Pressan - 12.03.1992, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992
15
Stiórnin enn
í minnihluta
Heldur þó sínu frá síðustu könnun Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst þriðjung af
fylgi sínu á einu ári. Framsókn og Kvennalisti styrkjast enn. Kratarnir nálgast aftur
kosningafylgi sitt. Það dregur hins vegar úr fylgisaukningu Alþýðubandalagsins.
Meirihluti kjósenda er enn
andvígur núverandi ríkisstjóm,
samkvæmt skoðanakönnun sem
SKÁÍS gerði fyrir PRESSUNA
um síðustu helgi. Fylgi stjómar-
innar er svipað og það mældist
fyrir tveimur mánuðum og ögn
minna en samanlagt fylgi stjóm-
arflokkanna tveggja.
Könnunin leiðir í Ijós að
47,5% prósent aðspurðra styðja
ríkisstjómina, en 52,5 prósent
em andvíg. Svömn við þessari
spumingu var tæp 97 prósent og
virðast kjósendur hafa mun
ákveðnari skoðanir á ríkisstjóm-
inni en einstökum stjómmála-
flokkum.
LÍTIÐ FYLGIEN
STÖÐUGT
Þetta er svipað fylgi og ríkis-
stjómin naut í skoðanakönnun
um miðjan janúar. Þá studdu
48,2 prósent stjórnina og er
munurinn á fylginu nú innan
skekkjumarka. I upphafi ferils
síns hafði stjómin stuðning rúm-
lega sextíu prósenta, en það
fylgi hvarf hratt og minnst
reyndist fylgi stjórnarinnar í
nóvember, um 43 prósent.
Stjómin heldur því sínum hlut
þrátt fyrir hörð átök síðustu
vikna um einstaka málaflokka,
sérstaklega heilbrigðis- og
menntamál.
Ört fylgisfall stjómarinnar í
fyrra minnir nokkuð á feril ríkis-
stjómar Steingríms Hermanns-
sonar. Meirihluti þjóðarinnar
var andvígur henni mestallan
stjómartíma hennar, ef undan er
skilin ein könnun þar sem hún
náði stuðningi helmings kjós-
enda.
„Gerninga-
veðrinu
hefur
slotað"
segir Jón Baldvin
Hannibalsson
„Þær aðgerðir, sem þessi ríkis-
stjóm hefur beitt sér fyrir, hafa
ekki verið til vinsælda fallnar,"
sagði Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðuflokks.
„Stjómarandstaðan hefur far-
ið hamfómm með öflugum, til-
finningahlöðnum áróðri um að
verið væri að ráðast gegn þeim
sem minnst mega sín og varð
nokkuð ágengt. Nú virðist
mesta gerningaveðrinu hafa
slotað. Alvara málsins er mnnin
upp fyrir fólki og það gerir sér
grein fyrir að aðgerðirnar
byggðust ekki á mannvonsku
þeirra sem að þeim stóðu.
Þetta hefur verið sérstaklega
Ríkisstjórn Steingríms
hermannssonar tekur við
Ríkisstjórn Davíðs
ODDSSONAR TEKUR VIÐ
lúst Nóv. Jon. Mars
KRATAR HOLLASTIR
Þegar litið er á stuðning við
stjómina meðal kjósenda ein-
stakra flokka kemur í ljós að all-
ir kjósendur Alþýðuflokksins
lýsa stuðningi við stjórnina.
Þetta skýtur skökku við þegar
litið er til þeirrar gagnrýni sem
stjórnin hefur sætt meðal al-
þýðuflokksmanna. Þrátt fyrir
gagnrýni forystumanna flokks-
ins í sveitarstjómum, verkalýðs-
hreyfingu og meðal „vinstri
krata“ virðist þetta fólk allt skila
sér með stuðningi við stjómina
þegar á reynir.
Svo hreinar línur er hvergi að
fmna nema meðal krata og kjós-
enda Alþýðubandalags. Hver
einasti kjósandi þess flokks
kvaðst andvígur núverandi ríkis-
stjóm. Meðal sjálfstæðismanna
em skilin næstum eins góð og
hjá Alþýðuflokki, en einungis
tæp tvö prósent kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins kváðust andvíg
stjóminni.
LAUNFYLGIMEÐAL
KVENNA
Kjósendur Kvennalistans em
öðmm klofnari í afstöðu sinni til
ríkisstjóminnar. I Ijós kemur að
næstum fimmtungur þeirra, sem
segjast myndu kjósa Kvenna-
listann, segist einnig styðja rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar.
Skýringar á þessu liggja ekki í
augum uppi, en kunna að eiga
sér rætur í því að Kvennalistinn
fellur nokkuð í skuggann af
Framsóknarflokki og Alþýðu-
bandalagi í stjómarandstöðu og
nýtur þar með ekki sömu sér-
stöðu og á síðasta kjörtímabili.
Meðal sjálfstæðismanna er
stuðningur við ríkisstjórnina
næstum eins mikill og meðal
krata, en einungis tæp tvö pró-
sent kjósenda þess flokks kváð-
ust andvíg ríkisstjóminni. Hjá
kjósendum Framsóknarflokks-
ins er hlutfallið hið sama, en vit-
anlega í hina áttina.
STJÓRNIN SIGLIR SINN
KÚRS
Stuðningsmönnum stjómar-
innar, sem PRESSAN ræddi
við, kom yfirleitt á óvart hversu
stöðugt fylgi stjómarinnar er,
sérstaklega með tilliti til óvin-
sælla aðgerða síðustu vikna og
mánaða. Þá virðist sem óform-
leg stjórnarandstaða innan
flokkanna tveggja hafi ekki
mikil áhrif út á við.
Forystumenn beggja flokka
virðast standa of sterkt til að
þeim eða stjómarsamstarfinu
verði ógnað innan frá. I Sjálf-
stæðisflokknum gætir einkum
óánægju meðal landsbyggðar-
þingmanna og stuðningsmanna
Þorsteins Pálssonar, en innan
Alþýðuflokksins er andstaðan
breiðari og sterkari flokkslega.
Það er hins vegar mjög laus-
bundið bandalag, sem á sér ekk-
ert sameiginlegt annað en and-
stöðuna og getur ekki boðið þá
kosti sem vænlegri þyki við
óbreyttar aðstæður.
Karl Th. Birgisson
Fylm rímssi
yrna 1987-1992
erfitt fyrir Alþýðuflokkinn, sem
telur sig höfund velferðarkerfis-
ins, en taldi þurfa að koma í veg
fyrir að grundvöll þess brysti.
Eftir lægð í nóvember virðist
flokkurinn hins vegar vera að
nálgast kosningafylgi sitt.“
En stjórnin er enn í minni-
hluta.
, Já, enda hefði ég ekki vænst
meirihlutafylgis við hana enn
sem komið er. En ég býst við að
hún treysti stöðu sína ef hér
verða gerðir kjarasamningar
sem tryggja stöðugleika í efna-
hagslífi út árið. Þeir eru enn í
nokkurri óvissu.“
„Eðlilegur
stuðningur"
segir Guðmund-
ur Árni Stefáns-
son.
„Þessi könnun sýnir að fólk
sér fáa kosti aðra en þessa ríkis-
stjórn í hinni pólitísku stöðu.
Útkoma Alþýðuflokksins er
fagnaðarefni og sýnir að fólk
treystir flokknum þegar harðnar
á dalnum í efnahags- og at-
vinnumálum,“ sagði Guðmund-
ur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði og einn þeirra sem
gagnrýnt hafa störf ríkisstjómar-
innar.
„Stuðningur kjósenda Al-
þýðuflokks við ríkisstjómina er
mjög eðlilegur. Flokkurinn tók
þá ákvörðun að ganga til þessa
stjómarsamstarfs og þá styðja
jafnaðarmenn vitanlega þá ríkis-
stjóm. Það segir hins vegar lítið
um hversu ánægt fólk er með
ríkisstjómina og störf hennar.“
„Kemur
ekkiá
óvart,“
segir Steingrímur
Hermannsson
„Minnihluti ríkisstjómarinnar
kemur mér ekki á óvart,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins.
„Þó held ég mælist varla rétt sú
mikla andstaða sem er gegn rót-
tækum aðgerðum ríkisstjómar-
innar, til dæmis í velferðarmál-
um. Hún held ég sé miklu breið-
ari en þama kemur fram.
Eg fagna því að Framsóknar-
flokkurinn skuli vera á uppleið
og reikna með að fylgið aukist
enn á næstunni. Hins vegar er
ég undrandi á fylgisaukningu
Alþýðuflokksins miðað við
hversu marga ég hitti úr þeirra
röðum sem em mjög óánægðir
með störf ráðherra sinna. En
menn eru lengi trúir sínum
flokki.“
SIGHVATUR
Björgvinsson er tvímæla-
laust auglýsingakóngur vik-
unnar. Sighvatur ferðast nú
um landið undir slagorðinu
„Velferð á varanlegum
gmnni“ og heldur fundi á
fundi ofan. Það er að sjálf-
sögðu heilbrigðis— og trygg-
ingaraðuneytið sem stendur
fyrir þessu og nú er bara
spuming hvort Sighvatur
kemst í „eggjabakkaflokk-
inn“ með Olafi G. Einars-
syni. Sighvatur á það sam-
merkt með flokksbróður sín-
um Jóni Baldvini Hannibals-
syni að reyna að ræða við
fómarlömb sín. Sannarlega
kjarkaðir menn! En annar
auglýsingakóngur
GUNNAR
Steinn Pálsson blæs til sókn-
ar vegna auglýsingaherferð-
ar Örvals-Útsýnar, sem
Gunnar segir að sé óvenju
púkaleg og halló, og verður
skjólstæðingur Gunnars,
Samvinnuferðir-Landsýn,
fyrir barðinu. Hefur hann
kært málið til siðanefndar og
óvíst um afdrif þess. Um
leið birtist niðurstaða í öðm
púkómáli, en það er mál
Halls Magnússonar blaða-
manns sem sagði eitthvað
dónalegt um Stephen-
sen-ættina. Hallur ætlar út
til mannréttindadómstólsins
í Strassborg með mál sitt og
getur leitað liðsinnis hjá
ÞORGEERI
Þorgeirssyni rithöfundi sem
kann alira manna best á
Strassborg. Þorgeir er reynd-
ar búinn að fá þann úrskurð
að hann sé ómöguleg gjafa-
vara vegna þess að hann sé
dæmdur glæpamaður. Virð-
ist koma fyrir lítið þótt hann
sé hetja úti í Strassborg —
íslenskir bókaútgefendur
vilja ekki koma nálægt hon-
um. Önnur hetja í
útlöndum er
RANNVEIG
Guðmundsdóttir sem hefur
hafið merki íslendinga aftur
til vegs í Norðurlandaráði.
Eftir þunnan þrettánda í
embættisframa þar síðan
valdaskeiði Páls Pétursson-
arlauk hefur Rannveig aftur
náð völdum. Hún veitir
menningarmálanefnd Norð-
urlandaráðs forstöðu og hitt-
ist þar vel á úr því Fríða Á.
Sigurðardóttir vann bók-
menntaverðlaunin. Kannski
hún geti jafnvel látið þýða
Fríðu yfir á eitthvert mál
sem fleiri skilja.