Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 63
LANDSLIÐSFLOKKUR á Skák-
þingi Íslands hófst af miklum krafti
eins og viðeigandi er þegar taflsviðið
er hús Orkuveitu
Reykjavíkur. Ein-
ungis einni skák
lauk með jafntefli.
Þetta var fyrri
einvígisskákin í
fyrstu umferð, en
að þessu sinni er
landsliðsflokkur
útsláttarmót.
Stórmeistarinn
Hannes Hlífar
Stefánsson (2.600) hóf titilvörnina á
sannfærandi hátt með sigri á Sigurði
Daða Sigfússyni (2.330) í 26 leikjum.
Hinir tveir stórmeistararnir á
mótinu, Helgi Áss Grétarsson (2.525)
og Þröstur Þórhallsson (2.470), sigr-
uðu einnig í sínum skákum. Gengi al-
þjóðlegu meistaranna fjögurra var
hins vegar misjafnt. Þeir tveir
yngstu, Bragi Þorfinnsson (2.420) og
Stefán Kristjánsson (2.410) náðu að
knýja fram sigur. Jón G. Viðarsson
(2.375) varð hins vegar að gera sér
jafntefli að góðu gegn Snorra Bergs-
syni (2.275) og Sævar Bjarnason
(2.345) tapaði sinni skák gegn Þor-
steini Þorsteinssyni (2.255).
Síðari skák fyrstu umferðar var
tefld í gær. Standi jafnt í einhverjum
viðureignum að loknum tveimur ein-
vígisskákum verður tefldur bráða-
bani og hefst hann kl. 9 í dag í húsi
Orkuveitunnar. Önnur umferð, átta
manna úrslit, hefjast síðan klukkan
13 í dag.
Áhorfendur eru velkomnir, en að-
stæður til að fylgjast með skákunum
eru með því besta sem sést hefur á
Skákþingi Íslands. Skákáhugamenn
eru því hvattir til að fjölmenna í hús
Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 og
drekka í sig þá mögnuðu spennu sem
fylgir þessari baráttu um Íslands-
meistaratitilinn.
Í dag hefst einnig taflmennska í
öðrum flokkum Íslandsmótsins:
kvenna-, áskorenda-, unglinga- og
öldungaflokki. Enn er hægt að skrá
sig í þá flokka með því að mæta á
skákstað áður en fyrsta umferð hefst
kl. 13 í dag. Allir eru velkomnir. Allir
flokkar, frá landsliðsflokki til ung-
lingaflokks, eru tefldir á sama stað,
þ.e. hjá Orkuveitunni, og umferðir í
öllum flokkum hefjast á sama tíma.
Um helgar hefjast umferðir kl. 13, en
kl. 17 á virkum dögum.
Hannes Hlífar Stefánsson hóf tit-
ilvörnina á góðum sigri.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Sigurður Daði Sigfússon
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3
Rc6 8. Dd2 0–0 9. Bc4 Bd7 10. 0–0–0
Re5 11. Bb3 Da5 12. h4 Hfc8 13. Kb1
Rc4 14. Bxc4 Hxc4 15. Rb3 Dc7 16.
g4 Hc8 17. e5!? –
Einnig er oft leikið 17. h5 í þessari
stöðu, t.d. 17. -- Bxg4 (17. ... g5!?) 18.
fxg4 Rxe4 19. Dg2 Dc6 20. Rd5 Hxc2
21. Rxe7+ Kf8 22. Rxc6 Hxg2 23.
Rcd4 Hxg4 24. Hc1 He8 25. h6 Bh8
26. Hhe1 og hvítur vann (Gashimov–
Lie, ólympíuskákmótinu í Bled 2002).
17. ... Rxg4
Þessi mannsfórn virðist ekki gefa
svarti nægilega góð færi á gagnsókn.
Eftir 17. ... Re8 18. Rd5 Dd8 19. exd6
Rxd6 20. c3 er hann einnig í vanda
staddur, t.d. 20. -- Bc6 21. Hhe1 Bxd5
22. Dxd5 b5 23. Bg5 Bf8 24. De5 b4
25. Bxe7 Bxe7 26. Dxe7 Dxe7 27.
Hxe7 Rb5 28. cxb4 Hxb4 29. h5 Kg7
30. h6+ Kf6 31. Hdd7 Hf8 32. Rd2
Kg5 33. Hxf7 Hc8 34. Re4+ Kh4 35.
Hd3 Kh3 36. Hxh7 Hbc4 37. a3 Rd4
38. Rd6 og svartur gafst upp (Tímosj-
enkó-Mutsjnik, Alushta 2001)
Ekki gengur 17. ... dxe5 18. g5 og
biskupinn á d7 fellur, ef riddarinn
hreyfir sig.
18. exd6 exd6 19. fxg4 Bxg4 20.
Hc1 Be6
Svartur getur ekki bjargað sér með
20. ... Hxc3, t.d. 21. bxc3 Bxc3 22. Df2
a5 23. Df4 Bf5 24. Hhg1 Bg7 25. Bd4
Bxc2+ 26. Kb2 a4 27. Bxg7 Kxg7 28.
Dd4+ f6 29. Hg2 axb3 30. axb3 Dc5
31. Dxc5 dxc5 32. Hgxc2 og hvítur
vann í skákinni Al Sayed-Rajlich,
Búdapest 2001).
Eftir 20. ... Bxc3 21. bxc3 Hxc3 22.
Bd4 ráða veikleikarnir í svörtu
kóngsstöðunni fljótlega úrslitum.
21. Rb5 –
21. ... Dc6
Eða 21. ... De7 22. Bg5 f6 23. Bf4 f5
24. Bg5 Bf6 25. Dxd6 Df7 26. Bxf6
Dxf6 27. R3d4 og hvítur á unnið tafl.
22. R5d4 --
Ekki verður séð, að svartur fái
mótspil, ef hvítur tekur skiptamun-
inn: 22. Rxa7, ásamt 23. Rxc8 o.s.frv.
22. ... De4 23. Rxe6 fxe6 24. Dd3
De5 25. c3 a5 26. h5
og svartur gafst upp, því að hann
hefur litlar bætur fyrir manninn, sem
hann fórnaði, t.d. 26. ... Df5 27. Dxf5
gxf5 28. Rxa5 H4c7 29. Hcd1 d5 30.
Hhg1 Kf8 31. Bf4 Hd7 32. Hde1
o.s.frv.
Guðmundur og Hjörvar skóla-
skákmeistarar Reykjavíkur
Guðmundur Kjartansson varð
skólaskákmeistari Reykjavíkur í eldri
flokki, og Hjörvar Steinn Grétarsson
í yngri flokki. Í yngri flokki urðu þrír
skákmenn jafnir í 2.–4. sæti og þurfa
að heyja aukakeppni um tvö laus sæti
á landsmóti í skólaskák. Eldri flokk-
ur, röð efstu manna:
1. Guðmundur Kjartansson 5½ v.
2. Aron Ingi Óskarsson 4 v. (9 st. )
3. Ólafur Evert Úlfsson 4 v. (7,5 st.
)
4. Arnar Sigurðsson 4 v. (7,5 st. )
Aukakeppni um 3. sætið:
Ólafur Evert Úlfsson – Arnar Sig-
urðsson 2–1.
Yngri flokkur, úrslit:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 8½ v.
(af 9)
2.–4. Ingvar Ásbjörnsson 7 v.
2.–4. Helgi Brynjarsson 7 v.
2.–4. Vilhjálmur Pálmason 7 v.
5. Hörður Aron Hauksson 6 v.
6. Daði Ómarsson 6 v.
7. Hallgerður Helga Þorsteinsdótt-
ir 5½ v.
8. Matthías Pétursson 5½ v.
9. Guðni Fannar Kristjánsson 5½
v.
10. Sverrir Ásbjörnsson 5 v.
11. Torfi Karl Ólafsson 5 v.
12. Einar Sigurðsson 5 v.
13. Mikal Luis Gunnlaugsson 5 v.
14. Kristinn Jens Bjartmarsson 5 v.
15. Aron Björn Bjarnason 4½ v.
16. Einar Ólafsson 4½ v.
17. Grétar Atli Davíðsson 4½ v.
o.s.frv.
Í eldri flokki hafa því Guðmundur
Kjartansson, Aron Ingi Óskarsson,
Ólafur Evert Úlfsson og Arnar Sig-
urðsson unnið sér rétt til þátttöku á
landsmóti í skólaskák.
Í yngri flokki þurfa þeir sem lentu í
2.–4. sæti að tefla aukakeppni um tvö
laus sæti á landsmóti.
Skákstjórar og kjördæmisstjórar
Reykjavíkur eru Torfi Leósson og
Vigfús Ó. Vigfússon.
Páskamót VN, Nóa-
Síríusar og Hróksins
Sunnudaginn 4. apríl fer fram
Páskamót VN, Nóa-Síríusar og
Hróksins í Rimaskóla. Mótið er fyrir
krakka í 1.–10. bekk og verður þeim
skipt í sex flokka. Glæsileg verðlaun
eru í boði. Allir verðlaunahafar fá
páskaegg frá nr. 4 til nr. 7, sem og
medalíu frá Árna Höskuldssyni.
Einnig verður dregið í happdrætti
þar sem í boði eru margir glæsilegir
vinningar og verða þeir kynntir sér-
staklega á heimasíðu Hróksins síðar í
vikunni. Í happdrættinu verða m.a. 20
páskaegg og fjallahjól að verðmæti
20.000 krónur frá Erninum. Þátttaka
í mótinu er ókeypis
Tekið er við skráningum á skak-
skoli@hrokurinn.is. Mikilvægt er að
skrá sig sem fyrst, til að tryggja sér
þátttöku í Páskamótinu. Allir kepp-
endur fá viðurkenningarskjal fyrir
þátttökuna. Hver keppandi hefur 7
mínútur á hverja skák.
Húsið opnað klukkan 12, mótið
verður sett kl. 13 og strax að því loknu
hefst taflmennskan. Gert er ráð fyrir
að mótinu ljúki kl. 15.15 og þá hefst
lokahóf og verðlaunaafhending auk
þess sem dregið verður í happdrætti
með fjölmörgum glæsilegum vinning-
um. Verðlaun:
1. sæti í öllum flokkum: Páskaegg
nr. 7
2. sæti í öllum flokkum: Páskaegg
nr. 5
3. sæti í öllum flokkum: Páskaegg
nr. 4
Allir verðlaunahafar fá medalíu frá
Árna Höskuldssyni.
Kraftmikil byrjun
á Íslandsmóti
SKÁK
Orkuveita Reykjavíkur
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks. is
SKÁKÞING ÍSLANDS
1. –12. apríl 2004
Hannes Hlífar
Stefánsson
Íbúð á Florida Cocoa beach
Til leigu glæsileg íbúð (3 svefnh. og
2 baðh.) með húsgögnum til lengri eða
skemmri tíma.
Stutt í Disney World og Kennedy Space Center.
Aðeins 5 mín. frá ströndinni.
Upplýsingar í síma 001 3218685582, Eygló,
eða 899 3119, Jóhann.
TIL SÖLU
Lagersala — veiðarfæri
Í dag, laugardaginn 3. apríl, heldur lagersalan
á veiðarfærum o.fl. áfram. Opið frá kl. 13.00
til kl. 16.00. Á mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag, 5. til 7. apríl, verður opið frá kl. 13.00 til
kl. 17.00. Gefum 50% afslátt af heildsölu- og
kostnaðarverði leikfanga meðan birgðir end-
ast.
Allri leikfangasölu verður hætt. Við höfum enn
á boðstólum nokkra „EXPRESSO“-kaffivélar
með allt að 50% afslætti. Mikið af herðatrjám,
plast og tré, fægiskóflur, uppþvottaburstar,
áklæði á strauborð, plastborðdúkar, plasthnífa-
pör, brauðristar, hárþurrkur, rafmagnsrakvélar
á tilboðsverði, verkfærakassa á niðursettu
verði, trjágreinasagir á hagstæðu verði, sam-
anbrotnir stólar og borð á mjög góðu verði,
geisladiska- og videó-spólu geymslur. Veiðar-
færi: ABU-, Berkley-, Fenwick- og Daiwa-stang-
ir og hjól ásamt ýmsu fleiru frá þessum fram-
leiðendum verður selt á mjög hagstæðu verði,
þó nokkuð af ABU-spúnum, önglum og fleira
verður fyrirliggjandi. Ekki má gleyma Daiwa-
vöðlunum. Lítið við og gerið góð kaup. Þessi
sala verður ekki endurtekin.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
TILKYNNINGAR
Bækur
Full búð af úrvalsgóðum
bókum
T.d. Eyfirskar ættir, Ættir Síðu-
presta, Bergsætt, Ættir Austfirð-
inga, Islandica, Þingeysk ljóð, Ísl.
Söguatlas, Ísl. fornrit, hátíðarútg.
Ferðabækur, æviminningar, bækur
um andleg málefni, fágætar LP
plötur o.fl. o.fl.
Komið og gerið skemmtileg kaup.
Heitt á könnunni.
Opið laug. frá kl. 11-17.
Gvendur dúllari - alltaf góður
Klapparstíg 35, sími 511 1925.
EINKAMÁL
Vil komast í samband við
ljóshærða, bláeygða konu sem var á Lækjar-
brekku sunnudaginn 28. mars milli kl. 16
og 17. Hún var klædd í „camel“ litaða kápu,
svartar buxur og svarta peysu og sat á borði
með eldri konu. Ég er gráðhærði maðurinn
sem sat á næsta borði. Myndir þú vilja eiga
með mér kvöldverð í Reykjavík eða Boston?
Hafðu samband í síma 001 508 966 5291.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Svölur
Þriðjudaginn 6. apríl verður
félagsfundur Svalanna haldinn í
Borgartúni 22, 3. hæð, kl. 20.00.
Gestur fundarins, Gerður Gunn-
arsdóttir, listamaður, segir frá
verkum sínum í Kína.
Gestir velkomnir.
Stjórnin.
Páskar í Þórsmörk
8.-12. apríl 2004.
Skálinn í Langadal verður opinn.
Boðið verður upp á leiðsögn um
svæðið og kveikt á grillinu.
Ferðalangar komi á eigin vegum.
Leiðsögumenn: Helga Garðars-
dóttir og Þórunn Þórðardóttir.
Dagsferð páskadag 11. apríl.
Hringferð um uppsveitir Árnes-
sýslu. Gengið um Haukadals-
skóg og hlýtt á hátíðarmessu í
Skálholti.
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10.
Verð kr. 4.000/4.500. Fararstjóri:
Leifur Þorsteinsson.
Landsst. 6004040313 IX
á Akureyri kl. 13:00
4. apríl. Akrafjall. Fararstj.
Gunnar Hólm Hjálmarsson.
Brottför frá BSÍ kl. 9:00.
V. 2.400/2.900.
4. apríl. Skíðaferð. Fararstj. Ing-
ibjörg Eiríksdóttir. Brottför frá
BSÍ kl. 10:30. V. 1.900/2.300.
5. apríl. Myndakvöld. Húnabúð,
Skeifunni 11, kl. 20:00.
Myndir úr Skaftárhreppi og
frá Toscana, Mallorca, Pýren-
eafjöllunum og Krít.
8.-12. apríl. Skíðaferð í Strút að
Fjallabaki. Fararstjóri Ingibjörg
Eiríksdóttir.
8.-11. apríl Skíðaferð um Kjöl.
Fararstj. Sylvía Kristjánsdóttir.
Sjá www.utivist.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ATVINNA
mbl.is