Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Guðmundur í Nesi
kemur í dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4 í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar,
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími er 551 3360, net-
fang dalros@island-
ia.is, gsm 897 1016
Mannamót
Aflagrandi 40. Kín-
versk leikfimi verður
hjá Guðnýju í maí.
Kynning á tai ji-leik-
fimi fyrir alla hefst
mánudag kl. 9, allir
aldursflokkar vel-
komnir.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Ferð um
Suðurnesin, Suður-
strandarveg til Krýsu-
víkur og Kleifarvatns
verður fimmtudaginn
6. maí kl. 13.15 frá Gjá-
bakka og kl. 13.30 frá
Gullsmára. Kvöldmat-
ur verður á veitinga-
staðnum Sjávarperl-
unni. Heimkoma
áætluð kl. 19–19.30.
Þátttakendur skrái sig
sem fyrst á þátttöku-
listana sem verða tekn-
ir niður kl 15 miðviku-
daginn 5. maí. Athugið
að aðeins 66 sæti eru í
boði. Ferðanefndin.
(Bogi s: 554 0233 eða
Þráinn s: 554 0999)
Gjábakki, Fannborg 8.
Í tilefni Kópavogsdaga
býður Smáralind eldra
fólki í heimsókn þriðju-
daginn 4. maí. Rúta fer
fra Gjábakka kl. 13,
skrá þarf þátttöku fyr-
ir kl. 17 mánudaginn 3.
maí s. 554 3400. Boðið
verður upp á kaffiveit-
ingar og skemmti-
atriði.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði. Grillveisla
verður föstudaginn 7.
maí kl. 12 Ragnar
Bjarnason og Hjördís
Geirs söngkona
skemmta. Léttar meyj-
ar sýna línudans, Dís-
irnar leiða fjöldasöng.
Sala aðgöngumiða haf-
in. Kaupið miða fyrir
kl. 16 fimmtud. 6. maí.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Vorferð sem
átti að vera 12. maí er
frestað til 10. júní.
Þetta er dagsferð á
Suðurlandið í sam-
vinnu við Félag eldri
borgara. Ákveðið var
að seinka henni svo
lengra væri á milli
ferðar kirkjunnar á
uppstigningardag og
ferðar okkar. Ferðin
verður nánar auglýst
síðar.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Gullsmári Gullsmára
13, vorsýning á hand-
verki eldri borgara
verður laugardaginn 8.
og sunnudaginn 9 maí
kl. 14–17 báða dagana,
ýmsar listasmiðjur
verða í gangi og hægt
að fylgjast með vefn-
aði, postulínsmálun,
glerskurði og ýmsu
fleiru. Börn úr leik-
skólanum Arnarsmára
setja upp sína árlegu
myndlistasýningu.
Vöfflukaffi.
Gerðuberg, félags-
starf. Handavinnu-
listmunasýning opin kl.
13–17. M.a kemur kór
eldri borgara í Húna-
þingi í heimsókn,
stjórnandi Kristófer
Kristjánsson, undir-
leikari Óli Björnsson á
harmónikku, Gerðu-
bergskórnn tekur lag-
ið.
Kvenfélag Seljasókn-
ar. Fundur þriðjudag-
inn 4. maí kl. 20. Thom-
as Möller verður með
fyrirlestur um tíma-
stjórnun. Fatakynning.
Kvenfélag Árbæjar-
sóknar. Fundur félags-
ins 3. maí fellur niður,
vorferðalög auglýst
síðar.
Kvenfélag Laugarnes-
sóknar heldur fund í
safnaðarheimili kirkj-
unnar mánudaginn 3.
maí kl. 20.
Kristniboðsfélag
karla. Fundur verður í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58–60,
mánudaginn 3. maí kl.
20. Jónas Þórisson sér
um fundarefnið. Allir
karlmenn velkomnir.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Minningarkort
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suður-
götu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552 2154.
Skrifstofan er opin
miðvikudaga og föstu-
daga kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er sím-
svari. Einnig er hægt
að hringja í síma
861 6880 og 586 1088.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld
á skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103
Reykjavík. Skrifstofan
er opin mánudaga–
fimmtudaga kl. 10–15.
S. 568 8620.
Minningarkort
Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar
fást í Bókabúð Böðv-
ars, Reykjavíkurvegi
64, 220 Hafnarfirði s.
565 1630.
Í dag er sunnudagur 2. maí, 123.
dagur ársins 2004. Orð dagsins:
En sá sem iðkar sannleikann kem-
ur til ljóssins, svo að augljóst verði,
að verk hans eru í Guði gjörð.
(Jh. 3, 21.)
Svanfríður Jónasdóttirminnir á lög um frið-
un Þingvalla í pistli á vef
sínum, sem inniheldur
bæði pólitíska pistla og
mataruppskriftir.
Svanfríður rifjar upp
að í lögunum segi í 4.
grein: „Hið friðlýsta land
skal vera undir vernd Al-
þingis og ævinleg eign ís-
lensku þjóðarinnar. Það
má aldrei selja eða veð-
setja.“
Svona eru lögin segirhún. „Þar segir skýr-
um stöfum að það sé ís-
lenska þjóðin sem á Þing-
velli. Þingvallanefnd á að
afmarka hið friðlýsta
land sem er eign íslensku
þjóðarinnar. Og þjóðin er
ekki það sama og ríkið og
ekki heldur það sama og
kirkjan. Þetta er ein af
þjóðareignum okkar líkt
og fiskistofnarnir í lög-
sögu landsins, Skarðsbók,
þjóðminjar og ýmislegt
fleira sem þjóðin á sam-
kvæmt lögum eða gjafa-
bréfum.“
Hún segir að auðlinda-nefndin hafi lagt til
að sett yrði í stjórnarskrá
ákvæði um þjóðareign.
Nú sé einungis gert ráð
fyrir einkaeignarétti, sem
sé ekki fullnægjandi.
„Deilur forsætisráðherra
og kirkjunnar um það
hver á Þingvelli sýna
fram á það hve mikilvægt
það er að slíkt ákvæði
væri til staðar og að þjóð-
areign væri skilgreind
þannig að réttindi og
skyldur lægju ljósar fyrir.
Þá er ágreiningur útvegs-
manna við þorra þjóðar-
innar um það hver á fisk-
inn í sjónum ærið tilefni.
Og það væri ekki ónýtt ef
þjóðararfur okkar af
ýmsum uppruna fengi
skýrara lagaumhverfi svo
ljóst væri hver er eigandi
þeirra og hvernig með
skuli fara.
Forsætisráðherra hafðigefið fyrirheit um það
að fyrir síðustu alþingis-
kosningar yrði lagt fram
frumvarp til stjórnskip-
unarlaga um þjóðareign-
arákvæði í anda tillögu
auðlindanefndar. Hann
virtist átta sig á að út-
vegsmenn væru e.t.v. bet-
ur settir ef réttarstaða
þeirra yrði skýrð umfram
það sem segir í lögunum
um stjórn fiskveiða. Þeg-
ar til kastanna kom varð
ekkert úr því, áhugi hans
var ekki meiri en svo að
hann kom málinu ekki í
gegnum eigin flokk. Þar á
bæ eru of margir sem
vilja að allt endi í einka-
eign. Það er því ljóst að á
meðan Sjálfstæðisflokk-
urinn ræður svo miklu
verður engin breyting
hér á og menn halda
áfram að deila um eignar-
hald á dýrmætustu eign-
um þjóðarinnar.“
Það er tímabært að ráð-herrar þeir sem fara
með auðlindamál setjist
yfir tillögur nefndarinnar
og reyni að nýta sér þær
til að takast á við auð-
lindamálin og að móta
heildstæða auðlinda-
stefnu segir Svanfríður
Jónasdóttir.
STAKSTEINAR
Þjóðareign í
stjórnarskrá
Í LJÓSI þeirra slæmu tíð-
inda að Íslenska útvarps-
félagið hafi ákveðið að
leggja niður hina frábæru
gamanstöð Stöð 3 og að
Sýn sé að missa enska bolt-
ann yfir til Skjás eins vil ég
skora á Í.ú. að sameina
þessar tvær stöðvar í eina
öfluga sjónvarpsstöð. Tel
ég að með því væri hægt að
slá tvær flugur í einu höggi,
Sýn væri áfram öflug
íþróttastöð auk þess sem
áhorfendum Stöðvar 3 yrði
líka áfram sinnt. Það verð-
ur mikill missir að frábær-
um þáttum eins og The
Fast Show, Whose Line is
it Anyway, Trigger Happy
TV, League of Gentlemen,
Father Ted, My Hero, 3rd
Rock from the Sun, Sat-
urday Night Live auk allra
klassísku gamanþáttanna.
Að lokum vil ég svo nota
tækifærið til að þakka Popp
Tíví fyrir Tvíhöfða-teikni-
myndirnar og skora á allar
sjónvarpstöðvarnar að
sýna meira af breskum
gamanþáttum.
Davíð.
Góð breyting
MIG langar að koma á
framfæri ánægju minni
með beytingar sem hafa átt
sér stað í Rúmfatalagern-
um við Holtagarða.
Áður var ekki orðið hægt
að ganga um staðinn, þvílík
þrengsli. En það hefur
greinilega allt verið tekið í
gegn til að gera staðinn að-
gengilegan og huggulegan.
Nú er gott að koma þarna,
rólegt og gott andrúmsloft.
Ég fer frekar þangað núna
en í stærri búðirnar. Mæli
með Rúmfatalagernum í
Holtagörðum.
Ánægður
viðskiptavinur.
Tapað/fundið
Loðhúfa og trefill
í óskilum
LOÐHÚFA er í óskilum
hjá Hjartavernd, Holta-
smára 1, Kópavogi. Einnig
er í óskilum handofinn tref-
ill á sama stað. Upplýsing-
ar hjá Hjartavernd og í
síma 535 1863.
Blár GSM-sími týndist
BlÁR NOKIA GSM-sími,
högg- og vatnsvarinn, týnd-
ist líklega í eða við Þjóðar-
bókhlöðuna eða við Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ.
Þeir sem vita um símann
hafi samband í síma 693-
4005.
Dýrahald
Keli er týndur
KELI er gulur með smá
bröndum, 3ja ára og eyrna-
merktur. Hann týndist frá
Miðvangi í Hafnarfirði 16.
apríl sl. Þeir sem hafa orðið
hans varir hafi samband í
síma 565 1484, 565 3009 eða
898 1896.
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR kettlingar, átta
vikna, fást gefins. Gullfal-
legir og kassavanir. Upp-
lýsingar í síma 898 2659.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Stöð 3 og Sýn
LÁRÉTT
1 mánuður, 8 fallegur,
9 skólagangan, 10 nöld-
ur, 11 horaðar, 13 vesæl-
ar, 15 sterts, 18 karldýr,
21 stök, 22 dökk, 23 kján-
um, 24 ómerkilegt.
LÓÐRÉTT
2 bleytukrap, 3 hreinar,
4 spilla umhverfi, 5 gufu-
sjóðum, 6 mjög, 7 fugl,
12 kraftur, 14 dveljast,
15 ský, 16 mjó, 17 létu,
18 stólkoll, 19 geðsleg,
20 lofa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 slaga, 4 fullt, 7 afrit, 8 niðra, 9 inn, 11 gekk,
13 Erna, 14 ertur, 15 spor, 17 roks, 20 arg, 22 kokks,
23 urðar, 24 senna, 25 lynda.
Lóðrétt: 1 slang, 2 afrak, 3 atti, 4 fönn, 5 lýður, 6 tjara,
10 notar, 12 ker, 13 err, 15 sekks, 16 orkan, 18 orðan,
19 syrpa, 20 asna, 21 gull.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Víkverji skrifar...
Víkverji er mikið á ferðinni í bif-reið sinni flesta daga vikunnar.
Á þeim stundum er útvarpið nánast
alltaf opið og er þá stillt á Rás 2,
Bylgjuna eða Skonrokk eftir því
hvaða þáttur heillar Víkverja þá
stundina. Eitt innslag fær þó Vík-
verja ávallt til þess að skipta um rás
en það er Umferðarstofan, áður út-
varp Umferðarráðs.
x x x
Hvaða tilgangi þjónar það að þyljaupp hvaða vegir landsins eru
færir þegar aldrei er snjóföl á veg-
um landsins, auk tilmæla um að nota
stefnuljós og bílbelti?
Tvíverknaður og bruðl með al-
mannafé er það sem kemur upp í
hugann því að flest það sem kemur
fram í þessum innslögum hefur áður
komið fram í fréttum flestra ljós-
vakamiðla.
x x x
Framsetningin á þessum inn-slögum fær Víkverja til þess að
stíga eldsneytisgjöfina í botn,
slökkva á ljósunum, losa um bílbeltið
og leyfa börnunum að leika sér í far-
angursrýminu á skutbílnum.
Víkverji hefur undanfarnar vikur
verið tíður gestur í íþróttamann-
virkjum í heimabæ sínum þar sem
baráttan við velmegun og aukna
þyngd hefur staðið yfir. Baráttan
hefur gengið vel en það sem hefur
vakið athygli Víkverja er hve vel
starfsfólk sundlaugarinnar og
heilsuræktarinnar stendur sig í að
halda staðnum þrifalegum og aðlað-
andi. Víkverji bjó um skeið erlendis
þar sem hann var einnig tíður gestur
í slíkum mannvirkjum og satt best
að segja voru þeir staðir lítt aðlað-
andi og starfsfólkið á þeim var lítið
að spá í að gera veru viðskiptavina
sinna eftirminnilega.
Sundlaugar á Íslandi
eru að mati Víkverja í sér-
flokki á heimsvísu.
x x x
Víkverji uppgötvaði ekkihve mikil lífsgæði fel-
ast í íslenskum sundlaug-
um fyrr en hann kynntist
sundlaugamenningunni
sem ríkir í flestum öðrum
Evrópuríkjum. Kaldir
klórpollar fullir af líkams-
hárum er það sem lifir í
minningunni frá sundstöðum sem
Víkverji heimsótti sem námsmaður í
einu Norðurlandanna. Það var ekki
fyrr en heim til Íslands var komið á
ný að Víkverji gerði sér grein fyrir
því hve góðar sundlaugarnar á Ís-
landi eru.
x x x
Að vísu eru heitu pottarnir þaðeina sem Víkverji notar í heim-
sóknum á sundstaði, stöku renni-
braut er einnig skoðuð og prófuð.
Það skiptir ekki máli hvort laugin sé
12,5 m, 25 m, eða 50 m löng. Það
skiptir mestu máli að vatnið sé heitt
og notalegt.
Morgunblaðið/Þorkell