Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 73
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 73 Harmonikuball Fimm harmonikufélög af Suðurlandi halda stórdansleik í Básnum, Ölfusi, í kvöld 3. apríl kl. 21-02. Húsið opnað kl. 20.30. Verð aðgöngumiða kr. 1.500. Ath. tökum ekki kort. Samband íslenskra harmonikuunnenda. Plötur Metallica  Kill ’Em All (1983)  Ride the Lightning (1984)  Master of Puppets (1986)  ...And Justice for All (1988)  Metallica (Svarta platan) (1991)  Load (1996)  Reload (1997)  S&M [ásamt sinfóníusveit] (1999)  St. Anger (2003) Einnig tvær tökulagaplötur, Garage Days Re-Revisited [EP] (1987) og Garage, Inc. 1998). ROKKSVEITIN Metallica mun ljúka Evrópureisu sinni hér landi með tónleikum í Egilshöll 4. júlí næstkomandi. Þetta verður í fyrsta skipti sem þetta íþróttahús í Graf- arvogi verður notað sem tónleikahöll. Tvær byltingar Ragnheiður Hanson stendur að komu sveitarinnar hingað til lands. Hún segist hafa verið í samband við Jake nokkurn Berry sem vinnur m.a. að tónleikaskipulagningu fyrir U2 og Rolling Stones. Hann sé einnig búinn að vinna með Metallica í tíu ár og það sé fyrir hans tilstilli að þungarokks- hetjurnar séu á leiðinni til landsins. Berry var staddur hérlendis í vikunni og tók út Egilshöllina og tjáði Metal- lica að allt væri í fínasta lagi. Með- limir höfðu mikinn áhuga á að leika hérlendis og hafa nú ákveðið að slá til. Plötur Metallica hafa selst í millj- ónum eintaka um allan heim og er óhætt að segja að enginn þunga- rokkssveit hafi verið vinsælli und- anfarin tuttugu ár eða svo. Það er einnig óhætt að fullyrða að allir áhugamenn um þungarokk eigi a.m.k. eina plötu með Metallica. Og fáir, ef einhverjir aðdáendur, sýna jafnmikla hollustu og fylgispekt og aðdáendur sveitarinnar. Í raun má segja að Metallica eigi heiðurinn af tveimur þungarokks- byltingum. Ásamt Megadeth, Anthrax og Slayer skóp hún „thrash“ rokkið, sem var til muna hraðara rokk en áður hafði þekkst. Og með Metallica, sem er betur þekkt sem „Svarta platan“, lyfti sveitin sígildu þungarokki upp á yfirborðið en sú plata naut gríðarlegrar hylli og náði að sameina rokkhunda sem almenn- ing í aðdáun á sveitinni. Fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 1983 og heitir hinu geðþekka nafni Kill ’Em All. Þriðja platan, Master of Puppets (1986), þykir af mörgum vera hápunktur „thrash“ tónlistarinnar en með henni urðu og ákveðin kaflaskipti hjá hljómsveit- inni. Næsta plata, ...And Justice for All, kom út árið 1988 og náði að seljast í tveimur milljónum eintaka án þess að fjöldinn tæki eftir því. Á henni er að finna eitt þekktasta lag Metallica, hið glæsta „One“. „Svarta platan“ kom svo út árið 1991 og inniheldur vel þekkt lög eins og „The Unforgiven“, „Enter Sandman“ og „Nothing Else Matters“. Eftir þessa sigra komst sveitin í sköpunarlegt þrot og Load (’96) og Reload (’97) þykja vafasamar. En í fyrra sneri sveitin svo aftur með glæsibrag. Nýr bassaleikari, Ro- bert Trujillo var kominn í hópinn og á St. Anger (2003) leita félagarnir á þau mið sem þeir kunna best – nú er það hratt, þungt en umfram allt mel- ódískt þungarokk sem gildir. Und- irritaður var viðstaddur tónleika sveitarinnar á Hróarskeldu í fyrra- sumar og var sú upplifun frábær. Metallica eru að sönnu komnir aftur! Sextíu tonn af útbúnaði „Þeir ætla að taka sér frí hérna eft- ir Evróputúrinn“ upplýsir Ragnheið- ur. „Ætla að taka konurnar sínar með og svona. Það kemur fullt af blaða- mönnum með svo og róturum og sviðsmönnum. Það er ansi mikið um- fang í kringum þetta.“ Hún segir að sveitin komi með um sextíu tonn af útbúnaði með sér en auk þess þurfti Exton (sem sér fyrir öllum ljósum og hljóðum) að kaupa töluverðan aukabúnað til að standa undir kröfum sveitarinnar. Hljóð- kerfið verður þá „rosalegt“ að sögn Ragnheiðar. Ekkert hefur verið ákveðið um upphitunaratriði en stefnt er að því að þær verði um þrjár talsins. Sala miða verður auglýst síðar. Metallica spilar á Íslandi 4. júlí Stærsta rokk- sveit heims Nýr bassaleikari (lengst til vinstri) og ný plata, þar sem er farið aftur í ræt- urnar, hafa hleypt nýju lífi í Metallica. arnart@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.