Pressan - 07.05.1992, Side 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MAÍ1992
Hversu siðuð erum
við í samanburði við
■ **
hina siðmenntuðu
Evrópu
í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir erum við íslendingará margan hátt miðlungsmenn
siðferðislega og ef eitthvað er frekar í betri kantinum. Þetta eru niðurstöðursamevrópskrar
könnunar, en tilgangur hennar var að bera saman siðferðislegt mat ólíkra þjóða.
Efniðurstöðureru bomarsaman við könnungerða afHagvangi 1984 má draga þá
ályktun að siðferðiskennd íslendinga sé að breytast, við erum umburðarlyndari og líklegri til að notfœra okkur hið opinbera.
i teldu ýmislegt athœfi réttlœtanlegt. Taflan sýnir sœlaröð þjóÖanna í siðferðisstiganum.
XJk TL \ "V
^ --- ''V X\
X X\ X XL X X X
Xn >» ^,_ >» ^
Xi.
X.
ÞIGGJA ÓVERÐSKULDAÐAR BÆTUR FRÁ RÍKINU 2 5 1 7 4 6 8 3 9 12 11 10 13
SVINDLA í STRÆTÓ 2 3 1 8 5 6 4 7 9 10 13 11 12
SVÍKJA UNDAN SKATTI 1 1 11 7 3 5 4 9 8 6 12 13 10
Kaupa þýfi 1 2 3 5 4 8 6 7 10 9 11 12 13
AKA BÍL í ÓLEYFI 2 1 8 3 4 5 9 12 6 13 7 11 10
SKILA EKKI FUNDNU FÉ 3 1 4 2 5 6 9 7 8 11 13 12 10
Þiggja MÚTUR 1 3 4 2 7 6 8 10 11 5 9 13l 12
Tilkynna EKKI TJÓN Á KYRRSTÆÐUM BÍL 1 5 2 6 3 12 9 8 4 7 11 10 13
Kasta FRÁ sér rusli Á ALMANNAFÆRI 1 12 7 6 13 11 2 9 10 4 j 3 8 sj
AKA UNDIR ÁHRIFUM 1 3 4 8 2 5 6 7 12 9 íoj 13l 11 j
SAMTALS 1 2 3 4 5 6 7 8 91 10 ll| 12S 13
Samkvæmt könnuninni ber-
um við hlutfallslega mun meiri
virðingu fyrir hinu opinbera en
aðrar þjóðir Evrópu, en Frakkar
em þar manna verstir. Franska
þjóðin er tilbúnust allra til að
svíkja peninga út úr kerfmu, eða
því sem næst einn af hverjum
þremur, á meðan Norðurlanda-
þjóðimar ásamt Hollendingum
em heiðarlegastar.
I því sambandi telja 72% Is-
lendinga að það sé aldrei réttlæt-
anlegt að þiggja bætur frá hinu
opinbera þegar enginn er réttur-
inn. Aðeins 1% þjóðarinnar telur
það alltaf réttlætanlegt. Ef marka
má þær hávæm raddir sem hafa
hljómað nú nýverið um
„meinta" misnotkun kerfisins af
fólki í sambúð sem skráir sig
einstætt hlýtur eitthvað að vera
bogið við þessar niðurstöður.
Eða emm við bara svona vön að
fara í kringum sannleikann?
Af þrettán þjóðum em íslend-
ingar í sjöunda sæti hvað varðar
skattsvik, en 5% þjóðarinnar sjá
ekkert athugavert við slík svik.
Rúmlega helmingur, eða 56%,
telur skattsvik aldrei réttlætanleg
og emm við þar á sama báti og
Svíar. Þá em enn eftir tæp fjöm-
tíu prósent sem halda möguleik-
anunt opnum. Belgar em hvað
samviskulausastir í skattsvikum
og Portúgalir fýlgja fast á eftir.
PASSIÐ VESKIN í
PORTÚGAL —OGÁÍS-
LANDI
Og meira um Portúgalana. Ef
svo illa fer fyrir þér að þú týnir
seðlaveski í Evrópu þá er Lissa-
bon í Portúgal allra versti staður-
inn. Það segir þó ekki alla sög-
una því 32% Spánverja og Belga
töldu það stundum réttlætanlegt
að stinga á sig fundnu fé, saman-
boriðvið 14% íslendinga.
Á Norðurlöndunum er einna
óheppilegast að týna veskinu
sínu á Islandi þó svo að pró-
sentutölumar séu mjög lágar.
Samanborið við könnun ársins
1984 er landinn líklegri til að
skila ekki fundnu fé í dag, því
12% færri telja slíkt aldrei rétt-
lætanlegt. I raun ætti breytingin
að vera meiri, því nokkuð er um
að peningaveskjum sé skilað til
lögreglunnar en hending ef í
þeim em peningar.
MEIRA FRELSI í KYN-
LÍFI
Á heildina litið er brúnin að
léttast á íslendingum og um-
burðarlyndi smám saman að
vinna á þröngsýni og stífni. Eða
á ef til vill að líta á niðurstöðum-
ar sent yfirvofandi siðferðislegt
skipbrot? Sem dænti er einn af
hverjum fjómm íslendingum
hlynntur algjöm frelsi í kynlífi
án takmarkana og náum við þar
betri árangri en frændur vorir á
Norðurlöndum, — meira að
segja Svíar. Þjóðir Suður-Evr-
ópu eru þó mun frjálslyndari
enda hafa þeir sól, sand og svita
sem mýkja vafalaust hart og
kuldalegt viðmót. Það mætti
jafnvel reyna að endurgera
könnunina á sólarlandaförum á
Spánarströnd og hver veit nema
við næðum þá að skjóta Spán-
verjum ref fýrir rass.
BETRI TÍÐ FYRIR SAM-
KYNHNEIGÐA
Afstaða Islendinga til sam-
kynhnei^ðra hefur tekið mestri
hlutfallslegri breytingu írá 1984,
en þá fannst 48% þjóðarinnar að
samkynhneigð væri aldrei rétt-
lætanleg. I dag em einungis 24%
þjóðarinnar á þessari skoðun á
sama tíma og 19% em fýllilega
samþykk. Meðaleinkunn á skal-
anum 10 hefur hækkað frá 3,3 í
5,5, sem er sannkölluð stökk-
breyting á fordómakúrfu land-
ans.
Harðasta afstöðu taka íslend-
ingar gegn pólitískum morðum
(88%), að þiggja mútur í starfi
(84%), að aka undir áhrifum
áfengis (90%) og að kaupa þýfi
(82%). Belgar em svörtustu
sauðir Evrópu varðandi ölvuna-
rakstur og mútuþægni, og þjófar
eiga einna best viðskipti við
Frakka, sem víla einna síst fýrir
sér að kaupa stolnar vömr. l>rátt
fyrir danska bjórinn em Danir
ólíklegastir til að setjast fullir
undir stýri og ná því fýrsta sæti.
íslendingar hafna aftur á móti í
því áttunda.
DANIR HEIÐARLEGAST-
IR í UMFERÐINNI
Umferðarmenning Frakka
hefur oft þótt gott dæmi um það
hvemig varast skal að stjóma
ökutæki, en það eru einmitt
Frakkar sem fá flest skammar-
strik sem líklegastir til að til-
kynna ekki um tjón sem þeir
valda á kyrrstæðum bílunt. Bret-
ar koma næstir á efir, sem kemur
á óvart, því bresk kurteisi í um-
ferðinni hefur lengi verið rómuð.
Ætli skapillir leigubfistjórar séu
hér ekki fremstir í flokki. íslend-
ingar sitja í sjötta sæti á meðan
Danir em heiðarlegastir og fá
fyrstu einkunn. Svíar em aftur
mestu sóðar Evrópu, Norður-Ir-
ar næstverstir en Danir mestu
snyrtimennin.
Hjónaband er í tísku á íslandi
en að sama skapi em hjónaskiln-
aðir alltaf jafnalgengir. Síðan
1984 hefur landinn slappast í
andstöðu sinni gegn skilnaði,
meðaleinkunnin hækkað úr 5,5 í
6,3 og er nú sú sama og í Sví-
þjóð. Færri íslendingar, eða
11%, em á móti fóstureyðingum
nú en 1984, en þá vom 23% al-
farið á móti.
Á Norðurlöndum studdu
46-67% fólks fóstureyðingar
ógiftra kvenna annars vegar og
hjóna sem vilja ekki eignast
fleiri börn hins vegar. Þó svo
takið sé að linast ná íslendingar
ekki enn að vera eins frjálslyndir
og Norðurlandabúar í þessum
efnum.
Anna Har. Hamar
Hvers konar
könnun?
Skoðanakönnunin á íslandi
var gerð af Félagsvísinda-
stofnun Háskólans fyrir The
European Value Systems
Study Group og byggðist á
heimsóknum til aðspurðra.
Eitt þúsund manns á aldrin-
um 18—80 ára vom valdir úr
þjóðskrá og af þeim svömðu
702. Aðspurðir vom beðnir
•að gefa einkunn frá 1-10.
Þessi kvarði er að mörgu leyti
erfiður, þvf munurinn á ein-
kunn 1 og 2 er óvemlegur. Til
að fá skýrari útkomu mætti
skipta niðurstöðum í þrjá
flokka; 1-3, 4-7 og 8-10. í
því sambandi má skoða nið-
urstöður um samkynhneigð
sem breytast úr 24% í 32% á
móti og úr 19% í 34% með,
ef einkunnaskala er skipt nið-
ur.
Alls staðar nema í Finn-
landi vom aðspurðir heim-
sóttir. Finnsku þátttakendum-
ir vom í tölvutengdu sam-
bandi við könnunarstofnun-
ina og fengu spumingalistann
sendan í pósti. Þar að auki
vom þeir á föstum launum
fýrir að taka þátt í könnunum
sem þessari og þóttu ekki
gefa góðan þverskurð af
finnsku þjóðfélagi. Niður-
stöðumar urðu því áberandi
ólfkar þeim sem fengust í
öðram Evrópulöndum.
Vegna þessa em finnsku nið-
urstöðumar ekki teknar með
hér og miðað við að þrettán
þjóðir séu í úrtakinu.
Könnunin var rnjög viða-
mikil og vom um 1.000 mann
spurðir f Noregi, Danmörk og
Svíþjóð, 2.637 Spánverjar,
1.002 Frakkar, 1.185 Portú-
galir og 2.792 Belgar.
Könnunin náði yfir sið-
ferðismál og vom þátttakend-
ur meðal annars spurðir um
skoðanir sínar á skattsvikum,
á því að greiða ekki far með
almenningsvagni, að kaupa
stolna vöm, að neyta fíkni-
efna, á framhjáhaldi, kynlífi
undir lögaldri, mútuþægni,
samkynhneigð, vændi, fóst-
ureyðingum, hjónaskilnuð-
um, að slást við lögreglu,
líknardrápi, sjálfsmorðum, að
drepa fnann í sjálfsvöm, pól-
itískum morðum, að kasta
msli og ölvunarakstri.
Af þrettán þjóðum eru íslendingar í sjö-
unda sæti hvað varðarskattsvik, en 5% þjóð-
arinnarsjá ekkert athugavert við slík svik.