Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í HÖFUÐBORGUM nýju NATO-ríkjanna sjö fóru fram hátíðarathafnir í gær í tilefni af inn- göngu þeirra í Atlantshafsbandalagið. Hér ganga rúmenskir hermenn með rúmenska þjóð- fánann og NATO-fánann í bakgrunni við slíka athöfn í rúmensku höfuðborginni Búkarest. „Loksins finnst okkur við vera örugg,“ sagði Vaire Vike-Freiberga, forseti Lettlands, við at- höfn í Riga. Hátíðarstemmning var af sama til- efni í Tallinn og Vilnius, höfuðborgum Eistlands og Litháens, sem og í Bratislava í Slóvakíu, Ljubljana í Slóveníu og Sofiu í Búlgaríu. AP „Loksins finnst okkur við vera örugg“ HERMENN frá sjö nýjum aðildar- ríkjum Atlantshafsbandalagsins í Austur-Evrópu drógu þjóðfána landa sinna að húni við höfuðstöðvar bandalagsins í Brussel í fyrsta sinn í gær. Fánahyllingin var hluti af hátíð- ardagskrá í höfuðstöðvunum í tilefni af fjölgun aðildarríkjanna úr 19 í 26, en þessi mesta stækkun í 55 ára sögu NATO komst formlega til fram- kvæmda í vikunni. Við fánahyllingarathöfnina stilltu utanríkisráðherrar Eistlands, Lett- lands, Litháens, Slóvakíu, Slóveníu, Rúmeníu og Búlgaríu sér upp við hlið starfsbræðra sinna frá hinum banda- lagsríkjunum nítján, Íslands þar á meðal. „Upp frá þessari stundu munu 26 bandamenn vera sameinaðir í skuld- bindingu til að verja öryggi hvers annars og landhelgi,“ sagi Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, við þetta tækifæri. „Þetta er mesta skuldbinding sem þjóðir geta gengizt undir.“ Í kjölfar stækkunar NATO fylgir stækkun Evrópusambandsins um 10 ríki um næstu mánaðamót, en þetta tvennt bindur lokahnútinn á endalok kaldastríðsskiptingar Evrópu. „Ásamt stækkun Evrópusam- bandsins sýnir dagurinn í dag það skýrt að landfræðileg lega jafngildir ekki lengur örlögum,“ sagði de Hoop Scheffer. „Ekkert fær betur sýnt að- dráttarafl, styrk og varanlegt gildi tengslanna yfir Atlantshafið,“ sagði hann um þessa stækkunarlotu NATO, en með henni eru alls 10 ríki gengin til liðs við bandalagið sem áð- ur tilheyrðu Austurblokkinni. Pól- land, Tékkland og Ungverjaland gengu í NATO árið 1999. Rússar hafi sig hæga Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat einnig fundinn. Í viðtölum sem birtust í gær í dagblöð- um í nýju aðildarríkjunum sjö sagði hann Rússa ekki hafa neitt að óttast þótt Atlantshafsbandalagið stækkaði upp að rússnesku landamærunum. Hvatti hann valdhafa í Moskvu jafn- framt til að leggja sig meira fram um að uppfylla eigin hernaðarlegu skuld- bindingar í Evrópu, samkvæmt al- þjóðasamningnum um hefðbundinn vígbúnað í álfunni, CFE. Ráðlagði Powell Rússum að hætta að gera sér rellu út af eftirlitsflugi NATO í Eystrasaltsríkjunum. Sagð- ist hann hafa fullvissað rússneska ut- anríkisráðherrann Sergei Lavrov í samtali á miðvikudag um að með flugi F-16-þotna NATO væri einfaldlega verið að sýna að lofthelgi nýju aðild- arríkjanna væri orðin hluti af loft- helgi bandalagsins. Powell reyndi að gera sem minnst úr þýðingu þess að rússneska þingið hefði á miðvikudag samþykkt harðorða ályktun þar sem NATO-stækkuninni var mótmælt, hún sögð ógnun við öryggi Rússlands og hvatt til þess að varnir Rússlands yrðu efldar, ekki sízt á landamærun- um við Eystrasaltsríkin. Lavrov var einnig staddur í Bruss- el í gær til að sinna reglubundnu samráði NATO og Rússa, en slíkur samráðsfundur fór fram að hátíðar- fundi NATO-ráðherranna loknum. „Þetta var fyrsti fundurinn þar sem þjóðirnar 27 sitja við sama borð og sýnir hvað menn hafa náð langt í þessu samstarfi,“ sagði Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn. Fyrsta fánahylling 26 bandamanna Hátíðarfundur í höfuðstöðvum NATO vegna stækkunar bandalagsins Brussel. AFP, AP. MÁLEFNIN sem voru efst á baugi ráðherrafundar NATO í gær voru ástandið á Balkanskaga, í Afganist- an, Írak og fyrir botni Miðjarð- arhafs, svo og baráttan gegn hryðjuverkum. Fyrir hönd ríkja sinna áréttuðu ráðherrarnir þann staðfasta ásetning sinn að berjast gegn því meini, sem al- þjóðleg hryðju- verk væru, og sú barátta yrði eitt helsta mál á dagskrá bandalagsins á komandi árum. Morgunblaðið náði tali af Halldóri Ásgrímssyni eftir fundinn og lýsti hann inntaki hans á þessa leið: „Það má segja að það varði mestu að það takist að viðhalda stöðugleika á Balkanskaga; það takist að byggja upp lýðræðisríki í Afganistan; það takist að byggja upp frjálst og fullvalda ríki í Írak sem virðir mannréttindi og sjón- armið allra íbúa landsins og að það takist að koma á friði í Ísrael og Palestínu; það er alveg ljóst að hryðjuverkamennirnir vilja að upp- lausn og skálmöld ríki á þessum svæðum sem yrðu þá gróðrarstía enn frekari hryðjuverka.“ Aðspurður segir Halldór Ísland koma inn í þetta starf NATO fyrst og fremst „með því að gera það sem í okkar valdi stendur til að hjálpa til á þessum svæðum sem ég hef nefnt og vinna náið með öðrum þjóðum að öryggismálum. Við er- um hluti af Schengensvæðinu og það er frjáls för fólks milli allra þessara landa og þar með er okkar landsvæði ekkert undanskilið í þessum málum og við verðum að vera meðvituð um það,“ segir utan- ríkisráðherra. „Okkar landsvæði ekki undanskilið“ Halldór Ásgrímsson SPRENGJA fannst á járn- brautarteinum milli Madrídar og Sevilla á Spáni í gær, rúm- um þremur vikum eftir hryðju- verkin í Madríd sem kostuðu 191 mann lífið. Angel Acebes, innanríkisráð- herra Spánar, sagði að sprengj- an væri af svipaðri tegund og sprengjurnar sem notaðar voru í árásunum á fjórar farþega- lestir í spænsku höfuðborginni 11. mars. Poki með tíu kíló af sprengi- efni og 136 metra sprengiþráð- ur fundust á teinum fyrir hrað- lestir milli bæjanna Mocejon og Algodor í Toledo-héraði. Rann- sókn á sprengiefninu var ekki lokið í gær. Sprengja finnst á Spáni Madríd. AFP. PALESTÍNSKA heimastjórnin for- dæmdi í gær lítt dulbúna hótun Ar- iels Sharons, forsætisráðherra Ísr- aels, um að ráða Yasser Arafat Palestínuleiðtoga af dögum. „Þetta er alvarleg hótun sem miðar að því að hefta friðar- umleitanir,“ sagði Nabil Abu Ru- deina, ráðgjafi Arafats. Ísraelska dag- blaðið Haaretz spurði Sharon að því, hvort Arafat og Hassan Nasrallah, leiðtogi líbönsku samtakanna Hez- bollah, væru ef til vill á lista Ísraela yfir þá menn sem ráða skyldi af dög- um, og svaraði Sharon: „Ég held að hvorugur þeirra geti talist óhultur ... Hver sá, sem myrðir gyðing eða vinn- ur ísraelskum ríkisborgara mein, ell- egar gerir fólk út til að myrða gyð- inga, er útskúfaður.“ Ísraelski herinn hefur haldið Ara- fat innikróuðum í bækistöðvum hans í Ramallah á Vesturbakkanum frá því í desember 2001. Í september í fyrra samþykkti öryggisráð Ísraels að Ara- fat skyldi „fjarlægður“ úr Ramallah, og sagði einn ísraelskur ráðherra að til greina kæmi að myrða hann. Segir Ara- fat ekki óhultan Ramallah, Jerúsalem. AFP. Yasser Arafat ÞINGIÐ í þýska sambandsríkinu Baden-Württemberg samþykkti í fyrradag með nær öllum atkvæðum tillögu um að kennarar mættu ekki bera hefðbundna slæðu múslíma í stofum ríkisskólanna. Leyft verður sem fyrr að kristin tákn á borð við krossinn séu notuð. Annette Schav- an, ráðherra menntamála, sagði að þau væru hluti vestrænnar hefðar en slæðan væri „hluti af sögu kvennakúgunar“. Schavan sagði að slæðuna mætti auðveldlega túlka sem tákn um stuðning við stjórnmálaskoðanir öfgafullra bókstafstrúarmanna í heimi íslams. Hún væri þannig ekki eingöngu trúartákn heldur hefði víðtækari skírskotun og ætti ekki heima í skólastofunum. Nemendur fá þó áfram að nota slæðuna en í frönskum ríkisskólum er jafnt kennurum sem nemendum bannað að bera slæðuna. Kennarar fleygi músl- ímaslæðu Stuttgart. AP, AFP. MICHAEL Grade, sem áður var yf- irmaður bresku sjónvarpsstöðvar- innar Channel 4, var útnefndur stjórnarformaður breska ríkisút- varpsins, BBC, í gær. Tekur hann við embættinu af Gavyn Davies, sem sagði af sér í kjölfar gagnrýni á BBC sem kom fram í svonefndri Hutton- skýrslu. Grade, sem er 61 árs, hefur mikla reynslu af fjölmiðlastarfi en hann var eitt sinn einn af yfirmönnum BBC. Torin Douglas, sem fjallar um fjölmiðla fyrir BBC, segir að stofn- unin verði í góðum höndum eftir að Grade hafi tekið við stjórnarfor- mennskunni. Eitt fyrsta verk Grad- es verður að ráða nýjan útvarps- stjóra. Greg Dyke sagði af sér því starfi vegna Hutton-skýrslunnar þar sem stofnunin var gagnrýnd fyrir að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með vinnubrögðum fréttamanns. Grade er ekki tengdur neinum stjórnmálaflokki, að sögn fréttavefj- ar BBC og fulltrúar breska Íhalds- flokksins fögnuðu tilnefningu hans. Julie Kirkbride, talsmaður flokksins í menningarmálum, sagði í gær að flokkurinn bæri fullt traust til hans. Michael Grade hefur lengi starfað við sjónvarp og skemmtanaiðnað en sjónvarps- og kvikmyndaframleið- andinn Lew Grade, einn af stofnend- um ITV-sjónvarpsstöðvarinnar, var frændi hans. Nýr formaður stjórnar BBC. Grade nýr stjórnarfor- maður BBC ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.