Morgunblaðið - 02.05.2004, Síða 36
SKOÐUN
36 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÚ er svo komið að embætt-
ismenn og stjórnmálamenn eru
farnir að taka fram fyrir hendurnar
á læknum og stýra lyfjanotkun
þeirra, nú síðast með
aðgerðum sem eiga að
taka gildi 1. maí nk.
Stjórnsemi embætt-
ismanna í nafni lyfja-
sparnaðar er gengin út
í öfgar að mati margra,
m.a. lyfjafræðinga,
lækna og sjúklinga.
Stýring sem takmark-
ar lyfjaval er mjög
varasöm læknis- og
lyfjafræðilega séð og
getur hæglega leitt til
verri meðferðarárang-
urs við sjúkdómum og
aukinna heilbrigðisútgjalda þar af
leiðandi, t.d. vegna aukins sjúkra-
húskostnaðar, hjúkrunarkostnaðar,
lækniskostnaðar og rannsókn-
arkostnaðar.
Lyfjakostnaður ríkisins
er ótrúlega lítill
Mikið hefur verið býsnast út af
lyfjakostnaði landsmanna und-
anfarin ár. Samt sem áður er lyfja-
kostnaður ótrúlega lítill hluti af
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna,
svo ekki sé talað um hluta af lands-
framleiðslu.
Lyfjakostnaður landsmanna árið
2003 var einungis um 14 milljarðar
króna með virðisaukaskatti, þar af
var kostnaður ríkisins 9,4 milljarðar
(67%) og sjúklinga 4,6 milljarðar
(33%).
Lyfjakostnaður einungis 13%
af kostnaði til heilbrigðismála
Útgjöld ríkisins til heilbrigðismála
voru um 71 milljarðar króna á sl. ári
og af þeim kostnaði vógu lyf ein-
ungis um 13% (9,4 af 71), hin 87 pró-
sentin fóru í annað. Með því að nota
alltaf bestu fáanlegu lyf og minnka
greiðslur sjúklinga fyrir lyf mætti
trúlega spara nokkuð af þessum
kostnaði til heilbrigðismála því
lyfjameðferð er oftast árangursrík-
asta og kostnaðarminnsta meðferð
sem völ er á og getur oft á tíðum
sparað verulegan hjúkrunarkostnað,
sjúkrahúskostnað, læknakostnað og
rannsóknarkostnað.
Raunverulegur lyfjakostnaður
ríkisins einungis 6,6 milljarðar
Lyf eru seld með 24,5% virðis-
aukaskatti, sem gleymist furðu oft
þegar rætt er um lyfjakostnað rík-
isins. Ef litið er á lyfjakostnaðinn á
s.l. ári án virðisaukaskatts var hann
11,2 milljarðar króna (14-2.8), sjúk-
lingarnir greiddu 4,6 milljarða
(41%), en raunverulegur kostnaður
ríkisins var því ein-
ungis um 6,6 milljarðar
króna (59%) þegar búið
er taka tillit til virð-
isaukaskattsins. Raun-
verulegur lyfjakostn-
aður ríkisins var því
einungis um 10% (6,6
af 68,2) af heilbrigð-
isútgjöldunum á sl. ári.
Ef spara á í heilbrigð-
iskerfinu væri nær að
skoða hin 90 prósentin
í stað þess að vera
stanslaust að hamra á
lyfjakostnaðinum.
Kostnaður sjúklinga var 55%
af lyfjakostnaði utan spítala
Kostnaður vegna sjúkrahúslyfja var
2,8 milljarðar króna af þessum 11,2
milljörðum og kostnaður vegna lyfja
sem seld voru í apótekum 8,4 millj-
arðar króna. Sjúklingar greiddu því
hvorki meira né minna en 55% (4,6
af 8,4) af kostnaðinum vegna lyfja
sem afgreidd voru utan spítala, í
apótekum landsins (lyfseðilsskyld
lyf og lyf seld án lyfseðils).
Lyf bæta líf og líðan tuga þús-
unda Íslendinga á hverju ári
Lyfjakostnaður landsmanna var ein-
ungis um 1,7% af landsframleiðsl-
unni á sl. ári (14 milljarðar af 806 ár-
ið 2003), hin 98,3 prósentin fóru í
eitthvað annað. Trúlega er kostn-
aður vegna lyfja langbesta fjárfest-
ing sem völ er á miðað við þann
ávinning sem af þeim hlýst.
Fyrir ofangreinda fjárhæð er
hægt að bjarga lífi nokkurra þús-
unda Íslendinga á hverju ári, hindra
að mörg þúsund Íslendinga verði
óstarfhæfir og ósjálfbjarga á hverju
ári og bæta líf og líðan tuga þúsunda
landsmanna. Þrátt fyrir það eru
misvitrir embættismenn og stjórn-
málamenn stanslaust að reyna að
minnka lyfjanotkun landsmanna í
nafni sparnaðar.
Lyfjakostnaður miðað
við aðrar þjóðir
Lyfjakostnaður landsmanna er
meiri pr. íbúa en í nágrannalönd-
unum. Ástæðurnar fyrir því eru
nokkrar.
Í fyrsta lagi nota Íslendingar
minna af ódýrum samheitalyfjum
(eftirlíkingum) og samhliða inn-
fluttum lyfjum (sömu lyf frá ódýrari
markaðssvæðum) en nágrannaþjóð-
irnar. Ástæða þess er sú að íslenski
markaðurinn er svo lítill að kostn-
aðurinn, fyrirhöfnin og áhættan er
of mikil til að þessi innflutningur
borgi sig.
Þó Íslendingar séu stærstir og
bestir í heimi eiga þeir til með að
gleyma því að þeir eru einungis 1%
Norðurlandabúa og 0,1% Evr-
ópubúa. Vinna og kostnaður við að
koma lyfi á markað á Íslandi er
svipaður og hjá nágrannaþjóðunum,
en Danir eru 20 sinnum fleiri en Ís-
lendingar, Norðmenn 15 sinnum
fleiri og Svíar 25 sinnum fleiri. Þrátt
fyrir það er ætlast til að verð á lyfj-
um á Íslandi sé svipað og í þessum
löndum. Kostnaður við að koma lyfi
á markað á Íslandi er hlutfallslega
mun meiri en í nágrannalöndunum
miðað við söluna, þannig að það er
einfaldlega ekki hægt að ætlast til
að lyf séu á svipuðu verði hér á landi
og í þessum löndum.
Blóðfitulækkandi lyf, lyf
við ofvirkni, ný gigtarlyf
Í öðru lagi nota Íslendingar meira af
betri, nýrri og dýrari lyfjum en aðr-
ar þjóðir í stað lélegri, eldri og ódýr-
ari lyfja. Ástæðan fyrir því er sú að
íslenskir læknar eru fljótari að til-
einka sér ný og betri lyf en læknar í
öðrum löndum. Íslenskir læknar eru
sjálfstæðari en læknar í öðrum lönd-
um, þeir fara ekki eftir úreltum op-
inberum listum um hvaða lyf beri að
nota, láta ekki embættismenn sem
aldrei sjá sjúklinga eða stjórn-
málamenn sem lítið vit hafa á lyfjum
segja sér fyrir verkum, heldur nota
þau lyf sem koma sjúklingunum að
mesta gagni hverju sinni.
Nágrannaþjóðirnar fylgja notkun
Íslendinga oftast í kjölfarið, en yf-
irleitt eru þær þjóðir mun lengur en
Íslendingar að átta sig á og tileinka
sér gagnsemi nýrra lyfja. Má þar
nefna blóðfitulækkandi lyf sem
bjarga nú orðið mörgum manns-
lífum hér á landi á hverju ári, lyf við
ofvirkni (rítalínlyf) sem gera börn-
um með athyglisbrest og ofvirkni
kleift að stunda nám og aðlagast
umhverfinu, og ný gigtarlyf (Coxíb-
hemlar) sem gefa gigtarsjúklingum
aukna möguleika á að halda ein-
kennum gigtarsjúkdóma niðri.
Íslendingar nota minna af lyfjum
að meðaltali en nágrannaþjóðirnar,
ástæðan fyrir því er m.a. sú að eftir
því sem notuð eru betri lyf, þá þarf
að nota minna af lyfjum. Í nokkrum
flokkum er notkun Íslendinga þó
meiri en hjá nágrannaþjóðunum.
Gleðipillur
Í þriðja lagi nota Íslendingar meira
af svokölluðum gleðipillum (SSE-
hemlum) en aðrar þjóðir. Ástæðan
fyrir því er trúlega sú að hin gegnd-
arlausa peningadýrkun fjölmiðlanna
síðastliðin ár hefur orðið þess
valdandi að stór hluti af þjóðinni er
kominn með sjúkdóm sem nefnist
óyndi, eða Allir-eru-að-gera-það-
gott-nema-ég. Einkennin eru gleði-
leysi, öfund, illt umtal, framtaks-
leysi, ofdrykkja og ofát. Meðferðin
er gleðipillur. Nú er svo illa komið
fyrir þjóðinni að um 9% af henni eru
komin á þessi lyf, þrátt fyrir að
þunglyndi sé vangreint og van-
Lyfjakostnaður og
lyfjanotkun
Eftir Hauk Ingason ’Stjórnvaldsaðgerðirsem minnka lyfjaúrval,
hamla lyfjaval lækna og
aðgengi sjúklinga að
lyfjum eru mjög vara-
samar …‘
Haukur Ingason
…er með gjöfina
Hlíð 18A - opið hús í dag
50 fm sumarbústaður á 0,4 ha leigulóð í
sumarhúsahverfinu í Elífsdal. Bústaðurinn
er byggður 1984 og hefur verið vel við-
haldið. Mjög mikil trjárækt er á lóðinni.
Lítill lækur rennur niður í tjörn fyrir neðan
bústaðinn. Kalt vatn, gashitað vatn og
olíukynding er í bústaðnum, auk þess
sem sólarrafhlaða sér fyrir lýsingu og
minni raftækjum.
Aðalsteinn og Elín taka á móti gestum í dag
á milli kl. 14.00-16.00 með kaffi og meðlæti.
Uppl. í síma 894 2515 eða hjá Einari Páli, lögg. fasteignasali, í síma 899 5159.
Verð kr. 5 millj.
Sumarhús í Eilífsdal
KELDUHVAMMUR 9 - HF. - M. BÍLSKÚR
Nýkomin í einkas. sérl. falleg rúmgóð
138 fm efri sérh. í góðu þríb. auk 32 fm
bílskúrs. Mikið endurnýjuð eign m.a. nýtt
eldhús og nýtt baðherb. Parket o.fl. Þrjú
stór svefnherb. Rúmgóð stofa, suð-
ursvalir. Gott útsýni. Sérinngangur.
Hagst. lán. Afhending fljótlega. Verð 18,3
millj. Halldór og Vilborg bjóða ykkur vel-
komin.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ 14-16
EINBÝLI VIÐ ELLIÐAVATN - RVÍK
Nýkomið stórglæsil. tvílyft einbýli með
innbyggðum tvöföldum bílskúr, samtals
276,3 fm. Frábært útsýni og staðsetning.
Arkitekt Sigríður Ólafsdóttir. Afhending
nánst strax fokhelt. Teikningar og upp-
lýsingar á skrifstofu.
NAUSTAHLEIN - RAÐH. - M. BÍLSKÚR
Eldri borgarar. Laust strax. Nýkomið í
einkasölu á þessum frábæra stað mjög
gott raðhús á einni hæð ásamt góðum
bílskúr með geymslulofti, samtals um
101 fm. Húsið stendur á fallegum útsýn-
isstað og skiptist í forstofu, þvottahús,
hol, eldhús, garðskála, stofur og svefnherbergi. Gólfefni eru parket og flísar. Fal-
legur gróinn garður, útsýni. Verðtilboð. Eignin er laus strax.
LERKIÁS - GBÆ - RAÐH.
Nýkomið í sölu nýlegt 173,5 fermetra
endaraðhús með innbyggðum 31,5 fer-
metra bílskúr, samtals um 205 fm, vel
staðsett í Ásahverfi í Garðabæ. Eignin
skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu,
stofu, herbergi, baðherb., þvottahús og
bílskúr. Á efri hæð er gott sjónvarpshol,
baðherbergi, barnaherbergi og stórt
hjónaherbergi sem hægt er að breyta í
tvö herbergi. Fallegar innréttingar og gólfefni. Tvennar svalir. Gott útsýni. Húsið er
laust strax. Verð 29,8 millj.
EYRARHOLT - HF. - 6-7 HERB.
Nýkomin í einkasölu á þessum frábæra
útsýnisstað mjög góð 6-7 herbergja
162,8 fermetra íbúð („penthouse“) vel
staðsett á góðum útsýnisstað á Holtinu í
Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu,
geymslu, hjónaherbergi, herbergi, hol,
stofu, eldhús og baðherbergi. Á efri hæð
eru 3 barnaherbergi, sjónvarpshol, bað-
herbergi, þvottahús og geymslur. Tvenn-
ar svalir, parket og flísar. Verð 17,9 millj.
Brynjar Sindri Sigurðarson, s. 899 4604/520 9501
Fasteignasala: RE/MAX Kópavogi.
Guðmundur Þórðarson hdl. og löggiltur fasteignasali
Heimilisfang: Lómasalir 6-8
Stærð eignar: 102,6 fm
Verð: 15,9 millj.
Skemmtilega hönnuð 3ja herb.
102,6 fm íbúð á þriðju hæð ásamt
stæði í upphitaðri bílageymslu í
nýju, vönduðu lyftuhúsi í Kópavogi.
Sérinngangur. Suðvestursvalir. Opin
og björt stofa/borðstofa.
GÓÐ ÍBÚÐ - GOTT VERÐ!
Þess virði að skoða!
Velkomin í opið hús í dag,
sunnudag, frá klukkan 14 til 16,
sölufulltrúi tekur á móti ykkur.
Lómasalir 6-8 - OPIÐ HÚS Í DAG!