Morgunblaðið - 16.04.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert umburðarlynd/ur, ör-
lát/ur og hjartahlý/r. Þú hef-
ur dásamlega kímnigáfu og
ert mjög tryggur vinur. Árið
framundan getur orðið besta
ár ævi þinnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að gefa þér tíma til
að vera ein/n með sjálfri/
sjálfum þér í dag. Þú þarft
tíma til að melta hlutina
þannig að þú vitir nákvæm-
lega hvað þú vilt gera.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að gefa þér tíma til
að vera ein/n með sjálfri/
sjálfum þér í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er líklegt að gamlir vinir
banki upp á hjá þér þessa
dagana. Það er um að gera að
halda sambandi við fólk úr
fortíðinni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gamalt vandamál kemur til
umræðu á milli þín og for-
eldra þinna eða yfirmanna.
Vertu opin/n fyrir skoðunum
annarra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver, sem er langt í
burtu, gæti haft samband við
þig í vikunni. Það er margt að
gerast í millilanda-
samböndum þínum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er góður dagur til að
ganga frá gömlum skatta-,
trygginga- og erfðamálum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er tilfinningahiti í sam-
ræðum þínum við aðra í dag.
Þetta má hugsanlega rekja til
þess að gamall kærasti eða
kærasta hafi skotið upp koll-
inum að nýju. Farðu varlega.
Það er ekki alltaf til góðs að
reyna aftur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta getur orðið mjög af-
kastamikill dagur í vinnunni.
Reyndu að ganga frá lausum
endum áður en þú ræðst í
eitthvað nýtt. Láttu ekki tafir
slá þig út af laginu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gamlir kærastar eða kær-
ustur gætu skotið upp koll-
inum að nýju. Reyndu að
muna að hamingjan er besta
hefndin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður dagur til að
ganga frá einhvers konar
fjölskyldumálum. Eins og þú
veist þá geturðu ekki fengið
þér ný húsgögn fyrr en þú
hefur losað þig við þau
gömlu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er mikil hætta á töfum og
samskiptatruflunum í dag og
næstu daga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert sérlega sjálfsörugg/ur
í viðskiptum í dag. Þú munt
því hugsanlega láta verða af
kaupum sem þú hefur lengi
verið að velta fyrir þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SKÖFNUNGUR
Rúnar eru á mæki merktar,
magnaðar í dverga sal;
eggjar eru í eitri hertar,
eldur býr í miðjum fal;
ormur í hjöltum á sér ból,
á þau má ei skína sól.
Tómlátur er tangi benja,
ef til hans þrífur bölvís hönd;
kyrr í slíðrum gramur grenjar,
gengur ei um friðarbönd;
heill er Sköfnungs horfin þá,
honum eigi bregða má.
Ef staðgóður og stilltur drengur
í stríði réttu Sköfnung ber,
þá úr slíðrum greitt hann gengur,
grandar því, sem fyrir er,
kveður hátt við hanagal
heljar yfir föllnum val.
- - -
Grímur Thomsen
LJÓÐABROT
Í TÍUNDU umferð Ís-
landsmótsins tókst nokkr-
um pörum að komast í sex
lauf á þessar hendur:
Norður
♠105
♥K542
♦G87
♣7432
Suður
♠KD962
♥Á7
♦Á
♣ÁKDG10
Þótt sex lauf sé góð
slemma er hún engan veg-
inn örugg. Trompið í blind-
um er óþægilega veikt og
það skapar hættu á yf-
irtrompun þegar reynt er
að fríspila spaðann. Hvern-
ig myndi lesandinn spila
með hjarta út?
Fyrsta hugsunin er sú að
taka slaginn í blindum og
spila spaða heim á kóng.
Þessi byrjun kitlar spila-
taugarnar, en er kannski
ekki sú besta. Því hvað á
þá að gera ef kóngurinn
heldur slag? Á að taka eitt
tromp eða tvö áður en
spaða er spilað aftur? Það
er vandinn.
Norður
♠105
♥K542
♦G87
♣7432
Vestur Austur
♠83 ♠ÁG74
♥D963 ♥G108
♦K106432 ♦D95
♣8 ♣965
Suður
♠KD962
♥Á7
♦Á
♣ÁKDG10
Svona leit spilið út í heild
sinni. Ef sagnhafi hefur
byrjað á hjartakóng og
spaða á kóng, verður hann
nú að gera upp við sig
hvort hann tekur eitt eða
tvö tromp. Í töfluleik ákvað
suður að taka ÁK í laufi
áður en hann spilaði spaða
á tíuna. Austur fékk slag-
inn á gosann og banaði
slemmunni með því að
trompa út.
Suður hefði unnið
slemmuna með því að taka
bara eitt tromp, en það gat
hann alls ekki séð fyrir af
öryggi. Það var byrjunin
sem var röng. Betra hefði
verið að taka fyrsta slaginn
heima og spila spaðakóng.
Hvort sem ásinn er í aust-
ur eða vestur er líklegt að
vörnin taki slaginn strax.
Og þá hefur sagnhafi vald
á trompinu. Hann getur
tekið ÁK í laufi og stungið
svo spaða tvisvar í borði.
Auðvitað er til í dæminu
að vörnin dúkki spaðakóng-
inn, en varla án þess að
upplýsa um ásinn. En jafn-
vel þótt gert séð ráð fyrir
þeirri ótrúlegu vörn að
austur dúkki án umhugs-
unar, getur sagnhafi aukið
líkur sínar með því að spila
hjarta á kóng og spaðatíu
úr borði. Og þá verður fátt
um varnir.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. Bg5 d5 3. e3 e6
4. c4 c6 5. Rc3 Rbd7 6. cxd5
exd5 7. Bd3 Be7 8. Rge2 0-0
9. Dc2 He8 10. 0-0 Rf8 11.
Hab1 Rh5 12. Bxe7 Dxe7 13.
b4 a6 14. a4 Be6 15. b5 axb5
16. axb5 Rf6 17. bxc6 bxc6
18. Ra4 R8d7 19. Hfc1 Hec8
20. Rf4 Da3 21. Rxe6
fxe6 22. Ha1 Db4 23.
h3 c5 24. Rxc5 Hxa1
25. Hxa1 Rxc5
Staðan kom upp í
danska meist-
aramótinu sem lauk
fyrir skömmu í
Köge. Klaus Berg
(2.436) hafði hvítt
gegn Lars Bor-
bjerggaard (2.376).
26. Hc1! Rxd3?
Hyggilegra hefði
verið að gefa peð í
stað þess að fá stór-
sókn hvíts á sig. 27.
Dxc8+ Kf7 28. Hc7+ Kg6
29. Dh8 De1+ 30. Kh2 Rh5
31. De8+ Kh6 32. Dxe6+ g6
33. Dg8 Rf6 34. Df8+ Kg5
35. h4+ og svartur gafst
upp. Hinn kunni skákbók-
arhöfundur og alþjóðlegi
meistarinn Steffen Ped-
ersen vann mótið en það var
líkt og Íslandsmótið haldið
með útsláttarfyrirkomulagi.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Herrann þarna spyr hvort bjóða megi ungfrúnni
minkapels með drykknum?
PRIMERA
öllu
Ein með
Nýja Primeran er bíll framtíðar-
innar. Hið einstaka N-FORM
aksturskerfi gerir þér kleift að
nota þrjá aðalrofa til að stjórna
öllum helstu aðgerðum bílsins
með fingurgómunum. Primeran
er auk þess með myndavél að
aftan sem sýnir þér hversu
nálægt þú ert næsta bíl á skjá í
mælaborðinu. Hugvitssamleg
hönnun Nissan Primera kemur
þér skemmtilega á óvart. Nissan
Primera – prýðileg fyrir þá sem
vilja eina með öllu. Komdu við
hjá Ingvari Helgasyni og
kynntu þér málið nánar.
Verð frá 2.260.000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
0
0
9
2
9
5
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 18. apríl nk.
verður níræð Guðný Bald-
vinsdóttir. Af því tilefni
býður hún vinum og ætt-
ingjum í kaffi á afmælisdag-
inn milli kl. 14–17 í salnum á
efstu hæð á Borgarbraut
65a, Borgarnesi.