Morgunblaðið - 30.04.2004, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÞEKKING OG KÆRLEIKUR
Karl Sigurbjörnsson, biskupÍslands, sagði í ræðu sinni áprestastefnu þjóðkirkjunnar
á þriðjudag að samkynhneigðir
væru velkomnir í samfélag þjóð-
kirkjunnar. „Samkynhneigðir eru
sem aðrir umluktir náð og fyrirgefn-
ingu Jesú Krists, og eiga á grund-
velli skírnar sinnar og trúar sjálf-
sagðan sess í kristnu samfélagi um
orð Guðs og borð. Við verðum að
gefa því gaum að samkynhneigðir
þurfa oft að líða þjáningar vegna
andúðar og fordóma. Þeir þurfa því
umhyggju og stuðning hins kristna
samfélags til að endurheimta og
varðveita jákvæða sjálfsmynd sem
Guðs börn og hluti hans góðu sköp-
unar,“ sagði biskup.
Hann greindi jafnframt frá skipan
starfshóps um málefni samkyn-
hneigðra innan kirkjunnar, sem á að
starfa í tengslum við endurskoðun
fjölskyldustefnu hennar.
Hvort tveggja er þetta jákvætt og
til marks um að biskup vill koma til
móts við samkynhneigða, sem hafa
gagnrýnt að innan kirkjunnar sé lit-
ið svo á að bæði tilfinningar þeirra
og samlíf sé syndsamlegt og þeim sé
þannig í raun úthýst úr samfélagi
hennar.
En biskup stígur ekki skrefið til
fulls. „Hvað varðar kröfuna um
hjónavígslu samkynhneigðra vil ég
segja að ég hef látið prestum sem
eftir hafa leitað í té form fyrir fyr-
irbæna- og blessunarathöfn yfir
samvist samkynhneigðra,“ sagði
hann í ræðu sinni. „Það er ekki op-
inbert ritúal, og ekki hjónavígsla,
heldur á vettvangi sálgæslunnar og
því getur hver og einn átt við sam-
visku sína að standa að slíkri athöfn
eða ekki.“
Þetta breytir í raun engu um af-
stöðu kirkjunnar til hjónabands
samkynhneigðra. Það að hvorki
skuli vera um opinbert ritúal að
ræða, né prestar almennt skyldugir
að blessa samband samkynhneigðra
para, þýðir að kirkjan heldur þess-
um hópi enn armslengd frá sér.
Í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins í miðvikudagsblaðinu
sagði biskup að í skilningi kirkj-
unnar um aldir og árþúsundir væri
hjónabandið sáttmáli karls og konu
og ekkert annað. Djúpstæður
ágreiningur væri innan kirkjunnar,
sem stæði fyrst og fremst um það
hvort hægt væri að leggja samvist
samkynhneigðra að jöfnu við hjóna-
band karls og konu. Aðspurður
hvort slíkt væri hægt, svaraði bisk-
up: „Nei, ég sé það ekki fyrir mér.
Allavega ekki í fyrirsjáanlegri fram-
tíð. Við erum með mörg þúsund ára
gamla samfélagsskipan og mann-
skilning sem erfitt er að horfa
framhjá.“
Kirkjan stendur á árþúsunda
gömlu bjargi. En skoðanir hennar á
umhverfi sínu eru langt frá því að
vera óumbreytanlegar. Stundum
breytast þær vegna nýrrar þekk-
ingar – fáir kirkjunnar menn halda
því orðið fram að jörðin sé miðja al-
heimsins eða að sköpunarsagan sé
annað en góð dæmisaga um fyr-
irbæri, sem enginn skilur enn til
fulls. Aðrar breytingar á viðhorfum
kirkjunnar hafa orðið í takt við al-
menna viðhorfsbreytingu, sem er vel
samrýmanleg kjarna kristins boð-
skapar, um náungakærleik, mann-
gildi og mikilvægi einstaklingsins.
Þá hefur fastheldni við einstaka
ritningarstaði, sem hið gamla við-
horf byggðist á, ekki staðið í vegi.
Í tvö þúsund ára gömlum skrifum
Páls postula er til dæmis að finna
réttlætingu á þrælahaldi og hvatn-
ingu til kvenna að vera eiginmönn-
um sínum undirgefnar. Þar lýsir
Páll líka andstyggð sinni á samkyn-
hneigð, eins og þeir vitna gjarnan til
sem telja hana syndsamlega. En
hefur ekki bæði þekking manna og
viðhorf í þessum efnum breytzt frá
dögum Páls postula – og að hluta til
skoðanir kirkjunnar?
Kirkjan hefur þannig öldum sam-
an barizt gegn þrælahaldi undir
merki kærleikans. Á síðari árum
hefur hún sömuleiðis viljað stuðla að
jafnrétti kynjanna og á prestastefnu
minnti Karl Sigurbjörnsson á átak
kirkjunnar í ofbeldi gegn konum,
enda vitum við nú að slíkt ofbeldi er
alvarlegt vandamál, þótt það hafi
lengi verið falið. Eru ekki sömu for-
sendur til að endurmeta afstöðu
kirkjunnar til samkynhneigðar, nú
þegar þekking og umræður um mál-
ið eru miklu meiri en áður og fæstir
trúa bábiljum á borð við að samkyn-
hneigð sé áunnin eða meðvitað val
fólks, að hægt sé að „lækna“ fólk af
henni og þar fram eftir götunum?
Eins og Morgunblaðið hefur áður
bent á, snýst spurningin, sem
kristnir menn standa frammi fyrir
hvað varðar afstöðuna til samkyn-
hneigðra, um það hvort halda beri
fast við nokkra ritningarstaði, þar
sem samkynhneigð er fordæmd sem
synd eða hvort þeir eigi að gangast
undir þá frumskyldu sína að sýna
náunga sínum skilyrðislausan kær-
leika.
Og svarið er auðvitað að finna hjá
Páli postula sjálfum: „Og þótt ég
hefði spádómsgáfu og vissi alla
leyndardóma og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkalausa
trú, að færa mætti fjöll úr stað, en
hefði ekki kærleika, væri ég ekki
neitt [...] Kærleikurinn fellur aldrei
úr gildi. En spádómsgáfur, þær
munu líða undir lok, og tungur, þær
munu þagna, og þekking, hún mun
líða undir lok. Því að þekking vor er
í molum og spádómur vor er í mol-
um.“
Kirkjan hefur skipt um skoðun á
svo mörgu, í vísindum jafnt sem
samfélagsmálum, að það dugar ein-
faldlega ekki að vísa til „þúsund ára
gamallar samfélagsskipunar og
mannskilnings“ í þessu efni. Kirkjan
á vissulega ekki að skipta um skoð-
un á öllu milli himins og jarðar, hún
á ekki að fljóta með tímans straumi.
Hún á að vera íhaldssöm í ýmsum
efnum. En í þessu efni á hún að
skipta um skoðun. Hvers vegna?
Vegna nýrrar þekkingar og undan-
halds gamalla fordóma. Vegna þess
að það mun styrkja fjölskylduna að
samkynhneigð pör geti sótt blessun
og vígslu sambands síns til kirkj-
unnar. Vegna þess að það mun efla
kirkjuna og færa stóran hóp fólks
nær henni en áður. Vegna þess að
það er í þágu kærleikans.
B
jarni Thor
Kristinsson
bassasöngvari
mun syngja
hlutverk Óðins
í fyrstu óperu
Niflunga-
hringsins, Rín-
argullinu, eftir
Richard Wagn-
er í Óperuleik-
húsinu í Karlsruhe í Þýskalandi á næsta
leikári. Um er að ræða eitt af stærstu
hlutverkum óperunnar og er Bjarni Thor,
að því best er vitað, fyrstur Íslendinga til
að takast á við þetta hlutverk. Stefnt er
að því að frumsýna í október næstkom-
andi og sýna átta til tíu sýningar sem
dreifast jafnt yfir veturinn.
„Ég er fullur tilhlökkunar, enda er
þetta eitt af þessum stóru hlutverkum
sem maður kemst í sem bassasöngvari,“
sagði Bjarni Thor þegar Morgunblaðið
leitaði viðbragða hjá honum. Að sögn
Bjarna Thors er fyrirhugað að setja allan
Niflungahringinn upp í óperuleikhúsinu í
Karlsruhe á næstu misserum. „Enn sem
komið er hef ég aðeins gert samning um
að syngja í fyrstu óperunni, Rínargullinu,
og ætla að láta það ráðast af því hvernig
mér gengur hvort ég syng hlutverkið í
hinum óperunum líka, þ.e. Valkyrjunni og
Sigurði Fáfnisbana“ segir Bjarni Thor.
Spurður um tildrög þess að hann syngur
hlutverk Óðins segist Bjarni Thor hafa
verið að syngja í Niflungahringnum í jan-
úar sl. „Þá söng ég hlutverk Fáfnis bæði í
Rínargullinu og Sigurði Fáfnisbana. Með-
an ég var að undirbúa þessar sýningar fór
ég að gefa Óðni hýrt auga og setti því um-
boðsskrifstofu mína í málið og í framhald-
inu fékk ég síðan tilboðið frá Karlsruhe.“
Gæti opnað fyrir
mér nýjar dyr
Aðspurður hvaða þýðingu það hafi að
syngja hlutverk Óðins segir Bjarni Thor
það einfaldlega verða að koma í ljós.
„Þetta er alla vegana hlutverk sem ég
veit að ég á eftir að hafa mjög gaman af
að syngja. Hlutverk Óðins er gríðarlega
stórt, eitt af burðarhlutverkunum í
Hringnum, og krefjandi eftir því. Auk
þess sem raddumfang hlutverksins er
mikið, enda telst þetta frekar hátt bassa-
hlutverk hvað tónhæð varðar. Raunar er
hlutverkið flokkað sem hetju-barí-
tonhlutverk þótt það sé stundum sungið
af bössum með góða hæð. Heppnist þessi
fyrstu kynni mín af Óðni opnast fyrir mér
nýjar dyr og ég verð að sjá til hversu
langt ég hætti mér inn um þær. Það er
ákveðin áhætta að syngja Wagner-
hlutverk af þessari gerð því röddin verð-
ur að vera tilbúin auk þess sem ekki er
svo auðveldlega aftur snúið í léttari hlut-
verk.“
Aðspurður segist Bjarni Thor hafa
sungið svolítinn Wagner í gegnum tíðina.
„Ég er t.d. búinn að vera að syngja hlut-
verk Dalands í Hollendingnum fljúgandi,
Pogner í Meistarasöngvurunum, Fáfni í
Hringnum og Titurel í Parsifal. Og það
eru sífellt að bætast við ný hlutverk. Það
má í raun segja að það sé nokkurt bassa-
hallæri í heiminum í dag og er afleiðingin
sú að við ungu strákarnir í bransanum
fáum mun fyrr en ella tækifæri til að
syngja þessi stóru hlutverk.“ Inntur eftir
því hvað annað sé framundan hjá sér seg-
ist Bjarni Thor m.a. munu syngja hlut-
verk Dalands í Hollendingnum fljúgandi í
Róm í nóvember nk. og hlutverk Gur-
nemanz í Parsifal í konsertútgáfu með
Sinfóníuhljómsveit Berlínar undir stjórn
Kent Nagano. „Ég syng síðan á tón-
leikum með eiginkonu minni Eteri Gvaz-
ava sópransöngkonu, Jónasi Ingimund-
arsyni píanóleikara og Karlakórnum
Fóstbræðrum á Listahátíð núna í maí.
Þar verður margt áhugavert á dagskrá þó
Óðinn og aðrir félagar Wagners verði
fjarri góðu gamni.“
Mikill viðburð
loksins íslens
Selma Guðmundsdóttir Richard
Bjarni Thor Kristinsson hér í hlutverki John Falstaff í Wind
hann fyrstur Íslendinga takast á við hlutverk Óðins í Rínar
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari mun syngja hlutverk
haust og er hann, að því best er vitað, fyrstur Íslendinga til a
Huldudóttir ræddi við Bjarna Thor og Selmu Guðmundsdótt