Morgunblaðið - 30.04.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 11
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær 36 ára karl-
mann í 40 þúsund kr. sekt fyrir
að flytja inn frá Taílandi 120
mynddiska með klámmyndum.
Í dómnum kemur fram að við
tollskoðun hafi komi í ljós reikn-
ingar sem tilgreindu tegund og
verð vörunnar en að þeim hafi
ekki verið framvísað í aðflutn-
ingsskjölum.
Kvaðst hafa ætlað að nota
myndirnar sjálfur
Í yfirheyrslu hjá lögreglu í
október sl. kvaðst ákærði ein-
göngu hafa ætlað að flytja inn
DVD-mynddiskana til eigin
nota og fullyrti hann að hann
ætlaði hvorki að dreifa þeim né
selja. Í sendingunni reyndust
vera 120 diskar sem höfðu að
geyma 48 titla og voru því einn
til þrír diskar af hverri tegund.
Ákærði hefur ekki áður sætt
refsingu og sagði dómurinn að
þótt brot hans væri ekki stór-
fellt og ekkert lægi fyrir um að
hann hefði í hyggju að dreifa
mynddiskunum í hagnaðar-
skyni.
Róbert R. Spanó, settur hér-
aðsdómari, kvað upp dóminn.
Verjandi ákærða var Guðmund-
ur Ágústsson hdl. og sækjandi
Sigríður Jósefsdóttir, saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara.
Sekt fyrir
smygl á
klám-
myndum
FÉLAGSMÁLARÁÐ Reykjavíkurborgar hefur
falið félagsmálastjóra borgarinnar að kanna
möguleika á að finna húsnæði sem hentar heim-
ilislausum. Í minnisblaði frá formanni ráðsins,
Björk Vilhelmsdóttur, kemur fram að af þeim 85
sem taldir eru heimilislausir í Reykjavík er nær
helmingur, eða 40 einstaklingar, „algjörlega á göt-
unni“. Aðrir hafa ýmist tímabundinn dvalarstað,
eru á áfangaheimilum, í fangelsum eða á sjúkra-
stofnunum.
Átta eru á biðlista eftir plássi á heimili fyrir
heimilislausa á Miklubraut 20, en þar búa 7–8
manns. Jafnlangur biðlisti er eftir plássi á Miklu-
braut 18 en þar er rekið áfangaheimili fyrir ein-
staklinga sem eru heimilislausir en hafa hætt
neyslu vímuefna. Félagsþjónustan og Reykjavík-
urborg leggja fé til rekstrar þessara heimila en
rekstur er í höndum Samhjálpar.
Móta þarf heildstæða stefnu
Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri í Reykja-
vík, segir að málefni heimilislausra séu á margra
ábyrgð. Því sé samvinna heilbrigðis- og félags-
málayfirvalda og sveitarfélaga mikilvæg til að
leysa úr vanda þeirra sem hvergi eiga höfði sínu
að halla. „Það sem þyrfti að gera er að þessir að-
ilar taki höndum saman og móti heildstæða stefnu
um hvernig á að leysa þessi mál,“ segir Lára.
Hún segir félagsmálaráðherra nú þegar hafa
boðað félagsmálastjóra nokkurra sveitarfélaga á
fund í næstu viku til að ræða vanda heimilislausra,
en ráðherra greindi frá því að hann hygðist boða
til slíks fundar í samtali við Morgunblaðið 22. apríl
sl. Lára segir að hún hafi hvatt félagsmálaráð-
herra til þess að halda fundinn í samvinnu við heil-
brigðisráðuneyti.
Lára segist bjartsýn á að skriður sé kominn á
úrlausn á vanda heimilislausra. Ráðherrar virðist
fúsir til að taka á vandanum og félagsmálaráð
borgarinnar einnig.
Erfitt að koma skjólstæðingum
félagsþjónustu inn á geðdeildir
Eins og fram kom í grein sem birt var í Tímariti
Morgunblaðsins hinn 18. apríl sl. eru 32 ein-
staklingar taldir geðfatlaðir af þeim 102 sem tald-
ir eru heimilislausir. Spurð um úrræði fyrir þann
hóp segir Lára að Félagsþjónustan hafi ákveðin
búsetuúrræði fyrir þann hóp. Hins vegar verði
hugsanlega alltaf einhverjir sem ekki sé hægt að
ná til. Hún segir vanda þess hóps vera bæði á
ábyrgð heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda.
Spurð að því hvort hún viti til þess að heim-
ilislausu geðfötluðu fólki hafi verið vísað frá geð-
deildum hérlendis segist hún ekki vilja orða það
svo. „Við eigum hins vegar stundum erfitt með að
koma þeim inn. Og við getum ekki útvegað bú-
setuúrræði af því að fólkið er of veikt,“ segir Lára.
Félagsþjónustan hefur rekið stuðningsþjónustu
fyrir geðfatlaða. Heilbrigðisráðherra setti nýverið
á fót færanlegt teymi fagfólks til að sinna þeim
hópi geðfatlaðra sem hlýtur meðferð utan stofn-
ana. Lára segist hafa lagt til að fulltrúi fé-
lagsþjónustunnar myndi verða hluti af teyminu en
það hafi ekki gengið eftir.
Lára segir Félagsþjónustuna vinna náið með
Félagsbústöðum að því að finna sérhæfð búsetu-
úrræði fyrir ýmsa hópa, s.s. geðfatlaða, sem eigi
erfitt með að búa í t.d. hefðbundinni blokkaríbúð.
Þá segir hún að það geti verið erfitt fyrir fáliðað
stuðningsheimili fyrir geðfatlaða að taka við mjög
erfiðum einstaklingum. Oft geti einstaklingar þó
búið sjálfstætt, en úrræðin séu ekki alltaf fyrir
hendi. „Það er ekki nóg að koma mönnum inn í
hús, heldur þarf sérþjálfað starfsfólk og mikla
þjónustu. Í raun og veru þarf að vera hægt að
skraddarasauma úrræði fyrir hvern og einn.“
Tvisvar þurft að vísa frá gistiskýli
vegna plássleysis
Á minnisblaði sem Björk Vilhelmsdóttir lagði
fram nýlega kemur fram að aðstæður heim-
ilislausra séu mismunandi, hópurinn sé breyti-
legur og engin skilgreining liggi fyrir á hvað í
heimilisleysi felist. „Vert er að hafa í huga að ekki
vilja allir þeir sem eru heimilislausir vegna geð-
rænna veikinda og eða vímuefnavanda fá meðferð
eða húsnæði sem byggist á fastri búsetu,“ segir
Björk.
Í Gistiskýlinu í Þingholtsstræti rúmast 15
manns. Undanfarið hafa dvalist þar 7–8 manns í
senn. Björk segir það hafa tvisvar sinnum gerst á
þessu ári að einstaklingum hafi verið vísað frá
skýlinu vegna plássleysis. Það sem af er árinu
hafa 8 manns gist meira en 50 nætur í skýlinu.
Ályktun félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar
Félagsmálastjóri
finni húsnæði fyrir
heimilislausa
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Félagsmálayfirvöld í borginni ætla að leita að
húsnæði fyrir heimilislausa.