Pressan - 25.06.1992, Page 21

Pressan - 25.06.1992, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25.JÚNÍ 1992 21 STJÓRNMÁL U-beygja hjá Heklu ÓLAFUR HANNIBALSSON Er það hollt fyrir fyrirtækið Heldu og viðskiptavini þess að hægt sé að skjótast af nyrðri vegarhelmingi Laugavegar, þvert í gegnum austurumferðina á syðri helmingnum, inn í innkeyrslu fyrirtækis- ins? Eða eru þvert á móti líkur á því að þeir fari sér og öðrum vegfarendum að voða? Um þetta var tekist á í borgarstjóm á dögunum og svo einkennilega vildi til að skoðanir manna á þessu umferðarmáli féllu nákvæmlega saman við flokkslínur: tíu sjálfstæðismenn snerust gegn tillögu varaborgarfulltrúa Kvennalistans um að loka opi í miðeyju milli vegarhelming- anna, — til að viðskiptavinir Heklu geti áfram keyrt þvert á alla umferð austur Suðurlandsbraut. A borgarstjóranum var helst að skilja, að um væri að ræða að loka aðkomu að fyrirtækinu, eins og þetta væri eina leiðin fyrir þá, sem þangað vilja og þurfa að sækja þjónustu, að komast þar upp á hlað. Nú vita allir að svo er ekki og raunar líka að Hekla á engan skæðan keppinaut þama í nágrenninu, sem er líklegur til að sölsa undir sig viðskiptin, ef menn væm neydd- ir til að aka nokkmm tuga metra lengri vegalengd og verða að lokum að taka hægri beygju inn á Heklustæðið, í stað vinstri beygju þvert í gegnum austumm- ferðina. Sjálfur hef ég reyndar aldrei nálg- ast fyrirtækið nema frá hægri, og ég held að flestum viðskiptavinum þess sé svo farið að þeim þyki það mun ömggari kostur. Eftir afgreiðsluna í borgarstjóm hafa óvægin orð verið látin fjúka. Olína Þor- varðardóttir benti á að Hekla hf. hefur verið einn af máttarstólpum Sjálfstæðis- flokksins, greitt ríflega í sjóði hans, og lagt frammámönnum eins og Davíð Oddssyni og Bimi Bjamasyni til húsnæði undir kosningaskrifstofur í prófkjömm. Þetta em út af fyrir sig staðreyndir, sem em á allra vitorði og enginn hefur reynt að fara dult með. Hitt kann að vera eríiðara að sanna, að þessar staðreyndir valdi úr- slitum um að skoðanir manna á umferðar- mannvirkjum á þessum slóðum falla ná- kvæmlega að flokkshríum. En er í rauninni hægt að lá Olínu og öðmm minnihlutafulltrúum að minna á þessar staðreyndir? Hvemig skýra menn annars forsögu málsins? I fréttum hefur komið fram frá starfs- manni borgarverkfræðings, að væri þessi gata lögð í dag mundi ekki hvarfla að neinum að hafa þetta op á miðeyjunni. Þama hafa orðið mörg óhöpp, þar af fjög- ur meiriháttar slys, árin 1986 til 1990. Þann 17. apríl í fyrra varð þar svo bana- slys. Fyrir nokkm var í fréttum að skrifstofa borgarverkfræðings hefði komið upp ‘punktakeifi til að meta slysastaði, svo- nefnda svarta bletti. Með þessu kerfi er hægt að meta saman slysatíðni, alvarleika umferðaróhappa og kostnað við úrbætur. Það mun umdeilt hvort þetta Hekluop sé einn af svörtu blettunum eða liggi þar á mörkunum, en augljóst að ódýrt og fljót- legt er að loka því. Hitt hef ég eftir for- manni Umferðamefndar, Haraldi Blön- dal, að þetta Hekluop, eins og raunar öll slík op í miðeyju fjögurra akreina götu, sé brot á öllum núgildandi umferðar- pnnsippum. Annars virðist gangur málsins þessi. Það er þáverandi yfirverkfræðingur Um- ferðardeildar borgarinnar, Þórarinn Hjaltason, sem leggur til með bréfi 7. maí 1991, að opinu verði lokað, og umferðar- nefnd samþykkir það einróma 8 dögum síðar. Þaðan fer svo tillagan rétta boðleið til hinna pólitísku stofnana og er samþykkt í borgarráði 28. maí og send lögreglustjóra til staðfestingar. Þann 14. júní óskar Ingi- mundur Sigfússon í Heklu bréflega eftir því að borgarráð endurskoði ákvörðun sína vegna „verulegs óhagræðis og rösk- unar hagsmuna fyrirtækisins", án þess að það sé rökstutt nokkm nánar. Þann 25. júní vísar borgarráð bréfi Ingimundar til umferðamefndar. Þann 4. júh' samþykkir umferðamefnd að vísa bréfinu til Borgar- skipulags, fresta lokun opsins á meðan, en banna strax U-beygjur. Borgarráð stað- festir þetta 10. júlí. Þann 17. júli' skilar Borgarskipulag pöntuðu áliti og leggur til „að núverandi op á miðeyju verði þrengt til muna, en leyfður akstur ffá austri inn á Heklulóð. Leitast verði við að afstýra akstri lfá Heklulóð til vesturs. U-beygjur verði þama alfarið bannaðar". Þann 13. ágúst vísar borgarráð bréfi Borgarskipu- lags til umsagnar umferðamefndar. Þann 28. ágúst er þrengingu opsins frestað þar til reynsla sé komin á Ú-beygjubannið. Þann 28. október kveður Þórarinn Hjalta- son uppúr með það, að „það þýðir ekkert að þrengja opið til að útiloka beygju til vesturs á meðan vinstri beygja úr austri er leyfð“. Niðurstaða: Effir bréf Ingimundar Sigfússonar til borgarráðs tekur málið al- gera U-beygju í borgarstofnunum, þangað til ekkert er effir nema U-beygjubannið. Könnun 5. september sfðastliðinn sýndi að á einni klukkustund bmtu 6 aðil- ar beygjubannið. Því kemur aftur fram til- laga í umferðamefnd í apríl í vor um að loka miðeyjaropinu. Þá hafnaði meirihluti nefndarinnar tillögu, sem hún sjálf hafði samþykkt einróma skömmu eftir bana- slysið í fyrra. Tillagan var síðan borin ffam í borgarstjóm af fulltrúa Kvennalist- ans, Margréti Sæmundsdóttur, og felld þar 10:5, eins og áður segir. Allt finnst manni þetta óneitanlega bera keim af því að faglegt álit og umferðar- prinsipp séu hundsuð af því að kippt hafi verið í pólitíska spotta. Nú kann það að villa mér sýn að ég missti kæran frænda minn í banaslysi á þessum stað í fyrra. Ég þekki þá Heklumenn að góðu einu og á erfitt með að ímynda mér hvað þeim ætti að ganga til, að halda opinni leið að fyrir- tæki sínu gegnum slysa- eða jafnvel dauðagildm og er raunar dálítið hissa á að þeir skuli telja það vænlega auglýsingu fyrir fyrirtækið að grípa inn í skipan um- ferðarmála borgarinnar með þessum hætti. Mér finnst það líka fyrir neðan virð- ingu borgarstjómarmeirihluta sjálfstæðis- manna að gjalda húsaleigu háttsettra flokksmanna með því að taka órökstuddar óskir Heklumanna framyfir faglegt álit starfsmanna borgarinnar og umferðar- prinsipp. Svo kann að fara að sú húsaleiga verði mæld í mannslífum. STJÓRNMÁL MÖRÐUR ÁRNASON Jón Baldvin, — er hann enn í námi? Lögfræðingafundurinn á Hótel Sögu um síðustu helgi var vemlegt áfall fyrir Jón Baldvin Hannibalsson og aðra þá ís- lenska leiðtoga sem hafa litið á EES-mál- ið sem einskonar pólitískt einkamál sitt. Af sex lögfræðingum sem þar töluðu sögðu þrír — Guðmundur Alfreðsson, Ragnar Aðalsteinsson og Eiríkur Tómas- son — að það væri eðlilegt að breyta stjómarskránni fyrir EES-staðfestingu. Með öðmm orðum: Að með því að sam- þykkja EES án slíkra breytinga væm þingmenn að brjóta stjómarskrána sem þeir hafa unnið að sérstakt drengskapar- heit. Með enn öðmm orðum: Ef samning- urinn yrði samþykktur án stjómarskrár- breytingar gæti Hæstiréttur komist að því — eftir hálft ár eða heilt eða tvö eða þijú — að Evrópska efnahagssvæðið stæðist ekki, það yrði dauður bókstafur og meira og minna ógildar allar athafnir á þeim gmnni. Menn hafa áður haldið þessu ffatn, og stjómarandstaðan vildi í vetur að þingið bæði óháða lögfræðinga að kanna þetta rækilega. En utanríkisráðherra fussaði og sveiaði og ákvað að lokum að skipa sjálf- ur nefnd til þess ama. Sem hefúr þann mikla ókost að ef niðurstöður hennar verða í samræmi við óskir ráðherrans taka menn ekki fullt mark á niðurstöðunum. Því að stjómarskránni verður ekki breytt án þingkosninga. Og þær vill Jón Baldvin síst af öllu. Hinsvegar kemur í rauninni ekkert á óvart að það þurfi stjómarskrárbreytingar til að samþykkja samning á EES-nótum. Stjómarskrá lýðveldisins er að stofni til 19. aldar-skjal, samið í þeim anda að þjóðríkið lifði eitt og sjálft einsog eyland í miðju hafi, — þar sem aðrar eyjar vom úr augsýn og ekki til nema við sérstök tæki- færi sem um giltu sérstakar reglur, aðal- lega hervalds og auðvalds. Nú er öldin önnur, og ríkin lifa stór og smá í fullkom- inni nálægð hvert við annað. Hafið utan- um eyjamar hefrír breyst í einskonar tafl- borð með margskonar samtengingu, bæði ógnum og tækifæmm, þarsem heildin felst í samhengi hlutanna: Enginn er ey- land. Stjómarskráin hentar illa þessum breyttu aðstæðum. í henni em engin ör- yggisákvæði um aukinn þingmeirihluta, þjóðaratkvæðagreiðslu eða einhverskonar þjóðfund þegar upp koma stórmál sem geta einsog EES tengt innlent stjómkerfi við önnur ríki þannig að varði fríllveldið og stofnanir þess. Stjómarskráin gerir ekki heldur ráð fyrir neinum gæslumanni í formi stjómlagadómstóls eða ámóta apparats í vafatilvikum, heldur einungis seinfarinni dómstólaleið eða þá að forset- inn setji sig upp á móti þinginu sem aldrei „Svo hlýleg skýringar- tilgáta breytir því ekki að utanríkisráðherra hefur gert alvarleg mis- tök með því að gera ekki ráð fyrir stjórnar- skrárbreytingu í tengsl- um við EES. “ hefrír gerst í lýðveldissögunni. í Noregi og Svíþjóð er beitt nýlegum stjómarskrárákvæðum um aukinn meiri- hluta í EES-málinu. Frakkar vom rétt um daginn að breyta sinni stjómarskrá — sjálfum arfinum frá de Gaulle — til að geta samþykkt Maastricht-samkomulag- ið. I öllum vestrænum ríkjum er spurt fyrst um stjómarskrársamræmi áður en ráðamenn láta sér detta í hug að pára staf- ina sína undir alþjóðaskuldbindingar. Þar er að vísu ein undantekning. Það er Bretland, sem hefrír enga stjómarskrá. En í þvísa landi lærði Jón Baldvin einmitt forðum daga til forsætisráðhenra, og gæti þá þetta mál allt bent til þess að Jón sé enn með hugann við þarlendar aðstæður, og sé með sjálfrím sér ekki kominn ennþá al- mennilega heim frá þessu merkilega námi. Slíkt sálarástand gæti reyndar varpað ljósi á ýmsar stílæfmgar Jóns Baldvins Hannibalssonar í pólitík síðustu árin. En svo hlýleg skýringartilgáta breytir því hinsvegar ekki að utanríkisráðherra hefur gert alvarleg pólitísk mistök með því að gera ekki frá upphafi ráð fyrir stjómarskrárbreytingu í tengslum við EES. Og það er fríllkomið ábyrgðarleysi — ef það fellur þá ekki undir hegningar- lögin — að ætla sér að nota aldursmerkin á stjómarskránni til þess að láta einsog hún sé ekki til, keyra þetta umdeilda mál í gegn án tillits til áleitinna efasemdaradda frá þeim sem við höfrím menntað sérstak- lega til að hafa vit á einmitt þessari lög- ffæði. Það er eðlilegt að það sé kátt í höllinni hjá Samtökunum gegn Evrópu þessa dag- ana. Því að það klandur sem Jón Baldvin og félagar em nú orðnir uppvísir að renn- ur einkum til rifja stuðningsmönnum EES-málsins, þeim sem væntu þess að um þetta skref gæti tekist sæmileg sátt meðal þjóðarinnar, vonuðu að sjálfhverfir skammsýnismenn í hópi pólitíkusa yrðu ekki til þess að tortryggni og öryggisleysi mótuðu afstöðu almennings til þessa mik- ilvæga samnings. FJÖLMIÐLAR Kvartanir Ég ætla að nota þennan pistil til að kvarta aðeins. 1 fyrsta lagi yfir þætti Kristrúnar Heim- isdóttur í Ríkissjónvarpinu um kvenna- íþróttir sem sýndur var á mánudagskvöld. Éftir að hafa lagt út frá litlum ffegnum af íþróttum kvenna í íslendingasögum og fáum tilnefningum þeirra til íþróttamanns ársins á seinni árum var þátturinn sam- felldur leiðari Kristrúnar um nauðsyn fjárhagslegs og siðferðislegs stuðnings við keppnisíþróttir kvenna. Inn á milli skaut hún viðtölum við afrekskonur í íþróttum. Engin þeirra tók jafneinarða af- stöðu og Kristrún og sumar þeirra sögðu reynslu sína allt aðra en þá sem Kristrún lýsti. Hún var því sá álitsgjafi í þættinum sem fékk mestan tíma og hafði bein- skeyttustu skoðanimar. Ég hef aldrei verið þeirrar skoðunar að blaðamenn og aðrir fjölmiðlamenn eigi að útmá spor sín og látast vera algjörlega áhrifalausir um útkomuna á því efni sem þeir vinna við. I því felst ákveðinn óheið- arleiki gagnvart lesandanum. En það þýðir ekki að blaða- og fjöl- miðlamenn eigi að nota miðla sína til að útbreiða eigin skoðanir. Öllu má ofgera. Og það gerði Kristrún í þessum þætti. Ekki vegna þess að skoðanir hennar væru vitlausar eða hættulegar. Heldur vegna þess að ást hennar á eigin skoðun- um gerði þáttinn álíka aðlaðandi og sam- komu hjá Krossinum. í öðm lagi vil ég kvarta yfir lýsingum íþróttadeildarinnar á Evrópufótboltan- um, en geri það þó með hálfrím hug. Það hlýtur að vera erfitt að halda dampi í eins og hálfs klukkutíma einræðu. Stundum getur hún teygst upp í þijá tíma. En það er eftir sem áður sorglegt að enginn þeirra, sem hafa lýst leikjunum ffá Evr- ópuboltanum, skuli hafa náð leikni í þessari þrauL Verst finnst mér jregar þeir magna upp leiðindin á vellinum með því að tuða sí- fellt um hversu vondur leikurinn sé. Ég hefði talið að þá reyndi einmitt mest á að þulimir skemmtu áhorfendum. Þess í stað áminna þeir þá sem ef til vill gætu haft gaman af einu og einu atviki. í þriðja lagi vil ég kvarta yfir þeirri stefnu fréttastofu Ríkissjónvarpsins að fylla fréttatímann í gúrkunni með því að lengja hverja frétt fyrir sig. Fréttimar breytast í erindi um daginn og veginn eða litla fræðsluþætti. Og stundum er ágætri frétt slátrað með endalausum eft- irmála um alls óskyld mál. Gunnar Smári Egilsson „Sem betur fer er skilningur þjóðar- innar á því að fara verður með gát meiri en áður og við verðum að vona að hann komi fram ímeiri sparnaðarvilja þjóðarinnar. “ Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. °£jcitctc et ýcc krCC'Cí-’L. jtý t tt Li>(tlt JiCii/iC/icv/ „Það sem mér hefur þótt ánægjulegast er hvað listamönn- unum hefur þótt gaman að koma ffam á íslandi." Helga Hjörvar, framkvæmdastjóri Listahátiðar. ~Utc vcí „Það er sjúkt hvemig fólk hér á landi getur búið til sögur.“ Linda Pétursdóttirfegurðardís. íHj'cccjti.cciycc'ct. „Við höfum ekkert aðhafst þama sem gæti tmflað einn né neinn.“ Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri. j>c\- rrxcc^s 'jjó-tv c vcí&ýcctcctc ‘ce.cýLcc? „Ég vil sjá það sem ríkjandi reglu að utanaðkomandi fólk eigi jafna möguleika á faglegum grundvelli.“ Ólafr G. Einarsson stöðuveitandi. er'ctscvLcLici, ■fé.Lctí, Lcctci i'cywc (y&’ccp.cCi 2! ,Á þessum tíma seldi ég meira af svínakjöti en Þorvaldur Guð- mundsson í Síld og fiski.“ Halldór H. Kristinsson, gjaldþrota hluthafi í Kjötmiðstöðinni. ‘U'c Jc’et) Lótp'ce.cyLcc- yycLLcctc? ,A4ér finnst satt að segja sorg- lega lítið hafa áunnist í fjölgun lögreglukvenna síðan maður byijaði að arka um götumar í lögreglubúningi 1973.“ Dóra Hlín Ingólfsdóttir rannsóknarlögreglukona. &k.(&c tuycjcc ci, tca&Lcctccc t\ tvcrticaii „Það er mjög ánægjulegt að Lewis skuli ekki keppa í 100 metrunum í Barcelona, enda vil ég helst ekki sjá Lewis oftar.“ Ben Johnson lyfjasprettur.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.