Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 29
Hönnunarsafn Íslands, Garða-
torgi, kl. 15 Kristín Ísleifsdóttir
leirlistamaður verður á Garðatorgi
og talar um innsetningu sína Hérna
núna.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
kl. 14–17 Nemendur LHÍ, Harpa,
Sunna, Jóna Heiða, Ólöf Helga, Þóra
og Anna María, sýna verk á sýning-
unni Frábær helmingur.
Listasafn Reykjanesbæjar í
Duushúsum kl. 15–17 Sýningu
Kristjáns Jónssonar lýkur í dag.
Hann tekur á móti gestum.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
LÍFSREYNSLUSAGA Önnu
Pálínu Árnadóttur fjallar um baráttu
hennar við krabbamein sem hún
greindist með fyrir fimm árum. Í
upphafi sögunnar er sagt frá því
þegar meinið greinist og þeirri já-
kvæðu afstöðu sem Anna Pálína tek-
ur: að í lífinu panti fólk sér námskeið
til að læra af og þroskast og veikindi
hennar séu af því tagi. Þetta viðhorf
hennar er andstætt viðhorfi hjúkr-
unarfræðingsins sem hún spjallar
við á biðstofunni en hann heldur því
fram að lífið sé einsog sumarbúðir
þar sem einhver annar skipuleggur
dagskrána (12). Í rauninni snúast
þessi ólíku viðhorf um það hvort
maður tekur ábyrgð á lífi sínu eða
ekki. Eftir sjúkdómsgreininguna
tekur þrautaganga við; lyfjameðferð,
geislar, hárkolla; tilfinningasveiflur
milli gríðarlegrar bjartsýni og
dýpstu örvæntingar; sorg og reiði,
áhyggjur af fjármálum og fjölskyldu.
Á þessu erfiða „námskeiði“ kynnist
Anna Pálína nýjum leiðum í lífinu,
heilun og hugleiðslu, sem hjálpa
henni að takast á við erfiðleikana,
endurnýja orkubirgðirnar og berjast
áfram við ótuktina. Ótuktin er mynd-
hverfing krabbameinsins; óboðinn
gestur sem sest að í líkamanum/hús-
inu. Húsráðandi er að vonum ósáttur
fyrst og vill losna við hann en lærir
svo að lifa í þessum nýju aðstæðum,
úthlutar gestinum herbergi og kenn-
ir honum umgengnisreglurnar til að
þeim takist að búa saman.
Anna Pálína finnur svör við stóru
spurningunum í hugleiðslu, þar
kynnist hún kærleikanum og lærir
að óttast ekki. Hugleiðslunni er lýst
sem einskonar draumaástandi þar
sem ljós og skuggi, vatn, hús og göng
eru mikilvæg tákn. Tilfinningar eru
myndhverfðar: Áhyggjur, Depurð
og Kvíði eru litlar verur sem eru
reknar út úr húsinu (95) en reyna sí-
fellt að komast inn aftur; steinar
hjartans eru áhyggjur sem virðast
risastór björg en hægt er að mola
sundur þegar að er gáð (149).Við
hugleiðsluna verður einskonar sálar-
landslag til, ýmist klettótt eða skógi
vaxið, þar sem jörð og skógur tákna
líkama og sál, styrkurinn tekur á sig
mynd arnar og bjargvætturinn er
hvítur hestur. Þetta eru hefðbundin
tákn og kunnugleg sem geta auð-
veldlega orðið þreyttar klisjur í
skáldskap en eru það ekki í þessari
bók.
Í sögunni er ekki að greina nokkra
reiði út í læknavísindin þrátt fyrir að
í þeim sé lítil hjálp, lyfin séu gagns-
lítil og virki jafnvel öfugt og geisl-
arnir skemmi heilbrigð líffæri. Þeg-
ar ótuktin fer að gægjast aftur fram
úr herberginu sínu hleypur Anna
Pálína hið snarasta inn í búninga-
geymslu og sækir gamla hetjubún-
inginn sinn til að geta borið sig vel en
hann er þá orðinn þröngur og snúinn
og tölurnar dottnar af… Í lok sög-
unnar er Anna Pálína stolt og sátt og
horfir enn á ný bjartsýn fram á veg-
inn (150). Æðruleysi hennar er aðdá-
unarvert, hún axlar algerlega
ábyrgð á eigin lífi. Lokakafli sögunn-
ar gerist í hugleiðsluástandi og þar
er táknrænan allsráðandi. Hún stíg-
ur út úr myrkrinu inn í ljósið með
stóran, svartan stein sem er ætlaður
henni: „Steinninn er þungur. Ég finn
að ég þarf að taka á öllum mínum
kröftum til að bera hann. Ég er að
sligast. Hesturinn er við hlið mér.
Hann býður mér á bak svo ég þurfi
ekki að bera þennan þunga stein
alein. Ég sest á bak hestinum með
steininn í fanginu og hesturinn ber
okkur út. Eftir því sem við nálgumst
hellismunnann minnkar steinninn.
Hann verður minni og minni. Léttari
og léttari. Við komum út í ljósið og
steinninn er orðinn vatnsdropi í lófa
mér. Ég helli honum upp í mig til að
glata honum ekki og finn hvernig
vatnið nærir mig alla“ (153). Saga
Önnu Pálínu minnir okkur á að lífið
er til þess að læra af því og dauðinn
bíður okkar allra – spurningin er
bara sú hvernig við búum okkur und-
ir að taka á móti honum.
Krabba frænka kemur í heimsókn
BÆKUR
eftir Önnu Pálínu Árnadóttur. 153 bls.
Salka 2004.
ÓTUKTIN
Morgunblaðið/Golli
Anna Pálína Árnadóttir
Steinunn Inga Óttarsdóttir - SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
2 fyrir 1 til
Barcelona
20. maí
frá 19.990.-
Terra Nova býður nú einstakt tækifæri til þessar fallegu og
framandi borgar á ótrúlegum kjörum. Nú er fegursti tími ársins
og frábært tækifæri til að skreppa til Barcelona í viku og njóta
lífsins í þessari töfrandi heimsborg.
Kr. 19.990
Flug og skattar, m.v. 2 fyrir 1 tilboð.
Síðustu 14 sætin
Val um úrval hótela
í hjarta Barcelona
frá kr. 4.700 á mann nóttin í tvíbýli
Missir
flú af
milljónum
í hverri viku
Kauptu mi›
a núna!
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
24
43
6
0
4/
20
04
Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir!