Morgunblaðið - 02.05.2004, Síða 19
fjallar um þegar sameinaðir Grikkir
ráðast inn í borgina Tróju og hefja
þar blóðuga áralanga styrjöld. Brad
Pitt leikur Akkiles, Bretarnir Or-
lando Bloom og Sean Bean leika París
og Ódysseif og hin þýska Diana
Krueger leikur Helenu. Sýnishornin
úr myndinni hafa verið allsvakaleg og
gefið til kynna að hér sé mögulega á
ferð mynd sem bjóði Gladiator lag-
lega birginn. Rætt hefur verið um aft-
urhvarf til stórmynda á við Ben-Húr
og Kleópötru, ekki hvað síst vegna
þess að myndin er smekkfull af
þekktum aukaleikurum eins og tíðk-
aðist í gömlu stórmyndunum. Myndin
kostaði í kringum 200 milljónir dala
og tóku tökurnar víst verulega á fyrir
Hollywoodstjörnurnar. Það hefur líka
verið fullyrt að ekki hafi verið smíðuð
stærri og tilkomumeiri sviðsmynd
fyrir kvikmynd í heila fjóra áratugi.
Hinn stóri Þjóðverjinn í Holly-
wood, Roland Emmerich, frumsýnir
einnig stórmynd sína í maí. Ekki á
morgun heldur hinn (The Day After
Tomorrow) svipar til stóra smellsins
hans Emmerichs Independence Day
að því leytinu til að báðar eru að upp-
lagi stórslysamyndir og á yfirnáttúru-
legum grunni byggðar. Hamfarirnar í
nýju myndinni tengjast því hvað gæti
gerst ef gróðurhúsaáhrifin yrðu
skyndilega meiri en náttúran réði við,
yfirborð sjávar myndi hækka og ný
ísöld hæfist. Við erum að tala um New
York á kafi í sjó og allt þar fyrir norð-
an á kafi í snjó. Dennis Quaid leikur
veðurfræðinginn sem kemst að þess-
um hamförum á undan öllum öðrum
og Jake Gyllenhaal leikur son hans
sem lendir í sjávarháska í borginni
sem aldrei sefur.
Aðrar myndir sem maímánuður
geymir í skauti sér eru m.a. þriðja
Taxi myndin en þessar frönsku bíla-
eltingarleiksmyndir hafa notið mikilla
vinsælda í Evrópu og gert fína hluti
hér á landi einnig.
Áhrif fiðrildanna (The Butterfly
Effect) er vísindaskáldsaga sem sló
óvænt í gegn í Bandaríkjunum eftir
að hafa vakið athygli á Sundance-há-
tíðinni en í henni er rugludallurinn
Ashton Kutcher í sínu fyrsta alvar-
lega hlutverki.
Spartverjinn (Spartan) er nýjasta
mynd leikritaskáldsins og kvik-
myndagerðarmannsins snjalla David
Mamet. Samsærissakamálamynd
með Val Kilmer um þögla leynilöggu
sem tekur að sér að hafa upp á dóttur
forsetans sem hefur verið rænt.
Elskulega Ella (Ella Enchanted) er
nútíma Öskubuskuævintýr með Anne
Hathaway úr Princess Diaries og fullt
af þekktum aukaleikurum á borð við
Joanna Lumley, Eric Idle og Steve
Coogan.
Boðið í dans (You Got Served) er
dansmynd.
JÚNÍ: Refsarinn Potter
Í júní þorir enginn að vera á ferli því
þá fer hæstvirtur Harry Potter aftur
á kreik og refsar hverri þeirri
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 19
SVO ER það hún Dís okkar. Hún gæti
sannarlega hrist upp í Harry og öllum
hinum strákunum í sumar, í það
minnsta drukkið þá undir borðið á
Kaffibarnum.
Gert er ráð fyrir að myndin íslenska
sem Silja Hauksdóttir gerði eftir eigin
samnefndri skáldsögu, Birnu Önnu
Björnsdóttur og Oddnýjar Sturludótt-
ur, verði frumsýnd í sumar, í fyrsta lagi
í lok júní, í júlí eða ágúst.
Samkvæmt upplýsingum frá Sögn
ehf., sem framleiðir myndina, er mynd-
in nú nánast fullkláruð og tilbúin til
sýningar, aðeins sé eftir að finna frum-
sýningunni hentuga tímasetningu.
Sumar-Dísin
Morgunblaðið/Kristinn
Álfrún leikur Dís.
!! "
# " # "$ !
%& &
!
! Fáðu meira!
Veglegir aukahlutapakkar með nýjum Toyota
ÞAÐ ER VOR Í LOFTI - Sumarið leggst vel í okkur og við viljum að þú njótir þess í nýjum, betur búnum
Toyota. Þess vegna bjóðum við glæsilega aukahlutapakka sem fylgja nýjum Toyotabílum á sérstökum tilboðsdögum í apríl
og maí, eða á meðan birgðir endast. Taktu sumarið snemma og fáðu meira með nýjum Toyota. Komdu strax í dag og aktu
á nýjum Toyota út í vorið. Frekari upplýsingar á www.toyota.is eða í síma 570 5070.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
24
10
5
0
4/
20
04
Corolla fylgir sportlegur aukahlutapakki.
110.000 kr. aukabúnaður
Innifalið: Álfelgur og vindskeið.
Tilboðið gildir ekki á nýjum Corolla Verso.
YARIS BLUE, sérútgáfa af Yaris.
100.000 kr. aukabúnaður
Innifalið: Þokuljós að framan, sérstök Yaris
Blue innrétting,
krómpúst, silsalistar, vindskeið o.fl.
Avensis er ríkulega útbúinn.
120.000 kr. aukabúnaður
Innifalið: krómpakki og álfelgur eða sóllúga.
RAV4 er kraftalega útbúinn.
130.000 kr. aukabúnaður
Innifalið: Heilsársdekk, vindskeið og aurhlífar.
Nýr Avensis. 5 stjörnur og besta útkoma frá upphafi úr öryggisprófi NCAP. Staðalbúnaður sem fáir bílar í þessum flokki geta jafnað. Verð frá 2.350.000 kr. Yaris er mest
seldi smábíll á Íslandi, margverðlaunaður og hlaut hæstu einkunn í NCAP öryggisprófinu í sínum flokki, auk þess sem vélbúnaður hans hlaut sérstök verðlaun. Verð frá
1.239.000 kr. RAV4 er mest seldi jepplingur á Íslandi. Afar þægilegur í akstri en býr yfir jeppaeiginleikum sem veita þér öryggi á vegum og vegleysum. Verð frá 2.550.000 kr.
Corolla er mest seldi bíll í heimi og trónir í efstu sætum í öllum helstu gæðaprófum. Annálaður fyrir vandaðan frágang og frábært efnisval. Verð frá 1.639.000 kr.