Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 48
MINNINGAR 48 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helga Stefáns-dóttir fæddist í Arnardrangi í Land- broti 14. janúar 1915. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Klaust- urhólum 27. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Stef- án Þorláksson, bóndi í Arnardrangi, f. í Þykkvabæ 15.8. 1877, d. í Þykkvabæ 31.12. 1967, og Mar- grét Davíðsdóttir húsfreyja, f. í Fagur- hlíð 21.11. 1891, d. í Þykkvabæ 26.2. 1966. Systkini Helgu eru: Pálína Margrét, f. 1913, Ingibjörg, f. 1914, d. 1991, Davíð, f. 1916, Katrín, f. 1920, d. 1982, Þorlákur, f. 1924, d. 2004, og Sigrún, f. 1930, d. 2000. Upp- eldisbróðir þeirra var Karl Bjarnason, f. 1918, d. 1994. Maður Helgu var Jón Skúlason, f. í Mörtungu á Síðu 16.8. 1904, d. á Kirkjubæjarklaustri 26.2. 1985. Foreldrar hans voru Skúli Jóns- son, bóndi í Mörtungu, f. í Blesa- hrauni 16.2. 1872, d. í Mörtungu 19.11. 1959, og Rannveig Eiríksdóttir hús- freyja, f. í Svínholti 19.1. 1877, d. í Reykjavík 10.11. 1958. Börn Helgu og Jóns eru: 1) Stefán Þorláksson, f. 9.1. 1940, d. 9.11. 1946, 2) Hilmar Sigurður Jónsson, f. 15.8. 1943, sambýliskona Soffía Guðrún Gunn- arsdóttir. 3) Skúli, f. 11.7. 1945. 4) Stefán, f. 11.11. 1946. 5) Ragnar, f. 15.2. 1948, maki Ásdís Eyrún Sigur- jónsdóttir, börn þeirra Sigurjón Fannar, f. 1980 og Helga Björg, f. 1987. 6) Elín Halla, f. 20.4. 1950, maki Guðbjörn Vilhjálmsson, þau skildu, börn þeirra Jón Helgi, f. 1975, Alda, f. 1976 og Hildur, f. 1982. 7) Ásta, f. 26.9. 1955, dóttir hennar Jóna, f. 1994. Útför Helgu fer fram frá Prestsbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ljúfum ferli lokið er, lífsins bók er skráð, upp þú skerð af akri hér, eins og til var sáð. Til ljóssins heima lífið snýr, langt með dagsverk þitt, Drottinn sem þér bústað býr, barnið þekkir sitt. Í margra huga er minning skær, og mynd í hjarta geymd. Stöðugt okkur stendur nær, stund sem ekki er gleymd. Nú komið er að kveðjustund, klökkvi hjartað sker, gengin ertu Guðs á fund sem góður líknar þér. (Kristján Runólfsson.) Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur, Björgvin Snorrason og fjölskylda. Látin er í hárri elli elskuleg kona, Helga Stefánsdóttir, húsfreyja að Þykkvabæ III í Landbroti. Okkar fyrstu kynni voru á vordegi í maí 1945 þegar ég kom með Jóni Skúla- syni eiginmanni hennar úr verinu til sumardvalar, eins og algengt var með unglinga í þá daga. Foreldrar mínir höfðu komið mér í umsjá þeirra hjóna sem vikapiltur á heim- ilinu til sumardvalar. Mér eru enn minnisstæðar móttökur hennar á hlaðinu í Þykkvabæ þegar hún faðm- aði mig að sér og bauð mig velkom- inn eins og nákominn, eftir 16 klukkustunda rútuferð frá Reykja- vík. Þannig voru allar hennar mót- tökur æ síðan. Fljótlega eftir komu mína að Þykkvabæ trúði ég Helgu fyrir því, kvíðafullur, að ég gæti ekki borðað hrossakjöt. Svaraði hún þá brosandi: „Það er allt í lagi, vinur, þú borðar bara kindakjöt.“ Fékk ég svo ávallt mitt kindakjöt, soðið saman með hrossakjötinu. Ég var svo í Þykkva- bæ 4 sumur í röð og hlakkaði alltaf til vorsins og fékk alltaf að fara úr skól- anum eilítið fyrr til þess að komast í sauðburð, vorréttir og fjallarekstur. Jón og Helga byrjuðu sinn búskap nokkru áður en ég kom til þeirra og voru Skúli og Hilmar þá á 1. og 3. ári. Starf mitt var fyrst og fremst alls- konar snúningar við heimilisstörfin og búskapinn. Ég var aldrei vakinn fyrr en um 8 á morgnana, í tæka tíð til þess að reka beljurnar í haga. Síð- an færði ég Jóni bónda morgunkaffi út á engjarnar. Kaffibrúsar þekktust ekki þá og flutti ég kaffið í mjólk- urflösku í ullarsokkum til þess að halda kaffinu heitu. Jón var árrisull og yfirleitt kominn út á engjarnar kl. 5 á morgnana. Á engjunum hjálpaði ég Jóni við heyskapinn, rakaði og snéri heyinu, sá um hestana og flutti heyið heim í hlöðu. Allt var unnið á handafli, heyið á engjunum baggað og eina tækið á heimilinu var hesta- dregin sláttuvél. Hádegismatinn sótti ég svo og fór tímanlega af engj- unum, því ég þurfti líka að hjálpa Helgu við heimilisstörfin, passa strákana, fara niður í læk og „klappa“ þvottinn og tæma bleiurn- ar. Leiðinlegast þótti mér að strokka. Í Þykkvabæ var tvíbýli og voru hinir ábúendurnir hjónin Pálína (systir Helgu) og eiginmaður hennar Þorleifur Pálsson. Áttu þau stóran hóp barna og fengum við öll nægan tíma til leikja í lok anna dagsins. Á sunnudögum var ávallt frí og fórum við, börnin, í útreiðartúra og heim- sóknir, aðallega að Arnardrangi, til foreldra Helgu og Pálínu og var þar ávallt glatt á hjalla. Strax fyrsta sumarið fékk ég að velja mér lamb til eignar og um haustið fór ég heim lambinu ríkari ásamt heimaprjónuð- um nærfötum, „föðurlandi“, ullar- sokkum og stóru stykki af smjöri. Þóttu þetta ærin laun fyrir sumar- snatt 11 ára barns, en slíkur var rausnarskapur þeirra hjóna eins og ávallt síðan þau 4 sumur sem ég dvaldi í Þykkvabæ. Eftir nokkurra ára búsetu í Bandaríkjunum sneri ég heim til Ís- lands 1958, kvæntist og eignaðist fjölskyldu. Fljótleg fórum við Beta að venja komur okkar í Þykkvabæ III, en Jón og Helga höfðu reist nýtt íbúðarhús við þjóðveginn. Voru ætíð miklir fagnaðarfundir en ég var ætíð „drengurinn“ í hennar huga og er mér vel kunnugt um að slíkar voru tilfinningar hennar í garð allra „drengjanna“ sem hún ól önn fyrir á sumrin eftir mína veru þar. Þegar Gunnar, sonur minn, hafði aldur til varð hann einn af „drengjunum“ hennar nokkur sumur, og svo fylgdu synir hans, Jón Ómar og Gunnar, í sporin okkar. Jón og Helga eignuðust 6 börn sem öll lifa móður sína. Áður átti Helga soninn Stefán. Man ég vel eft- ir honum en hann var alinn up hjá afa sínum og ömmu í Arnardrangi. Stefán átti við veikinda að stríða strax í barnæsku og lést aðeins 6 ára gamall og varð hann Helgu mikill harmdauði. Eins og áður sagði byrjuðu Jón og Helga búskap stuttu áður en ég kom til þeirra. Var bústofn þeirra 3 kýr, 3 hestar og um 50–60 kindur. Með miklum dugnaði og samheldni hjónanna og þrotlausri vinnu heim- ilisfólksins í Þykkvabæ III skila þau nú börnum sínum einhverju stærsta búi sveitarinnar. Ég veit að Helga er okkur horfin og hefur nú fengið hinstu ósk sína uppfyllta, að hverfa á braut á annað tilverustig til fundar við ástvini sína þar. Hennar verður, að sjálfsögðu, sárt saknað af afkomendum, ætt- ingjum, vinum og hinum stóra hópi „drengja“ sem urðu þeirra forrétt- inda aðnjótandi að dvelja hjá henni sumarlangt og eiga hana að æ síðan. Ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar, hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum. (Rm.8.38-39.) Júlíus P. Guðjónsson (Bússi). Þú ert farin til fegurri heima, frænka mín hjartahlýja. Ég góða vil minningu geyma sem gull set í sjóðina nýja. Heil varstu heim að sækja við höfðum um nóg að spjalla. Vináttu vildir þú rækja og varst ekki orðinu að halla. Ég man hversu heit þín var höndin og háttur þinn allur mjúkur. Þá kviknuðu kærleikans böndin er kom ég með kaldar lúkur. Sælt var að sitja hjá þér, þú settir í fléttur, lokka og sérlega fín ég þá fannst mér á fótum með nýja sokka. Oft áttir í kassanum kleinur og kankvís þú bauðst mér í búrið og plástur á putta skeinur ef pínu var skapið mitt stúrið. Veit ég að guð vill þér vísa veginn til ástvina þinna. Um aldur og eilífð mun lýsa hans elska til barnanna sinna. (S. R.) Kveðja, Lilja Harðardóttir frá Efri-Vík. HELGA STEFÁNSDÓTTIR Elsku Helga, þú varst uppáhalds frænka mín, ég man alltaf þegar ég kom í heimsókn, þá fór ég beint til þín og faðmaði þig og kyssti. Nú veit ég að þér líður vel því þú ert komin til himna þar sem allt er gott og þú búinn að hitta marga sem þú þekkt- ir og Guð á eftir að passa þig. Mér fannst alltaf gott að vera hjá þér. Elsku besta frænka mín, takk fyrir þetta allt. Helga Rún Björgvinsdóttir. HINSTA KVEÐJA Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Formáli minning- argreina Okkar ástkæri, JÓN GUÐMUNDSSON rafvélavirki, Lyngbrekku 5, Kópavogi, sem varð bráðkvaddur að kvöldi sunnudags- ins 28. mars, verður jarðsunginn frá Digranes- kirkju mánudaginn 5. apríl kl. 13.30. Steinunn Ingimundardóttir, Svala Jónsdóttir, Harpa Jónsdóttir, Kristinn J. Níelsson, Telma, Ragnar og Þórhildur Kristinsbörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GRÍMS JÓNSSONAR fyrrverandi héraðslæknis, Fjarðargötu 17. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítala Hringbraut. Gerda M. Jónsson, Grímur Jón Grímsson, Helga Guðjónsdóttir, Lárus Grímsson, Jóhanna D. Kristmundsdóttir, Þórarinn Grímsson, Sigrún Sæmundsdóttir, Jónína R. Grímsdóttir, Ágúst Ólafsson, Bergljót Grímsdóttir, Gunnar Friðriksson, Egill Grímsson, Guðrún Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna and- láts og útfarar ELÍ RÓSINKARS JÓHANNESSONAR húsasmíðameistara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjólbrekku og Sunnuhlíðar. Gunnar Stefán Elíson, Kristín Elídóttir, Þórir Þórarinsson, Agnes Elídóttir, Málfríður Elídóttir, Víðir Þormar Guðjónsson, Kristbjörg Elídóttir, Sigurjón Guðmundsson, Steindór Jóhannes Elíson, Valgerður G. Guðgeirsdóttir, afa- og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vinarhug og hlýhug vegna and- láts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KONRÁÐS E. GUÐBJARTSSONAR, Unnarstíg 8, Flateyri. Elinóra K. Guðmundsdóttir, Petrína Konráðsdóttir, Rúnar Garðarsson, Guðmundur Konráðsson, Bergþóra Ólafsdóttir, Konráð K. Konráðsson, Jónína K. Sigurðardóttir, Guðbjörg Konráðsdóttir, Ólafur Kristjánsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, Borgarbraut 21a, Borgarnesi, síðast til heimilis á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnu- daginn 28. mars, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju mánudaginn 5. apríl kl. 14.00. Ása Gústafsdóttir, Birgir Þórðarson, Þráinn Gústafsson, Ingibjörg Gústafsdóttir, Guðmundur Benjamínsson, Sveinn Svavar Gústafsson, Elín Kristín Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.