Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 47
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú gerir miklar kröfur til þín
og annarra og vilt helst hella
þér út í það sem þú ert að
vinna að hverju sinni.
Leggðu hart að þér á þessu
ári því þú munt uppskera ár-
angur erfiðis þíns á því
næsta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samskiptahæfni þín er með
besta móti í dag. Þetta er því
góður dagur til samninga-
viðræðna og til að telja fólk á
þitt band.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gerðu það upp við þig hvaða
markmiðum þú vilt ná og
hvernig þú ætlar að fara að
því. Ef markmið þín eru skýr
í huga þér mun það hafa áhrif
á gerðir þínar og smátt og
smátt færa þig nær takmarki
þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Njóttu þess að vera með öðru
fólki í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áhrifamikið fólk mun aðstoða
þig á einhvern hátt í dag,
hugsanlega í tengslum við yf-
irvöld og stórar stofnanir. Þú
ert einfaldlega á réttum stað
á réttum tíma.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leitaðu leiða til að gera líf
þitt fjölbreyttara og meira
ögrandi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Merkúr hefur alltaf mikil
áhrif á þig og þar sem afstaða
hans við Venus er mjög já-
kvæð mun líklega flest ganga
þér í haginn í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þetta er góður dagur til að
ganga frá ferðaáætlunum og
málum sem tengjast lögfræði
og læknisfræði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú þarft að leita eftir
aukafjárveitingu eða ein-
hvers konar aðstoð þá er
þetta rétti dagurinn til þess.
Það er ekki víst að þú fáir það
sem þú biður um en það eru
þó óvenjumiklar líkur á því.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ástarmálin verða sennilega í
brennidepli hjá þér í dag. Þau
sambönd sem stofnað er til í
dag verða að öllum líkindum
ástrík og skemmtileg.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu eitthvað til að fegra
heimili þitt. Þú hefur það í
hendi þér að bæta aðstæður
fjölskyldu þinnar og það
sama á reyndar við um sam-
skiptin innan fjölskyldunnar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er góður dagur til að
sinna hvers konar viðskiptum
og sölumennsku.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður tími til að gera
umbætur á heimilinu og bæta
aðstæður fjölskyldu þinnar.
Það mun borga sig að leita
ráðlegginga fagmanna þar
sem það á við.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 47
DAGBÓK
VÍSUR
Arra sarra urra glum,
illt þykir mér í Flóanum.
Þagnar magnar þundar klið,
þó er enn verra Ölvesið.
*
Inna vildi ég orða kúss
út af mærðar ruði,
nagla stúss og nafra púss,
náð og miskunn af guði.
Klastra styr gjörir kjóla ruð,
kappar sitji í friði.
Hellirs dagra hallar suð,
hafðu laun af guði.
*
Veit ég víst hvar vaðið er,
vil ég ekki segja þér.
Fram af eyraroddanum
undan svarta bakkanum.
Æri-Tobbi
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 30 apríl,
er 90 ára Guðlaugur Jóns-
son frá Skarði á Skarð-
strönd, nú til heimilis að
Holtsbúð 87, Garðabæ. Af
þessu tilefni verða afkom-
endur hans með kaffi-
samsæti í Samkomuhúsinu
Garðaholti í Garðabæ laug-
ardaginn 1. maí kl. 15. Von-
ast er til að sjá sem flesta
ættingja, vini og sam-
ferðafólk.
85 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 3. maí verður
85 ára Ingibjörg Pálsdóttir
frá Björk í Grímsnesi. Hún
tekur á móti vinum og ætt-
ingjum á heimili sínu að
Baugstjörn 14, Selfossi,
sunnudaginn 2. maí.
SUÐUR spilar þrjú
grönd og sleppur
óskaddaður frá hættu-
ástandi í öðrum slag.
Upp frá því snýst spilið
um leit að laufdrottn-
ingunni.
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠3
♥ÁG63
♦63
♣ÁG10752
Suður
♠D962
♥D104
♦KD9
♣K64
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 tígull 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
tíuna í lit makkers og
austur tekur með ás. Suð-
ur kærir sig ekki um
spaða í öðrum slag og læt-
ur því tíguldrottninguna
detta undir ásinn! Það
virkar, því austur spilar
tígli áfram. Nían heldur og
vestur fylgir lit. Hvernig á
að vinna úr spilinu?
Vissulega mætti fara
beint af augum í laufið, en
það sakar ekki að leika
einum millileik – spila
hjartadrottningu. Ef vest-
ur á kónginn væri hann vís
með að leggja á, en annars
er áætlunin sú að stinga
upp ás og spila laufinu.
Vestur bítur á agnið og
leggur hjartakónginn á
drottninguna. Hjartanu er
spilað áfram og það reyn-
ist liggja 3-3. Í síðasta
hjartað hendir vestur
spaða, en austur tígli.
Næst er laufi spilað á
kóng og báðir fylgja með
smáspili. Vestur hendir
spaða í tígulkóng, og þeg-
ar laufi er spilað að blind-
um fylgir vestur smátt.
Stóra stundin.
Á að stinga upp ás eða
svína?
Norður
♠3
♥ÁG63
♦63
♣ÁG10752
Vestur Austur
♠K10854 ♠ÁG7
♥K95 ♥872
♦104 ♦ÁG8752
♣D83 ♣9
Suður
♠D962
♥D104
♦KD9
♣K64
Svíningin var „heit“
strax í upphafi út frá tíg-
ulskiptingunni. Og nú er
hún enn heitari, því vestur
hefði vafalítið opnað á
veikum tveimur í spaða
með 6-3-2-2. Hann á því
aðeins fimmlit í spaða og
þar af leiðandi þrjú lauf.
E.s. Tíguldrottningin í
fyrsta slag var mikilvæg,
því ella hefði austur skipt
yfir í spaðagosa með góð-
um árangri fyrir vörnina.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3
Bb4+ 4. Bd2 c5 5. Bxb4
cxb4 6. Bg2 O-O 7. e4 d6 8.
Re2 e5 9. a3 Ra6 10. axb4
Rxb4 11. Dd2 a5 12. O-O
b6 13. Ra3 Ba6 14. Had1
De7 15. f4 Hac8 16. b3
Hcd8 17. Rc3 Bb7 18. Rab5
Bc6
Staðan kom upp í rúss-
nesku deildakeppninni sem
er að hefjast til vegs og
virðingar. Hinn skemmti-
legi skákmaður Al-
exander Grischuk
hafði hvítt gegn
Vassily Yemelin. 19.
Rxd6! exd4 engu
betra hefði verið
19... exf4 vegna 20.
Rf5. Í framhaldinu
hefur hvítur í senn
peði meira og yf-
irburðartafl. 20.
Dxd4 Rd7 21. e5
Bxg2 22. Kxg2 Rc5
23. Rd5 Rxd5 24.
cxd5 f6 25. Hfe1
fxe5 26. fxe5 Hxd6
27. exd6 Dxd6 28.
b4 axb4 29. Dxb4 h5 30.
Dd4 Ha8 31. He2 og svart-
ur gafst upp. Skák-
ævintýrið í Eyjum hefst í
dag með fjöltefli stórmeist-
arans Helga Ólafssonar í
Höllinni kl. 19.00 við alla
þátttakendur. Allir grunn-
skólanemendur geta tekið
þátt og eru nánari upplýs-
ingar um viðburðinn að
finna á http://skakmot.eyj-
ar.is. Taflfélag Vest-
mannaeyja standa að þessu
ásamt Ísfélagi Vest-
mannaeyja og Vinnslustöð-
inni.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Á morgun, laugardaginn 1. maí, verðuráttræð Unnur Baldursdóttir, Fagraneskoti. Í tilefni
af 80 ára afmæli hennar verður hún með kaffi á könnunni
milli kl. 14–19 í Kirkjumiðstöðinni við Vestmannsvatn. Allir
velkomnir. Allar gjafir afþakkaðar en söfnunarbaukur fyrir
Krabbameinsfélag Íslands verður á staðnum.
FRÉTTIR
VEGAGERÐIN hefur gefið út
fyrsta kortið í ár um færð á hálend-
isvegum. Verða slík kort gefin út
vikulega fram eftir sumri.
Allir helstu hálendisvegir landsins
eru ófærir en fært er þó að Hvera-
völlum að norðan og jeppafært er í
Landmannalaugar og þá einnig að-
eins að norðan. Aðrar leiðir úr Laug-
um eru ófærar. Þá er enn ófært um
Öxarfjarðarheiði og beggja vegna
Jökulsár á Fjöllum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni er varla unnt að segja
fyrir um hvenær búast megi við að
hálendisvegirnir verði almennt opn-
aðir, það ráðist mest af hitafari og
úrkomu næstu vikur.
!"
.
/0* )10 0 +
23 0
+
/
4/0
+ )0 *1/
0
/
+4
1
)
,
#$ !%$$ " ! "
& $ '
.
/0 00,
4/
%((( 5#
6 /
2%((&,
Hálendisvegir að
mestu ófærir enn
SÍMINN og Golfsamband Íslands
hafa gert með sér samstarfssamning
til þriggja ára. Samningurinn felur í
sér fjölbreytt samstarf félaganna.
Síminn og GSÍ munu í sameiningu
kanna möguleika þess að auðvelda
aðgengi kylfinga að ýmsum þáttum
golfleiksins með aðstoð upplýsinga-
tækninnar, t.d. WAP og GPRS. Í því
sambandi er horft til þátta eins og
skráningar rástíma á golfvöllum
landsins, sem og skráningar í golf-
mót samkvæmt mótaskrá tölvukerf-
is Golfsambandsins www.golf.is.
Síminn og Golfsam-
bandið í samstarf
STANGAVEIÐI
Stangveið
i á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí.
Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og
Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr
Sjálfsbjörgu, unglingar (innan
16 ára aldurs) og ellilífeyris-