Pressan - 19.12.1991, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 19. DESEMBER 1991
27
VÆNA FLÍS AF
FEITUM SAUÐ
Hvað borða útigangsmenn, fangar, sjúklingar og jólaflóttamenn á jólunum?
ott
um jólin
Zsa-Zsa Eyck
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
(Mál og menning)
Bók sem sannar rækilega
að Sigurður Guðmundsson
er, ef ekki besti, þá örugg-
lega skemmtilegasti nýlista-
maður sem íslendingar hafa
eignast; dásamlega fyndinn,
tvíræður, skáldlegur, mátu-
lega gegnsær — iistamaður
sem vinnur vinnuna sína af
alvöru og vandvirkni, en er
þó alveg laus við að hjúpa
sjálfan sig einhverjum há-
tignarbrag.
Thor Vilhjálmsson
ELDUR í LAUFI
(Mál og menning)
Thor skrifar ritgerðir um
aðskiljanleg efni, þó aðal-
lega kúltúr. Hann hryggist
yfir ljótleika mannlífsins í
New York, rámar í að hafa
barn séð Einar Benedikts-
son, fer með Borges að hitta
Sigurjón Ólafsson, talar máli
skálda sem eiga undir högg
að sækja; hneykslast, vegna
þess að hann hefur sem bet-
ur fer ekki misst hæfileik-
ann til þess og til að ergja
sig á sljóleika kerfiskarla og
yfirdrepsskap gervifólks;
brýnir fyrir okkur að þótt
draumar glatist, verði hlægi-
legir eða snúist jafnvel upp í
andhverfu sína, þá geti
maðurinn ekki lifað draum-
laust...
Egill Ólafsson
TIFA TIFA
(Skífan)
Egill er intellektúellinn í
sveit hérlendra poppara.
Hann hefur vasast í mörgu
og því er ekki furða að plat-
an sé dálítið tætingsleg;
þannig speglar hún einmitt
mörg andlit Egils í músík-
inni. Hér eru stef úr kabar-
etttónlist upp á gamlan
móð, úr galsafengnu Stuð-
mannapoppi og myrku
Þursarokki. Tónlist sem
höfðar meira til vitsmun-
anna en tilfinninganna. Góð
samt.
William Shakespeare
LEIKRIT
HELGI HÁLFDANARSON
ÞÝDDI
(Mál og menning)
Helgi Hálfdanarson er alálit-
legasti kandídat íslands í
heimsmetabók Guinness.
Eða bendið á útlenda menn
sem hafa haft þrautseigju til
að þýða alla grísku harm-
leikina og öll leikrit Shake-
speares? Þótt þýðingar hans
séu kannski fulisérviskuleg-
ar á köflum og Matthías hafi
líklega átt háfleygari spretti
í Shakespeare-þýðingum, þá
skilar Helgi frumtextanum
tvímælalaust best, svona í
heildina tekið.
Sigrún Eövaldsdóttir
CANTABILE
Sigrún Eðvaldsdóttir er ekki
bara sæt og ferlega
skemmtileg, hún er líka frá-
bær fiðluleikari sem hefur á
valdi sínu bæði tækni og til-
finningu. Hér leikur Sigrún
við undirleik Selmu Guð-
mundsdóttur píanóleikara
nokkur meginverk fiðlubók-
menntanna, meðal annars
eftir snillinga á borð við
Brahms, Chopin, Paganini,
Sarasate og Sibelius. Hljóm-
diskur sem hæfir jólunum
og reyndar öllum öðrum
dögum líka ...
Þeir eru margir sem eiga í
engin hús að venda á jólun-
um og hinir eru líka til sem
vilja fyrir engan mun vera
heima hjá sér um hátíðirnar
og kjósa að eyða þeim á veit-
ingahúsi. Svo er fólk sem þarf
að vinna um jólin, á sjúkra-
húsum, elliheimilum, á sjón-
um og alls kyns aðra vakta-
vinnu. Sjúklingarnir komast
ekki allir út af sjúkrahúsun-
um og halda þá spítalajól og
fangarnir á Litla-Hrauni
fagna jólunum bak við læstar
dyr og rimla. En jólin, þau
láta ekki að sér hæða, og
koma jafnt til þessa fólks sem
annarra og þó að jólaköttur-
inn breimi á gluggunum
verður hann að fara annað til
að seðja hungrið.
Þrátt fyrir jólaskapið hefur
jafnvel flogið að besta og
versta fólki að það gæti verið
þægilegt að halda jólin ann-
ars staðar en heima. Þegar
farið er yfir bókhaldið eru
hreinlega ekki til peningar til
að kaupa allt sem þarf að
kaupa, það gefst ekki tími til
að gera allt sem þarf að gera
og...
PRESSAN, Gáttaþefur og
Askasleikir lögðu leið sína á
hina og þessa staði í borginni
og skyggndust ofan í jólapott-
ana hjá ýmsum líknarsam-
tökum, Landspítalanum,
Litla-Hrauni og Hótel Loft-
leiðum þar sem á að elda ým-
ist fyrir gesti, vistmenn, sjúkl-
inga eða viðskiptavini helg-
asta kvöld ársins. Hamborg-
arhryggur og hangikjöt voru
langalgengust í jólapottum
þeim sem PRESSAN kannaði.
EINMANA
AFMÆLISBARN
Tilgangur jólanna vill oft
gleymast í kapphlaupinu um
að hafa það sem best þennan
stutta tíma ársins. Það er hætt
við að afmælisbarninu mundi
rétta sem gestir
Verndar borða á að-
fangadagskvöld er
hangikjöt með upp-
stúf," segir Birgir Kjart-
ansson, formaður
Verndar.
leiðast glymjandinn í auglýs-
ingunum, jólavellan á út-
varpsstöðvunum og æsi-
glampinn í augum afmælis-
gestanna þar sem þeir kepp-
ast við að skara eld að eigin
köku. Kannski það haldi sig
bara víðsfjarri á jólunum og
jólaskapið og friðurinn séu
þegar allt kemur til alls
brennugleði peninganna og
þembutifinning í maganum?
Og þó. Hver veit nema af-
mælisbarnið haldi jólin hátíð-
leg á Furstanum eða Hjálp-
ræðishernum?
60 MANNS TAKA ÞÁTT í
JÓLAMÁLTÍÐ Á HERNUM
Hjálpræðisherinn er með
jólasöfnun í desember undir
kjörorðinu „Hjálpið okkur að
gleðja aðra". Það sem safnast
í jólapottinn svokallaða er að
hluta til notað til að halda
jólafagnað fyrir þá sem eiga í
fá eða engin hús að venda.
Einn slíkur jólafagnaður er
einmitt á aðfangadagskvöld,
en þá býður Hjálpræðisher-
inn þeim sem eru einmana
eða fátækir yfir hátíðirnar að
halda jólin hátíðleg saman.
PREiSSAN ræddi við Daníel
Óskarsson herstjóra og féllst
hann á að segja frá samkom-
unni á hernum og starfinu i
kringum hana:
JÓLAPOTTUR
TIL GÓÐRA VERKA
YFIR JÓLIN
„Það var byrjað með þessa
jólasamkomu skömmu eftir
að Hjálpræðisherinn var
stofnaður á íslandi. Við erum
með jólapottinn á götum úti
fyrir jólin og safnast þegar
saman kemur. Við úthlutum
styrkjum og fatagjöfum til
bágstaddra, sendum gjafir í
fangelsin og öldruðum ein-
stæðingum jólakveðju. Við
höldum margskonar jóla-
fagnaði þegar kemur að
sjálfri hátíðinni. Sem dæmi
má nefna jólamatinn á að-
fangadagskvöld og jólafagn-
að fyrir aldraða.
Á aðfangadagskvöld er op-
ið hús fyrir bágstaddar fjöl-
skyldur, einstæðinga og út-
lendinga sem eru einir yfir
jólin. Þá borða allir saman
jólamat, sem er súpa og steik,
auk hangikjöts, og ís og
ávextir í eftirmat. Við hlýð-
um saman á jólaguðspjallið
fyrir máltíðina og milli rétta
er ýmislegt á dagskrá."
GENGIÐ í
KRINGUM JÓLATRÉÐ
„Eftir matinn göngum við í
kringum jólatréð og förum í
leiki og skoðum því næst gjaf-
irnar, en herinn gefur öllum
gestum sínum gjafir. Börn
þeirra starfsmanna sem við-
staddir eru opna einnig sínar
gjafir sem þau koma með
með sér að heiman. Fram eft-
ir kvöldi er svo hægt að
spjalla saman yfir kaffi og
kökum. Þeir sem vilja verja
þessari stund með okkur geta
hringt og látið vita fyrir að-
fangadag í síma 613203.
í fyrra voru um það bil 60
manns frá tólf þjóðlöndum
Fyrir þá sem eiga nóg af seðlum en eru leiðir á öllu jólastússinu
er tilvalið að snæða á Hótel Loftleiðum á aðfangadagskvöld.
Kokkarnir þar mæla sérstaklega með
hamborgarhrygg og nautalundum.
Jólafagnaður Verndar verður að þessu sinni í veitingahúsinu
Furstanum við Skipholt.
Á Litla-Hrauni snæða menn jólamatinn snemma, þ.e. klukkan
fimm. Á matseðlinum verður hamborgarhryggur með tilheyr-
andi meðlæti.
gestir okkar á aðfangadags-
kvöld og þeir hafa stundum
verið fleiri. Þetta er allskonar
fólk og andrúmsloftið líkt og
hjá stórfjölskyldu. Það sýn-
ir líka gildi jólanna því að
Drottinn Jesús kom til allra
og enginn ætti að þurfa að
vera einmana á jólunum, þó
að því miður séu þau oft tími
einsemdar og þunglyndis hjá
þeim sem standa einir uppi,"
sagði Daníel Óskarsson, her-
stjóri á íslandi, að lokum.
JÓLAFAGN AÐU R
SAMHJÁLPAR FYRIR
SKJÓLSTÆÐINGANA
„Við ætlum að hafa jóla-
máltíð á jóladag í félagsheim-
ili okkar við Hverfisgötu og
hún er fyrir þá sem eru í gisti-
skýlinu við Þingholtsstræti,
áfangaheimilinu á Hverfis-