Morgunblaðið - 02.05.2004, Qupperneq 55
FRÉTTIR/ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 55
Pera vikunnar: Í dag er Árni 8 árum eldri en Stína. Eftir fjögur ár verður
hann tvöfalt það sem hún var í fyrra.
Hver er samanlagður aldur þeirra í dag ?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er á hádegi föstudag-
inn 7. maí. Ný þraut birtist sama dag kl. 16:00 ásamt
lausn þessarar og nöfnum vinningshafanna.
Svör þarf að senda á netinu. Slóðin er: www.digranesskoli.kopavogur.is Þrenn
verðlaun eru veitt og eru þau tilgreind þar.
Svar síðustu þrautar (23.– 30. apríl) er: 75°
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
vornámskeið Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins
Háskólabíói 13. og 14. maí 2004
Meðal annars verður fjallað um :
• Erfðafræði og orsakagreiningar
• Aðferðir til greiningar á þroskaröskunum
• Lyfjameðferð
• Meðferð og þjálfun
• Þjónustu
• Rannsóknir
Nýjungar á
sviði þroskaraskana
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna
með börnum með þroskafrávik og
fatlanir, svo sem á heilbrigðis- og
menntastofnunum, í félagsþjónustu og
þeim sem áhuga hafa.
Dagskrá og rafræn skráning er á
www.greining.is
Upplýsingar og skráning einnig
í síma 510 8400
Skráningu lýkur 6. maí
Fasteignamiðlun
Hafnarfjarðar ehf.
Sími 517 9500
SUÐURSALIR 5 - OPIÐ HÚS
Fallegt 267 fm parhús með innbyggðum
30 fm bílskúr í Kópavogi. Húsið er ekki
fullfrágengið. 4 svefnherbergi, góð
stofa, mjög stórt eldhús og borðstofa.
15 fm svalir og góður garður. Eign á
frábærum stað.
Uppl. veitir Geir s. 820 9500
Verð 25,9 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG MILLI KL. 14-16
Viggó Jörgensson
Lögg. fasteignasali
HIN árlega Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauð-
árkróks var nú haldin í ellefta sinn á föstudags-
kvöldi við lok Sæluviku. Að vanda var húsfyllir
og skemmtu gestir sér hið besta enda samdóma
álit að sjaldan hefði verið úr jafn mörgum ágæt-
um lögum að velja.
Af fjörutíu lögum sem bárust í keppnina voru
valin tíu lög til keppni í úrslitum. Hljómsveit
keppninnar var Spútnik, en hana skipuðu Ing-
ólfur Sigurðsson, Kristinn Einarsson, Kristinn
Kristjánsson og Pétur V. Pétursson. Kynnar á
úrslitakvöldinu voru þeir Áskell Heiðar Ás-
geirsson og Magni Ásgeirsson.
Eftir að öll úrslitalögin höfðu verið flutt,
greiddu gestir í sal atkvæði, en vægi þeirra at-
kvæða var 40% á móti 60% vægi dómnefndar.
Meðan dómnefnd sat að störfum og atkvæði tal-
in skemmtu nemendur úr Árskóla á Sauðár-
króki og fluttu lög úr uppfærslu sinni á Jesú
Kristi Súperstjörnu, en einnig sýndi dansparið
Sigríður Hjálmarsdóttir og Logi Vígþórsson
nokkra dansa. Fjöllistamaðurinn Óskar Jóns-
son, Skari skrípó, sem vera átti meðal skemmti-
krafta á kvöldinu mætti hins vegar ekki til
leiks.
Þegar dómnefnd hafði lokið störfum voru nið-
urstöður kynntar. Besti flytjandinn var valin
söngkonan Helga Möller, en hún flutti eigið lag
við texta Jóhanns Ágústssonar.
Sigurlagið að þessu sinni kom frá Reykjavík
og heitir Sumar í hjarta, lag og texti eftir Bryn-
dísi Sunnu Valdimarsdóttur, sem söng bakradd-
ir með Cecilíu Magnúsdóttur, en flytjandi lags-
ins var Aðalheiður Ólafsdóttir. Aðalverðlaun
voru farsími, bækur, eitt hundrað þúsund krón-
ur og fimmtíu tímar í hljóðveri.
Í öðru sæti var lagið Vor eftir Sigurpál Aðal-
steinsson við texta eftir Magnús Þór Sigmunds-
son, og var lagið flutt af Sigrúnu Evu Ármanns-
dóttur, og í þriðja sæti var lagið Hve gott er að
lifa, lag eftir Pál Friðriksson við texta Haraldar
Smára Haraldssonar og var lagið flutt af Ellert
Heiðari Jóhannssyni.
Lovísa Símonardóttir, formaður kvenfélags-
ins, sagði að alltaf væri jafngaman að standa að
þessari keppni, og þó að meirhluti laganna
kæmi af Norðurlandi væri alltaf að fjölga lögum
sem kæmu úr öðrum landshlutum enda þetta
eina keppnin á landinu sem allir gætu tekið þátt
í. Lovísa sagði að aðsóknin sýndi að Dægurlaga-
keppnin væri ein besta kynningin á Skagafirði
sem hugsast gæti og gestir á þessu kvöldi væru
margir komnir um langan veg. Hins vegar sagði
Lovísa að félagið væri nú komið í þá stöðu að
þurfa ekki að borga með keppninni, en gróði
væri ekki farinn að sýna sig enn.
Bryndís Sunna, sigurvegari kvöldsins, var að
vonum ánægð með sinn hlut. Hún sagði það
ánægjulegt að komast í úrslit, þar sem öll lögin
hefðu verið hvert öðru betra, og hvað þá að
hljóta sigur. Bryndís er dóttir Valdimars J. Auð-
unssonar, þekkts tónlistarmanns frá árum áður,
og sagðist ekki áður hafa tekið þátt í keppni
eins og þessari, en hún hefði áður átt texta við
lög annarra. Hún dáðist mjög að öllum aðbúnaði
og umgjörð keppninnar sem hún sagði glæsi-
lega og sagðist varla láta hér staðar numið.
Sigurvegarinn með „Sumar í hjarta“
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sumar í lok Sæluviku á Sauðárkróki: Aðalheiður Ólafsdóttir flytur sigurlagið, en höfundurinn, Bryn-
dís Sunna Valdimarsdóttir, söng bakraddir með Cecilíu Magnúsdóttur.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Hringsurinn s. 543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbr. s. 543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunar, Fossvogi s. 543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica,
lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 9–23.30
um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf allan
sólarhringinn um helgar og frídaga. Uppl. í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl.
10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið a.d. ársins kl. 8–24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið a.d. ársins kl. 8–24. S. 564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Rvk. er starfrækt allan
sólarhringinn um helgar. S. 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430, til-
kynningum um bilanir og liðsinnir utan skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
HVALASKOÐUNARSAMTÖK Ís-
lands hafa lýst yfir þungum áhyggj-
um af því að ferðamönnum í hvala-
skoðunarferðum nú í vor til
Húsavíkur og að Mývatni hefur farið
fækkandi. Þeir sendu þingmönnum
Norðausturkjördæmis erindi þar um
en þeir funduðu á Akureyri nýverið.
Fram kemur í erindi Hvalaskoð-
unarsamtaka Íslands að undanfarin
8 ár hafi Hótel Reynihlíð, Hótel
Húsavík, Norðursigling og Hvala-
miðstöðin á Húsavík unnið að mark-
aðssetningu á því sem kallað er
„Whales, Ice and Fire“-ferðum til
Norðausturlands í samvinnu við
breska ferðaskrifstofu, „Discover
The World“ með góðum árangri.
„Nú bregður hins vegar svo við að
stórfækkun hefur orðið á bókunum í
þessar vorferðir og haustferðirnar
líta ekki vel út,“ segir í bréfi samtak-
anna til þingmanna kjördæmisins.
Fram kemur að hóparnir hafi að
meðaltali gist 3–5 nætur á svæðinu
með tilheyrandi ferðalögum til Ak-
ureyrar, Mývatnssveitar og Húsa-
víkur. „Þetta eru því mjög verðmæt-
ir gestir fyrir svæðið, ekki síst vegna
þess að þeir eru að koma hingað utan
háannar, þ.e. í maí og september.“
Síðastliðið vor komu hátt í tvö
hundruð hvalaskoðunarferðamenn í
þessum tilgangi, en sem fyrr segir
lítur út fyrir stórfækkun nú í vor.
Hvalaskoðunarsamtökin hafa eftir
forráðamönnum bresku ferðaskrif-
stofunnar að hvalveiðar Íslendinga
hafi þar einkum áhrif. „Þessir ferða-
menn koma til landsins einungis í
þeim tilgangi að skoða hvali og eru
því sérstaklega áhugasamir um hvali
og velferð þeirra. Því er líklegt að
þessi hópur komi síður til Íslands
eftir að hvalveiðar hófust,“ segir í
bréfi samtakanna. Bent er á að hótel,
veitingastaðir, rútufyrirtæki og
ýmsir birgjar sem og Flugfélag Ís-
lands og Flugleiðir verði einnig fyrir
tjóni vegna afbókana.
Afbókanir í hvalaskoðunarferðir í vor
Telja hvalveiðar
hafa áhrif