Morgunblaðið - 16.04.2004, Síða 18
LÖGREGLAN í Toronto í Kanada sló sann-
arlega ekki á létta strengi með fiðlumeist-
ara einum sem handtekinn var nýverið eftir
að upp hafði komist að hann hafði verið að
æfa sig – við stýrið á bíl sínum þar sem
hann ók eftir hraðbrautinni inn í borgina.
„Til allrar hamingju spilar hann á fiðlu en
ekki selló,“ sagði lögreglunni Cam Woolley
við dagblaðið Toronto Sun.
Um er að ræða 54 ára gamlan konsert-
meistara sem handtekinn var á hraðbraut-
inni inn í Toronto en aksturslag hans hafði
þótt heldur undarlegt. „Þeir óku fyrst upp
að hlið bílsins og þá kom í ljós að maðurinn
var að leika á fiðluna sína af miklum móð,“
sagði Wolley. Mun maðurinn hafa gefið þá
skýringu að hann væri að æfa sig vegna
tónleika síðar sama dag.
Þunglyndur fíll
DÝRALÆKNAR í Santa Fe í Argentínu
veittu sirkusfílnum Mesry í vikunni lækn-
isaðstoð vegna streitu en þeir segja að dýrið
hafi þjáðst af þunglyndi í kjölfar þess að það
hafði eytt nokkrum dögum fjarri vinum sín-
um í sirkusnum.
Mesry er meðal vinsælustu skemmti-
krafta sirkussins sem ferðast víða um Arg-
entínu. Í síðustu viku var Mesry flutt af sirk-
ussvæðinu og til borgarinnar El Recreo, um
480 km norður af Buenos Aires, eftir að kom
í ljós að bann var lagt við því á viðkomandi
stað að dýr tækju þátt í mannamótum eins
og sirkussýningum. Tók fljótt að bera á því
eftir komuna til El Recreo að Mesry væri
heldur daufur í dálkinn. Voru dýralæknar
frá Santa Fe þá kallaðir til og greindu þeir
krankleika skepnunnar. Er vonast til þess að
Mesry geti senn hitti vini sína á ný.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Fiðluleikur á
hraðbrautinni
Heppni fylgir því
að fæðast í maí
ÞEIR sem fæðast í maímánuði eru heppnari
en annað fólk. Segja má hins vegar að ólán-
ið elti þá sem fæðast í október; a.m.k. ef
eitthvað er að marka nýjar rannsóknir
bresks vísindamanns.
Meira en fjörutíu þúsund manns tóku
þátt í rannsókn sálfræðingsins Richards
Wisemans, sem kennir við háskólann í
Hertfordskíri. Fólk veitti honum upplýs-
ingar um fæðingardaga sína í gegnum Net-
ið og svaraði síðan spurningum sem gáfu til
kynna hversu mikillar lukku það telur sig
njóta í lífinu. Niðurstöðurnar sýndu að
meira en helmingur fólks sem fæddist í maí
telur sig heppið á meðan aðeins 43% þeirra
sem fæddust í október gerðu slíkt hið sama.
„Skýringin gæti falist í þeim mun sem er á
samskiptum sumra foreldra við börn sín á
sumarmánuðum annars vegar og vetr-
armánuðum hins vegar,“ sagði Wiseman.
Sjálfur er hann fæddur í september.
Varð háð Haribo
KONA í Þýskalandi hefur stefnt þýska sæl-
gætisframleiðandanum Haribo fyrir dóm-
stóla en hún segist hafa orðið háð lakkrís frá
fyrirtækinu, með þeim afleiðingum að hún
þjáist nú af hjartasjúkdómum.
Konan er 48 ára gömul. Hún hefur farið
fram á skaðabætur upp á 6.000 evrur, um
522 þúsund kr., en hún segir heilsuskaða
sinn stafa af því að hún hafi borðað 400
grömm af Haribo-lakkrís daglega í heila
fjóra mánuði; á endanum varð hún veik og
segist hún fyrir vikið hafa verið frá vinnu í
marga mánuði. Haribo hafnar hins vegar
með öllu að bera ábyrgð á ástandi konunnar.
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
TVÍBURAR af gerð gullapa í faðmi
móður sinnar, Dabao, í dýragarði í
Peking í gær. Líkurnar á því að tví-
burar af þessari tegund apa séu aldir
í þennan heim eru sagðar einn á móti
tíu þúsund og ekki er vitað til að það
hafi áður gerst í Kína.
Einstæðir tvíburar
LEIÐTOGAR Evrópuríkjanna
vísuðu í gær á bug boði hryðju-
verkaforingjans Osama bin Lad-
ens um „vopnahlé“ og sögðu það
fáránlega tilhugsun að semja við
fjöldamorðingja á borð við hann.
Á hljóðsnældu frá bin Laden
býður hann frið þeim Evrópuríkj-
um, sem ekki halda uppi hernaði
gegn múslímum eða draga her sinn
frá múslímskum ríkjum. Höfnuðu
talsmenn stjórnvalda í Bretlandi,
Spáni og Ítalíu, sem öll eru með
herlið í Írak, þessu boði umsvifa-
laust og sagði talsmaður breska ut-
anríkisráðuneytisins, að aldrei yrði
samið við samtök, sem helguðu sig
engu öðrum en ofbeldi og morðum.
CIA segir röddina
vera bin Ladens
Var hljóðsnældan leikin í Al-
Arabiya-sjónvarpinu í Dubai og
kom þar fram, að boðið myndi
standa í þrjá mánuði. Á henni talar
bin Laden um sættir við Evrópu-
ríkin en hótar aftur á móti Banda-
ríkjamönnum öllu illu.
CIA, bandaríska leyniþjónustan,
staðfesti í gær, að röddin á snæld-
unni væri bin Ladens. Nákvæm
hljóðgreining hefði leitt það í ljós.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, staðfesti þetta
einnig í viðtali sem pólska sjón-
varpið tók við hann í gær.
Breska utanríkisráðuneytið
sagði í gær, að tilgangurinn með
boðinu væri augljóslega að reka
fleyg á milli Evrópu og Bandaríkj-
anna og leiðtogar Frakklands,
Þýskalands og Póllands höfnuðu
tilmælum bin Ladens sem firru.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, sagði, að Evrópuríkin
myndu ekki beygja sig fyrir hót-
unum hryðjuverkamanna.
„Vopnahlésboði“ hafnað
Líklega tilraun til að reka fleyg
á milli Bandaríkjanna og Evrópu
!"
#$ % $ &
"
'
' "( ) $
%
* ' + %,-.
/
/
'&
$ 0
! .122
" ! .
#
! .23
#$ !1
%
!324
&'( ! . 1
)
!2.1
*
! 45
%+!, ! !)
!-! !./! ! ! !0.$
!1
!- .+! !
!(
+
2! !01+3$$1 2!4&0%!.!
! !!
5!-$2!)
2!.1$62 !.! 7!) $!
!
.! ! . !4&0%
(!8/.2$-! !2!"$!
-!' $29.61 $!: ,$$62
+.212!
/2 1! !)
! !-
2
;+ !
!!
!,.!
!! ! <
= +
!3
>"$2!2
&- 1!4
% !
? !. 1
@9
!
&-
! 1
A
! .4
B $-!2 2
!5
#$ !31
8
!5
0/ !
@3
! 3
:
,( ! 5
:
! 2
C
!4
6
* '
!)
! !0.$
!)
!0.$
London. AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, lét nýlega undan kröfum um að skip-
uð yrði óháð rannsóknarnefnd til að fara í
saumana á viðskiptum með íraska olíu í tíð
Saddams Husseins. Árið 1996 var slakað á við-
skiptaþvingunum gagnvart stjórn Saddams og
Írökum leyft að selja olíu en skilyrðið var að SÞ
hefðu umsjón með því að tekjurnar rynnu að
mestu til kaupa á mat, lyfjum og öðrum nauð-
synjum en ekki til vopnakaupa. Var þessi til-
högun nefnd olía-fyrir-mat-áætlunin. Vísbend-
ingar hafa komið fram í skjölum sem fundist
hafa í Bagdad er benda til spillingar meðal
embættismanna hjá SÞ er sáu um áætlunina.
Rætt er um að fyrrverandi seðlabankastjóri
Bandaríkjanna, Paul Volcker, muni stýra rann-
sóknarnefndinni, að sögn AP-fréttastofunnar.
Bandarískir þingmenn hafa krafist þess að
spillingarmálið verði kannað vandlega en ljóst
er að endurskoðun reikninga áætlunar SÞ um
olíusölu Íraka var frá upphafi bágborin. Rich-
ard Lugar, formaður varnarmálanefndar öld-
ungadeildarinnar, sagði nýlega að þegar væri
orðið ljóst að milljarðar dollara, sem nota hefði
átt til að lina þjáningar almennings í Írak,
hefðu hafnað í höndum Saddams og manna
hans.
„Enn meiri áhyggjum veldur að hugsanlegt
er að andstaða ríkisstjórna eða einstakra emb-
ættismanna við ákvörðun bandamanna (undir
forystu Bandaríkjamanna) um að beita hervaldi
gegn Saddam Husseins hafi að hluta til stafað
af því að félli stjórn hans myndi spilling í
tengslum við olíu-fyrir-mat-áætlunina verða
öllum ljós,“ sagði Lugar.
SÞ fengu 3% í þóknun
SÞ eru nú að afhenda Írökum og Bandaríkja-
mönnum gögn um áætlunina. Að sögn embætt-
ismanna samtakanna seldu Írakar olíu með lög-
legum hætti fyrir um 67 þúsund milljónir
dollara frá 1996 til 2003 er Saddam var velt úr
sessi með innrás bandamanna. SÞ fengu 3% af
tekjunum af löglegu olíusölunni og var það
þóknun fyrir að hafa eftirlit með áætluninni.
Hluti fjárins var notaður til að kosta eftirlitið
með meintum gereyðingarvopnum Saddams.
Írakar höfðu það fram á sínum tíma að þeir
skyldu sjálfir tilgreina hvað þyrfti að kaupa,
hvaða fyrirtæki utan landsins fengju að gera
samninga um að kaupa af þeim olíu og hverjir
fengju að selja þeim nauðsynjavörur. Ljóst er
nú að Saddam og menn hans kröfðust þess
ávallt að viðskiptaaðilar greiddu allt að 10%
aukaskatt á alla viðskiptasamninga og rann féð
beint í einkasjóði Saddams og manna hans.
Ólöglegu tekjurnar af leyniskattinum og
mútum sem Írakar fengu frá áhugasömum fyr-
irtækjum erlendis munu hafa verið um 4,4 þús-
und milljónir dollara, að sögn sérfræðinga
Bandaríkjaþings. Hafa komið fram ákveðnar
vísbendingar um að sumir embættismenn SÞ
hafi vitað vel af aukaskattinum áðurnefnda en
ekki aðhafst neitt og sumir ef til vill tekið þátt í
svindlinu. Einnig smygluðu Írakar olíu, einkum
um Jórdaníu og Tyrkland, með tankbílum og
voru tekjurnar af þeim viðskiptum um 5,7 þús-
und milljónir dollara.
Ekki er enn ljóst hve mikið fé Saddam og
synir hans höfðu lagt inn á leynilega reikninga
erlendis en talið að það geti verið allt að 40 þús-
und milljónir dollara. Aðeins hefur tekist að
finna um tvo milljarða dollara og hefur féð verið
notað til uppbyggingar í Írak. Endurskoð-
unarskrifstofa Bandaríkjaþings segir að mikið
skorti á að ýmis Evrópuríki hafi lagt sig fram
um að hafa uppi á fénu.
Saddam notaði þessar ólöglegu tekjur, alls
liðlega 10 þúsund milljónir dollara eða um 730
milljarða ísl. kr., meðal annars til að tryggja sér
velvild mikilvægra manna í ýmsum löndum.
Áhrifamönnum í öðrum löndum var hyglað með
því að láta þá hafa með leynd sérstakar heim-
ildir til að kaupa olíu á lægra verði en aðrir. Ol-
íuna seldu þeir síðan með drjúgum hagnaði.
The Washington Post segir að gögn bendi til
þess að frönsk fyrirtæki sem vildu tryggja sér
samninga um olíukaup, ekki síst stóra samn-
inga þegar olía-fyrir-mat-áætlunin yrði end-
anlega felld úr gildi, hafi mútað íröskum emb-
ættismönnum með vitund stjórnvalda í París.
Sendiherra Frakklands í Washington, Jean-
David Lafitte, brást að sögn AFP-fréttastof-
unnar reiður við ásökunum fjölmiðla og sagði
að um óhróður hægrisinna vestra væri að ræða.
Breskur kaupsýslumaður, Claude Hankes-
Drielsma, hefur rannsakað skjölin í Bagdad
fyrir framkvæmdaráðið íraska og hafa upplýs-
ingar hans, sem skýrt var frá í þarlendu dag-
blaði, Al-Mada, fyrir skömmu, vakið mikla at-
hygli. Segir Hankes-Drielsma að meðal þeirra
sem nafngreindir eru sem mútuþegar í skjölum
Saddam-stjórnarinnar séu Benon Sevan, er
stjórnaði áætluninni fyrir hönd SÞ og hefur
lengi starfað fyrir samtökin. Hann lét af störf-
um fyrir nokkrum vikum. Sevan er 65 ára og
segir ásakanirnar vera uppspuna. Áðurnefnt
dagblað í Írak segir að auk Sevans hafi breski
þingmaðurinn George Galloway, sem var ákaf-
ur andstæðingur Íraksstríðsins, þegið leyni-
legar heimildir til að kaupa ódýra olíu og fleiri
þekkt nöfn hafa verið nefnd.
Árum saman var þögult samkomulag um að
horfa í gegnum fingur þegar Saddam smyglaði
olíu til grannlandsins fátæka, Jórdaníu, meðal
annars var þeim viðskiptum lýst í breska tíma-
ritinu The Economist á sínum tíma. Einnig
nutu íraskir Kúrdar góðs af olíuflutningum yfir
svæði þeirra til Tyrklands, þeir tolluðu flutn-
ingana. En margir benda á að umfang annarra
ólöglegra viðskipta og mútugreiðslnanna sé
mikið og með ólíkindum sé að það hafi farið
framhjá SÞ öll þessi ár.
Fyrirtæki hvergi á skrá
Á vef SÞ er sagt frá því að verið sé að hnýta
alla lausa enda en formlega lauk öllu eftirliti SÞ
með viðskiptum Íraka í nóvember í fyrra. Skýrt
er frá ýmsum undarlegum hlutum á vefsíðu
áætlunarinnar, að sögn heimildarmanna, til
dæmis að stöðvaðir hafi verið nokkrir samn-
ingar um kaup á vörum eða þjónustu til Íraks
vegna þess að umrædd fyrirtæki hafi hreinlega
gufað upp. Þau finnist hvergi á skrá.
Eitt af því sem hefur vakið grunsemdir er að
fyrirtækið Cotecna í Sviss, sem átti að tryggja
að allt færi fram í samræmi við réttar viðskipta-
reglur, er sagt vera að hluta í eigu Kojo Ann-
ans, sonar Kofi Annans. Sjálfur neitar sonurinn
að hafa haft nokkur afskipti af þessum þætti
umsvifa fyrirtækisins en Kojo Annan vann hjá
fyrirtækinu um miðjan tíunda áratuginn. Samið
var við Cotecna í árslok 1998 um eftirlit með
Íraks-viðskiptunum en Kojo var enn á launa-
skrá hjá fyrirtækinu sama ár, þá sem ráðgjafi.
Mútuðu Írakar embættis-
mönnum SÞ með olíugróða?
Kofi Annan lætur óháða nefnd rannsaka spillingu í tengslum við áætlun
samtakanna um olíusölu 1996–2003 til að afla fjár fyrir mat og lyfjum
Reuters
Stúlka í Bagdad með steinolíubrúsa. Saddam
Hussein stakk milljörðum dollara af þjóðar-
auðnum í eigin vasa meðan fólkið leið skort.
’Mikilvægum mönnum íöðrum löndum var hyglað
með því að láta þá hafa
með leynd sérstakar heim-
ildir til að kaupa olíu á
lægra verði en aðrir. ‘
kjon@mbl.is