Morgunblaðið - 16.04.2004, Qupperneq 24
SUÐURNES
24 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Námskeið fyrir ferðaþjónustuna
Ferðamálasamtök Íslands halda námskeið um við-
skiptaáætlanir, fjárhags- og rekstraráætlanir, fjár-
mögnunarmál og bókhald miðvikudaginn
21. apríl nk.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Keflavík,
Reykjanesbæ, frá kl. 10:00-16:00.
Leiðbeinendur verða frá Deloitte, Ferðamálasetri
Íslands og Landsbanka Íslands.
Þeir, sem vilja nýta sér þetta, vinsamlegast
skrái sig í síma 893 4096 hjá Kristjáni Páls-
syni. Námskeiðsgjald er kr. 2.500, innifalið
námskeiðsgögn, matur og kaffi.
Ferðamálasamtök Suðurnesja
Reykjanesbær | Hugmyndir sem
bæjarstjórinn í Reykjanesbæ hefur
kynnt forystumönnum íþrótta-
félaganna í bænum gera ráð fyrir
uppbyggingu nýs aðalleikvangs
með stúku fyrir 1600 manns á bak
við Reykjaneshöllina. Þar verði
einnig byggðir fleiri vellir og
íþróttamannvirki í framtíðinni.
Jafnframt er í hugmyndunum gert
ráð fyrir möguleikum á uppbygg-
ingu svokallaðrar sportakademíu
framan við Reykjaneshöllina.
Keppnisvellir beggja knatt-
spyrnufélaganna í Reykjanesbæ,
Keflavíkur og Ungmennafélags
Njarðvíkur, þarfnast endurnýjun-
ar. Í nýlegri framtíðarsýn Kefla-
víkurfélagsins er lýst yfir áhuga á
að þeirra völlur verði lagfærður og
byggð við hann stúka, samkvæmt
kröfum Knattspyrnusambands Ís-
lands og Knattspyrnusambands
Evrópu sem taka gildi 2007. Í
skýrslu félagsins er þeim mögu-
leika þó haldið opnum að byggður
verði nýr aðalleikvangur fyrir bæði
félögin, ef bæjaryfirvöld vildu
standa að því en Keflavíkursvæðið
við Sunnubraut yrði áfram aðal fé-
lagssvæði þess.
Eins og Laugardalurinn
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
fengu Arkitektur.is til að koma
með tillögur að skipulagi svæðisins
við Reykjaneshöllina, meðal ann-
ars í þágu íþróttahreyfingarinnar.
Bæjarstjóri og arkitektarnir Páll
Tómasson og Guðmundur Gunn-
arsson kynntu hugmyndirnar for-
svarsmönnum íþróttafélaganna á
fundi í fyrrakvöld.
Í hugmyndunum er gert ráð fyr-
ir byggingu aðalleikvangs á bak við
Reykjaneshöllina og myndi stúkan
tengjast höllinni. Gert er ráð fyrir
sætum fyrir 1500 til 1600 manns og
að síðar verði hægt að byggja aðra
jafnstóra stúku hinum megin vall-
arins, ef á þyrfti að halda. Undir
stúkunni eiga síðan að vera bún-
ingsklefar, félagsaðstaða og þjón-
usta við áhorfendur. Á svæðinu á
bak við Reykjaneshöllina, sem í
daglegu tali er nefnt Neðra-Nikk-
elsvæði, er síðan gert ráð fyrir
frekari uppbyggingu íþróttavalla
og húsa. Þar er meðal annars gert
ráð fyrir íþróttasvæði fyrir UMFN
þar sem hugmyndin er að taka nú-
verandi völl félagsins undir hjúkr-
unarheimili og aðra uppbyggingu í
þágu aldraða. Það kom þó skýrt
fram hjá Árna Sigfússyni að Njarð-
víkurvöllurinn yrði ekki tekinn
undir aðra starfsemi fyrr en nýtt
æfingasvæði yrði tilbúið. Jafnframt
var tekið fram að núverandi fé-
lagssvæði Keflavíkur við Sunnu-
braut yrði áfram hjarta þess fé-
lags, eins og félagið hefur lagt
áherslu á.
Á bak við Reykjaneshöllina er
einnig gert ráð fyrir stóru útivist-
arsvæði og jafnvel fjölskyldugarði.
Fram kom hjá Páli að svæðið gæfi
mikla möguleika til uppbyggingar
á næstu 20 til 30 árum enda væri
það um það bil jafn stórt og allur
Laugardalurinn í Reykjavík.
Neðra-Nikkelsvæðið er í eigu rík-
isins og var auglýst eftir tilboðum í
það fyrir mörgum mánuðum. Því
ferli er ekki lokið en Árni sagði að
óskað hefði verið eftir viðræðum
við ríkið um kaup bæjarins á land-
inu.
Árni Sigfússon var ánægður með
viðtökur forsvarsmanna íþrótta-
félaganna. Hann sagði að hug-
myndirnar yrðu ræddar við þá
áfram og þróaðar frekar ef sam-
staða næðist. Á fundinum kom
fram að af þessum verkefnum væri
aðalleikvangurinn brýnasta úr-
lausnarefnið, vegna krafna KSÍ og
UEFA, og taldi Árni unnt að
byggja hann á næstu tveimur til
fjórum árum.
Aðstaða fyrir sportakademíu
Framan við Reykjaneshöllina er
gert ráð fyrir íþróttatorgi og að-
stöðu fyrir stofnun, svokallaða
sportakademíu, sem bæjaryfirvöld
hafa verið að undirbúa.
„Það er eðlilegt að byggja á
styrkleikum sveitarfélagsins. Hér
er mjög öflugt og fjölbreytt
íþróttalíf. Þetta er gott framhald til
að auka áhugann og styrkja enn
frekar,“ segir Árni Sigfússon bæj-
arstjóri um þetta verkefni og bætir
því við að slík starfsemi væri at-
vinnuskapandi.
Hugmyndin með sportakademí-
unni er að koma upp aðstöðu til
starfsþjálfunar þjálfara og þjálfun-
ar íþróttafólks og jafnvel frekari
menntunar á þessu sviði. Hug-
myndir arkitektanna gera ráð fyrir
þessari aðstöðu framan við Reykja-
neshöllina og að það yrði eins kon-
ar miðja svæðisins enda stutt í öll
helstu íþróttamannvirki bæjar-
félagsins.
Undirbúningur hefur staðið í
nokkra mánuði og hefur meðal
annars verið rætt við yfirvöld
menntamála og fulltrúa íþrótta-
hreyfingarinnar í landinu og einnig
verið þreifað fyrir sér um stofnun
undirbúningsfélags um að standa
fyrir uppbyggingunni.
Árni segir viðtökur jákvæðar en
leggur áherslu á að málið sé enn á
hugmyndastigi.
Hugmyndir að nýju skipulagi við Reykjaneshöllina hafa verið kynntar fyrir íþróttaforystunni
Nýr leikvangur og sportakademía
Framtíðin: Á teikingu frá Arkitektur.is sést hluti hugmynda arkitektanna um uppbyggingu íþróttasvæðis í miðju
Reykjanesbæjar. Reykjaneshöllin er stóra byggingin með hvíta hvolfþakinu, ofarlega til vinstri. Neðan við hana er
sýndur nýr aðalleikvangur og stúkur teiknaðar beggja vegna. Á neðri hluta myndarinnar eru síðan sýndar hug-
myndir um ýmsa íþróttavelli og annað stórt íþróttahús sem unnt væri að byggja í framtíðinni. Framan við Reykja-
neshöllina, uppi í hægra horni myndarinnar, er gert ráð fyrir „háskólatorgi“ og aðstöðu fyrir sportakademíu.
umhverfið annað en hún hafi átt
að venjast. Málverkin sem hún
sýnir eru öll ný en hún segir að
þau séu þó í beinu framhaldi af
lokaverkefnum hennar úr nám-
inu, þó í öðru formi sé. Síðasta
verkefnið í Kaliforníu var stórar
kolateikningar, allt að fjórir
metrar á hæð og sex á breidd og
sýndi hún þau úti í Oakland.
Sýningin í Grindavík er tólfta
einkasýning Soffíu Sæmunds-
dóttur en hún hefur auk þess tek-
Grindavík | Soffía Sæmundsdóttir
opnar sýningu á verkum sínum í
sýningarsal Saltfiskseturs Íslands
í Grindavík á morgun, laugardag,
klukkan 15. Sýningin er haldin í
tilefni af þrjátíu ára afmæli
Grindavíkurbæjar sem haldið er
hátíðlegt um helgina.
Soffía velur sýningunni heitið
Himinn, jörð, flæði … Hún telur
viðfangsefninu best lýst með texta
sem settur er upp á sýningunni og
hljóðar svo:
Á ferð
er eitt andartak ekkert
renna saman
tími jörð himinn
flæði
eftir standa brotin
tínir þau saman
heldur áfram.
Soffía vill ekki vera svo hátíð-
leg að kalla þetta ljóð heldur
frekar lýsingu á hughrifum sem
hún verður fyrir við vinnuna.
Soffía lauk á síðasta ári meist-
aranámi við Mills College í Oak-
land í Kaliforníu og segir að þótt
hún hafi oft sýnt hér heima sé
hún enn að koma sér fyrir hér.
Því hafi hún tekið fegins hendi
boði um að sýna í Saltfisksetrinu í
Grindavík þegar það barst. Sýn-
ingarsalurinn sé skemmtilegur og
ið þátt í fjölda samsýninga. Fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Saltfisksetrinu að hún hefur hlot-
ið margvíslegar viðurkenningar
fyrir verk sín, meðal annars ný-
verið bandarísk listverðlaun sem
kennd eru við listmálarann Joan
Mitchell og eru veitt af sam-
nefndri stofnun í New York fyrir
framúrskarandi árangur í málun.
Sýningin stendur til 2. maí og
er opin alla daga frá klukkan 11
til 18.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Andartak: Soffía Sæmundsdóttir við eitt verkanna sem hún sýnir í Grindavík.
Soffía Sæmundsdóttir opnar sýningu í Saltfisksetrinu
Himinn, jörð, flæði …
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111