Morgunblaðið - 30.04.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
39.900kr.
SÓL
Sí›ustu sætin í maí
Tilbo›i› gildir einungis
ef bóka› er á netinu!
Mallorca
Benidorm
Bóka›u strax á
www.urvalutsyn.is
*
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
45
23
04
/2
00
4
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, fer›ir til og frá
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Cala Millor Park í eina viku - 20. maí
á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn 2-11 ára í íbú› m. 1 svefnh.
á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn 2-11 ára í íbú› m. 2 svefnh.
39.900kr. *
La Colina í eina viku - 19. maí
ÓD†R
T
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta og Excel
Airways, sem Atlanta á stóran hlut
í, hafa samið við bresku ferðaskrif-
stofukeðjuna Travel City um leigu
á tveimur Boeing 747-200 þotum í
verkefni til árs. Verðmæti samn-
ingsins er um 60 milljónir banda-
ríkjadala eða kringum 4,3 millj-
arðar íslenskra króna.
Travel City er með stærstu
ferðaskrifstofum Bretlandseyja.
Atlanta og Excel Airways samein-
ast um verkefnið. Hafþór Haf-
steinsson, forstjóri Atlanta, segir
þetta sýna vel hvernig félögin tvö
geti sameiginlega tekið að sér
viðamikil verkefni.
Samið er um flug milli Man-
chester og Gatwick í Englandi
annars vegar og Orlando og Las
Vegas í Bandaríkjunum hins veg-
ar. Um 200 manns munu starfa við
flutningana í sumar og um 112
manns næsta vetur, flestir frá
Bretlandi. Þá eru í samningnum
ákvæði um endurnýjun hans til
tveggja ára. Komi til þess er heild-
arverðmæti hans um 13 milljarðar
króna.
Atlanta rekur nú yfir 35 þotur
og Excel Airways átta. Hefur síð-
arnefnda félagið, sem er eitt
stærsta leiguflugfélag Bretlands,
sérhæft sig í flugi til vinsælla
ferðamannastaða við Miðjarðarhaf,
í Austur-Evrópu og Karíbahafinu.
Atlanta og Excel Airways taka að sér sameiginlegt verkefni
Leigja breskri ferðaskrif-
stofu tvær breiðþotur
STRÁKARNIR fóru hratt yfir
Austurvöll þegar þeir renndu sér á
línuskautunum í blíðviðrinu um dag-
inn. Sá yngri sýndi listir sínar með
því að hoppa upp þótt ekkert væri í
vegi fyrir honum. Hann var líka vel
varinn ef eitthvað hefði komið upp á
og hann dottið. Sá eldri renndi sér af
öryggi og bar hlífar á hnjám og oln-
bogum. Enginn var þó hjálmurinn á
höfðinu enda flottara að bera sól-
gleraugu og sýna yfirvegun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ósýnileg hindrun á Austurvelli
RAFIÐNAÐARSAMBAND Ís-
lands hefur undirritað kjarasamn-
inga við Félag íslenskra stórkaup-
manna. Þá hafa RSÍ og
Orkuveitan undirritað nýjan kjara-
samning sem gildir til 29. febrúar
2008.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Gunnarssonar, formanns
Rafiðnaðarsambandsins, hækka
lágmarkslaun umtalsvert í samn-
ingi sambandsins og FÍS. Samið
var um 60 þúsund króna desem-
beruppbót. sem mun hækka í 65
þúsund árið 2006.
Laun hækka a.m.k. um 2,8% ár-
lega og lífeyrisframlag atvinnurek-
anda hækkar í 7% árið 2005 og 8%
árið 2007. Þá verða slysatrygg-
ingar endurskoðaðar og hækka um
a.m.k. 20%.
Tæplega 100 rafiðnaðarmenn
munu starfa skv. samningnum sem
náðst hefur við Orkuveituna.
Launahækkanir eru svipaðar og í
öðrum samningum að undanförnu
og verða launakerfi endurskoðuð
frá grunni.
Greiðslur í lífeyrissjóð hækka
jafnmikið og í öðrum samningum
og tekið er á ýmsum atriðum er
varða bakvaktafrí, slysatryggingar
og fleira.
RSÍ undirritar samninga
við FÍS og Orkuveituna
FÉLAGSMENN í Rafiðnaðar-
sambandinu hafa samþykkt í
póstatkvæðagreiðslu nýgerðan
kjarasamning við Samtök at-
vinnulífsins og Samtök atvinnu-
rekenda í raf- og tölvuiðnaði.
Já sögðu 77,6%, nei sögðu
20,5% og auðir og ógildir seðlar
voru 1,9%. 22% félagsmanna
sem samningurinn nær til tóku
þátt í kosningunni.
Samningur
RSÍ við
SA/SART
samþykktur
LÖGREGLAN í Keflavík rann-
sakar náttúruspjöll vegna ut-
anvegaaksturs torfærumótorhjóla
við Djúpavatn í Reykjanesfólkv-
angi.
Myndirnar voru teknar þann 28.
apríl og sýna náttúruspjöll við
nyrðri enda Djúpavatns. Bannað er
samkvæmt náttúruverndarlögum
1999 að aka vélknúnum ökutækj-
um utan vega og samkvæmt um-
ferðarlögum frá 1987 er akstur ut-
an vega í þéttbýli bannaður.
Lögreglan í Keflavík lýsir eftir
vitnum að náttúruspjöllunum og
biður þá sem vita hver eða hverjir
voru á ferð við Djúpavatn að hafa
samband síma 420 2400.
Náttúruspjöll við Djúpavatn
ÞORSTEINN Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, telur tímabært
að endurskoða og endurskilgreina
hlutverk Landhelgisgæslunnar og
Fiskistofu. „Öryggis- og eftirlits-
hlutverk þessara stofnana fara vel
saman og ég tel að stefna beri að því
að sameina þær,“ sagði Þorsteinn
Már á aðalfundi Samherja í gær.
Hann gerði eftirlit með veiðum og
vinnslu úti á sjó að umtalsefni, sagði
tækninni stöðugt fara fram og nú
væri svo komið að með aðstoð gervi-
hnatta væri unnt að fylgjast með
staðsetningu og ferðum allra skipa,
hvar sem þau væru stödd. Það væri
til að mynda gert varðandi öll skip
sem stunduðu veiðar utan landhelgi
og tæknin væri einnig til staðar í
minni skipum sem stunduðu veiðar í
landhelginni. „Ég tel að innleiða beri
þessa tækni í öll íslensk fiskiskip
hvar sem þau stunda veiðar. Þessi
tækni gerir allt eftirlit markvissara
en er auðvitað ekki síður mikilvæg
þegar horft er til öryggissjónar-
miða,“ sagði forstjóri Samherja og
nefndi að eftirlitið væri nú bæði í
höndum Fiskistofu og Landhelgis-
gæslunnar og ljóst að um tvíverknað
væri að ræða.
Hann nefndi að rétt væri að huga
að því hvernig skipakostur og starfs-
menn sameinaðrar stofnunar gæti
nýst betur við hafrannsóknir. Þannig
gæti Landshelgisgæslan rekið haf-
rannsóknarskipin. „Með sameining-
unni yrði einnig auðveldara að end-
urnýja skipaflota Landhelgis-
gæslunnar en ljóst er að slík
endurnýjun er nauðsynleg,“ sagði
Þorsteinn og bætti við að hann von-
aði að ráðamenn þjóðarinnar myndu
ræða þessa hugmynd í fullri alvöru
„og beri gæfu til að hrinda henni í
framkvæmd“.
Vill sameina
Fiskistofu og
Gæsluna
HÖSKULDUR Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar, segir ljóst að aukning far-
þega um flugstöðina sé mun meiri en
áður hafði verið ráð fyrir gert.
„Núna fyrstu þrjá mánuði ársins
erum við að sjá 20% aukningu á far-
þegum sem er sennilega það mesta
sem við höfum heyrt af í Evrópu. Ég
held að engin önnur flugstöð í Evr-
ópu sé með eins mikla aukningu í far-
þegum og við erum með núna á síð-
ustu mánuðum.“
Höskuldur greindi frá fyrirhuguð-
um framkvæmdum og breytingum
við flugstöðvarbygginguna á þessu
ári og því næsta fyrir um 1.200 millj-
ónir króna, á ráðstefnu um rekstur
flugstöðva á Nordica hóteli í gær.
Aðspurður sagðist hann gera ráð
fyrir að næsta stækkun flugstöðvar-
innar yrði á árunum 2007–8.
Í erindi Stefáns Þórarinssonar,
varaformanns Flugstöðvarinnar,
kom fram að tekjur af rekstri Flug-
stöðvarinnar jukust úr 1.156 milljón-
um króna árið 1999 í 4.562 milljónir í
fyrra eða um 395% á föstu verðlagi.
Hagnaður af rekstri flugstöðvarinn-
ar jókst á sama tíma um 149%, úr
368 milljónum króna í 547 milljónir.
Þess má geta að árið 1999 var síðasta
heila árið sem ríkisstofnunin FLE
var við lýði.
Tekjur af rekstri FLE
4,5 milljarðar í fyrra