Pressan - 25.06.1992, Page 27

Pressan - 25.06.1992, Page 27
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 25. JÚNÍ 1992 27 REYKJAVÍK DANÍEL GUÐJÓNSSON í HAMINGJU OG REYKJAVÍK UM Spurt er, hvað er Hamingja? Svar, nafn á tímariti sem gefíð er út af nokkrum ungum mönnum sem þekkja næturlíf Reykjavík- urborgar eins og finguma á ömmu dyravarðarins í húsinu sem þeir leigja fyrir útgáfustarf- semina. I Hamingju er reyndar töluvert fjallað um það sem er að gerast hjá ungu fólki í borginni í lista- og menningarlífí jafht sem skemmtanalífi. Einn Hamingju- drengja er tvítugur og ber nafiúð Daníel. Fólk á hans aldri úr helstu kmmmaskeijum landsins mætti vera þakklátt fyrir að fá hann til að leiða sig á vit ævin- týranna sem leynast jafht innan bara sem utan á staðnum sem Ingólfur Amarson gerði að höf- uðbóli íslands eftir að eitthvert spýtnamsl í hans eigu rak þar á land. Við höldum því í ímynd- aða ferð, ímyndaða helgi, með Daníel um Reykjavík með ímynduðum vinum utan af landi. HELGARDAG- SKRÁ DANÍELS FÖSTUDAGUR Eftirmiðdagur: Ég bóka vin- ina á gistiheimilið Hjá Dóm við Laugaveginn. Við fáum okkur léttan snæðing á Hard Rock en svo sleppi ég félögunum lausum í Kringlunni og Borgarkringl- unni. Kvöld: Við byrjum kvöldið á kvöldverði á A næstu grösum, sem er grænmetisætustaður við Skólavörðusu'ginn. Aður en far- ið er á ball kíkjum við á N1 bar, þar sem spiluð er hörð danstón- list. Af N1 fómm við á Ingólfs- kaffi þar sem ég sýni félögunum aðalglamorgellur borgarinnar. Skiljanlega verður svo leiðinlegt á Ingólfskaffi að við verðum að enda í Gijótinu til að fá alvöm ,Jdkk“. (Greinarhöfundur mælir með Gijótinu við Tryggvagötu því hann hefur sannreynt að þjónustan er léleg í gijótinu við Hverfisgötu.) Þar ræður hreint rokk ríkjum og allir em lausir við gervifíling. LAUGARDAGUR Miðdagur: Við vöknum seint og skellum okkur í sund í Laug- ardalnum. Þar flatmögum við fram eftir degi. Allir merkisstað- ir borgarinnar em næstir á dag- skrá; Ráðhúsið, Perlan, Sorpa. Eftirmiðdagur: Til að koma utanbæjarmönnunum í skilning um hversu mikil stórborg Reykjavík er oiðin fer ég með þá í átt að Mosfellssveit og sýni þeim Grafarvoginn. Kvöld: Við tökum kvöldmat í Perlunni og þaðan höldum við á Moulin Rouge við Laugaveg og glápum á „drag-show“. Við leit- um svo eitthvert ,yave“ uppi og djömmum fram á morgun (rave = skipulögð veisla haldin í hús- næði sem einhveijir töffarar leigja. Innheimtur er óvemlegur aðgangseyrir og ekki óalgengt að fólk dundi sér við dans til að drepa tímann. Slíkar veislur em alla jafna haldnar að næturlagi og ku vera aðalkikkið úti í hin- um stóra heimi). SUNNUDAGUR Miðdagur: Dagurinn byijar á „frisbí" í Hljómskálagarðinum. Eftirmiðdagur: Að loknu svitabaði fömm við upp á hótel í sturtubað, pöntum eina 18 tommu frá Pizzahúsinu og leggj- umst fyrir framan sjónvarpið og skellum myndbandi í mynd- bandstækið. Fyrst horfum við á meistarastykkið Rumble Fish, sem vel er við hæfi drengja úr fiskiplássum, síðan á Dune með David Lynch. Helginni lýkur í ellefubíói á myndinni Lostæti í Regnboganum. AF N1 BAR FÖRUM VIÐ Á INGÓLFSKAFFI ÞAR SEM ÉG SÝNI FÉLÖGUNUM AÐ- ALGLAMORGELLURNAR í BORGINNI. EINAR SYKURMOLI OG REYKJAVÍK Tónlistarmenn hafa löngum þótt miklir gleðimenn og út um allan heim keppast dagblöð og tímarit við að segja frá næturæv- intýmm þeirra frægustu. Helst má rekast á þetta fólk í nætur- klúbbum stórborga á við Nýju Jórvík, Lundúnir, París og svo framvegis. Við Reykvíkingar eigum þó líka fræg tónlistargoð og meðal þeirra er Einar Om Benediktsson Sykurmoli. Hann er öllum hnútum kunnugur í skemmtanalífínu, hvort heldur er í Reykjavík eða öðmm heims- borgum. Einar tók að sér að skipuleggja helgi utanbæjarfólks í Reykjavík fyrir PRESSUNA. Meðal viðkomustaða em Gijótið við Tryggvagötu, Trúbadorinn við Laugaveg og að sjálfsögðu Perlan og Ráðhúsið. Þegar landsbyggðarfólk hefur skoðað þessi tvö síðasttöldu mannvirki er Einar þess fullviss að það muni ekkert skilja í því að fólk skuli hafa æst sig vegna upprisu þeirra. Einar fer með fólkið á fullt af bömm og skemmtistöð- um og skoðar fullt af sætu fólki. HELGARPAKKI EINARS FÖSTUDAGUR Eftirmiðdagur: Aðkomumenn tékka sig inn á Hótel Óðinsvé. Kvöld: Þar sem allir veitinga- staðir em um þetta leyti fúllir af útlendingum fömm við á Hlölla- báta og snæðum kvöldverð. Ef illa viðrar er betra að sleppa Hlöllabátum og fá í staðinn pizzu á Duus-húsi. Það er mjög góður veitingastaður. Að lokn- um kvöldverði er hægt að kíkja á diskótekið á neðri hæðinni. Vilji menn fara eitthvað lengra, til dæmis á pöbbarölt, er ekki úr vegi að byija á Apríl í Hafnar- stræti. Þaðan á Amsterdam við Tryggvagötu og ef þetta er fyrst. Reykjavíkurferðin er um að gera að fara inn á Grjótið við sömu götu. Þar er rokkgengi bæjarins samankomið. Best er að drekka bara bjór fyrsta kvöldið til að ná úr sér ferðarykinu og búa sig undir laugardaginn. Ef enn er nægur tími og heils-

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.