Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bjarni SigurðurÁgúst Ársælsson fæddist í Eystri- Tungu í Vestur- Landeyjum 29. októ- ber 1928. Hann lést í Landspítalanum 29. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ársæll Jónsson frá Álfhólum, f. 7. maí 1889, d. 9. mars 1964 og Ragnheiður Guðnadóttir frá Eystri-Tungu, f. 8. desember 1893, d. 24. júní 1974. Systk- ini Bjarna eru: Guðni, f. 28. júní 1920, d. 16. júlí sama ár, Þórar- inn, f. 28. júní 1920, d. 3. júlí sama ár, Guðríður Bjarnheiður, f. 17. febrúar 1923, búsett á Skúms- stöðum í Vestur-Landeyjum, Guðni, f. 16. nóvember 1924, d. 18. september 1989, var búsettur í Reykjavík, Sigríður, f. 6. mars 1926, búsett í Reykjavík, Jón, f. 16. febrúar 1927, d. 14. desember 2003, var búsettur í Bakkakoti og Ingi Björgvin, f. 24. júlí 1932, d. 2 apríl 1992, var búsettur í Reykja- vík. Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Sigríður Ólafsdóttir, f. í Syðstu-Mörk Vestur-Eyjafjöllum 26. september 1921. Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson bóndi frá Dalseli, f. 24. maí 1891, d. 13. júlí 1973 og Halla Guðjóns- dóttir frá Hamragörðum, V-Eyja- fjöllum, f. 7. ágúst 1892, d. 7. apríl 1970. Dóttir Bjarna og Sigríðar er Halla, bóndi í Ártúnum, f. 15. september 1965, sonur hennar og Hauks Einarssonar, bónda á Hryggstekk í Skriðdal, f. 3. apríl 1965, er Ársæll, f. 9. febrúar 1983, unn- usta hans er Guðrún Freyja Daðadóttir, f. 27. apríl 1986. Sam- býlismaður Höllu er Niklas Hyström, frá Mariannel- und í Svíþjóð, bóndi í Ártúnum, f. 29. september 1972. Börn þeirra eru: Sigríður Linda, f. 14. febrúar 1994, Bjarni Kristófer, f. 18. nóv- ember 1995 og Jóhanna Sóldís, f. 26. nóvember 2000. Bjarni fluttist ásamt foreldrum sínum og systkinum að Bakkakoti frá Eystri-Tungu 1946 og vann þar að búi foreldra sinna. Þegar móðir hans lést 1974 tóku hann og Jón við búi í Bakkakoti þar sem hann bjó til dauðadags. Haustið 1962 hóf Bjarni ásamt Jóni bróður sínum að keyra slát- urfé fyrir Sláturfélag Suðurlands og vann hann ýmis störf fyrir Sláturfélagið næstu áratugina. Útför Bjarna fer fram frá Ak- ureyjarkirkju í Vestur-Landeyj- um í dag og hefst athöfnin klukk- an 14. Nú er Bjarni frændi okkar dáinn, einungis þremur mánuðum eftir að Jón bróðir hans og pabbi okkar dó. Þeir bræður voru afar samrýndir þó ekki væru þeir sammála. Í minning- unni er ekki annar heldur báðir. Það var alltaf líf og fjör að vera með þeim bræðrum í bíl og sér í lagi þegar Bjarni keyrði, því hann þurfti svo mikið að fylgjast með umhverfinu að aksturinn varð þá oft aukaatriði, þá hvein í pabba; Bjarni, gættu að akstr- inum, og um leið og Bjarni reif bílinn í rétta átt svaraði hann; hvað er þetta, Jón, sérðu ekki að ég er að keyra bíl- inn? Bjarni las mikið og voru í sér- stöku uppáhaldi hjá honum; Einar Ben og Kiljan eins og Bjarni kallaði hann alltaf, eins kunni hann Njálu allt að því utanbókar. Bjarni átti það til að fara með ljóð fyrir okkur eða segja einhverja setningu úr ýmist „Kiljan“ eða Njálu og segja; þekkið þið þetta? Yrði fátt um svör, sagði hann; hvað er þetta, hafið þið ekkert lesið? Ekki er hægt að skrifa staf um Bjarna frænda án þess að nefna hvað hann söng mik- ið og fallega og hafði af því sérstakt yndi. Bjarni var sterkur og litríkur persónuleiki, sem virtist kannski hrjúfur á yfirborði en við sem þekkt- um hann vissum að undir sló hlýtt og örlátt hjarta. Það er með sárri sorg og þakklæti í hjarta sem við kveðjum hann Bjarna frænda okkar í dag. Elsku Sigga, Halla og fjölskylda við vitum að þið hafið misst mikið. Megi góður guð styrkja ykkur og hugga á þessari stund. Vegir skiptast. – Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Benediktsson.) Ragnheiður, María og Sigríður Vaka Jónsdætur. Nú þegar komið er að kveðjustund og við munum kveðja hann Bjarna í Bakkakoti hinstu kveðju, þyrlast um hugann minningar frá því að ég var lítil stelpa komin til sumardvalar í Bakkakoti. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að dvelja níu sumur hjá þeim Bjarna og Siggu frænku minni, það eru stundir sem ég vildi ekki hafa far- ið á mis við. Það að alast upp í Bakka- koti, á þessum stóra bæ þar sem allt iðaði af lífi voru viss forréttindi. Alltaf var jafn gaman að koma í sveitina á vorin, sauðburður og önnur störf heilluðu þorpsstelpuna sem var alveg staðráðin í því á þessum árum að verða bóndi eins og Bjarni. Það eru einnig ógleymanlegar stundir þegar við Halla vorum með honum á fjár- flutningabílnum á haustin, hann var óþreytandi í að fræða okkur um bæina og gjarnan fylgdu einhverjar sögur af bæjunum og ábúendum með. Bjarni var iðinn við að drífa okkur krakkana á hestbak og þá gjarnan til að ríða út í mýri og fylgjast með skepnunum. Einnig hafði hann mjög gaman af að bregða sér með okkur krökkunum á hestbak á kvöldin og var þá oft glatt á hjalla. Hann hafði á því einstakt lag að hvetja mann áfram við það sem maður var að gera, með hrósi og skjalli. Það heyrðist ekki svo sjaldan „óskaplega fer hann vel hjá þér sá jarpi“ og við þetta fylltist mað- ur áhuga og krafti. Bjarni var afskaplega barngóður maður, hann sá ekki sólina fyrir elskulegri dóttur sinni og ekki var svo gleðin minni yfir barnabörnunum. Bakkakot hefur alla tíð verið barn- margur bær, þar átti hann að auki 6 systkinabörn sem einnig voru honum mjög kær. Þar var líka alltaf fjöldinn allur af sumarbörnum, sem flest komu ár eftir ár í sveitina. Bjarni var mjög ræðinn og vel BJARNI ÁRSÆLSSON Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við útför eiginmanns míns, föður okkar og afa, BRAGA DÝRFJÖRÐ, Kolbeinsgötu 15, Vopnafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Sigrún Svanhvít Kristinsdóttir, Finnur Þór Dýrfjörð, Kristín Hallbjörnsdóttir, Bragi Björn Kristinsson, Sigrún Svanhvít Kristinsdóttir. Þökkum auðsýnda vináttu og samúð við and- lát og útför ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR múrara, Smáraflöt 6, Garðabæ. Fyrir hönd aðstandenda, Fanney Hjaltadóttir. Við þökkum af alhug öllum sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför BALDVINS HILMARS ÓSKARSSONAR, Klömbrum, Aðaldal. Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk á dvalar- heimilinu Hvammi á Húsavík og á Heilbrigðis- stofnun Þingeyinga á Húsavík fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts eiginmanns míns, JÓNS ÁRNASONAR frá Syðri-Á, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færi ég félagasamtökum í Ólafsfirði. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Guðmundsdóttir. Það var miðvikudag- inn 24. mars að konan mín hringdi til mín og sagði að hún hefði sorg- legar fréttir að færa mér, hann Gest- ur vinur okkar væri dáinn. Svo snöggt og alltof snemmt, þú varst í brúnni á fullu í vinnu og allt í einu dáinn. Er á grálúðuslóð, frekar tregt hér, leiðinda bræla. Kv. Gestur. Þau verða ekki fleiri skeytin frá þér, vinur, við ræðum víst ekki meira um veiðarfærin okkar, nú vísar þú ekki á lóðið, það heyrist ekki á leyni- bylgjunni: „Gummi, komdu, það er fiskur hérna.“ Við mætumst ekki oftar á miðun- ✝ Gestur Breið-fjörð Sigurðsson fæddist á Brunnstíg 4 í Hafnarfirði 2. október 1943. Hann varð bráðkvaddur um borð í skipi sínu að kvöldi 23. mars síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju 2. apríl. um, semjum um að beygja báðir 5 í bak og koma svo 2 til 3 til baka aftur og þrasa svo um hvor var að svindla. Nú heyrum við þig ekki melda oftar í talstöð- inni, vinur. Það verður ekki þín rödd sem meldar næst á Þór. Svona er þetta víst þeg- ar almættið kallar, þó mér finnist kallið hafa komið allt of fljótt. Við höfum þekkst frá unglingsárum, en það var 1978 að við fórum að starfa saman á togaranum Maí GK. Okkar samstarf gekk mjög vel enda varst þú með færustu stýri- mönnum, verklaginn, útsjónarsamur og mikill aflamaður. Á Maí var oft verið að ræða um veiðarfærin, veiði- slóð og margt fleira, ekki alltaf sam- mála, stundum hvessti, en aldrei var staðið upp nema báðir væru sáttir og ágreiningur leystur. Ég minnist þess tíma á Maí sem við störfuðum saman sem skemmtilegs og ljúfs, það gekk allt svo vel enda áhöfnin eins og vel smurð vél sem þú áttir svo mikinn þátt í. Oft þurfti að taka til hendinni og þá voru þínar hendur alltaf fyrst- ar. Þessi samvera okkar á Maí leiddi til mikillar vináttu okkar á milli og fjölskyldna okkar. Við úti á sjó og konurnar og börnin heima, þær áttu sömu hagsmuna að gæta og milli þeirra skapaðist mikil vinátta. Við áttum margar ánægjulegar samveru- stundir enda alltaf gott að koma í heimsókn til ykkar. Ég sit hérna í káetunni og hugsa til þess að þú sért búinn að yfirgefa þennan heim og að ekki spjöllum við meira saman um veiðina, fréttir af miðunum, drekkum ekki kaffi hvor hjá öðrum. Nú kveð ég þig, kæri vin- ur, og þakka þér öll okkar góðu sam- skipti. Megi góður Guð geyma þig og svo tökum við það óklárt þegar ég kem yfir móðuna miklu. Elsku Elsa, börn, barnabörn og tengdabörn, megi góður Guð styðja ykkur og styrkja í sorg ykkar. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf að þakka þetta sem eitt sinn var (Starri í Garði.) Guðmundur Jónsson. Ímynd sjómannsins í dag er önnur en hún var fyrri hluta síðustu aldar. Þá þótti staða sjómannsins tákn hetjudáða og hugrekkis. Skipstjórar voru mikilsmetnir af þegnum þessa lands. Þá skildi almenningur það, að þjóðin lifði á því sem hafið gaf, og galt þess, sem hafið tók. Skipstjóri á frystitogara hefur ekki aðeins stjórn á siglingu og veiðum, heldur er í orðs- ins fyllstu merkingu framkvæmda- stjóri stærðar frystihúss. Stjórn fisk- veiða, sem og verðlag sjávarafurða hefur mikil áhrif á þátt fiskveiða í dag. Sem eykur á hlut skipstjóra, að skipuleggja veiðar með tilliti til kvótastöðu skipsins, sem og verð- mætasköpun afurða. Er álag á einn mann komið yfir öll takmörk? Okkur setti hljóða, þegar fréttist af því, að skipstjórinn á flaggskipi Hafnfirð- inga hefði kvatt þennan heim og að skipið væri á leið til lands með hans jarðnesku leifar. Í dag kveðjum við Gest Breiðfjörð Sigurðsson skipstjóra. Auk sinna starfa hafði hann mikinn áhuga á fé- lagsmálum, sem leiddi til okkar kynna. Hann gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Kára og síðar Félags ísl. skipstjórnarmanna. Hann sýndi talsverðan áhuga á tilurð Sjó- mannadagsins í Hafnarfirði og vann að honum, m.a. að stjórnun skemmti- dagskrár dagsins. Við viljum bera fram okkar þakklæti á kveðjustund þessari. Eiginkonu, börnum og barnabörnum, sem og öðrum vinum og vandamönnum, færum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einnig færum við áhöfn m/s Þórs HF sam- úðarkveðjur. Guð styðji ykkur og styrki á stundu sem þessari. Við kveðjum góðan dreng. Fari Gestur í friði Drottins, er hann leitar á önnur mið fyrir handan móðuna miklu. Ingvi R. Einarsson, fv. form. Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Kára. Harmafregn berst yfir öldur hafs- ins - Gestur skipstjóri á togaranum Þór bráðkvaddur um borð - talstöðv- ar þagna; fánar togara dregnir í hálfa stöng. Íslands Hrafnistumenn vott- uðu á sinn hátt skipstjóra og vini, virðingu sína og þökk fyrir áratuga samstarf. Farsæll skipstjóri kvaddi sínar fískislóðir og stýrði á Drottins fund. Líf Gests snerist um sjóinn og fjöl- skylduna. Velja miðin og mannskap- inn, stjórna af festu en drengskap, stýra fleyi heilu til hafnar, landa, fylgjast með viðgerðum og búnaði; ræða við útgerðina. Hins vegar að nýta fríin með fjölskyldunni sem var honum svo kær og hann stoltur af. Heimilið var hans griðastaður og höll. Elsa með veislu á borðum og allt annað það besta sem hún gat gefið. Börnin fögnuðu þegar pabbi var í landi. Þá var gaman. Gestur sinnti þörfum barnanna og dyttaði að fal- legu heimili þeirra hjóna. Hann var laghentur og vann öll þau verk sem hann ætlaði sér. Svo fæddust barna- börnin eitt af öðru og í fangi afa var gott að kúra; þar var hlustað og sagð- ar sögur. Þegar við fluttum til Hafnarfjarðar var sonur okkar Elvar fljótur að finna sér jafnaldra og vin sem aldrei brást, hann Gest, son þeirra hjóna. Bragð er að þá barnið finnur og hjá Elsu og Gesti voru börnin okkar öll velkomin hvernig sem á stóð og ómetanlegt var að vita af slíku athvarfi þegar vinna varð frameftir. Yngsti sonur okkar, Helgi, átti meira að segja fastan svefnstað milli þeirra hjóna. Slíkir vinir eru vandfundnir. Börn þeirra Gests og Elsu standa okkur nær en flest önnur - okkur finnst við eiga eitthvað í þeim eins og sagt er. Þar er góður hópur. Minningar um liðnar samverustundir eru dýrmætar. Þar GESTUR BREIÐFJÖRÐ SIGURÐSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.