Pressan - 25.06.1992, Page 8
Vantar kraftmikil sölubörn í
hin ýmsu hverfi Reykjavíkur
og nágrennis.
GÓÐ SÖLULAUN
Upplýsingar í síma 64 30 80
PRESSAN
s
iþróttadeild Ríkisútvarpsins hefur nú
bæst liðsauki. Það er enginn annar en
útvarpsmaðurinrrgóðkunni Þorgeir
Astvaldsson sem far-
inn er að fylgjast með
íþróttum út um borg
og bý. Þorgeir hefur
undanfarið helst verið
með íþróttimar í 11-
fréttum sjónvarps en
laugardaginn 3. júlí
verður það sem
kannski mætti kallast eldskfm hans, því
þá verður hann umsjónarmaður íþrótta-
þáttar sjónvarpsins. Þess má og geta að
Þorgeir er góður og gegn Frammari...
JL^.vennalistakonur eyddu meiri
peningum á sfðasta ári en venjulega
vegna útgjalda við kosningabaráttuna.
Þær em núna að reyna að rétta við sjóði
sína og hafa gripið til ýmissa ráða, svo
sem húsmóðurlegrar hagsýni, eins og
þær kalla það sjálfar. Það hefur gefist
vel að sögn. Einnig hafa þær opnað
reikning í Islandsbanka. þar sem les-
endum Fréttabréfs Kvennalistans er
bent á að þeir geti borgað fyrir það,
1.000 krónur. Það ráð hefur ekki reynst
eins vel. því ekki hafði komið nema
einn þúsundkall inn á bókina þegar síð-
ast var gáð...
T
JL fðin hjá hljómplötuútgefendum
mun ekki vera allt of góð nú um stund-
SPIT 324 V
Fagmenn!
Þið fáið allt til
múrfestinga í Isól
I múrvinnu skipta góð verkfæri miklu máli og undirstrika fagleg
vinnubrögð. Það gera SPIT múrverkfærin.
ísól, Ármúla 17, býður vönduð SPIT
múrverkfæri. Allt til múrfestinga, bolta,
plasttappa, naglabyssur, borvélar auk
annarra verkfæra sem þú getur haft not fyrir.
Allar borvélar eru með tveggja ára ábyrgð.
Við bjóðum einnig ókeypis þjálfun á SPIT
naglabyssur.
H
F
Ármúli 17 108 Rvk. S: 689123
ir. Þær sögur hafa
heyrst undanfarið að
fyrirtæki Péturs
Kristjánssonar, PS-
músík, sé gjaldþrota
i og hætt starfsemi.
i Pétur segir þetta ekki
eiga við nein rök að
styðjast. Staðan sé vissulega erfið og
fyrirtækið hafi átt í kröggum en starf-
semi hafi ekki verið hætt. Hann sé nú
að vinna að málefnum fyrirtækisins og
vonist til að úr rætist...
N,
ú á næstunni verða svæðis-
stjóraskipti hjá Flugleiðum í Skandin-
avíu og á Bretlandseyjum. Símon Páls-
son, sem verið hefur
| svæðisstjóri í Skand-
inavíu, verður svæð-
isstjóri á Bretlands-
eyjum og tekur við af
Steini Lárussyni
sem verður forstöðu-
maður innanlands-
deildar hér heima.
Knut Berg. yfirmaður Flugleiða í Svf-
þjóð. verður svæðisstjóri í Skandinavíu
og um leið flytjast höfuðstöðvar Flug-
leiða frá Osló til Stokkhólms. Yfirmað-
ur í Noregi verður hins vegar Hans
Indriðason. sem áður var hótelstjóri á
Loftleiðum...
R
jölmiðlar sæta stöðugt ámæli fyrir
að tala sífellt við sama fólkið. Því hefur
heyrst fleygt að Kvennalistakonur séu
orðnar þreyttar á að
svo til eingöngu er
beðið um álit Ingi-
bjargar Sólrúnar
Gísladóttur. Með
framboði sínu vildu
Kvennalistakonur
sýna fram á að flestar
konur gætu verið í
pólitík, að þær gætu haft og sagt sínar
skoðanir. Fjölmiðlar virðast sniðganga
þetta gjörsamlega með því að leita allt-
af og endalaust eftir áliti Ingibjargar
Sófrúnar, jafnvel þó að viðkomandi
málefni heyri ekki undir hana eða hafi
nokkuð að gera með verksvið hennar
hveiju sinni. Kvennalistakonur eru að
upplifa þetta í annað sinn því þegar
hreyfingin var að taka fyrstu skrefin
sóttust fjölmiðlar svo til eingöngu eftir
áliti Guðrúnar Agnarsdóttur...
Skútuvogi 10a - Sími 686700