétt- ar upplýsingar.“ Hlutafé Eddu verður aukið um allt að 400 milljónir króna, fáist samþykki hluthafafundar í lok apr- íl. Mál og menning – Heimskringla ehf. er næststærsti hluthafi Eddu með tæp 32%. Efnahagur Eddu hefur staðið höllum fæti en skuldsetning er gríðarleg. Árleg fjármagnsgjöld nema um 100 milljónum króna en áætluð velta félagsins á þessu ári nemur 1,3 milljörðum króna. Þegar Ólafsfell keypti sig inní Eddu lagði það til 100 milljónir króna í nýtt hlutafé. Fyrir um ári komu 100 milljónir króna inn í fyrirtækið til viðbótar. Allt þetta hlutafé er uppurið og nú er svo komið að eigið fé félagsins er neikvætt. Til stendur að hlutafé félagsins verður niðurfært um allt að 212 milljónir króna. „Þar að auki hefur komið til stórkost- legra sjálfskuldaá- byrgða og útgjalda stærsta hlutafans. Skýrsla endurskoð- andans verður gerð vegna þess að það er eindreginn vilji þeirra hlut- hafa sem hafa lagt inn fé og vilja leggja meira af mörkum til félags- ins að öll kurl komi til grafar. Það er allt fé uppétið sem sett hefur verið inn í félagið á undanförnum árum og þess vegna erum við að leggja til þessa niðurfærslu á hluta- fénu. Ef eitthvað kemur í ljós í þessari skýrslu endurskoðandans sem við vitum ekki þegar þá verður tekin ákvörðun um framhaldið. Auðvitað er það ekki vilji neins að fara í málaferli. En menn geta ekki fríað sig ábyrgð. Við erum að eiga við óreiðu fortíðarinnar, “ Reksturinn kominn í rétt horf Páll Bragi segir það bjargfasta skoðun sína og hluthafanna að reksturinn sé nú kominn í rétt horf. „Krafan um aukið hlutafé kemur frá stærsta hluthafanum. Þar er komin yfirlýsing frá honum um að hann ætli að standa við bakið á fyr- irtækinu.“ Páll Bragi segir ofmat eigna ekki eina vandann sem félagið hefur glímt við síðustu tvö árin. „Það sem haml- aði okkur í upphafi var það að allt upp- lýsingakerfi félagsins var í molum. Tölvu- kerfi, bókhald og ann- að var hreinlega í rusli. Það var ekki fyrr en síðar að við komumst að þessum ágöllum í eignamat- inu. Af því hefur auð- vitað skapast miklu meira rekstrartap.“ Spurður að því hvort Ólafsfell hefði ekki komið með hlutafé inn í fyrirtækið á sínum tíma hefði sönn fjárhagsstaða verið ljós segist hann ekki geta sagt til um það. Hins veg- ar sé nú ljóst að meira hlutafé hefði þurft inn í fyrirtækið strax þegar nýir eigendur tóku við því. Viðskiptin hefðu orðið á öðrum kjörum „Það eru ýmis önnur sjónarmið sem ráða ríkjum þegar ákveðið er að setja fjármuni í menningar- fyrirtæki en önnur fyrirtæki. Það skilar sér á annan hátt heldur en það að fjárfesta t.d. í sápu- verksmiðju. En það er ómögulegt að fara út í umræðu um hvort eða ef, en viðskiptin hefðu allavega orð- ið á öðrum kjörum. Það var greitt stórfé fyrir hlutafé sem var keypt af fyrrverandi stjórnarformanni og Íslandsbanka og sett nýtt hlutafé á ákveðnu gengi. Þetta hefði allt orð- ið með öðrum hætti ef mönnum hefði verið ljóst hvernig í pottinn var búið. Það hefur valdið okkur stórum skaða að byrja á vitlausum reit,“ segir Páll Bragi. Páll Bragi segir hlutafjáraukn- inguna gleðitíðindi fyrir Eddu, enda hafi líklega á annað þúsund manns, höfundar, þýðendur, verk- takar, starfsmenn o.fl., beina hags- muni af því að fyrirtækið gangi vel. „Aðalmálið er að fyrirtækinu hefur verið komið á réttan kjöl. Hitt er fortíðin, en það verður bara ekkert frá henni flúið. Það er búið að breyta öllum hugsanahætti og verklagi hér í húsinu. Þótt ég segi í dag að við séum búin að koma rekstrinum í viðunandi horf þá er ennþá mikið að sækja. Það er ljósi punkturinn í þessu. Við erum búin að skapa réttan anda og það verður sótt áfram til að styrkja reksturinn enn frekar,“ segir Páll Bragi. Sóknarfæri í öðrum heimshlutum Hann segir aukningu hlutafjár vera síðasta skrefið í því ferli sem hófst með kaupum Ólafsfells á Eddu fyrir tveimur árum og hefur falið í sér verulegan niðurskurð, einföldun á stjórnkerfi, sölu eigna og fleira. „Núna erum við að taka síðasta skrefið. Við viljum ganga föstum fótum á jörðinni en verðum líka að beina sjónum okkar til stjarnanna. Það gerum við með er- lendri starfsemi. Það veltur mikið á að fyrirtækið hafi burði til að koma höfundunum á framfæri og gera það myndarlega. Ekki síst skipta samskipti erlendis máli. Þetta ger- ist ekki af sjálfu sér og gríðarlegt hagsmunamál fyrir höfundana að brjóta af sér þessa hlekki málsam- félagsins og smæðarinnar og kom- ast á stærri markaði. Við erum með örlítinn sprota sem heitir Edda UK og við munum flytja fregnir þaðan á þessu ári. Þetta eru ekki stórar fregnir en þarna er þó vaxtarbroddur. Þar að auki erum við að athuga með útrás til annarra heimshluta. Það er ekki hægt að fara af stað með stórar yf- irlýsingar í þeim efnum fyrr en við erum búin að búa þannig um hnút- ana að móðurskipið hérna heima sé að sigla öruggan sjó,“ segir Páll Bragi. Eiga við óreiðu fortíðarinnar Páll Bragi Kristjánsson Rekstri Eddu útgáfu hefur verið komið á réttan kjöl. Forstjóri félagsins segir fyrri eigendur félagsins hafa ofmetið eignir félags- ins um allt að 300 milljónir króna í gögnum sem lágu fyrir þegar Ólafsfell ehf. eignaðist meirihluta í félaginu fyrir tveimur árum. Forstjóri Eddu útgáfu segir mikla erfiðleika hafa blasað við nýjum eigendum LANDSVIRKJUN og stjórn Landeigendafélags Mývatns og Lax- ár hafa orðið sammála um að óska eftir því sameiginlega að bráða- birgðaákvæði um heimild til að hækka Laxárstíflu falli brott. Jafn- framt verður skipuð viðræðunefnd til að finna lausn í þessum efnum og ná- ist niðurstaða munu aðilar sameigin- lega óska eftir því við Alþingi að heimilað verði að láta meta umhverf- isáhrif þeirrar lausnar með laga- breytingu ef það þurfi til. Þetta kom meðal annars fram í ræðu Friðriks Sophussonar, for- stjóra Landsvirkjunar á samráðs- fundi fyrirtækisins í gær. Rifjaði hann jafnframt upp að drög að tillögu að matsáætlun fyrir hækkun inntaks- stíflu við Laxá III um 10 – 12 metra hefðu verið kynnt fyrri hluta sumars, en í ljósi athugasemda sem gerðar hefðu verið við matsáætlunina hefði þótt ástæða til að skoða betur laga- legar forsendur fyrir framkvæmd- inni með tilliti til laga um verndun Mývatns og Laxár. Sýndi hann jafnframt mynd af þeim áhrifum sem hækkun stíflunnar um átta metra hefði, en það þýddi lón sem yrði 0,2 ferkílómetrar að stærð. Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að átta metra stífluhæð dygði fyrir rekstur virkjunar sem slíkan. Ef hægt væri að finna lausn sem fæli í sér uppsetn- ingu á setlóni inn á hálendinu, sem tæki sandframburðinn frá Kráká að verulegu leyti þá dygði þetta minna mannvirki niðri við sjálfa virkjunina. Atli Vigfússon, formaður Landeig- endafélags Laxár og Mývatns, segir að jafnskjótt og bráðabirgðaákvæðið falli brott muni bæði Landsvirkjun og Landeigendafélagið lýsa því yfir að skipaðar verði viðræðunefndir til að leita lausna á rekstrarvanda Lax- árvirkjana. Landsvirkjun og stjórn Landeigendafélags Laxár Ákvæði um hækkun stíflu falli brott Þessi tölvuteikning sýnir lónshæð miðað við 8 metra háa stíflu í Laxá. LÖGREGLAN á Höfn í Hornafirði kærði sex ökumenn fyrir of hraðan akstur á þjóðvegi nr. 1 vestan við bæ- inn í gærdag. Þar af voru tveir á 130 kílómetra hraða. Að sögn lögreglu er umferðareftirlit venjulega aukið á þessum tíma árs þegar nær dregur vori og ökumenn freistast til að aka nokkuð yfir lögeglum hámarkshraða. Lítið skyggni var á vegum úti í gær. Sex kærðir fyrir hrað- akstur SÍÐARI umferð í 16 manna úrslit- um á Skákþingi Íslands var tefld í gærkvöld. Úrslit urðu þau að Hann- es Hlífar Stefánsson vann Sigurð Daða Sigfússon 1-0, samtals 2-0, Helgi Áss Grétarsson vann Sigur- björn Björnsson 1-0, samtals 2-0, Þröstur Þórhallsson sigraði Ingvar Þór Jóhannesson 1½-½, Bragi Þor- finnsson vann Ingvar Ásmundsson 1½-½, Stefán Kristjánsson sigraði Davíð Kjartansson 2-0, Snorri Bergsson og Jón G. Viðarsson skildu jafnir og heyja aukakeppni, sömuleiðis Þorsteinn Þorsteinsson og Sævar Bjarnason. Björn Þor- finnsson sigraði Kristján Eðvarðs- son 2-0. Aukakeppni verður tefld í dag og hefst kl. 9 en 8 manna úrslit hefjast kl. 16. Klukkan 13 hefst jafnframt keppni í kvennaflokki og í áskorenda- og opnum flokki. Teflt er í húsi Orkuveitu Reykjavíkur. Skákþing Íslands 8 manna úrslit í dag BROTIST var inn í húsnæði Hrað- frystihússins-Gunnvarar við Hnífs- dalsbryggju á Ísafirði í fyrrinótt og stolið þaðan 15–20 kílóum af reyktri ýsu. Ýsan var geymd í kæli og til stóð að selja hana. Lögreglan á Ísafirði fékk tilkynn- ingu um þennan þjófnað rétt fyrir kl. 10 í gærmorgun. Hún óskar eftir upplýsingum frá öllum þeim sem gætu gefið upplýsingar um grun- samlegar mannaferðir á þessu svæði eða öðrum þeim sem hafa vitneskju um verknaðinn. Stálu ýsu ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.