Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 64

Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. NÁMSBRAUT fyrir flugfreyjur og flug- þjóna verður hleypt af stokkunum við Ferðamálaskóla Íslands frá og með næsta hausti. Að sögn Sigríðar Þrúðar Stefáns- dóttur, fagstjóra Ferðamálaskólans, hefur undirbúning- ur námsins staðið um alllangt skeið og er það skipulagt í samstarfi við flug- félögin á Íslandi. Því er ætlað að gefa fólki sem hyggst sækja um starf sem flugþjónn eða flug- freyja góðan undir- búning fyrir starfið. Sigríður segir að flugfélögin hafi fram að þessu séð um þjálfun síns starfsfólks og muni halda því áfram. Nám í Ferðmála- skólanum miði fyrst og fremst að því að bjóða upp á grunnþjálf- un. Í tengslum við námsbrautina muni starfa ráðgjafanefnd sem í sitja fulltrúar flugfélaganna og hefur þann starfa að velja umsækjendur og endurskoða námsefnið reglulega. Námið sem um ræðir er 14 vikur, opið 21 árs og eldri og verða mest 30 nemendur teknir inn á hverri önn. Ný náms- braut fyrir flugfreyjur og -þjóna  Lært að/8 Flugfreyju- og flug- þjónastarfið er drauma- starf margra og yfir því hvílir svolítill æv- intýrablær. VEIÐI hófst í Elliðavatn í gærmorgun. Björn Ingi Stefánsson á Kríu- nesi sagði að þeir fyrstu hefðu komið strax klukkan sjö um morguninn. „Það eru hinir trúföstu og tryggu.“ Nokkuð kalt var í veðri en Björn segir það ekki stoppa þá áhugasömustu þó ekki hafi verið margt um manninn. „Það eru nokkrir sem koma hingað ár eftir ár þegar opnað er fyrir veiði í vatnið og hafa gert í 19–20 ár.“ Allt útlit er fyrir góða veiði í Elliðavatni í sumar að sögn Björns. Nokkuð vandasamt sé að veiða í vatninu fyrir þá sem ekki þekkja til. Morgunblaðið/Jim Smart Hinir trúföstu og tryggu mættu snemma GRÍÐARLEG ásókn er í lóðir undir sumarhús í uppsveitum Ár- nessýslu. Sveitarfélögin fjögur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamanna- hreppur og Skeiða- og Gnúpverja- hreppur, hafa undanfarið auglýst breytingar á deiliskipulagi jarða þar sem m.a. er verið að breyta landbúnaðarsvæðum í frístunda- byggð. Hilmar Einarsson, bygginga- fulltrúi í uppsveitum Árnessýslu, sagði að um síðustu áramót hefðu verið skráð 3.703 sumarhús á svæðinu og á síðasta ári var sótt þar um 196 lóðir undir sumarhús. Hann sagði að undanfarin ár hefði verið sótt að meðaltali um 120–130 slíkar lóðir. „Það gengur vel að uppfylla óskir fólks, það er nóg til af lóðum enda alltaf verið að skipuleggja,“ sagði Hilmar. Hann sagði að einnig væri tölu- vert um umsóknir um íbúðabygg- ingar á svæðinu. „Það komu hing- að inn 500 mál á síðasta ári, m.a. var sótt um 48 íbúðir á síðasta ári, þar af 36 íbúðir í Bláskógabyggð og 10 íbúðir í Hrunamannahreppi. Einnig komu 118 óskir um breyt- ingar á sumarhúsum en mun minna er um nýbyggingar eða breytingar á útihúsum.“ Hilmar sagði að töluvert vantaði upp á að nýting sumarhúsanna væri nógu góð. „Þetta eru helg- arbústaðir en nýtingin í miðri viku er lítil. Það er því eins og keyra niður Laugaveginn að fara um Grímsnesið á föstudagskvöldum og svo aftur á sunnudögum. Þess vegna vantar okkur Gjábakkaveg- inn og þá leið 12,“ sagði Hilmar. Mikill munur á samfélaginu austan og vestan Hvítár Arinbjörn Vilhjálmsson, skipu- lagsfulltrúi í uppsveitum Árnes- sýslu, sagði að aðallega væri verið að auglýsa aðalskipulagsbreyting- ar í Grímnes- og Grafningshreppi en að verið að væri að vinna að málum annars staðar. „Vestan Hvítár er mikil ásókn í sumarbú- staðalönd og fyrst og fremst þar eru landbúnaðarsvæði að breytast í frístundasvæði. Þessar miklu breytingar eru um garð gengnar og það er því mikill munur á sam- félögunum vestan Hvítár eða aust- an, þar sem menn eru meira í landbúnaðinum. Þetta er þróun sem er búin að vera í gangi og ekkert lát er á.“ Arinbjörn sagði að þegar Gjá- bakkavegur yrði kominn sem heilsársvegur mundu forsendur til heilsársbúsetu, t.d. á Laugarvatni og víðar, breytast mikið. „Þá verð- ur ekki nema 45 mínútna akstur til höfuðborgarsvæðisins og erlendis þykir það ekki mikið. Með þessum samgöngubótum, sem eru að verða, er sveitin að færast nær Reykjavík og það munar um hvern kílómetra. Eigendur fasteigna á þessum svæði eru mjög margir og fyrir mörgum þeirra er sumarbú- staðurinn meira hjartans mál en íbúðin í Reykjavík. Og með aukn- um afþreyingarmöguleikum er hægt að bjóða upp á raunveruleg- an búsetukost,“ sagði Arinbjörn. Skipulagsbreytingar víða auglýstar í uppsveitum Árnessýslu Stöðug spurn eftir landi undir sumarhús ERNA Ómarsdóttir dansari mun semja dansverk fyrir Íslenska dansflokkinn sem frumsýnt verður á næsta starfsári flokksins. Erna er ein skærasta stjarna Evrópu í nú- tímadansi og hefur tvívegis verið valin besti evrópski nútímadans- arinn af útbreiddasta danstímariti Evrópu, Ballet International. Hún hefur á undanförnum árum starfað með ýmsum af þekktari dans- hópum Evrópu og getið sér gott orð fyrir afar sérstakan stíl, jafnt sem dansari og danshöfundur. „Um er að ræða stórt evrópskt verkefni sem ber heitið Trans Dans Europe 2003–2006,“ segir Ása Richardsdóttir, fram- kvæmdastjóri dansflokksins. „Þetta er samstarf 8 þjóða, Íslands, Danmerkur, Finn- lands, Slóveníu, Belgíu, Tékk- lands, Póllands og Frakklands. Fimm þessara þjóða tóku þátt í samstarfi á menningarborg- arárinu 2000 og var ákveðið að endurnýja samstarfið og bjóða þremur öðrum til liðs við verk- efnið. Það hlaut þriggja ára styrk frá Evrópusambandinu sum- arið 2003. Verkefnið er marg- þætt og felur í sér samstarf listamanna frá ofangreindum þjóðum og ýmiss konar samruna listgreina. Eitt verk verður samið í hverju landi, það verð- ur að hluta unnið og búið til í öðru landi, frum- sýnt í heimalandinu og síðan mun hver dans- flokkur ferðast með verkið til heimaborga allra samstarfsaðila. Íslenski dansflokkurinn mun starfa með Slóvenum og hefur ákveðið að bjóða Ernu Óm- arsdóttur að semja verkið auk þess sem hún mun taka þátt í uppfærslunni sem dansari. Erna mun starfa með slóvenska leikstjór- anum Emil Hrvatin en auk þeirra munu slóv- enskir, íslenskir og belgískir listamenn taka þátt. Vinnan hefst í Slóveníu í ágúst næstkomandi og verkið verður frumsýnt í Reykjavík á næsta leikári dansflokksins.“ Semur fyrir Íslenska dansflokkinn Erna Ómarsdóttir ÞRÓA þarf ný bóluefni gegn bakt- eríusjúkdómum sem herja á þorsk. Þetta segir Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir líf- fræðingur í erindi á Vísindadegi á Keld- um. Hún hefur, ásamt Bryndísi Björns- dóttur, Bergljótu Magnadóttur og Sigríði Guðmundsdóttur, gert tilraunir með að bólusetja þorsk og kanna næmi hans fyr- ir þeim bakteríusjúkdómum sem hafa valdið hvað mestum skaða í íslensku lax- eldi. „Nær öll bóluefni sem til eru á mark- aði hafa verið þróuð fyrir lax. Við not- uðum bóluefni úr laxeldi til að bólusetja þorsk gegn þremur sjúkdómum; kýla- veikibróður, roðsárum og vibríuveiki. Í ljós kom að bóluefnið veitti bara vörn gegn vibríusýkingu en ekki gegn hinum. Þetta segir okkur að við verðum að þróa ný bóluefni sérstaklega fyrir þorsk,“ seg- ir Bjarnheiður og bætir við að niðurstöð- urnar sýni fram á hversu ólíkt ónæmis- kerfi fiska er. Morgunblaðið/Alfons Bóluefni gegn bakteríusjúkdómum í laxi duga ekki gegn sömu sjúkdómum í þorski. Þróa þarf ný bóluefni fyrir þorsk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.