Pressan - 12.03.1992, Síða 45
FIMMTUDAGUR PKESSAN 12. MARS 1992
45
LÍFIÐ EFTIR VINNU
Hljómsveitin Crossroads, strákar sem spila hvítan blús.
BLÚSINN CEN6UR í ERFÐIR
„Okkur hefur verið mjög vel
tekið þar sem við höfum spilað.
Við spilum mest hvítan blús og
erum kannski undir mestum
áhrifum frá Stevie Ray Vaughn
og Howling Wolves," segir
Tyrfingur Þórarinsson, gítarleik-
ari blússveitarinnar Crossroads.
Ef við leikum okkur aðeins
nteð ættfræði sakar ekki að geta
þess að Tyrfingur er sonur Þórar-
ins Tyrfingssonar læknis, en
bróðir hans er Pétur Tyrfingsson,
ráðgjafi og blúsari í Tregasveit-
inni. Pétur er faðir Guðmundar
Péturssonar, þess snjalla gítar-
leikara í Tregasveitinni. Og það
er ekki allt búið enn, því annar
sonur Þórarins og bróðir Tyrf-
ings, Bjöm, er bassaleikari
Tregasveitarinnar. Þetta er því
hin mesta blúsfamilía.
En pabbi þinn — hann er
ekkert í blúsnum? „Nei, hann
hefur ekkertsmitast. Það er Pétur
sem hefur haft mest áhrif á mig
og Bjössa. Pétur er mjög fróður
um blús,“ svarar Tyrfingur.
Auk Tyrfings eru í Cross-
roads þeir Páll Kristjánsson
söngvari, Hreiðar Júlíusson
trommari, Astþór Hlöðversson
bassaleikari og Svafar Sigurðs-
son, sem leikur á Hammond og
munnhörpu.
Það verður nóg að gera hjá
piltunum næstu daga, á fóstudag
og laugardag verða þeir á Apríl
og á sunnudagskvöldið verða
stórtónleikar á Púlsinum.
„Við emm byrjaðir að semja
eigið efni og fólk má eiga von á
að heyra eitthvað fmmsamið á
tónleikunum á Púlsinum," segir
Tyrfingur. Við skomm á fólk að
gefa þessum strákum gaum, því
þeir eiga eff ir að láta mikið að sér
kveða í framtíðinni.
OC5EPPI
MJAMTAR
ERKI
KJAFTI
„Geltstopparinn er í sjálfu sér
mjög einfalt tæki, markaðssett af
Roger Mugford, sem er einn
þekktasti dýrasálffæðingur í
heimi í dag,“ segir Ami Stefán
Amason, eigandi verslunarinnar
Gogga og trýna í Hafnarfirði.
En hvemig virkar fyrirbærið?
Jú, galdurinn er í raun sáraein-
faldur. Tækið er á ól sem fest er
um háls hundsins og fyllt með
efhi sem heitir sítrónella, en lykt-
ina af því á hundurinn bágt með
að þola. I hvert sinn sem hundur-
inn geltir nemur hljóðnemi gelt-
ið og lítil sprauta úðar þessu efni
fyrir vit hundsins. Hvutti verður
þá gjörsamlega gáttaður og
steinþagnar. Hann er fljótur að
komast að því að í hvert sinn sem
hann rekur upp bofs fylgir þessi
óþolandi lykt í kjölfarið. Hann
sér þá að sér og steinheldur trýni.
Einfalt.
Mannfólkinu þykir
þessi lykt víst bara
ágæt, þannig að ekki
fer hún í taugamar á
því. Og það sem er enn
betra er að þetta veldur
hundunum engum
sársauka. Ami segir að
hundar séu gjamir á að
gelta alltaf undir sömu
kringumstæðunum.
Sumir gelta bara í bfl-
um og aðrir ef þeir em
skildir eftir einir ein-
hvem tíma. Við þau
tækifæri er því gott að
láta þá bera tækið, en
þeir þurfa ekki að vera
stöðugt með það.
Það er akkúrat svo.
Það mætti kannski þróa
eitthvað álíka handa
mannfólkinu. Það er að
minnsta kosti nóg til af kjaftösk-
um — sem betra væri að þegðu.
ÞRJU
STEF
FINNS
Á laugardaginn verður f
Listasafni Islands opnuð sýning
á verkum eftir Finn Jónsson list-
málara. A sýningunni verður úr-
val verka úr listaverkagjöf Finns
og Guðnýjar Elísdóttur til safhs-
ins.
Finnur fæddist 1892 og verð-
ur 100 ára 15. nóvember næst-
komandi. Hann lauk sveinsprófi
í gullsmíði 1919 og hélt þá til
Kaupmannahafnar í listnám. Þar
dvaldist hann í tvö ár en fór þá til
Þýskalands þar sem hann dvaldi
í Berlín og Dresden næstu fjögur
árin.
Listaverkagjöf Finns og
konu hans er ein sú höfðingleg-
asta sem Listasafhinu hefur bor-
ist. Þar em, auk listaverka,
skissubækur, bréfa- og heim-
ildasafn, ljósmyndir, silfurgripir,
verkfæri og steypumót vegna
gullsmíðinnar. Verkin spanna
allan listferil Finns ffá 1907 til
1987 er hann hætti að mála 95
ára að aldri. Þau hjónin gáfu ekki
einungis listaverk heldur einnig
fjármuni til að koma verkunum í
gott horf og flygil af Steinway-
gerð. Listaverkin em því öll í
óaðfinnanlegu ástandi.
A sýningunni verða alls um
75 verk og em þrjú meginstefin í
list Finns tekin þar fýrir; ab-
straktverk, mannamyndir og
landslagsexpressjónir. Margar
myndanna em lítt kunnar al-
menningi en flestir þekkja eink-
um landslags- og þjóðlífsmynd-
ir Finns og verk hans tengd sjó-
mönnum og hafinu. Sýningin
verður opin til 28. apní næst-
komandi.
BÍÓIN_________________________________________________________________
TIL ENDALOKA HEIMSINS Until The End of the World HÁSKÓLABÍÓI
ÞaO sorglega viö þessa mynd er aö áhorfandanum er hjartanlega sama hvaö verö-
ur um persónurnar á tjaldinu. Hann situr bara úti í sal og fylgist meö þeim feröast
heiminn á enda. Þaö gleöilega er aö honum leiöist ekki á meöan. Þaö er nóg annaö
aö skoöa en persónurnar, enda veröur ekki skafiö af Wim Wenders aö hann kann
aö horfa á heiminn gegnum kvikmyndaiinsu. Sumir hafa haldiö fram aö þessi um-
deilda mynd feli í sér djúpa heimspekilega skoöun — þaö er ekki auövelt aö sjá.
★★
legu sænsku króníkku um fólkið á
Saltkrákunni. í hálfleik er boðið upp
á djús. Sun, kl. 14.
SJÓNVARP
• Business as Usual. Mynd um
kynferðislega áreitni, það vandamál
sem Halldór Laxness stakk raunar
BOKIN
JIM CARRISON
ONTHETRIAL OF
THE ASSASSINS
Samsæriskenningar
um dauöa Kennedys
tröllríða öllu þessar
vikurnar. Er þaö aö
sjálfsögöu Oliver
Stone aö kenna, en
hann hefur hingaö til
ekki látiö sagnfræöi-
legar staðreyndir trufla
sig. Garrison hefur lík-
lega mataö hann á
mestu af vitleysunni —
fékk hlutverk í bíó-
myndinni og hefur nú
gefiö út bók um allt
saman. Fær7af 10 í
skáldsöguflokknum.
upp á að yrði kallað „flangs“. Vinur
okkar Morse lögregluforingi fer
með eitt aðalhlutverkiö, en ekki vit-
um við hvort John Thaw leikur dón-
ann. Sjónvarpið fös. kl. 23.
• Crimes of the Heart. Kvikmynd
byggð á vinsælu leikriti. Leikararnir
eru ofboðslega góðir og frægir:
Jessica Lange, Diane Keaton,
Sissy Spacek og Sam Shepard.
Leikstjórinn, sem er Ástralíumaður,
hefur gert ágæta hluti. Samt er eins
og þessi mynd, sem fjallar um þrjár
systur sem innst inni hatast og öf-
undast, gangi ekki alveg upp. Sjón-
varpiö lau. kl. 23.15.
• Small Dance. Myndin sem fékk
fyrstu verðlaun, Prix Europa, við
einhverja hundleiðinlegustu athöfn
sem hefur farið fram á íslandi. Hins
vegar bendir flest til þess að mynd-
in sjálf sé góðra gjalda verð. Þetta
er gömul saga og ný, um óbrotna
alþýðustúlku sem er hálfgert rekald
í lífinu, kynnist karlmanni, verður
ólétt og veit ekki sitt rjúkandi ráö.
Sjonvarpiö sun. kl. 21.50.
• Born on the 4th of July. Leik-
stjórinn Oliver Stone er kúnstugur
náungi: Dugnaðarforkur, jarðvöðull,
maður stórra drátta, en innilega laus
við að hafa tilfinningu fyrir hinu
smáa og fínlega. Allar kvikmyndir
Stones bera merki þessa, líka þessi
sem er enn eitt uppgjörið viö Víet-
namtrámað. Þegar best lætur sterk
pólitísk mynd, en á stórum pörtum
nær melódramað yfirhöndinni. Stöö
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
1. Hard Way
2. Shattered
3. Hudson Hawk
4. New Jack City
5. City Slickers
6. Kiss Before Dying
7. Once Around
8. Russia House
9. LA Story
10. Hrói höttur
2 lau kl. 23.45.
LÍKA í BÍÓ
• BlÓBORGIN: JFK** Síðasti
skátinn** Svikráö** Bl'ÓHÖLLIN:
Síöasti skátinn** Thelma & Lou-
ise*** Peter Pan*** Flugásar**
Læti í litlu Tókýó* Kroppaskipti**
Stóri skúrkurinn* HÁSKÓLABÍÓ:
Til endaloka heimsins** Dauöur
aftur** Likamshlutar* Dularfullt
stefnumót** Addams-fjölskyld-
an** Tvöfalt líf Veróníku*** The
Commitments**** LAUGARÁS-
BÍÓ: Barnaleikur 3* Lifaö hátt*
Hundaheppni** Barton Fink***
REGNBOGINN: Léttlynda Rósa***
Baráttan við K2** Ekki segja
mömmu* Fuglastríðið*** Homo
Faber**** Cyrano de Bergerac****
SÖGUBlÓ: JFK** Svikráö**
STJÖRNUBÍÓ: Bingó** Bræöur
munu berjast** Ingaló* Börn nátt-
úrunnar*** Bilun í beinni utsend-
ingu***
... fær Friðrik Skúlason,
vírusbani og sagnaþul-
ur. Sögur hans af ógtiar-
legum tölvuvírusum og
hroðaverkum þeirra
hafa fært anda
Grimms-bræðra inn á
hvert heimili og svipt
hversdaginn einræði.
VI55IRÞÚ
... að tekjur Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins voru
6.924.507.000 krónur á árinu
1989. Það jafngildir 26.632
krónum og 72 aurum á hvert
mannsbam. Hver Islendingur
hefur þannig lagt Afengis- og
tóbaksversluninni til 2.219
krónur og 39 aura á mánuði
eða 73 krónur og 98 aura á
hverri klukkustund. Framlag
hverrar fjögurra manna fjöl-
skyldu til Áfengis- og tóbaks-
verslunarinnar er þannig 295
krónur og 92 aurar á klukku-
stund eða 4 krónur og 93 aur-
ar á hverri mínútu allan ársins
hring. Á hverri sekúndu renna
þannig rétt tæpir 5 aurar ffá
sérhverri fjölskyldu í landinu til
Áfengis- og tóbaksverslunar-
innar.
FRÍAR HDMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINQINN 7 DAQA VIKUNNAR
PÓNTUNARSlMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grsnsátvagi 10
- þjónar þér allan sólartirlnglnn
Kántrýkráiii j
BORGARVIRKID'
Kóntrýbandið AMIGOS
dsamt Pat Tennis, stálgítarkikara,
sem nýkomnir eru aftur frá
Bandaríkjunum, leika og syngja alia
helgina
frá fimmtudegi til sunnudags.
Kóntrýunnendur, við sjáumst!
BORGARVIRKIÐ « ÞINGHOLTSSTRÆTI 2 e S.: 13737