Pressan - 19.12.1991, Blaðsíða 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
Fimmtánda fjölskyldan
eftir Jón Óttar
... saga sem kannski er að gerast núna.
Knúin áfram af óbilandi trú á réttlætið,
sogast Kristín inn í hringiðu atburðarásar
sem verður því ógnvænlegri sem lengra
líður: Átökin milli fimmtándu íjölskyld-
unnar og hinna fjórtán. Hverjir sigra og
hverjir tapa? Hver er fimmtánda fjöiskyid-
an? Og hver er Óskar Hvammdai?
Sniiiingur? Eða morðingi? /r^\
Og ef ekki hann... þá hver?
IÐUNN
Uppskriftin
sem fór í hund
og kött
Okkur varð dálítið á í messunni í
siðustu PRESSU þegar við birtum
uppskriftina að Vínberjatertu Lísu
sem hún Margrét Lóa Jónsdóttir
skáldkona lagði okkur til. Þeir sem
fóru að skoða uppskriftina komust
fljótt að því að hún fékk aldeilis ekki
staðist — útkoman hefði líklega orð-
ið eitthvað allt annað, kannski
sprengja — og það er miður, því kak-
an er óvenju girnileg.
Því gerum við aðra tilraun til að
birta uppskriftina, í þetta skiptið
skal hún vera rétt. Gjöriði svo vel,
Vínberjaterta Lísu:
125 g smjör eða sólblómi
125 g hveili
100 g hakkaðar möndlur
75 g sykur
1 cl koníak, /2 tsk. kanill (má sleppa)
Þetta er hnoðað, skorið út eftir diski og sett í
hringlaga form tvo sentímetra upp með
börmunum.
450 g kjarnalaus vínber eru sett til hliðar í
skál.
Fylling:
100 g smjör eöa sólblómi
4 eggjarauður
50 g sykur
1 tsk. vanilla
Þetta er þeytt vel en síðan er stífþeyttum hvít-
unum blandaö saman við ásamt xh tsk. af
salti, 50 g af sykri og 100 g af hökkuðum
möndlum.
Að síðustu er vínberjunum blandað saman
við fyllinguna og allt sett ofan á hnoðaða
botninn í forminu.
Bakað við 175—190 gráða hita í u.þ.b. klukku-
stund.
Sendum viðskiptamönnum okkar og öllum landsmönnum hugheilar jóla-
og nýjárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu
Skaftárhreppur
Smurstöðin Stórahjalla,
Kópavogi
Húsavíkurkaupstaður
Einar K. Guöfinnsson,
Bolungarvík
Vopnafjöröur
Laugardalshreppur
Tálknafjöröur
Ólafsvík
Hríse\’