Morgunblaðið - 16.04.2004, Side 19
Reuters
Frá heimsókn danska forsætisráðherrans Anders Fogh Rasmussen (í
miðju) í herbúðir danskra hermanna í Basra í Suður-Írak í febrúar sl.
TVEIR af fréttamönnum danska
dagblaðsins Berlingske Tidende
hafa ásamt fyrrverandi liðsmanni
leyniþjónustu hersins, FE, verið
ákærðir fyrir að hafa lekið til al-
mennings trúnaðarupplýsingum úr
skýrslum leyniþjónustunnar um
meint gereyðingavopn Íraka.
Vinstrimenn á þingi krefjast óháðrar
rannsóknar á málinu og segja að
kanna verði hvort ríkisstjórnin hafi
beitt blekkingum til að fá stuðning
við innrásina í Írak samþykkta. And-
ers Fogh Rasmussen forsætisráð-
herra ákvað í gær að láta birta op-
inberlega umræddar skýrslur sem
leyniþjónustan hafði áður lýst sig
andsnúna að kæmu fyrir augu al-
mennings.
Stjórnarandstöðuþingmenn gagn-
rýna Svend Aage Jensby varnar-
málaráðherra fyrir að segja að þing-
nefnd með fulltrúum allra flokka hafi
á sínum tíma samþykkt túlkun
stjórnarinnar á gögnum frá leyni-
þjónustunni. Neita þeir því eindregið
að hafa samþykkt umrædda túlkun.
FE er andvígt því að skýrslurnar
verði birtar í heild en í þeim komu að
sögn danska blaðsins fram efasemd-
ir um hægt væri að fullyrða að Íraks-
stjórn réði yfir gereyðingarvopnum.
Starfandi yfirmaður FE, Niels
Henrik Hedegaard, gagnrýndi í gær
harðlega túlkanir leyniþjónustu-
mannsins fyrrverandi, Frank Sø-
holm Grevils en mjög fátítt er að
menn í stöðu Hedegaards tjái sig op-
inberlega um slík mál.
„Ef ég má taka þetta saman í fáum
orðum var það allan tímann fram að
Íraksstríðinu mat okkar að Írakar
réðu sennilega yfir sýkla- og efna-
vopnum,“ sagði Hedegaard. Hann
viðurkenndi þó að mat af þessu tagi
væri ávallt háð óvissu. En í fullyrð-
ingum Grevils tæki hann einstök um-
mæli úr samhengi. Hedegaard rifj-
aði einnig upp að í skýrslu
bandaríska vopnaeftirlitsmannsins
Davids Kays væri sagt að jafnvel
háttsettir menn í Íraksher hefðu tal-
ið víst að stjórn Saddams réði yfir
gereyðingarvopnum.
Berlingske Tidende birti upplýs-
ingarnar í skýrslunum í febrúar sl.
og var Søholm Grevil rekinn úr starfi
í mars, nokkrum dögum áður en
hann hugðist hætta en hann starfar
nú hjá einkafyrirtæki.
Segir Fogh kannski
ekki hafa beinlínis logið
Grevil segir að leyniþjónustan hafi
sent stjórnvöldum margar skýrslur
og engin þeirra hafi stutt fullyrðing-
ar um að Írakar ættu gereyðingar-
vopn.
„Ég tel ekki að forsætisráð-
herrann hafi beinlínis logið. En eitt-
hvað hefur farið úrskeiðis þegar
hann segir annað en það sem við
skrifuðum í skýrslunum,“ segir
Grevil. Hann telur að ef til vill hafi
ráðherrann verið í góðri trú er hann
tjáði sig um vopnin.
Fogh Rasmussen vísar ásökunum
hans á bug. „Ég hafna þessum full-
yrðingum algerlega. Upplýsingarn-
ar sem ríkisstjórnin og ég lögðum
fram voru í samræmi við þau gögn
sem við höfðum fengið frá leyniþjón-
ustunni,“ sagði Fogh Rasmussen í
vikunni. Hann sagði Dani hafa stutt
innrásina í Írak vegna þess að Sadd-
am hefði neitað samvinnu við Sam-
einuðu þjóðirnar eftir Persaflóa-
stríðið 1991, vopnin hefðu ekki verið
aðalástæðan.
Umdeildar danskar
leyniskýrslur birtar
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 19
LJÓST var í gær, að Afríska þjóð-
arráðið (ANC) hafði unnið stór-
sigur í þingkosningunum í Suður-
Afríku á miðvikudag, en þegar búið
var að telja 40% atkvæða hafði það
fengið 68,7%. Er um að ræða
þriðja sigur flokksins á 10 árum og
styrkir það mjög stöðu Thabos
Mbekis, forseta landsins.
Í öðru sæti og langt á eftir var
Lýðræðisbandalagið (DA) með
14,8% atkvæða og í því þriðja
Inkatha-frelsisflokkurinn (IFP),
flokkur Zúlúmanna, með 5,1%. 21
milljón var á kjörskrá en ekki hef-
ur verið upplýst hver kjörsóknin
var.
Sigurinn tryggir Mbeki sitt ann-
að kjörtímabil á forsetastóli og
auðveldar honum að stíga út úr
skugganum af Nelson Mandela,
fyrrverandi forseta. Nýtur hann
þess, að tiltölulega góður gangur
er í efnahagslífinu en það hefur þó
ekki komið í veg fyrir mikla fátækt
og atvinnuleysi. Þá hefur afstaða
hans til alnæmisvandans oft verið
kölluð hneykslanleg en lengi vel af-
neitaði hann í raun tilvist sjúk-
dómsins.
Varað við eins
flokks ríki
Þótt Lýðræðisbandalagið, sem
nýtur aðallega stuðnings hvítra
manna, sé ekki líklegt til að fá
nema um 15% atkvæða, þá jókst
fylgi þess mikið í kosningunum og
er það nú eini stjórnarandstöðu-
flokkurinn, sem eitthvað kveður að.
Gagnrýndi leiðtogi flokksins,
Tony Leon, Mbeki harðlega í kosn-
ingabaráttunni og hélt því fram, að
Suður-Afríka væri að verða að eins
flokks ríki, áratug eftir að aðskiln-
aðarstefna stjórnar hvíta minni-
hlutans var afnumin og óskorað
lýðræði komst á.
Stórsigur
Afríska
þjóðar-
ráðsins
Pretoríu. AFP.
Thabo MbekiTony Leon
Kosningar í S-Afríku