Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 9
ÍSLAND var nýlega valið næstbesta
eyjan í árlegri könnun starfsmanna
ferðatímaritsins Allt om resor, sem
jafnframt er stærst sinnar teg-
undar í Svíþjóð.
Um 50 starfsmenn fyrirtækisins,
blaðamenn og ljósmyndarar voru
spurðir hver væri besta eyjan sem
þeir hefðu heimsótt, vildu heim-
sækja aftur og myndu mæla með
við vini sína. Sænska eyjan Gotland
hafnaði í fyrsta sæti en fast á hæla
hennar kom Ísland en neðar á list-
anum urðu m.a. Mallorka, Bali, Sik-
iley og Manhattan. Fulltrúi sendi-
ráðs Íslands í Stokkhólmi veitti
viðurkenningu blaðsins viðtöku.
Ljósmynd/Johanna Stenius
Guðrún Ágústsdóttir (lengst t.h.), fulltrúi sendiráðs Íslands, tók við við-
urkenningarskjalinu fyrir Íslands hönd. Einnig voru María Erla Mar-
elsdóttir sendiráðunautur, Kalle Byström, sölustjóri Icelandair í Svíþjóð,
og Karin Hákonardóttir Byström, eiginkona hans, viðstödd afhendinguna.
Ísland valið
næstbesta
eyjan
MÓTMÆLI vegna samræmds stúd-
entsprófs í íslensku verða á Austur-
velli kl. 13.30 á mánudag, strax að
prófinu loknu, að frumkvæði Mál-
fundafélags Kvennaskólans. Kristín
Svava Tómasdóttir, fulltrúi félagsins,
segir að mikil umræða hafi farið fram
í Kvennó um stúdentsprófið og 20%
þeirra sem taka það í ár komi úr
Kvennó. Ástæðuna segir hún vera þá
að Kvennaskólanemendur klára ís-
lensku á þriðja ári og hafa því verið
hvattir til að taka prófið í ár, þótt það
sé val, frekar en að ári þegar það
verður skylda, en námsefnið ekki
jafnferskt í minni.
Kristín segir að óánægja nemend-
ana snúist í fyrsta lagi um fram-
kvæmd prófsins. Það hafi ekki verið
fyrr en á síðasta ári sem nemendum
var tilkynnt um prófið, þegar flestir
voru búnir að henda glósum í íslensku
og selja bækur sem hefðu getað kom-
ið að gagni við undirbúning prófsins.
Í öðru lagi finnst nemendum að hug-
myndin að baki samræmdu stúdents-
prófi í aðeins þremur greinum sé göll-
uð. Til að samræmdu prófin þjóni
þeim tilgangi sem þeim sé ætlaður,
þ.e. að gefa nemendum og skólum
góða hugmynd um hvar þeir standi í
námi miðað við aðra nemendur og
skóla, þyrfti að leggja samræmd próf
fyrir í mun fleiri greinum.
Telja fjölbreytni minnka
„En það myndi gera skólana eins-
leita og útrýma þeirri fjölbreytni sem
fyrir er í þeim,“ segir Kristín. Í
fréttatilkynningu frá Málfundafélagi
Kvennaskólans kemur ennfremur
fram að ofuráhersla á samræmdar
greinar, eins og hefur sýnt sig í
grunnskólanum að mikil hætta er á,
geri það að verkum að aðrar greinar
verða út undan og námið einsleitara.
Nefnir Kristín sem dæmi að skipt
hafi verið út félagsfræðiáfanga í
Kvennó til að koma að enskuáfanga
vegna samræmda prófsins á næsta
ári.
Kristín segir að með samræmdum
prófum í ákveðnum greinum sé verið
að gera lítið úr skólum sem leggja
áherslu á aðrar greinar, t.d. fé-
lagsfræði og málabrautir, eins og
gert sé í Kvennó.
Málfundafélagið hvetur alla sem
vilja mótmæla samræmdum stúd-
entsprófum að mæta á Austurvöll á
mánudaginn kl. 13.30 en þar verður
stjórnvöldum afhentur undirskrifta-
listi með mótmælum vegna prófanna.
Mótmælafundur vegna
samræmdra stúdentsprófa
Nemendur ósáttir við framkvæmd prófanna
RANNSÓKN á voðaskoti sem
dró 12 ára dreng til bana á Sel-
fossi hinn 15. mars er enn til
rannsóknar hjá sýslumannin-
um á Selfossi. Tæknirannsókn
vegna málsins er lokið en beðið
er krufningarskýrslu. Í umrætt
skipti hljóp skot úr skamm-
byssu í höfuð drengsins þegar
hann og félagi hans voru að
fikta með vopnið.
Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður segir þátt eiganda
skammbyssunnar til skoðunar
og verði fljótlega tekin ákvörð-
un um hvernig meta skuli þátt
hans í málinu.
Þáttur byssu-
eiganda til
skoðunar
VEÐUR mbl.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Silkijakkar og
sumarkjólar
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending
Sumarvörur
nýir litir bleikt og hvítt
Kennslubækur í lestri -
merk nýjung
Þrjár kennslubækur í lestri eftir Helgu
Sigurjónsdóttur koma út í dag. Þær heita:
Hljóð og stafir - lestur
Hljóð og stafir - æfingar
Lestrarátak
Tvær þær fyrrnefndu eru byrjendabækur en Lestrarátak er ætlað þeim sem
hefur skrikað fótur í lestri og réttritun. Bækurnar hafa orðið til þau fjögur ár
sem Helga hefur starfrækt Lestrarskóla sinn. Gerð bókanna og kennsla
Helgu byggir bæði á traustri fagþekkingu - hún er íslenskufræðingur - og
langri kennslureynslu. Kjarni máls í lestrarkennslu Helgu er eftirfarandi:
1. Börn fæðast með alla þá hæfileika sem manninum eru eiginlegir,
líka hæfileika til að tala og hæfileika til að læra að lesa og skrifa.
2. Málhæfileikinn er meðfæddur og náttúrlegur, börn læra málið sé það
fyrir þeim haft en ritmál þarf að kenna. Öll ritmálskerfi eru flókin og
erfið viðureignar. Þess vegna er eðlilegt að ganga illa að læra að lesa.
3. Þegar börn eru orðin þokkalega talandi geta þau lært að lesa, líka
svokölluð seinfær börn. Kennsla og námsefni skiptir þar sköpum.
4. Svokölluð „lesblinda“ er nær alltaf afleiðing af ófullnægjandi lestrar -
kennslu. Allir byrjendur í lestri eru „lesblindir“ - gera allar
„lesblinduvillurnar“ sem greindar eru hjá börnum og fullorðnum.
„Blindan“ stafar af því hversu erfitt það er að greina hljóð
í tali, skilja þau hvert frá öðru og tengja óhlutstæðum
táknum. Með góðri kennslu og viðeigandi þjálfun hverfa villurnar og
þar með „lesblindan“.
Bækurnar fást á Meðalbraut 14, Kópavogi,
og í Skólavörubúðinni, Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Skóli Helgu Sigurjónsdóttur
Netfang: helgasd@internet.is - Veffang: www.skolihelgu.is
Sími 554 2337
Svörtu siffonpilsin komin aftur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
KONAN
TÍSKUVÖRUVERSLUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 – SÍMI 544 4035
Vorútsala
Aðeins í dag, föstudag
30% afsláttur af öllum vörum
Stærðir 34 - 56
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Lokadagur
vorútsölunnar
Gallakvartbuxur kr. 1000
Peysur .............. kr. 1000
Bolir ................. kr. 1000
Valdar vörur
40% afsláttur
Kynningartilboð!
20% kynningarafsláttur í dag af
öllum og microfibra
bolum og nærfötum fyrir
dömur og herra
Mikið úrval af fallegum sumarlitum
Hraunbæ 119, (í sama húsi og bókasafnið), sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00
Opið laugardaga kl. 11:00-16:00