Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 11 HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur dæmdi í gær 36 ára karl- mann í 40 þúsund kr. sekt fyrir að flytja inn frá Taílandi 120 mynddiska með klámmyndum. Í dómnum kemur fram að við tollskoðun hafi komi í ljós reikn- ingar sem tilgreindu tegund og verð vörunnar en að þeim hafi ekki verið framvísað í aðflutn- ingsskjölum. Kvaðst hafa ætlað að nota myndirnar sjálfur Í yfirheyrslu hjá lögreglu í október sl. kvaðst ákærði ein- göngu hafa ætlað að flytja inn DVD-mynddiskana til eigin nota og fullyrti hann að hann ætlaði hvorki að dreifa þeim né selja. Í sendingunni reyndust vera 120 diskar sem höfðu að geyma 48 titla og voru því einn til þrír diskar af hverri tegund. Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu og sagði dómurinn að þótt brot hans væri ekki stór- fellt og ekkert lægi fyrir um að hann hefði í hyggju að dreifa mynddiskunum í hagnaðar- skyni. Róbert R. Spanó, settur hér- aðsdómari, kvað upp dóminn. Verjandi ákærða var Guðmund- ur Ágústsson hdl. og sækjandi Sigríður Jósefsdóttir, saksókn- ari hjá ríkissaksóknara. Sekt fyrir smygl á klám- myndum FÉLAGSMÁLARÁÐ Reykjavíkurborgar hefur falið félagsmálastjóra borgarinnar að kanna möguleika á að finna húsnæði sem hentar heim- ilislausum. Í minnisblaði frá formanni ráðsins, Björk Vilhelmsdóttur, kemur fram að af þeim 85 sem taldir eru heimilislausir í Reykjavík er nær helmingur, eða 40 einstaklingar, „algjörlega á göt- unni“. Aðrir hafa ýmist tímabundinn dvalarstað, eru á áfangaheimilum, í fangelsum eða á sjúkra- stofnunum. Átta eru á biðlista eftir plássi á heimili fyrir heimilislausa á Miklubraut 20, en þar búa 7–8 manns. Jafnlangur biðlisti er eftir plássi á Miklu- braut 18 en þar er rekið áfangaheimili fyrir ein- staklinga sem eru heimilislausir en hafa hætt neyslu vímuefna. Félagsþjónustan og Reykjavík- urborg leggja fé til rekstrar þessara heimila en rekstur er í höndum Samhjálpar. Móta þarf heildstæða stefnu Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri í Reykja- vík, segir að málefni heimilislausra séu á margra ábyrgð. Því sé samvinna heilbrigðis- og félags- málayfirvalda og sveitarfélaga mikilvæg til að leysa úr vanda þeirra sem hvergi eiga höfði sínu að halla. „Það sem þyrfti að gera er að þessir að- ilar taki höndum saman og móti heildstæða stefnu um hvernig á að leysa þessi mál,“ segir Lára. Hún segir félagsmálaráðherra nú þegar hafa boðað félagsmálastjóra nokkurra sveitarfélaga á fund í næstu viku til að ræða vanda heimilislausra, en ráðherra greindi frá því að hann hygðist boða til slíks fundar í samtali við Morgunblaðið 22. apríl sl. Lára segir að hún hafi hvatt félagsmálaráð- herra til þess að halda fundinn í samvinnu við heil- brigðisráðuneyti. Lára segist bjartsýn á að skriður sé kominn á úrlausn á vanda heimilislausra. Ráðherrar virðist fúsir til að taka á vandanum og félagsmálaráð borgarinnar einnig. Erfitt að koma skjólstæðingum félagsþjónustu inn á geðdeildir Eins og fram kom í grein sem birt var í Tímariti Morgunblaðsins hinn 18. apríl sl. eru 32 ein- staklingar taldir geðfatlaðir af þeim 102 sem tald- ir eru heimilislausir. Spurð um úrræði fyrir þann hóp segir Lára að Félagsþjónustan hafi ákveðin búsetuúrræði fyrir þann hóp. Hins vegar verði hugsanlega alltaf einhverjir sem ekki sé hægt að ná til. Hún segir vanda þess hóps vera bæði á ábyrgð heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda. Spurð að því hvort hún viti til þess að heim- ilislausu geðfötluðu fólki hafi verið vísað frá geð- deildum hérlendis segist hún ekki vilja orða það svo. „Við eigum hins vegar stundum erfitt með að koma þeim inn. Og við getum ekki útvegað bú- setuúrræði af því að fólkið er of veikt,“ segir Lára. Félagsþjónustan hefur rekið stuðningsþjónustu fyrir geðfatlaða. Heilbrigðisráðherra setti nýverið á fót færanlegt teymi fagfólks til að sinna þeim hópi geðfatlaðra sem hlýtur meðferð utan stofn- ana. Lára segist hafa lagt til að fulltrúi fé- lagsþjónustunnar myndi verða hluti af teyminu en það hafi ekki gengið eftir. Lára segir Félagsþjónustuna vinna náið með Félagsbústöðum að því að finna sérhæfð búsetu- úrræði fyrir ýmsa hópa, s.s. geðfatlaða, sem eigi erfitt með að búa í t.d. hefðbundinni blokkaríbúð. Þá segir hún að það geti verið erfitt fyrir fáliðað stuðningsheimili fyrir geðfatlaða að taka við mjög erfiðum einstaklingum. Oft geti einstaklingar þó búið sjálfstætt, en úrræðin séu ekki alltaf fyrir hendi. „Það er ekki nóg að koma mönnum inn í hús, heldur þarf sérþjálfað starfsfólk og mikla þjónustu. Í raun og veru þarf að vera hægt að skraddarasauma úrræði fyrir hvern og einn.“ Tvisvar þurft að vísa frá gistiskýli vegna plássleysis Á minnisblaði sem Björk Vilhelmsdóttir lagði fram nýlega kemur fram að aðstæður heim- ilislausra séu mismunandi, hópurinn sé breyti- legur og engin skilgreining liggi fyrir á hvað í heimilisleysi felist. „Vert er að hafa í huga að ekki vilja allir þeir sem eru heimilislausir vegna geð- rænna veikinda og eða vímuefnavanda fá meðferð eða húsnæði sem byggist á fastri búsetu,“ segir Björk. Í Gistiskýlinu í Þingholtsstræti rúmast 15 manns. Undanfarið hafa dvalist þar 7–8 manns í senn. Björk segir það hafa tvisvar sinnum gerst á þessu ári að einstaklingum hafi verið vísað frá skýlinu vegna plássleysis. Það sem af er árinu hafa 8 manns gist meira en 50 nætur í skýlinu. Ályktun félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar Félagsmálastjóri finni húsnæði fyrir heimilislausa Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Félagsmálayfirvöld í borginni ætla að leita að húsnæði fyrir heimilislausa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.