Pressan - 19.12.1991, Blaðsíða 32
32
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
Hverjir eiga Island?
fíáða nokkrar fjölskyldur háskalega miklu á íslandrtkrafti gífurlegra eigna og samtengdra hagsmuna?
Hefursamþjöppun auðs og valda þróast með margföldum hraða að undanförnu?
Hinn kostulegi samstarfsmaður höfundar, Nóri, heldurþví fram að valdataumarnir í stærstu fyrirtækjum landsmanna, jafnvel heilar
atvinnugreinar, séu í höndum örfárra einstaklinga, sem fæstir hafa heyrt getið.
Söguglaðir og meinfyndnir frændur Nóra vita flest sem gerist að tjaldabaki í viðskiptalífinu og á ríkmannslegustu heimilum landsins.
Er flokksmönnum á laun skipt í„hreinu og óhreinu börnin"? fíekast stjórnmálamenn allt íeinu á það, jafnvel eftir að þeir eru orðnir
ráðherrar, að hin eiginlegu völd verða aidrei þeirra? ____________
Er Kolkrabbinn til? I ~--------
Eða er hann hugarburður? í I
Upplýsingar um baksvið íslensks viðskiptalífs. Kortlagning á stjórnum og I jl ----? /
eigendum stórfyrirtækja. Aragrúi mynda, þ.á m. mörg sjaldséð andlit. >./ J|MÍ||f||fTllfl /
HvererhannþessiNóri? / Verö kr. y----------II H.B Un I |
Frægasta sakamál aldarinnar
Svonefnt Geirfinnsmál varáhvers manns vörum um fjögurra ára skeið, á
árunum 1976 til 1980, og var raunar samsafn meintra glæpaverka undireinu
heiti. Það er margra álit að ekki hafi fundist fullnægjandi skýring á málinu.
Voru fjögur ungmenni dæmd til þungrar refsingar fyrir morð sem þau
frömdu ekki?
Hann kom til íslands
til að njósna fyrir Þjóðverja
Heimsstyrjöldin síðari skóp mörgum manninum sérkennileg / ''n
örlög og íslendingurinn IBÁrnason fíiis fór ekki varhluta af / /e . í.
því. Þýska leyniþjónustan sendi hann hingað til lands vorið (
1942, en hann gekk til liðs við bresku leyniþjónustuna og V
gerðist gagnnjósnari hennar. >
Bærinn við fjörðinn '
skartar sínu fegursta
Bókin er kynning á Akureyri í myndum og máli. Á annað
hundrað mynda eru í bókinni, allar í lit. Flestar myndirnar eru
nýjar og er því bókin lýsing á Akureyri eins og hún er í dag.
Pelli sigursæli
Baráttan mikla
Pelli sem átt hefur erfiða ævi íuppvexti er nú
orðinn fullvaxta. iþessari bók er Pelli að kynnast
erfiðleikum hinna snauðustu á
vinnumarkaðnum. Verkaiýðsbaráttan erá
frumstigi og hann leiðist inn í þau átök. Hann
brýst úr fjötrum, því þrátt fyrir tilhneigingu til
undirgefni hefur ekki tekist að brjóta niður
sterka tilfinningu hans fyrir réttlæti. fíitverk Nexo
eiga ekki síst erindi til nútímafólks, eins og hinir
fjölmörgu aðdáendur fyrri bóka þekkja.
Guðsbörn þurfa
gönguskó
Fimrhta bindi hinnar athyglisverðu
ævisögu segir frá því er Maya flyst
til Ghana og sannreynir að „ekki
verðuraftur snúið heim“. Hún
nýturþess í fyrstu að vera svört í
svertingjalandi, en...
Maya Angelou hefur einstaka
hæfileika til að leiða lesandann inn
í persónulegt völundarhús sitt og
leiða hann út aftur endurnærðan
og jafnvel fagnandi.
Allt um hesta og menn 1991
I bókinni segir frá frækilegri fimm daga hestaferð eins manns með fjóra hesta norður
fyrir Vatnajökul. Einnig ersagt frá hestaferð nokkurra fjölskyldna kringum Tindfjöll.
Hér segir frá fjórðungsmóti Suðurlands, íslandsmóti
og Heimsmeistaramóti íslenskra hesta, sem haldin voru
nú ísumar, í máli og myndum. Einnig eru íbókinni _____,, jk- aSfíf
viðtöl við hestamenn sem komu við sögu mótanna.
Víðförlastí Islendingurinn segir frá
Þessi bók kom út fyrir meira en þrjátíu árum og seldist þá upp á þrem
vikum. Höfundurinn hefur nú endurskoðað hið upphaflega handrit og má
með sanni segja að hann hafi skrifað nýja bók byggða á sömu undirstöðu
og hina fyrri. Einn þekktasti höfundur þjóðarinnar hefur farið mjög
lofsamlegum orðum um bækur Kjartans vegna „máls og stíls, sem hvergi
hnígur". Bókin fjallar um Suður-Ameríku þar sem höfundurinn dvaldi og
kynnti sér lönd og þjóðir.
Aonajon
örNölfub