Pressan - 07.05.1992, Síða 41
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MAÍ 1992
41
ELDFJALLI
BLÆÐIR
„Fólk verður að dæma það
sjálft hvemig tónlist þetta er. Ég
kann enga skilgreiningu á henni,
þetta er bara okkar tónlist," segir
Guðmundur Þ. Sigurðsson,
bassaleikari hljómsveitarinnar
Bleeding Volcano.
I kvöld heldur hljómsveitin
tónleika í Gijótinu og kynnir þar
meðal annars efni af væntanlegri
plötu sinni. Sveitin hefur haft
hægt um sig síðustu mánuði og
ekkert leikið opinberlega. Þeir
drengir hafa haldið sig í hljóð-
veri og dundað við upptökur lag-
anna sem verða á plötunni.
Bleeding Volcano skipa, auk
Guðmundar, Vilhjálmur Goði
Sigurðsson, Hróbjartur Jónsson
og Halldór Ingólfsson. Þeir fé-
lagar syngja á ensku eins og svo
margar rokksveitir íslenskar gera
núna. Guðmundur segir ástæð-
una þá að „þetta er okkar tjáning-
armál“, eins og hann orðar það
sjálfur.
I kvöld gefst okkur sem sagt
kostur á að hlusta á Bleeding
Volcano fremja rokk. Og vænt-
anlega kemur þá í ljós hvers við
megum vænta af þessari ágætu
sveit í framtíðinni.
Böddi og Gylli segjast vera öðrum útvarpsmönnum hressari.
EKKI NEYÐARLEOT
HELDUR HRESST
hallærisleg — eins og stundum
vill verða þegar fjölmiðlafólk
verður yfirdrifið í hressileikan-
um. „Það var kannski pínulítið í
byrjun þannig, en við pössum
okkur á því að verða ekki hallær-
islegir. Við erum bara við sjálfir
og hlæjum þegar við viljum
hlæja en kreistum ekki upp úr
okkur einhvem gervihressi-
leika,“ segir hann og leggur
áherslu á orð sín.
Þeir drengir spila aðallega
gömul og góð íslensk partílög
þannig að allir geta raulað með.
Og nýju lögin fljóta náttúrlega
með. Fólk getur sungið í beinni
útsendingu og Böddi og Gylli
syngja líka fyrir hlustendur á öll-
um heimsins tungumálum —
em með nokkurs konar karaoke í
beinni.
Böddi er líka með grínþáttinn
Túkall sem byggist á bröndumm
og stuttum leikþáttum. „Ég er
eiginlega útvarpsmaður af lífí og
sál,“ segir þessi lífsglaði og ljúfi
drengur.
„Þetta er kannski mun hress-
ari þáttur hjá okkur en er á öðr-
um stöðvum. Við fíflumst meira
og hlæjum meira,“ segir Böðvar
Bergsson. Böðvar og félagi hans
Gylfi Þór Þorsteinsson sjá um
þáttinn „Slá í gegn“ á Aðalstöð-
inni á laugardagskvöldum, sem
fengið hefur góðar viðtökur hjá
ungu fólki. Til marks um það má
geta þess að eitt kvöldið hringdu
yfir 400 manns til að senda
kveðjur.
Þeir Böddi og Gylli em ekki
ýkja gamlir, aðeins 22 ára, og
ættu því að hafa einhverja hug-
mynd um hvað ungt fólk vill.
Böddi þvertekur fyrir að fffla-
lætin hjá þeim séu neyðarleg eða
FIÐLARINN Á BÖRUNUM
,JÉg spila ýmiss konar tónlist;
kántrí og rokk, en spila líka djass
núna,“ segir fiðlarinn bandaríski,
Dan Cassidy, sem margir kann-
ast við af Blúsbamum og víðar.
„Ég spila á Blúsbamum á hverju
laugardagskvöldi, sem er mjög
gaman, því ég leik með
skemmtilegum náungum. Band-
ið nefha þeir Dan Cassidy kvar-
tettinn og er notalegt af jteim að
veita mér þá upphefð.“
Hann segir áheyrendur yfir-
leitt skemmta sér hið besta.
„Stundum finnst þeim tónlistin
sú skemmtilegasta í heimi en
það kemur fyrir að annað er upp
á teningnum. Áheyrendur em þó
oftar en ekki virkilega í essinu
sínu og viðbrögð við fiðlunni
góðu mikil, því það em ekki
margir fiðluleikarar að spila á
veitingahúsum bæjarins. Fólk
kemur jafnvel til mín og segir:
,Ég hef aldrei þolað fiðlur en eft-
ir að hafa hlustað á þig hef ég al-
gerlega skipt um skoðun.“ Þetta
þykir mér afar vænt um.“
Cassidy, sem lagði ekki klass-
íkina fýrir sig, langaði alltaf að
koma til íslands og efitir að hafa
lesið sér til fór hartn að hugsa til
þess hvort hægt væri að fá að
spila hér sem farandspilari. „Eft-
ir stutta heimsókn ákvað ég að
þetta væri svo stórkostlegur stað-
ur að ég yrði að koma aftur. Ég
gerði plön, safhaði peningum og
kom. Ég var svo heppinn að ég
fékk vinnu en núna þarf ég að
yfirgefa landið fljótlega. Ég von-
ast þó til til að geta komið aftur í
haust og unnið við hljóðfæraleik,
spilað rokk og ról og jafnvel
starfað við upptökur."
ÓKEYPIS
• Kynningar f stórmörkuðum. Þær
eru náttúrlega ekki hugsaöar sem
skemmtiefni heldur á plastkortafólkið
að kaupa helling á vildarkjörum eftir aö
hafa fengið aö smakka. Ef farið er í
nokkra stórmarkaði á föstudagseftir-
miðdegi má borða sig saddan af ís,
medisterpylsu, Londonlambi, spag-
hettíi og guö veit hverju. Og drekka
gos eöa ávaxtasafa með. Sjálfsagt er
að smakka tvisvar, þrisvar á hverju og
segja síðan meö þóttasvip: Þetta er
ekkert sérstakt. Svipurinn á kynningar-
fólkinu er óborganlegur. Þá má líka
BOKIN
MARGRÉTPÁLA
OLAFSDOTTIR
ÆFINGIN SKAPAR
MEISTARANN
Allt er nú kennt eftir hand-
bókum og því þá ekki
bamauppeldi? Súperfóstran
Margrét Pála er merkileg
um margt innan hinna eilíf-
lega þreyttu uppeldisstétta
og hefur svo sannarlega
skoðanir á hlutunum.
Hveijum uppalanda er hollt
að kiinna nokkur trix og þar
er bók Margrétar snjallt inn-
legg. Auk þess er bókin
tæplega skaðleg í kjölinn
þannig að alltaf má berja
bömin með henni ef upp-
reisn brýst út. Bókin kostar
1.980 krónur og fær prik.
BÍÓIN
MITT EIGIÐ IDAHO My Own Private Idaho LAUGARÁSBÍÓI
Mynd sem fólk á aö sjá. Skemmtileg alvöru mynd. Og lika frumleg, vel gerö og
hefur þaö umfram flestar myndir í bíó aö geta komiö fólki á óvart. •k'k-k'k
REFSKÁK Knight Moves HÁSKÓLABÍÓI
Þokkalegur tryllir fyrir þá sem kunna mannganginn. Stórmeistarinn er aö sjálf-
sögðu hálfklikkaður eins og Bobby Fischer. Sæma rokk er því sárt saknað. kk
horfa á konur og menn kynna strau-
jám og blettahreinsi og annað slíkt.
SJÓNVARP
• Laganna veröir.Ný þáttaröö þar
sem fylgst er meö störfum lögreglu-
manna í nokkrum stórborga Ameríku.
Þættirnir eru ekki leiknir heldur er
raunverulegum löggum fylgt eftir í
starfi um daga og nætur Stöð 2 tim. kl.
21.05.
• I minningu Parkers. Chariie „Bird“
Parker er einhver frægasti djassisti
sem uppi hefur verið. Hér er á ferðinni
upptaka frá hátið sem haldin var í
minningu Parkers í Cannes 1990.
Meðal þeirra sem fram komu var hinn
sjötugi Jon Hendricks, sem einmitt nú
er væntanlegur hingaö til lands og leik-
ur á RÚREK-djasshátíðinni. Sjónvarp-
iö fös. kl. 23.40.
• Flugnahöföinginn. Skáldsaga
nóbelsverðlaunahafans Williams
Golding, Lord of the Flies, er flestum
kunn. Hópur drengja hafnar á eyðieyju
og þarf aö draga fram lífið við heidur
bágbomar aöstæður. Smátt og smátt
breytast drengimir í hóp villimanna og
svífast einskis. I þessari kvikmynd er
sagan færð nær okkur í tíma, þrátt fyr-
ir nokkra annmarka þykir myndgeröin
hafa heppnast ailþokkalega. Stöö 2,
lau. kl. 23.30.
• Evrósjón. Og þá er komiö að Öró-
vfsfón þessa árs og eins og allir vita
flytja Sigga Beinteins og Sigrún Eva
Nei eöa já fyrir fslands hönd. Alls taka
23 þjóðir þátt i keppninni og er það
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
1 Regarding Henry
2 Toy Soldiers
3 Commitments
4 Fjörkálfar
5 Sheltering Sky
6 Shattered
7 Lömbin þagna
8 Teen Agent
9 Backdraft
10 Quigley Down Under
metþátttaka. Ámi Snævarr fréttamaö-
ur hefur tekiö aö sér jjað vandasama
starf að lýsa keppninni fyrir okkur ls-
lendingum, apa stigin upp eftir dóm-
nefndum um allan heim og þar fram
eftir götunum. Sjónvarpiö, lau. kl.
19.00.
LÍKA í BÍÓ
BÍÓBORGIN Höndin sem vöggunni
ruggar*** í klóm arnarins" Leitin
mikla** Faöir brúöarinnar** Læknir-
inn" BlÓHÖLLIN Skellum skuldinni
á vikapiltinn** Banvæn blekking**
Leitin mikla** Faöir brúöarinnar”
Sföasti skátinn" Kuffs** HÁSKÓLA-
BÍÓ Refskák" Steiktir grænir tóm-
atar*” Litli snillingurinn*** Frankie
& Johnny" Háir hælar** Tvöfalt llf
Veróniku*** LAUGARÁSBlÓ Mitt
elgiö Idaho**** Hetjur háloftanna*
Reddarinn* Vfghöföi**** REGN-
BOGINN Freejack* Catchfire" Kol-
stakkur*”* Kastali móöur minnar***
Léttlynda Rósa*** Homo Faber****
SÖGUBÍÓ Svellkalda klíkan* Vlg-
höföi**** STJÖRNUBÍÓ Hook"
Strákarnir f hverfinu" Stúlkan
mín*" Börn náttúrunnar*”
... fær Baldvin Ragn-
arsson, hungurverkfalls-
maður og fangi á flótta,
fyrir góðan smekk á bflum
en hann strauk á hvítum
Buick 78.
VIS5IRÞÚ
... að bandarískir neytendur
greiddu urn 374.000.000.000
dollara með greiðslukortum í
fyrra? Þetta eru um
22.440.000.000.000 krónur ís-
lenskar eða 22.440 milljarðar
með öðmm orðum eða rúmlega
200-föId fjárlög íslenska ríkis-
ins.
... að meðalverð fyrir tann-
fyllingu í Bandaríkjunum er 36
dollarar eða 2.160 krónur ís-
lenskar? í Þýskalandi kostar hins
vegar um 720 krónur að fylla
tönn.
... að Stefan Edberg var hæst
launaði karl-tennisleikari í heimi
í fyrra með um 141 milljón og
825 þúsund krónur í árstekjur?
Það gera um 11 milljónir og 820
þúsund krónur á mánuði. Mon-
ica Seles var hæst launaði kven-
tennisleikarinn og hafði hærri
tekjur en Edberg eða 147 millj-
ónir og 465 þúsund krónur yf-
ir árið. Það gera 12 milljónir og
290 þúsund krónur á mánuði.
FRÍAR HEIMSENDINQAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAQA VIKUNNAR
PÓNTUNARSlMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grsnsisvegl 10
- þjónar þér allan sólarhringlnn
Kántríkráin
l BORG ARVIRKIÐ j
KÁNTKÍBANDIÐ AMIGOS
leikur
frá fímmtudegi til sunnudags
FAT TENNIS, stálgítarleikari
ásamt
VIÐARI JÓNSSYNI
og FÓRI ÚLFARSSYNI
2
\ Ekta kántrímúsik — Mætum með hattana
— Aldurstakmark 23 ár
BORGARVIRKIÐ * ÞINGHOLTSSTRÆTI2 ¥ S: 13737