Morgunblaðið - 02.05.2004, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
mynd sem sýnd verður á sama tíma með því að galdra til sín
bíógesti alla. Nýja myndin er gerð eftir þriðju bókinni Fang-
anum í Azkaban (The Prisoner of Azkaban).
Nýr leikstjóri – Alfonso Cuarón – en sömu leikarar og síð-
ast að viðbættum Gary Oldman, Emmu Thompson og Mich-
ael Gambon í hlutverki prófessors Dumbledores í stað Rich-
ards heitins Harris. Ef marka má kostnaðinn þá erum við að
tala um eitthvert ógurlegasta sjónarspil sem hvíta tjaldið
hefur klætt því fullyrt hefur verið að myndin sé sú dýrasta
sem gerð hefur verið.
Það þarf einhvern fílefldan til að bjóða Potter birginn. Og
þá stígur vitanlega Vin Diesel fram, köggullinn sá, sem vinn-
ur nú að því að leysa af hólmi þá alla saman, Van Damme,
Seagal, Stallone og sjálfan ríkisstjórann. Pitch Black hét
myndin sem kom karlinum á kortið, lítill ástralskur framtíð-
artryllir í anda Alien-myndanna. Og Annálar Riddicks (The
Chronicles of Riddick) er framhald þeirrar myndar. Fyrri
myndin var lítil og engin bjóst við neinu. En nú er miklu
meira lagt undir, leikstjórinn sá sami David Twohy og Dies-
el orðin stjarna með aðdráttarafl.
Kevin Smith og Ben Affleck viðurkenndu áður en Stelpan
frá Jersey (Jersey Girl) var frumsýnd vestra í lok mars að
þeir væru á nálum yfir viðtökunum. Sögðust sannfærðir um
að öll neikvæðnin í kringum samband Afflecks og Lopez og
myndina Gigli ætti eftir að skemma fyrir þessari róman-
tísku gamanmynd hans Smith, sem mun vera hans aðgengi-
legasta til þessa. Og þeir máttu líka hafa áhyggjur því mynd-
in fékk dræmar viðtökur og hefur ekki enn svarað kostnaði
þrátt fyrir að hafa fengið ágæta dóma. Ætti að ganga betur
utan Bandaríkjanna þar sem fólk er ekki búið að fá alveg
eins nóg af Bennifer-tuggunni.
Refsarinn (The Punisher) fór heldur ekki vel að ráði sínu
er hann hóf refsivönd sinn á loft um miðjan aprílmánuð, sé
litið til þess að myndasögu-myndin sú skartar John Travolta
og Rebecca Romijn-Stamos. En mynda-
sögu-myndir njóta alltaf vissra vin-
sælda og það mun þessi einnig gera.
Nýja myndin frá Coen-bræðrum
kemur í júní. Heitir Kvennaflagar-
arnir (The LadyKillers) og er end-
urgerð samnefndrar breskrar gam-
anmyndar frá Ealing-stúdíóinu með
Alec heitnum Guinness í aðalhlut-
verk. Coen-bræður færðu sögusviðið
frá Englandi til suðurríkja Bandaríkjanna
og létu Tom Hanks í hlutverk Guinness.
Hefur fengið misjafna dóma en Hanks þyk-
ir sýna gamla góða takta í sínu fyrsta hrein-
ræktaða grínhlutverki síðan Hollywood fór
að taka hann alvarlega.
Lögmál aðdráttaraflsins (Laws of
Attraction) er ný rómantísk gamanmynd,
gerð af Bretanum Peter Hewitt, sama náunga
og gerði Sliding Doors. Það verður nettur klassi
yfir henni þessari því hún skartar þeim Pierce
Brosnan og Julianne Moore í hlutverkum turtil-
dúfnanna.
Stjörnustefnumótið (Win a Date with Tad Hamilton) er
rómantísk gamanmynd með Kate Bosworth úr Blue Crush
og Topher Grace úr Svona var það ’76, um stelpur sem vinn-
ur stefnumót með frægri stjörnu.
JÚLÍ: Fleiri vefir og enn meiri asnaskapur
Sumarið 2002 flæktist í vef Köngólóarmannsins, svo um
munaði. Þessi fyrsta alvöru kvikmynd um ofurhetjuna sí-
gildu sló rækilega í gegn og varð í raun vinsælli en nokkur
hafði þorað að spá. Mynd númer tvö er næstum helmingi
dýrari, brellurnar líka sagðar helmingu betri og raunveru-
legri. En sé horft til teknanna sem fyrri myndinn náði í – 800
milljónir dala á heimsvísu – þá virðast 200 milljónirnir sem
sú nýja á að hafa kostað bara vera lágmarkstilkostnaður.
Tobey Maguire, Kirstin Dunst og James Franco snúa öll
aftur en nú er vondi maðurinn, Dr. Kolkrabbi, leikinn af Al-
fred Molina. Framleiðendur eru svo handvissir um að mynd-
in eigi eftir að gera sig að þeir eru þegar búnir að tilkynna að
þriðja myndin verði gerð – og það með öllum stjörnunum,
líka leikstjóranum Sam Raimi.
Ef það er einhver sem mun hætta sér út í að reyna að
standa uppí hárinu á Köngulóarmanninum þá er það önnur
teiknuð ofurhetja en ólík þó; hinn græni og geðstirði
Skrekkur (Shrek). Auðvitað er hann samur við sig í fram-
haldsmyndinni, þar sem Mike Myers ljáir honum áfram
rödd, Eddie Murphy talar fyrir asnann víðáttubilaða og
Cameron Diaz fyrir prinsessuna. Flestum að óvörum komst
myndin í aðalkeppnina um Gullpálmann í Cannes, sem bæði
þykir merki um hversu mjög húmorinn í myndinni höfðar til
Evrópubúa og að myndin gefi hinni fyrri lítið eftir.
Guðssending (Godsend) er síðan hrollvekjandi vísinda-
skáldsaga með Robert De Niro, Greg Kinnear og Rebeccu
Romijn-Stamos sem fjallar um hjón sem fá vísindamann til
að klóna nýlátinn ungan son þeirra með skelfilegum afleið-
ingum.
Unga stjúpan (Raising Helen) er rómantísk gamanmynd
frá Gary Marshall er gerði Pretty Woman og The Runaway
Bride. Skartar hún Kate Hudson í hlutverki ungrar konu
sem tekur að sér börn systur sinnar eftir að hún ferst í bíl-
slysi ásamt manni sínum. John Corbett úr Beðmálum í borg-
inni og My Big Fat Greek Wedding leikur á móti Hudson.
Artúr konungur (King Arthur) er bresk stórmynd, æsi-
leg ný útfærsla af þjóðsögunni um Artúr konung og riddara
hringstigans, með haug af sterkum leikurum, gerð af Ant-
oine Fuqua, Kana sem m.á. á að Training Day að baki. Clive
Owen (Croupier) leikur Artúr konung.
Stepford-eiginkonurnar (Stepford Wives) er endurgerð
af samnefndri umdeildri mynd frá 1975 um tilraun vísinda-
manns til að búa til hina fullkomna eiginkonu. Nicole Kid-
man leikur eina slíka og býr í tilbúnum smábæ þar sem allar
eiginkonurnar eru í Stepford-prógramminu. Mathew
Broderick leikur eiginmann hennar, en aðrir leikarar í þess-
ari spennu-vísinda-ádeilu-gaman-söngleik Franks Oz eru
Bette Midler, Christopher Walken, Faith Hill, Glenn Close
og Jon Lovitz.
Stelpan í næsta húsi (Girl Next Door) er gamanmynd um
gaur sem telur sig detta í lukkupottinn þegar klámmynda-
stjarna flytur í næsta hús og fer að gefa honum undir fótinn.
Heima á búgarðinum (Home on the Range) er talsett
Disney-teiknimynd, af gamla skólanum.
Beinn og uppréttur (Walking Tall) er endurgerð á sam-
nefndri mynd frá 1973, byggð á sönnum atburðum um her-
mann sem snýr aftur heim í smábæinn eftir að hafa gegnt
herskyldu og stendur frammi fyrir að óprúttnir náungar eru
með bæjarbúa undir hælnum. Hermaðurinn tekur að sér
lögreglustjórastarfið og ákveður að taka til í bænum sínum,
eftir sínum leiðum. The Rock leikur hlutverkið sem Joe Don
Baker lék hér í den og Johnny Knoxville Jackass-gaur leik-
ur aðstoðarmann hans.
ÁGÚST: Mánuður kattarins
Með fullri virðingu fyrir hásumarmyndunum góðu þá eykst
vigtin gjarnan í ágúst og september. Þá mætir Spielberg á
svæðið með nýjustu mynd sína Flugstöðina (The Terminal),
þar sem hann er á ný kominn í ljúfsáru dramadeildina. Og
enn er það Tom Hanks sem leikur aðalhlutverkið, austur-
evrópskan flóttamann sem verður innlyksa í flugstöð í New
York nákvæmlega á þeirri mínútu sem gamla föðurlandið
hans liðast í sundur en við það verður vegabréf hans og árit-
un ógild. Söguna gerði Andrew Niccol, sá er gerði Gattica og
skrifaði The Truman Show en Catherine Zeta-Jones og
Stanley Tucci leika einnig í myndinni sem lofar svo sann-
arlega góðu á pappírnum.
Mynd Spielbergs verður frumsýnd í lok júní vestanhafs
en hér á landi fær hann samkeppni í ágúst frá vini sínum og
lærisveini M. Night Shyamalan sem, viti menn, er mættur
með yfirnáttúrulegan vísindatrylli með hrollvekjandi en þó
líka svolítið rómantísku ívafi. Myndin heitir Þorpið (The
Village) og er önnur myndin í röð sem Shyamalan gerir
með Joaquin Phoenix en aðrir leikarar í myndinni eru
Bryce Howard, dóttir Rons sem leikur í næstu mynd Lars
Von Triers, William Hurt, Sigourney Weaver og Adrien
Brody sem fékk Óskarinn fyrir síðasta hlutverk sitt, í Pían-
istanum. Í stuttu máli gerirst myndin seint á 19. öld í litlu
þorpi þar sem þorpsbúar lifa í stöðugum ótta við litlar
skepnur sem búa í skóginum; eða bara hvern sem telja má
utanaðkomandi. Allt fer því úr böndunum þegar ungur
hugrakkur maður fer að efast um þessa einangrunar-
stefnu.
Fortíðin knýr einnig að dyrum í nýrri kvikmyndagerð á
æsilegu 19. aldar spennutrylli Jules Vernes Umhverfis
jörðina á 80 dögum (Around the World in 80 Days). Verð-
ur spennandi að sjá hvernig þessi sígilda og skemmtilega
saga gengur í bíógesti 21. aldarinnar en leikstjórinn Frank
Coraci (Wedding Singer) gerði sitt til að laga hana að
þeirra kröfum og smekk, fékk breska grínsnillinginn Steve
Coogan (24 Hour Party People, Alan Partridge) til að leika
Phileas Fogg og Jackie Chan í hlutverk þjónsins hans úr-
ræðagóða Passepartout. Haugur af frægum leikurum eru
svo í aukahlutverkum, eins og sjálfur Arnold Schwarz-
enegger, John Cleese og Wilson-bræður Owen og Luke,
sem að sjálfsögðu leika Wright-bræður.
Lengi hefur staðið til að gera mynd um Kattakonuna
(Cat Woman) og var búist við því, eftir að Michelle Pfeiff-
er sló í gegn í annarri Batman-myndinni, að það járnið
yrði hamrað á meðan það væri heitt. En ekkert varð
úr. Ekki fyrr en Halle Berry mjálmaði og mal-
aði sig í hlutverk fyrstu myndarinnar
sem gerð er um þessa aukapersónu úr
Batman-myndasögunum. Leikstjóri
myndarinnar er lítt þekktur Frakki,
Pitof, sem á eina mynd að baki en hef-
ur unnið brellur og sjónhverfingar fyr-
ir fjöldann allan af myndum. Sharon
Stone leikur höfuðandstæðing Kattakon-
unnar. Hér getur sannarlega brugðið til
beggja vona.
Ágústmánuður er mánuður kattarins, það fer
ekki á milli mála því þá verður líka frumsýnd ný
„leikin“ kvikmynd, gerð eftir myndasögunum sí-
vinsælu um heimilisköttinn húðlata Gretti (Garfield
The Movie), vini hans, óvini og eigendur. Eins og
gefur að skilja er myndin uppfull af vel gerðum
brúðum en leikstjóri hennar Peter
Hewitt hefur nokkra reynslu af því að
vinna með kynlegar verur því hann
gerði The Borrowers. Girnilegasta við
þessa annars óútreiknanlegu mynd er að Bill
Murray ljær Gretti rödd sína og þá má segja að hálfur
kötturinn sé unninn. Breckin Meyer (úr þáttunum Marr-
ied to the Kellys, Inside The Schwartz) leikur eiganda
hans Jon Arbuckle.
Sky Captain og heimur morgundagsins (Sky Captain
and the World of Tomorrow) er hin forvitnilegasta mynd,
ævintýraleg vísindaskáldsaga sem gerist árið 1939 og
fjallar um blaðakonu (Gwyneth Paltrow) sem kemst að því
að vísindamenn heimsins eru að tapa tölunni einn af öðr-
um. Fær sér til aðstoðar flugmanninn hugdjarfa Sky
Captain (Jude Law) og saman komast þau að því að geggj-
aður vísindamaður er að reyna að ná heimsyfirráðum. Aðr-
ir leikarar eru Angelina Jolie og Giovanni Ribisi en leik-
stjórinn er svo að segja grænjaxl, Kerry nokkur Conrad.
Farsíminn (Cellular) er spennutryllir með Kim Bas-
inger um ungan mann sem fær símhringingu frá eldri
konu, sem segir að henni hafi verið rænt og að eiginmað-
urinn og börnin séu næst.
New York mínútan (New York Minute) er síðan ung-
lingagamanmynd með Olsen-systrum og Eugene Levy,
pabbanum úr American Pie-myndunum og Þrettán að
verða þrjátíu (13 Going on 30) er rómantísk gamanmynd
með Jennifer Garner (Alias) og Mark Ruffalo (In the Cut),
gerð af Gary Winick, sem síðast gerði hina ágætu gam-
anmynd Tadpole.
SEPTEMBER: Heljarinnar haustbíó
Og þótt sumarið sé að mati flestra Frónbúa búið þegar
fram í september er komið þá er enn nóg eftir að sum-
armyndunum. Þá berast myndir eins og franski tryllirinn
Rauðará 2 (Crimson River 2) með Jean Reno en hún hefur
slegið allt út í Frakklandi. Og í september ratar hún loks-
ins í bíó fjórða Exorcist-myndin Upphafið (The Beginn-
ing) sem er að verða einhver mesta vandræðamynd kvik-
myndasögunnar. Fyrst var það Paul Schrader
(handritshöfundur Taxi Driver, Auto Focus) sem byrjaði á
myndinni en þegar framleiðendur sáu útkomuna stungu
þeir henni ofan í skúffu og réðu Renny Harlin til að gera
hans svo gott sem aftur frá grunni. Og nú stendur til að út-
gáfurnar komi út samtímis, sú sem hafnað var á mynddiski
á meðan útgáfa Harlins kemur í bíó.
Þá má nefna að í september verður sýnd hér nýjasta
mynd Wills Smiths Ég, vélmenni (I, Robot), framtíðar-
tryllir eftir Egyptann Alex Proyas sem gerði Dark City.
Þá kemur myndasöguhetja Heljardrengur (Hellboy) í
september, sem og skrímslaeinvígið Alien vs. Predator
eftir Paul W.S. Anderson sem síðast gerði Resident Evil.
Þá koma eftirfarandi myndir í september:
The Princess Diaries 2
Thunderbirds
Wicker Park (endurgerð á L’Apartement)
The Alamo
The Bourne Supremacy (framhald Bourne Identity)
Two Brothers (Annaud)
Og vefurinn stækkar: Tobey Maguire fer enn í
samfestinginn rauða og fær mikið út úr.
Grettir búinn að setja sig í bíóstellingarnar.
Skrekkur 2: Ennþá meiri asnaskapur ef að líkum
lætur — alveg ekta fyrir Frakkana.
skarpi@mbl.is