Pressan - 15.10.1992, Qupperneq 40
ST að vakti furðulitla athygli þegar Jón
Baldvin Hannibalsson stóð upp á ný-
legum flokksstjórnarfundi í Alþýðu-
flokknum og talaði
býsna harkalega gegn
þá nýsamþykktu fjár-
lagafrumvarpi Friðriks
Sophussonar, meðal
annars gegn breyting-
um á virðisaukaskatti.
Nú geta fleiri fengið að
heyra þessa ræðu og meira til, þvf að á
þriðjudag í næstu viku stendur Alþýðu-
flokksfélag Reykjavíkur fyrir opnum
fundi um „draumafjárlögin". Frummæl-
endur verða Jón Baldvin og Ágúst Ein-
arsson, prófessor og stjórnarformaður
Seðlabankans...
JL yrir skömmu var valin besta sjón-
varpsauglýsingin í Bandaríkjunum og
hlutu vinningshafar hin eftirsóttu Clio-
verðlaun. Fyrsta sæti
hlaut auglýsing sem
gerð var fyrir hið
heimsþekkta körfu-
boltalið Chicago Bulls.
Þetta væri ekki í frásög-
|,ur færandi ef ekki
“hljómaði við auglýsing-
una fslensk tónlist tekin af fyrstu plötu
blúshljómsveitarinnar Vina Dóra, Blue
Eyes. Meðíimir hennar eru að vonum
ánægðir með árangurinn og strákarnir
bíða þess nú að fá vinningsstytturnar
heim. Þess má geta að aðeins einn fslend-
ingur annar heftir hlotið þessa viðurkenn-
ingu, Elísabet A. Cochran, auglýsinga-
teiknari á Auglýsingastofu Kristínar...
iðurskurður Sighvats Björgvins-
sonar í heilbrigðismálum hefur ýmsar
óvæntar afleiðingar. Það hafa ekki bein-
línis verið kærleikar
undanfarið á milli
þeirra Tómasar
Helgasonar, yfir-
læknis á Kleppi, og
Þórarins Tyrfings-
sonar hjá SÁÁ. Það
hefur því vakið nokkra
athygli að nú ber svo við að ekki gengur
hnífurinn á miili þeirra í sameiginlegri
fordæmingu á sparnaðaráformum Sig-
hvats, líklega samkvæmt kenningunni að
óvinur óvinar míns sé vinur minn...
F
yrir skömmu kom Sigurður Ingva-
son skipahönnuður hingað til lands.
Ffeimsókn Sigurðar var stutt en þó mun
hann hafa átt einhverj-
ar viðræður út af
hönnunargöllum Her-
jólfs. Mun Sigurður
meðal annars hafa átt
fund með Áma John-
sen, alþingismanni
Stjörnu snakK
Eyjamanna. Einnig ræddi Sigurður við ákvörðun hefur þó verið tekin um fram- Skipatæknimönnum mikið í mun að VestmannaeyjaferjunniHerjólfi...
skipstjórnarmenn á Herjólfi en engin hald samvinnu við Sigurð, enda þeim hann komi hvergi nálægt athugunum á ___________________________________________________
Laugavegi 28b, sími T6513
luversbnr natnr
Það er ekki á allra færi að elda ekta kínverskan mat.
Þessi matargerð hefur þróast í gegnum aldaraðir,
en varð fyrst kunn almenningi á norðururhveli jarðar
upp úr 1800, þegar mikill flöldi kínveija flutti frá
Canton héraði í suðurkína til Ameríku og Evrópu
og kynntu sína sérstöku matargerð. Hún vakti strax
mikla hrifningu almennings fyrir fjölbreytileika
og öðruvísi meðferð á hráefni en við á vesturlöndum
áttum að venjast.
SJANGHÆ er sérhæft kínverskt veitingahús með afar
íjölbreyttan matseðil þar sem verðinu er stillt í hóf.
SJANGHÆ fær kínverska gestakokka í heimsókn
með reglulegu millibili sem hver um sig kemur með
spennandi nýjungar.
HAUSTTILBOÐ:____________________________________
Fordrykkur: Mangó kokteill
Forréttur: Maize súpa með skinku
Aðalréttur: (5 litlir réttir):
Fiskur í Hui-kuo sósu (sterkt), grísakjötsstrimlar
m /Yu-hsinag sósu, súrsætt lambakjöt, nautakjöt
í Luo-ko sósu, kínverkst grænmeti með ostru sósu.
Eftirréttur: Szechuang möndlukaka með rjóma.
Allt þetta aðeins kr. 1.690.- á mann.
FRl HEIMSENDINGAÞJÓNUSTA ef pantað er firir tvo eða fleiri alla daga vikunar frá kL 18.00.