Morgunblaðið - 16.04.2004, Qupperneq 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
he
im
sæ
kt
u
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
GIFTLE
Glæsilegir kaupaukar*!
KYNNING
Í DAG OG Á MORGUN,
LAUGARDAG
Fjölmargar spennandi nýjungar
s.s. Body Sculptesse sem mótar
líkamann, glitrandi púður og farði
sem fullkomnar húðina.
*ef keyptar eru LANCÔME vörur fyrir
5.500 kr. eða meira.
Kringlan • 533 4533 Laugavegur • 511 4533 Smáralind • 554 3960
Höfuðborgarsvæðið | Höfuðborg-
arbúar mættu vera duglegri við
að nýta sér ferðaþjónustu og af-
þreyingu sem í boði er á heima-
slóðum, og verður það skemmti-
lega sem ferðamönnum stendur til
boða í borginni og nágrenni henn-
ar kynnt sérstaklega sumardag-
inn fyrsta.
Það er Höfuðborgarstofa, í
samvinnu við Ferðamálaráð,
Ferðamálasamtök höfuðborgar-
svæðisins og Samtök ferðaþjón-
ustunnar, sem blæs til viðburðar
sem fengið hefur nafnið Ferða-
langurinn 2004. Um 40 ferðaþjón-
ustufyrirtæki taka þátt í því að
bjóða höfuðborgarbúum og öðrum
að kynnast svæðinu þennan dag,
22. apríl nk., en ráðgert er að
þetta verði árlegur viðburður
sumardaginn fyrsta.
Íbúar mikilvægir gestgjafar
„Markmiðið með þessum degi
er að auka ásýnd ferðaþjónust-
unnar á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Dóra Magnúsdóttir, verk-
efnisstjóri ferða- og markaðsmála
hjá Höfuðborgarstofu.
„Hugmyndin með þessum degi
sumardaginn fyrsta er að kynna
fyrir íbúum höfuðborgarsvæðisins
allt þetta skemmtilega sem er í
boði hér því þegar allt kemur til
alls eru íbúarnir sem hér búa mik-
ilvægustu gestgjafarnir fyrir
ferðamenn, bæði íslenska utan af
landi og erlenda ferðamenn. Svo
við viljum að fólkið sem hér býr
viti hvað er í boði og átti sig á því
hvað það er gaman að fara til
dæmis í hvalaskoðun, á hestbak, í
kajaksiglingu og fleira.“
Meðal þess sem verður í boði
þennan dag eru kynningarferðir í
rútu um hin ýmsu hverfi borg-
arinnar og nærliggjandi sveitar-
félög, þar sem fólk fræðist um
ýmislegt sem það vissi ekki fyrir
með hjálp fróðra leiðsögumanna.
tekist hafi að bjóða upp á fjöl-
breytta dagskrá á mjög hagstæðu
verði, og hvetur hún borgarbúa til
að taka þátt í þessum degi og
kynnast höfuðborgarsvæðinu sem
ferðamannastað.
Kostnaður vegna Ferðalangs
2004 er einkum vegna kynning-
arstarfsemi í tengslum við daginn.
Dóra segir kostnaðinn ekki kom-
inn endanlega í ljós, en segir hann
líklega verða um 4 milljónir
króna.
gera um helgar. Við viljum opna
augu fólks til að það geti litið á
höfuðborgarsvæðið með augum
gestsins,“ segir Dóra.
Hún segir leiðina að því mark-
miði vera að fá aðila ferðaþjónust-
unnar til að opna dyr sínar þenn-
an dag og bjóða Íslendinga
sérstaklega velkomna. Hún segir
að vel hafi gengið að fá aðila í
ferðaþjónustunni til að taka þátt í
þessum degi, og yfir 40 fyrirtæki
taka þátt í þessu. Dóra segir að
Einnig verður boðið upp á útsýn-
isflug yfir borgina á hagstæðu
verði, söfn kynna kost sinn, hvala-
skoðunarbátar sigla o.fl.
Opna augu fólks
„Það er alveg ótrúlega margt í
boði hér innan höfuðborgarsvæð-
isins og við jaðarinn, og mark-
miðið er að gera fólki ljósa þessa
gífurlegu afþreyingarmöguleika.
Það er til dæmis hægt að gera svo
margt annað en fólk er vant að
Kynna höfuðborgarsvæðið fyrir íbúum borgarinnar sumardaginn fyrsta
Sjá möguleika borgarinnar
með glöggum gestsaugum
Morgunblaðið/Heiðar Þór
Augun opnuð: Reynt verður að gefa íbúum höfuðborgarsvæðisins nýja sýn á svæðið sumardaginn fyrsta.
Seltjarnarnes | Bæjarstjórn Seltjarn-
arness samþykkti nýverið að hækka
greiðslur með börnum frá átján mánaða
aldri sem sækja einkarekna leikskóla um
36%. Þeir sem helst nýta sér þjónustu
einkarekinna leikskóla eru foreldrar barna
sem verða 18 mánaða eftir að haust-
úthlutun hefur átt sér stað. Pláss á leikskól-
unum losna venjulega ekki yfir veturinn.
Því er leikskólaplássum úthlutað á haustin
þegar elstu börnin flytjast yfir í grunn-
skóla. Foreldrar barna sem verða 18 mán-
aða á skólaárinu geta þá oft fengið vist fyrir
börnin á einkareknum leikskóla á meðan
beðið er eftir tryggu plássi á leikskólum
Seltjarnarness. Hækkunin mun einnig
koma þeim til góða sem kjósa einkarekna
leikskóla, t.d. vegna uppeldisáherslna.
Leikskólakostnaður
jafnaður
Breytt gatnagerðargjöld | Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar samþykkti nýlega nýja
gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Hafn-
arfirði. Gjöldin haldast óbreytt fyrir ein-
býlis-, rað- og parhúsalóðir þar sem þau eru
reiknuð eftir fermetrum í lóð. Gjaldið fyrir
lóðir undir fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði og
gripahús verður hins vegar hér eftir reikn-
að út frá fermetrum í húsbyggingunni.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ kem-
ur ennfremur fram að í samræmi við nýja
gjaldskrá verða gerðar endurbætur á út-
hlutunarskilmálum og mun staðfesting-
argjaldið verða fellt niður. Í stað þess þarf
nú að greiða lágmarksgatnagerðargjald
innan mánaðar frá úthlutun, annars fellur
lóðarveitingin niður án frekari fyrirvara.
Ódýrara í sund | Viðmiðunaraldur full-
orðinsgjalds í Sundlaug Seltjarnarness hef-
ur nú hækkað, og miðast fullorðinsgjald hér
eftir við 16 ára aldur. Með ákvörðun um
þetta er Bæjarstjórn Seltjarnarness að
bregðast við ábendingu Ungmennaráðs
Seltjarnarnesbæjar um hækkun viðmið-
unaraldurs. Hér eftir greiða því börn og
ungmenni frá 5–16 ára aldurs 60 kr. fyrir
aðgang að lauginni, en fullorðinsgjald er
200 kr.
Nafnasamkeppni | Efnt verður til sam-
keppni meðal Garðbæinga um nafn á nýtt
íþróttahús í Hofsstaðarmýri sem tekið
verður í notkun í haust. Frestur til að skila
inn tillögum verður til 25. maí 2004. Veitt
verða þrenn verðlaun, árskort í sundlaug
Garðabæjar og bókaverðlaun, en fyr-
irkomulag samkeppninnar verður kynnt
nánar á næstunni.
Mosfellsbær | Gönguferðir eru hin
prýðilegasta heilsubót. Hvort sem
gengið er í sól og blíðu eða rigningu
og slagviðri er útivistin til bóta fyrir
líkama og sál og sambandið ræktað
við guð og menn. Þessi litla fjöl-
skylda tók sér góðan göngutúr í
rigningunni í Mosfellsbænum og
fylgdi hvutti hinn hressasti með í
förinni.
Morgunblaðið/Ásdís
Gengið í „góða veðrinu“