Morgunblaðið - 16.04.2004, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 49
• Afgreiðslutími innan þriggja vikna
• Bjóðum margar gerðir af heyrnartækjum
sem búa yfir nýjustu tækni
• Verð frá 47.000 – 150.000 kr fyrir eitt tæki
• Persónuleg og góð þjónusta
Segir frá Rétttrúnaðarkirkju Rúss-
lands í MÍR Á morgun, laugardaginn
17. apríl, kl. 15 verður Sergei Gúshín,
ritari í sendiráði Rússneska sam-
bandsríkisins á Íslandi, gestur MÍR
og fyrirlesari í félagsheimilinu Vatns-
stíg 10 og ræðir um rússnesku Rétt-
trúnaðarkirkjuna.
Sergei Gúshín fjallar almennt um
Rétttrúnaðarkirkju Rússlands, lýsir
helstu sérkennum hennar, helgisið-
um og sögu og ræðir um tengsl henn-
ar og samskipti við aðrar kristnar
kirkjudeildir, m.a. íslenska kirkju.
Hann mun einnig segja frá nýlegum
en söfnuði Rétttrúnaðarkirkjunnar
hér á landi. Sergei Gúshín flytur fyr-
irlestur á íslensku og sýnir jafnframt
myndir af íkonum, helgimyndum
Rétttrúnaðarkirkjunnar.
Aðgangur að fyrirlestri og mynda-
sýningu Sergeis Gúshín er ókeypis og
allir velkomnir.
Fræðsla og leiðbeiningar um bún-
ingagerð Fræðslu- og leiðbeininga-
fundur fyrir þá sem hafa áhuga á að
koma sér upp landnámsmannabún-
ingi eða fræðast um forna klæðagerð
verður haldinn á morgun, laugar-
daginn 17. apríl, kl. 14 á Granda.
Fjallað verður um klæðnað forn-
manna, efniskost, handbragð og
skreytingar. Leiðbeiningar fyrir þá
sem huga að búningagerð. Komið
verður inn á snið, saumaskap (í vél og
höndum), frágang og skreytingar á
taufatnaði og nálbindingu á bandlesi.
VG funda um skipulagsmál Borg-
armálaráð vinstri-grænna efnir til
fundar um skipulagsmál á morgun,
laugardaginn 17. apríl kl. 13, í hús-
næði flokksins á 3. hæð í Hafnar-
stræti 20, gengið inn frá Lækjartorgi.
Almennar umræður um skipulagsmál
í Reykjavík. Erindi halda Jón Torfa-
son og Kristín Þorleifsdóttir.
Ráðstefna um landbúnaðarmál
Samband ungra sjálfstæðismanna
stendur fyrir ráðstefnu um landbún-
aðarmál á morgun, laugardaginn 17.
mars kl. 14, í Óðinsvéum, Austurvegi
38, sem er húsnæði sjálfstæðis-
félagsins á Selfossi. Framsögumenn
verða: Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtaka Íslands, Einar
Oddur Kristjánsson alþingismaður
og Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu.
Gönguferð um Seltjarnarnes og
Gróttu Ferðafélag Íslands efnir til
gönguferðar um Seltjarnarnes og
Gróttu á morgun, laugardaginn 17.
apríl, kl. 10. Farið verður frá bíla-
stæðinu við Bakkatjörn úti undir
golfvellinum, gengið út í Gróttu.
Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur
segir frá landmótun og staðháttum
m.a. Seltjörninni.
Í Gróttu tekur á móti göngufólkinu
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness og Hrafnhildur Sigurðardóttir
veitir fróðleik í fræðasetrinu. Hægt
verður að kaupa kaffi og vöfflur til
styrktar lúðrasveitinni. Gróttuviti
verður opinn og er hægt ganga upp í
hann þá verður einnig Læknaminja-
safninu í Nesstofu skoðað og að lok-
um er gengið að Bakkatjörn að nýju
og skyggnst eftir vorfuglunum. Allir
velkomnir og þátttaka ókeypis.
Íslandsmót í spilinu Carcassonne
verður haldið á morgun, laugardag-
inn 17. apríl, kl. 13 í Vinabæ, Skipholti
33. Öllum er heimil þátttaka en kepp-
endur verða að kunna spilið er þeir
mæta til leiks. Þátttaka tilkynnist á
www.spil.is fyrir kl. 24 í í dag, föstu-
daginn 16. apríl. Íslandsmeistarinn
vinnur ferð á heimsmeistaramótið í
Carcassonne sem haldið er í Þýska-
landi í október 2004, segir í frétta-
tilkynningu.
Á MORGUN
UM miðjan febrúar sl. voru haldin
sveinspróf í rafiðngreinum. Alls út-
skrifuðust að þessu sinni 56 svein-
ar. Voru útskrifaðir 32 rafvirkjar, 1
rafvélavirki, 2 rafveituvirkjar og 21
rafeindavirki. Af þessu tilefni héldu
Rafiðnaðarsamband Íslands, Sam-
tök atvinnurekenda í raf- og tölvu-
iðnaði, Rafiðnaðarskólinn og
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins
hóf í húsnæði RSÍ, Stórhöfða 31,
laugardaginn 3. apríl sl., þar sem
sveinum voru afhent sveinsbréfin
og veitt voru verðlaun fyrir góðan
árangur á sveinsprófi.
Rafiðnaðarsveinar útskrifast
LÝÐRÆÐIS- og jafnréttisnefnd
Hafnarfjarðarbæjar hefur sent frá
sér tilkynningu vegna ummæla
dómsmálaráðherra og forsætisráð-
herra um gildandi jafnréttislöggjöf.
„Þrátt fyrir að margt hafi áunnist í
jafnréttisbaráttunni á síðastliðnum
árum er það staðreynd að lítið hefur
miðað í jafnréttisátt á ýmsum mik-
ilvægum sviðum samfélagsins. Jafn-
réttislöggjöfin og framkvæmd henn-
ar er nauðsynleg þar til konum og
körlum hafa verið tryggð jöfn tæki-
færi til þátttöku og áhrifa í samfélag-
inu,“ segir í tilkynningunni.
Jafnréttislögin
nauðsynleg
Súlur víxluðust
Þau mistök urðu við vinnslu Við-
skiptablaðs Morgunblaðsins í gær að
súlur í töflu á bls. C11 víxluðust
þannig að taflan gaf ranga mynd af
því sem fjallað var um. Árin 1999 og
2003 víxluðust í töflunni. Ljósbleik
súla átti að vera fjólublá og öfugt.
LEIÐRÉTT
LANDSSAMBAND stangaveiði-
félaga gengst fyrir ráðstefnu laug-
ardaginn 17. apríl kl. 14–16 á Hótel
Selfossi undir heitinu: „Laxinn –
auðlind á vatnasvæði Ölfusár og
Hvítár“. Markmið ráðstefnunnar er
að fá fram þau sjónarmið sem
ríkjandi eru varðandi laxveiði á
svæðinu og þá möguleika sem fyrir
hendi eru varðandi nýtingu þessarar
auðlindar þannig að hún gefi sem
mest af sér til allra aðila, veiðirétt-
arhafa, leigutaka og veiðimanna.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra flytur ávarp og Magnús Jó-
hannsson og Sigurður Guðjónsson
kynna nýja skýrslu um fiskstofna í
Ölfusá og Hvítá. Einnig halda erindi:
Þorfinnur Þórarinsson, Spóastöðum,
Óðinn Sigþórsson, formaður Lands-
sambands veiðifélaga, Bjarni Ómar
Ragnarsson, formaður SVFR, og
Árni Baldursson. Fundarstjóri verð-
ur Ásmundur Sverrir Pálsson, for-
seti bæjarstjórnar Árborgar.
Ráðstefna um
vatnasvæði Ölf-
usár og Hvítár