Morgunblaðið - 30.04.2004, Side 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 53
Sagan af Paikeu
(Whale Rider)
Stórkostlegt kvikmyndaverk.(H.L.) Háskólabíó.
Bana Billa: Bindi 2
(Kill Bill: Volume 2)
Eitthvað fyrir alla, konur og karla. Að öllum
líkindum besta skemmtun ársins. (H.L.)
Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó
og Borgarbíó
Snerting við tómið
(Touching the Void)
Nútímagoðsaga í veröld fjallaklifursmanna
verður kvikmynd sem best er að hafa sem
fæst orð um, sjón er sögu ríkari. (H.J.)
½
Háskólabíó
Hilmir snýr heim
(The Return of the King)
Hringadróttinssögu lýkur með glæsibrag.
(H.J.) Smárabíó.
Kaldaljós
Gullfalleg kvikmynd. (H.J.) ½
Háskólabíó.
Dögun hinna dauðu
(Dawn of the Dead)
Hröð og hugmyndarík, gáskafull og viðun-
andi hlutfall ógeðs. (S.V.)
Sambíóin.
Pétur Pan
Það er nýr og betri Pétur Pan sem birtist í
þessari mynd.
(H.J.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri.
Líftaka
(Taking Lives)
Raðmorðingjamynd sem nær góðu flugi.
(S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
Gefið eftir
(Something’s Gotta Give)
Keaton og Nicholson eiga frábæran sam-
leik. (H.J.) Sambíóin, Háskólabíó.
Starsky og Hutch
(Starsky & Hutch)
Stiller og Wilson fara á kostum. (H.J.) ½
Háskólabíó, Sambíóin.
Hidalgo
Falleg ævintýramynd um hetjur og skúrka á
þeysireið um eyðimerkur arabalanda. (S.V.)
½
Háskólabíó, Sambíóin.
Snerting við tómið: Hörkuspennandi heimildarmynd byggð á sannsögu-
legum atburðum um hrakfarir og hetjudáð fjallaklifursmanna.
BÆJARINS BESTU
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
ÍRSKI leikarinn Colin Farrell hefur
verið kosinn sá óþægi karlmaður
sem konur dreymir helst um að
fara út með. Farrell hefur getið sér
orð fyrir villt líferni, mikla drykkju
og kvennafar en hann hefur verið í
tygjum við stjörnur á borð við
Britney Spears, Demi Moore,
Angelinu Jolie og Naomi Campell.
Svo virðist sem konur fái samt
ekki nóg af töfrum Írans því hann
var efstur á listanum yfir stjörnur
sem eru frægar fyrir villt líferni, en
Mars súkkulaðifyrirtækið lét geta
könnunina. Ólátabelgurinn Robbie
Williams var næstur á listanum og í
þriðja sæti kappaksturshetjan
Eddie Irvine. Lee Ryan úr Blue og
Pharrell Williams úr N.E.R.D.
komu næstir og síðan Liam Gallag-
her, David Beckham og Russell
Crowe þar á eftir. Gömlu brýnin
Jack Nicholson og Mick Jagger
ráku lestina í 9.–10. sæti.
Það vekur athygli að David Beck-
ham sé nefndur og virðist sem ný-
legar fregnir af framhjáhaldi hans
með spænskri aðstoðarkonu sinni
hafi nú þegar breytt ímynd fót-
boltakappans sem þar til fyrir
stuttu hafði það orðspor að vera
tryggur eiginmaður sem helgaði
sig fjölskyldunni.
Konur hrifn-
astar af Col-
in Farrell
Reuters
Colin Farrell þykir töffari mikill.