Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 15 Lögbýli á Suðurlandi Til sölu jörð sem er ca 150 hektarar. Á jörðinni er gott 125 fm íbúðarhús, fjós, hlaða, vélageymsla, hesthús o.fl. Jörðin er mjög grasgefin og girðingar eru góðar. Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060. neysla Íslendinga hins vegar orðin 18% meiri en Dana og 45% meiri en Norðmanna.“ 4,4 milljarða lægri kostnaður Í skýrslunni segir að kostnaður vegna lyfja hafi hækkað mikið á und- anförnum árum. Kostnaðurinn nam 14 milljörðum króna á árinu 2003 og þar af var hlutur ríkisins 9,4 milljarð- ar. Segir í skýrslunni að frá 1990 til 2003 hafi lyfjakostnaður hækkað að meðaltali um 9,2% á ári á meðan lyfja- notkun hafi aukist um 3,9% á ári. Skýringin liggi m.a. í almennum verð- lagshækkunum, tilkomu nýrra og dýrari lyfja og aukinni notkun þeirra lyfja sem fyrir voru á markaði. Fram kemur í skýrslu Ríkisendur- skoðunar að á árinu 2003 hafi hver Ís- lendingur greitt að meðaltali 48.115 krónur fyrir lyf á meðan hver Dani hafi greitt 31.612 krónur og hver Norðmaður 34.237 krónur. Munurinn sé hins vegar meiri þegar tekið sé til- lit til þess að lyfjanotkun hafi að með- altali verið um 7% meiri í Danmörku og Noregi en hér á landi árið 2003. Því sé ljóst að kostnaður við hvern lyfja- skammt hafi að meðaltali verið um 50% hærri hér en í þessum löndum. Segir Ríkisendurskoðun að ef lyfja- kostnaður hvers Íslendings hefði ver- ið sambærilegur og í Danmörku og Noregi árið 2003, hefði lyfjakostnað- ur landsmanna verið um 4,4 milljörð- um króna lægri. Um 51% af þessum mismun segir í skýrslunni að stafi af hærri álagningu í heildsölu og smá- sölu lyfja hér á landi en í hinum lönd- unum. Um 49% af muninum komi hins vegar fram í hærra innkaups- verði lyfja sem flutt séu inn til lands- ins eða framleidd séu hérlendis. Minni samkeppni í framleiðslu Tvö fyrirtæki á Íslandi, Delta og Omega Pharma, sem bæði eru í eigu Pharmaco, framleiða samheitalyf til sölu á innanlandsmarkaði og til út- flutnings. Samþjöppun hefur orðið á þessum markaði með samruna fyrir- tækja og er innlend lyfjaframleiðsla öll á einni hendi. „Það hefur verið á það bent að meiri samþjöppun hafi dregið úr sam- keppni og fækkað samheitalyfjum sem eru á markaði hér,“ segir í skýrslunni. „Þannig var Delta með 418 lyf á lyfjaskrá í júní 2000 en hafði fækkað þeim niður í 171 í janúar 2004. Omega Pharma var með 239 lyf á skrá en fækkaði þeim í 170. Pharmaco hf. keypti einnig NM Pharma sem flutt hafði inn 109 samheitalyf í júní 2000, en lyf frá fyrirtækinu voru 75 í janúar 2004. Að hluta til má skýra þessa fækkun með því að áframhald- andi framleiðsla hefði kallað á nýjar fjárfestingar sem ekki hafi þótt hag- kvæmar. Hins vegar er því ekki að neita að fækkun sjálfstæðra lyfja- framleiðenda er talin hafa dregið úr samkeppni á markaði.“ Færri íbúar á hvert apótek Ríkisendurskoðun víkur að því að tvær keðjur apóteka séu nú með 80– 85% af smásölumarkaði lyfja hér á landi, þ.e. Lyf & heilsa, annars vegar, og Lyfja, hins vegar. Apótekum hafi fjölgað úr 44 árið 1996 í 66 eftir að lyf- sala var gefin frjáls. Fjöldi íbúa að baki hverju apóteki sé nú um 4.400, sem sé mun minna en annars staðar á Norðurlöndunum. Fjölgun apóteka á Íslandi hafi einkum verið rakin til aukinnar samkeppni á lyfsölumark- aði, sem m.a. hafi falist í baráttu um markaðshlutdeild. Þessi fjölgun segir Ríkisendurskoðun að takmarki möguleika til hagræðingar í dreifingu og smásölu lyfja. INGI Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Lyfju, tekur undir það að ein ástæðan fyrir 46% hærri lyfjakostn- aði hér á landi en í Danmörku og Noregi sé ónóg samkeppni og minna framboð af samheitalyfjum, sem þýði að meira sé notað hér af dýrari lyfj- um. „Það mætti vera meira framboð af samheitalyfjum en er í dag. Fram- leiðendum samheitalyfja hefur farið fækkandi og framboðið er minna en var áður.“ Hvað varðar hærri kostnað hér- lendis, bæði í heildsölu og smásölu, segir Ingi það rétt að kostnaðurinn sé hærri enda sé hlutfallslega dýr- ara að dreifa lyfjum á Íslandi heldur en í Danmörku og Noregi. „Landið er mun fámennara og strjálbýlla en t.d. Danmörk. Auk þess eru tæplega 20 þúsund íbúar á bak við hvert apó- tek í Danmörku. Það er það mesta sem gerist í Evrópu. Í Noregi eru eitthvað um 10 þúsund íbúar á bak við hvert apótek en hér eru um 4.400 manns að baki hverju apóteki. Þessu er erfitt að breyta hér á landi ef við ætlum að halda uppi þjónustu t.d. á landsbyggðinni. Ekki förum við að fækka apótekum þar.“ Ingi nefnir líka að það skekki samanburð við löndin tvö að verð á markaði þar hefur verið í sögulegu lágmarki vegna mikils verðstríðs. Mun færri íbúar á bak við hvert apótek hér ANDRÉS Magnússon, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, FÍS, segir skýrslu Ríkisendurskoð- unar staðfesta að ekki sé um að ræða óhóflega heildsöluálagn- ingu á lyfjum hjá innflutningsfyr- irtækjum. „Einn- ig segir skýrslan það berum orð- um að afkoma fyrirækja í þessari grein sé ekki þess eðlis að þau maki krókinn,“ segir hann. „Að öðru leyti lýsir skýrslan þáttum sem innflutningsaðilar ráða ekki við. Staðreyndin er sú að það er hlutfallslega dýrara að skrá og markaðssetja lyf á Íslandi en í við- miðunarlöndunum. Um er að ræða sama kostnað sem fyrirtækin þurfa að leggja í á þessum 300 þúsund manna markaði. Við höfum hins vegar alla tíð verið tilbúin til að leita allra leiða til að lækka lyfja- kostnað. Þessa stundina erum við í viðræðum við lyfjaeftirlitsnefnd um þau mál.“ Þess má geta að FÍS hét Samtök verslunarinnar frá 1997 en gamla heitið FÍS var tekið upp aftur nú í aprílbyrjun. Álagningin ekki óhófleg Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri FÍS HRUND Rúdolfsdóttir, fram- kvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir að fara þurfi varlega í hug- myndir þess efn- is að fækka apó- tekum til að lækka lyfja- kostnað eins og bent er á í skýrslu Rík- isendurskoð- unar. „Ef ætl- unin er að taka slíkar ákvarð- anir verða menn að gera upp við sig hvaða stefnu á að taka varð- andi lyfjaþjónustu úti á landi,“ segir hún. „Ljóst er að óhagstæð- ustu einingarnar eru úti á landi og vilji menn skera niður þar er það orðin pólitísk ákvörðun að mínu mati. Varðandi samanburð við Dan- mörku og Noreg má benda á að þar fer lausasala lyfja fram á bensínstöðvum og fleiri stöðum þannig að lyfjaafgreiðsla er á mun fleiri stöðum en fjöldi apóteka segir til um. Við styðjum á hinn bóginn þá tillögu sem fram kemur í skýrsl- unni um að skoða hvort afnema eigi sérkröfur til starfsemi og búnaðar apóteka. Til okkar eru gerðar kröfur sem þekkjast hvergi annars staðar og hafa í för með sér aukinn rekstrarkostnað,“ segir Hrund. „Mér finnst sjálfsagt og eðlilegt að skoða lyfjaverð, -framboð og -notkun reglulega. Ég held að þessi skýrsla sé mjög vandlega unnin og þær tillögur sem kynntar eru verðskulda vandlega skoðun.“ Fækkun apó- teka yrði póli- tísk ákvörðun Hrund Rúdolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu VIÐ fögnum þessari skýrslu og telj- um að loksins hafi verið dregin upp rétt mynd af lyfjamarkaðnum,“ segir Hreggviður Jóns- son, fram- kvæmdastjóri Pharmanor. „Við sem störfum á heildsölustiginu teljum mjög gott að það skuli hafi komið fram í skýrslunni að af- koma fyrirtækja í þessari grein bendi ekki til þess að álagningin sé óeðlilega mikil. Menn verða að skilja hvað það kostar að vera lítill á þessum markaði. Það kostar jafnmikið að skrá lyf inn á íslenskan markað eins og t.d. þann þýska og danska. Fasti kostnaðurinn við skráningu er því hlutfallslega mun meiri hér en annars staðar. Því má svo bæta við að á sama tíma og til- hneiging hefur verið til lækkunar á lyfjaverði og -kostnaði, hækkaði Lyfjastofnun gjaldskrá sína um 10– 13% þann 1. mars. Það má því spyrja sig hversu vel þetta fer saman, ekki síst í samhengi við þá staðreynd að lyfjainnflutningsfyrirtækin standa undir 93% af kostnaði Lyfjastofnunar sem nam í heild sinni 139 milljónum króna árið 2002.“ Rétt mynd af lyfja- markaðnum Hreggviður Jónsson, framkvæmdastjóri Pharmanor „ÞETTA kallar maður að skjóta fyrst og spyrja svo. Það á t.d. að taka ýmis lyf úr greiðsluþátttöku almannatrygg- inga og ef það virkar ekki, þá á að athuga málið samkvæmt gefn- um forsendum,“ segir Árni Þór Árnason for- stjóri Aust- urbakka um skýrslu Ríkisendurskoðunar. „En þessar forsendur þýða náttúrlega biðraðir og tafir. Því miður eru þeir sem stjórna heilbrigðismálum í dag, sterkastir í því að búa til biðlista,“ segir hann. „Það er mjög taktískt hjá ríkinu, að á sama tíma og það er að berja nið- ur lyfjakostnað og við eigum að semja um betra verð erlendis, þá eru öll eftirlitsgjöld hækkuð um 10-13%.“ Eitt af því sem gerir lyfjakostn- að meiri hérlendis en í Danmörku og Noregi er að Íslendingar nota minna af samheitalyfjum og meira af, einkum tauga- og geðlyfjum. Árni Þór segir að auðveldara væri að skipta út magalyfjum en hjartalyfjum og þunglyndislyfjum og erfitt væri að finna út milliveg í því samhengi. „Ef menn ætla haga málum á þann veg að hinir efnuðu geti verið á betri lyfjum en hinir, þá er það alveg nýtt. En ég hefði viljað sjá lengra gengið í að sameina eftirlitsiðnaðinn í kring- um lyfjageirann og minnka hann stórlega.“ Skjóta fyrst og spyrja svo Árni Þór Árnason, forstjóri Austurbakka Ingi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lyfju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.