Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 38
MINNINGAR
38 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður ElísSigurjónsson sjó-
maður fæddist í
Vestmannaeyjum
hinn 3. september
1924. Hann lést á
Dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn
20. apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Sigurjón Sigurðs-
son, f. 9. 10. 1884, d.
6.9. 1940, og Þor-
gerður Sigurðar-
dóttir, f. 30.10. 1882,
d. 3.12. 1960. Systk-
ini Sigurðar sam-
feðra voru: 1) Sigurlaug, f. 24.7.
1915, d. 25.1. 1990. 2) Sigur-
björn, f. 11.7. 1917, d. 26.4. 1992.
3) Ágúst Alexander,
f. 27.6. 1920, d. 28.2.
1987.
Hinn 23. mars
1952 kvæntist Sig-
urður Steinunni
Birnu Ingimarsdótt-
ur, f. 9.10. 1916, d.
11.12. 1991. For-
eldrar hennar voru
Ingimar Baldvins-
son, f. 20.11. 1891,
og Oddný Friðrikka
Árnadóttir, f. 16.7.
1893, d. 29.9. 1977.
Birna og Sigurður
skildu árið 1985.
Útför Sigurðar fer fram frá
Þórshafnarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Hann Sigurður Elís Sigurjóns-
son, Siggi á Vegamótum, er látinn.
Siggi fæddist í Vestmannaeyjum
hinn 3. september 1924 og ólst þar
upp sín fyrstu æviár. Eftir að hann
fluttist til Þórshafnar með foreldr-
um sínum bjó hann nær alla sína tíð
á Vegamótum. Síðustu árin dvaldist
hann á Dvalarheimilinu Nausti á
Þórshöfn eftir að heilsu hans tók að
hraka. Þar naut hann góðrar
umönnunar þess ágæta fólks sem
þar starfar.
Frá Vegamótum, heimili Sigga
og Birnu frænku minnar á ég ótal
æskuminningar. Þau Birna og Siggi
áttu ekki börn en þau voru einstak-
lega barngóð og til þeirra sóttu
börnin úr fjölskyldunni. Segja má
að ég hafi átt mitt annað heimili á
Vegamótum hjá Birnu og Sigga
þegar ég var að alast upp og verður
að segja það eins og það var að þar
var nú dekrað við mig á allan hátt.
Hann Siggi var mörgum góðum
kostum búinn. Aldrei þreyttist
hann á að segja mér sögur, sögur
frá Vestmannaeyjum, sögur af
sjónum, sögur um lífið á Þórshöfn
hér áður fyrr, sögur sem hann
samdi sjálfur og bara alls konar
sögur sem voru bæði í senn upp-
fræðandi og skemmtilegar. Hann
var líka ágætlega hagmæltur og
orti margar góðar vísur sem ég, því
miður, veit ekki til að hafi mikið
varðveist. Siggi virtist alltaf hafa
tíma til setjast niður og leiðbeina,
aðstoða og leika. Hann var svolítill
heimspekingur í sér og kenndi mér
heilmargt sem ég bý að enn í dag.
Þó að Vegamót standi ekki nema
örskammt frá aðalbyggðinni á
Þórshöfn þótti mér sem barni tölu-
vert ferðalag í Vegamót. Ég þurfti
þá ekki nema að láta hann vita að
nú vildi ég koma í heimsókn og þá
var hann kominn að sækja mig og
síðan fylgdi hann mér heim aftur
þegar mér þóknaðist. Áður en hann
eignaðist Willys-jeppann sinn fór-
um við gangandi eða á hjólinu góða.
Vakti það töluverða athygli í þorp-
inu þegar Siggi ferjaði mig og okk-
ur systurnar jafnvel fleiri en eina í
einu á milli á hjólinu sínu sem hann
sérútbjó til þessara flutninga. Ein-
hverju sinni varð honum að orði, og
getur þá hafa haft í huga öll þau
börn sem lögðu leið sína inn í Vega-
mót:
Víst er langt í Vegamót,
og vegur stundum þungur.
Þangað oft ég þreytti fót,
þegar ég var ungur.
Annað verður ekki sagt um Sigga
á Vegamótum en að hann fór ekki
alltaf troðnar slóðir. Hann fór sínar
eigin leiðir, var sterkgreindur mað-
ur og margfróður. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og lét þær óspart í ljós.
Siggi er eftirminnileg persóna.
Elsku Siggi, hafðu hjartans
þakkir fyrir allt og allt. Megi góður
Guð geyma þig.
Þuríður Árnadóttir.
SIGURÐUR ELÍS
SIGURJÓNSSON
✝ Ragnheiður ErlaHauksdóttir
fæddist á Þinghóli í
Glæsibæjarhreppi 3.
október 1938. Hún
lést á sjúkrahúsinu
á Ísafirði 24. apríl
síðastliðinn. Ragn-
heiður Erla var
dóttir Olgu Sophus-
dóttur, f. 15. októ-
ber 1919, d. 3. febr-
úar 1995, og Hauks
A. Bogasonar, f. 21.
nóvember 1919.
Systkini Ragnheiðar
Erlu samfeðra eru:
Reynir, Gerður, Helga Fríða,
Smári, Haukur og Ingi.
Hinn 20. október 1956 giftist
Ragnheiður Erla Birni Sigurðs-
syni bifreiðastjóra í Reykjavík, f.
22. ágúst 1922, d. 11. september
1980. Þau skildu. Börn þeirra
eru: 1) Jóhanna Olga, f. 20. febr-
úar 1957, húsmóðir Hafnarfirði, í
sambúð með Sigurði Trausta Sig-
Viggó og Kristjana Erla. 6) Ingi-
björg, f. 15. september 1971, hús-
móðir í Hveragerði, gift Friðgeiri
Bjarkasyni. Börn þeirra eru
Bjarki og Tara Líf. Hinn 9. des-
ember 1978 giftist Ragnheiður
Erla Þórði Júlíussyni, f. 6. ágúst
1936, d. 26. október 1995.
Ragnheiður Erla ólst að mestu
upp hjá móðurforeldrum sínum
Kristjönu Jóhannsdóttur og
Sophusi Gissurasyni á Akureyri.
Árið 1955 flyst hún til Reykjavík-
ur og býr þar til ársins 1977 er
hún flytur með Þórði og þremur
yngstu börnunum til Flateyrar.
Árið 1995 flytur hún aftur til
Reykjavíkur þar sem hún bjó til
ársins 2002 er hún flytur með
Þorsteini Guðbjartssyni, sem var
sambýlismaður hennar síðustu
árin, aftur til Flateyrar. Börn
Þorsteins eru Elín Kristín, Her-
mann og Helgi.
Ragnheiður sinnti ásamt upp-
eldis- og heimilisstörfum ýmsum
störfum um ævina, m.a. vann hún
lengi á Loftleiðahótelinu, bóka-
búðinni á Flateyri og öldrunar-
stofnun Flateyrar.
Útför Ragnheiðar Erlu fer
fram frá Grafarvogskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
urðssyni. Börn Jó-
hönnu eru: Olga Sig-
ríður, Bryndís Erla
en hún á tvo syni, Ar-
on Elvar og Olíver
Elí; Þórður Örn og
Guðjón Þór. 2) Sig-
urður Kristján, f. 24.
janúar 1958, rafveitu-
virki í Noregi, kvænt-
ur Elínu Bjarnadótt-
ur. Börn þeirra eru
Erla Guðrún, Sigríð-
ur Ása, Bjarni og
Birkir. 3) Örn, f. 1.
desember 1959, smið-
ur í Reykjavík. Synir
hans eru Björn Arnar, Atli Freyr
og Örn Elvar. 4) Kristjana, f. 8.
desember 1962, kennari í Reykja-
vík, gift Óla G. Guðmundssyni.
Dætur þeirra eru Ragnheiður
Lilja, Hulda og Júlía. 5) Björn, f.
16. desember 1964, skipstjórnar-
kennari í Reykjavík, kvæntur
Heiðdísi Hrafnkelsdóttur. Börn
Björns eru Oddný Björk, Björn
Elsku mamma. Ég trúi því varla
að þú sért farin frá okkur. Í huga
mínum hrannast upp minningar um
allar góðu stundirnar sem við áttum
saman. Þær verð ég nú að geyma í
hjarta mínu. Þitt líf var ekki auðvelt
en samt varst þú sterk kona og vildir
öllum vel. Sérstaklega þegar veik-
indi voru hjá okkur, þá varst þú fljót
að koma með þvottapokann á ennið á
okkur, þetta nota ég alltaf þegar mín
börn veikjast. Þú varst rík kona, sex
börn, og fyrir það áttu heiður skilið.
Ekki er það algengt nú til dags. Svo
áttir þú 19 barnabörn og tvö lang-
ömmubörn. Þú ert hetjan okkar. Þú
áttir fallegt heimili ásamt pabba á
Flateyri en á einni nóttu misstir þú
bæði pabba og heimilið. Fallið hafði
snjóflóð. Í Reykjavík byrjaðir þú
nýtt líf. Seinna stofnaðir þú heimili
ásamt Steina og árið 2002 fluttir þú
ásamt honum aftur til Flateyrar.
Steini reyndist þín stoð og stytta, ég
og Tara Líf komum til ykkar um síð-
ustu verslunarmannahelgi að ná í
Bjarka sem var búinn að vera hjá
ykkur um sumarið, og áttum við þar
saman yndislegar stundir. Á páska-
dag voruð þið Steini hjá okkur í mat,
og það var í síðasta sinn sem ég hitti
þig, elsku mamma. Síðastliðinn laug-
ardagur hverfur mér seint úr minni.
Tók ég börnin í fangið og þurfti að
segja þeim að amma væri komin til
guðs og afa Þórðar.
Elsku mamma mín. Nú veit ég að
þér líður vel, pabbi hefur tekið vel á
móti þér, og mun hann leiða þig um
himnaríki. Elsku mamma mín, ég
sakna þín og elska þig.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þín dóttir,
Ingibjörg.
Elsku mamma, er ég var að alast
upp kenndir þú mér m.a. bænir og
góða siði og síðast en ekki síst hjálp-
semi og náungakærleik en það var
þitt aðalsmerki. Þú máttir aldrei vita
af neinum sem ætti bágt. Þú varst
alltaf að hjálpa. Líf þitt var enginn
dans á rósum oft á tíðum og efnin oft
lítil. En þú gafst alltaf annaðhvort af
sjálfri þér eða af því litla efnislega
sem þú áttir. Hugur þinn stefndi til
frekara náms en því miður gat ekki
af því orðið vegna aðstæðna þá. Hins
vegar hvattir þú börn þín og barna-
börn til að mennta sig og aldrei
varstu stoltari en þegar einhver stóð
sig vel í námi. Fjársjóður minning-
anna er eilífur og fullur af góðum
minningum og fyrir það ber að
þakka. Ég kveð þig í hinsta sinn með
orðunum sem þú sagðir við mig
kvöldið fyrir andlát þitt: Guð gefi þér
góða nótt og mundu að ég elska þig.
Megi algóður Guð gefa okkur öll-
um styrk. Hvíl í friði, elsku mamma.
Þín dóttir
Kristjana.
Elsku mamma mín. Nú ertu farin
frá mér – fyrr en mig grunaði.
Minningarnar eru margar og góð-
ar eins og þegar þú söngst og spil-
aðir á gítar fyrir okkur systkinin. Þú
kenndir okkur bænir og góða siði
sem og börnum og barnabörnum
mínum. Þótt oft væri þröngt í búi
skorti okkur aldrei neitt því nóg var
um kærleik og ást. Sérstaklega er
mér það minnisstætt þegar þú og
Steini komuð til okkar upp í sum-
arbústað milli jóla og nýárs. Við spil-
uðum mikið og mikið var hlegið, sér-
staklega þegar þú stakkst upp á því
að láta björgunarsveitina ná í okkur,
því við vorum veðurteppt. Alltaf
gastu gert grín að aðstæðum sem
þessum. Ég er þakklát fyrir þann
tíma með þér, elsku mamma mín, og
ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hef-
ur gert fyrir mig, börnin mín og
barnabörn mín. Hvíl í friði, elsku
mamma mín.
Jóhanna Olga.
Elsku amma. Nú ertu komin til
himna, vonandi hefur þú það gott
þar, við söknum þín mjög mikið,
elsku amma. Við viljum kveðja þig
með bæninni sem þú kenndir okkur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Ömmubörnin
Bjarki og Tara Líf.
Elsku Erla amma, ég þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar, þegar ég
kom á Flateyri á sumrin til þín og
afa. Þaðan á ég ógleymanlegar
bernskuminningar sem ég verð alltaf
þakklát fyrir. Það var líka svo gaman
þegar þú komst í Borgarnes að passa
okkur systkinin þegar mamma og
pabbi fóru til útlanda, það var svo
gott að hafa þig hjá okkur, sérstak-
lega þar sem þú fórst að þrífa
óvenjulega hluti eins og að bóna stíg-
vélin hans Bjarna, og hann hélt að
hann hefði fengið ný stígvél.
Tíminn sem ég bjó hjá þér í
Reykjavík var líka dýrmætur og
þrátt fyrir veikindi þín þá gerðirðu
allt sem þú gast til að láta mér líða
vel. Velferð annarra var oft ofar vel-
ferð þinni, þú vildir alltaf hafa alla
góða og láta öllum líða vel.
Elsku amma, ég er svo heppin að
hafa haft þig í mínu lífi.
Þín
Erla.
Elsku amma mín. Ég trúi því varla
að þú sért farin frá okkur svo fljótt.
Mér er svo minnisstætt þegar við
áttum okkar síðustu stund saman og
er þakklát fyrir það að eiga margar
fallegar minningar um þig, elsku
amma mín.
Ég er ánægð að strákarnir mínir
náðu að kynnast þér. Þú kenndir
mér svo margt, ég gat sagt þér allt
og ég gat alltaf leitað til þín, þú
dæmdir mig aldrei og ég vissi að ég
átti góðan vin. Ég er stolt að bera
nafnið þitt því fyrir mér táknar það
kærleika og ást sem við áttum okkar
á milli. Þú sýndir mér ljóð þegar ég
var lítil og ég gleymi því aldrei og
hefur alltaf minnt mig á þig.
Elsku amma mín, finndu ljósið og
láttu það umvefja þig. Ég kveð þig í
hinsta sinn. Guð blessi þig, Erla
amma mín.
Erla, góða Erla.
Ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kvöldljóð
því kvöldsett löngu er.
Hart er mannsins hjarta
að hugsa mest um sig.
Kveldið er svo koldimmt,
ég kenndi í brjósti um mig.
Dýrlega þig dreymi
og Drottinn blessi þig.
(Stefán frá Hvítadal.)
Þín
Bryndís Erla.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig Jónsson.)
Elsku amma, takk fyrir allt.
Sigríður, Bjarni og Birkir.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Sigurður Trausti.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Kveðja.
Þín ömmubörn
Þórður Örn og Guðjón Þór.
RAGNHEIÐUR ERLA
HAUKSDÓTTIR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA HELGADÓTTIR
frá Ey,
Njálsgerði 10,
Hvolsvelli,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi,
laugardaginn 24. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn
1. maí kl. 14.00.
Margrét Karlsdóttir,
Hallbjörg Karlsdóttir, Stefán Sveinbjörnsson,
Gunnar Helgi Karlsson, Berglind Bergmann,
Kristinn Arnar Karlsson, Irina Kamp,
Sigríður Karlsdóttir, Sölvi Sölvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HULDA DALRÓS ÁSGRÍMSDÓTTIR,
Lönguhlíð 5a,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 22. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Ragnar Tryggvason,
Linda Hrönn Ragnarsdóttir, Júlíus Snorrason,
Ívar Ragnarsson, Þóra Hjörleifsdóttir,
Tryggvi Kristinn Ragnarsson, Sigríður Baldursdóttir,
Elfa Björk Ragnarsdóttir, Siguróli Kristjánsson,
Ragna Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.