Morgunblaðið - 30.04.2004, Side 19
STJÓRN Landverndar fagnar frum-
varpi um stækkun þjóðgarðsins á Þing-
völlum og telur mikilvægt að samstarf
og samráð verði í hávegum haft við
stjórnun hans. Stjórn Landverndar
fagnar framkomnu frumvarpi til laga um
stækkun þjóðgarðsins á Þingvöllum og
áformum um að treysta verndun Þing-
vallavatns, segir í fréttatilkynningu frá
Landvernd.
Þar segir einnig að áformuð stækkun
þjóðgarðarins sé mikilvægt skref í þá átt
að mörk hans miðist við heildstæð vist-
kerfi og landslagsheildir, eins og lögð er
áhersla á í viðmiðunarreglum Alþjóða
náttúruverndarsamtakanna (IUCN).
„Stjórn Landverndar telur mikilvægt
að við stjórnun þjóðgarðsins verði leitað
samstarfs og samráðs við viðkomandi
aðila. Þetta er í samræmi við áherslur
IUCN og hefur komið mjög vel fram í
allri umfjöllun um áformaðan Vatnajök-
ulsþjóðgarð. Í frumvarpinu segir að
Þingvallanefnd fari með hlutverk stjórn-
ar og hana skipi þrír alþingsmenn kjörn-
ir af Alþingi. Huga þarf betur að þessu
ákvæði. Stjórn Landverndar telur að líta
beri til viðkomandi sveitarfélags, Þjóð-
kirkjunnar, Umhverfisstofnunar, Sam-
taka ferðaþjónustunnar og umhverfis-
verndarsamtaka í þessum tilgangi,“
segir í fréttatilkynningu frá Landvernd.
Stækkun
þjóðgarðs á
Þingvöllum
fagnað
Morgunblaðið/Golli
Segðu það með augunum!
w
w
w
.h
ei
m
sæ
kt
u
la
nc
om
e.
co
m
HVAÐ VILTU AÐ MASKARINN
GERI FYRIR AUGNHÁRIN ÞÍN?
LANCÔME uppfyllir allar óskir varðandi augnhár - og bætir jafnvel um betur!
Hvort sem óskin er lengri, þéttari, meira uppbrett, náttúruleg…… og svo til að
kóróna árangurinn: CILS BOOSTER sem notast
undir maskarann og MARGFALDAR árangur hans.
TILBOÐ Á NÆSTA ÚTSÖLUSTAÐ
LANCÔME
Maskaraöskjur: Með hverjum maskara fylgir Bi-
Facil augnhreinsivökvi og mini Cils Booster XL.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Frumvarpi fagnað | Á fundi hrepps-
nefndar Borgarfjarðarsveitar þann 15.
apríl sl. var fjallað um frumvarp til
breytinga á lögum um búnaðarfræðslu. Í
kjölfar umræðu um málið,
sem var mjög jákvæð, var
eftirfarandi bókun sam-
þykkt:
Sveitarstjórn Borgarfjarð-
arsveitar fagnar framkomnu
frumvarpi um breytingar á lögum um
búnaðarfræðslu nr 57/1999, með síðari
breytingum. Með frumvarpinu er enn
frekar varðaður sá vegur að treysta
Hvanneyri í sessi sem miðstöð fræða og
rannsókna í íslenskum landbúnaði. Sveit-
arstjórn heitir því að vinna hér eftir sem
hingað til með Landbúnaðarháskólanum
og landbúnaðarráðuneytinu við uppbygg-
ingu staðarins þannig að hann geti með
sóma tekið við þeirri starfsemi sem hon-
um er ætlað.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Allir verði jafnir | „Félag hópferðaleyf-
ishafa skorar á fjármálaráðherra að jafna
stöðu hópferðaleyfishafa gagnvart sérleyf-
ishöfum og almenningssamgöngum í þéttbýli
með því að láta endur-
greiðsluákvæði um 70%
af olíugjaldi ganga jafnt
yfir alla fólksflutninga,“
segir í ályktun frá félag-
inu.
„Félagið fagnar nýju
frumvarpi í meg-
indráttum og telur að hér
sé stigið stórt skref til að
afmá löngu úrelt fyr-
irkomulag og að sama skapi bendir margt til
að tilkoma olíugjalds muni hafa jákvæð um-
hverfisáhrif.
Fólksflutningar á Íslandi hafa átt undir
högg að sækja. Einkabíllinn og bílaleigubílar
hafa sótt mikið í sig veðrið á kostnað ofan-
greindra aðila. Ástæðan er ekki síst auknar
álögur á fólksflutningageirann af ýmsum
toga sem hafa orðið til þess að einkabíllinn
verður sífellt álitlegri kostur. Öllum er hins
vegar ljós sú hagkvæmni sem felst í hópferð-
um og góðum almenningssamgöngum og
gildir þar einu hvort tekið er tillit til um-
hverfismála, öryggismála eða nýtingar sam-
göngumannvirkja,“ segir einnig.
Grímsey | Mikil gleði ríkti í fé-
lagsheimilinu Múla um tíma fyr-
ir skemmstu, danstímar oft á
dag og hjá ýmsum aldurs-
hópum. Ingunn Margrét Hall-
grímsdóttir heitir danskenn-
arinn sem kom til okkar og er
hún Dalvíkingur. Ingunn Mar-
grét hefur kennt dans á Dalvík
síðustu þrjú árin og verið í fastri
stöðu sem danskennari við þrjá
skóla hjá Dalvíkurbyggð, skól-
anum í Hrísey, í Ólafsfirði og í
leikskóla á Akureyri. Ingunn
Margrét sagði að það hefði eig-
inlega verið fyrir slysni að hún
fór inn á dansbrautina. Þannig
var mál með vexti að hún tók sér
frí frá skóla og um líkt leyti
komu tveir danskennarar til
Dalvíkur, þær Hulda Halls-
dóttir og Ásrún Kristjánsdóttir.
Ingunn Margrét fékk að fylgj-
ast með í tímum hjá þeim og eft-
ir það varð ekki aftur snúið.
Þessi bjarti danskennari segir
að þetta sé 15. veturinn sem hún
kenni. Ingunn Margrét segir
áhuga vera fyrir dansi en spurn-
ingin snúist um það að drífa sig
af stað í fyrsta tímann. Að fá
danskennslu inn í skólana telur
Ingunn Margrét gott mál og
mikla forvörn . Börnin læra
strax í 1. bekk að umgangast
hvert annað og snerting verði
ekki stór mál heldur eðlilegur
hlutur sem á eftir að koma þeim
til góða seinna meir í lífinu.
Þetta er fyrsta heimsókn Ing-
unnar Margrétar til Grímseyjar
en örugglega ekki sú síðasta.
Stefnir hún á að koma aftur í
haust og vera þá bæði með
framhalds- og byrjunarhópa.
„Mér finnst frábært þegar lítil
samfélög drífa sig og fá ein-
hverja menningu til sín,“ sagði
danskennarinn brosandi og
„það er sannarlega mikil drift í
Grímseyingum“.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Dansinn dunar: Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir danskennari með yngsta hópnum í Grímsey.
Danskennari í Grímsey
Skólastarf
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Um nokkurra áraskeið hafa fjöl-margir að-
komubátar verið gerðir
út frá Suðureyri yfir
sumarmánuðina og svo
verður einnig í ár, að
sögn Bæjarins besta á
Ísafirði.
Óðinn Gestsson,
framkvæmdastjóri Ís-
landssögu ehf. á Suður-
eyri, segist vonast til
þess að fyrstu smábát-
arnir komi til Suður-
eyrar á fyrstu dögum
maímánaðar.
Óðinn segist vonast
til þess að fjöldi að-
komubátanna verði
svipaður og í fyrra eða
ríflega 40 bátar þegar
flest var. Hann segir
aflabrögð hafa verið
góð að undanförnu og
því sé hann bjartsýnn á
sumarið.
Þrátt fyrir að mannlíf
á Suðureyri sé allajafna
líflegt verður það að
sjálfsögðu ennþá líf-
legra með komu allra
þessara aðkomubáta.
Vorboðar
Eskifjörður | Ungmenni í
unglingadeildinni Sæ-
rúnu á Eskifirði gengu
um helgina milli Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar,
til fjársöfnunar fyrir nýj-
um búnaði handa björg-
unarsveitinni.
Unga fólkið gekk í
heilan sólarhring, frá kl.
13 á laugardag og fram á
sunnudag, en um 15 km
eru á milli bæjanna. Þrír
til fjórir gengu í einu og
hver hópur í tvær
klukkustundir í senn.
Gangan gekk mjög vel,
enda vel skipulögð. Veð-
ur var hins vegar ekki
upp á sitt besta, en
krakkarnir létu það ekki
á sig fá.
Ljósmynd/KJB
Fjársöfnun á
gönguför
Hreiðar Karlssonhefur gaman afþví að fylgjast
með störfum Alþingis
þessa dagana.
Hann segir frjálslynda
sjálfstæðismenn flytja
vinstrihandar frumvarp
um fjölmiðla en Samfylk-
ingin andmæli kröft-
uglega fyrir hönd litla
mannsins í Baugi og spyr:
Er þetta fólk alveg orðið
áttavillt? Ég segi bara
eins og Reykás, „…ma ma
ma maður bara skilur
þetta ekki“.“
Stundum er eins og stefnu-
festu vanti,
stundum er hlykkjótt marka-
lína dregin.
Þorgerður orðin yst á vinstri
kanti,
Össur er farinn að spila
hægra megin.
Á Raufarhafnarvefnum
eru varnaðarorð, sem
mega teljast orð í tíma
töluð:
Ýmsan vanda varast mátt,
verst er þó að trúa
þeim, sem eins og opin gátt
öllu á netið spúa.
Ragnar
Reykás
pebl@mbl.is