Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kom, sá og sigraði forsetaembættið. Norrænt þing um lækningahúmor Hlátur hefur heilsubætandi áhrif Norrænt þing umlækningahúmorverður haldið í Reykjavík dagana 9.-12. júní n.k. Fyrirlestrar og vinnufundir verða haldnir í Hringsal við Barnaspít- ala Hringsins, Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut, en á þinginu mun fjöldi inn- lendra sem erlendra fyr- irlesara flytja erindi. Þingið er ætlað heilbrigð- isstarfsfólki en er öllum opið. Skráning fer fram hjá Helgu Láru Guð- mundsdóttur, ráðstefnu- deild Ferðaskrifstofu Ís- lands, en Helga Lára veitir nánari upplýsingar og sér um skráningu í síma 585 4371. – Hvað eru Norræn samtök um lækningahúmor? „Norræn samtök um lækninga- húmor urðu til út frá hugmynd sem kviknaði á Íslandi árið 1997. Ári síðar tóku Norðmenn við sér og boðuðu til fundar sem var að- dragandi að stofnun samtakanna í janúar 1999. Norræn samtök um lækningahúmor er hópur lækna sem hefur áhuga á að nota kímni innan heilbrigðiskerfisins til þess að laða fram leikandi og læknandi krafta lífsgleðinnar, líkt og fram kemur í lögum félags- ins.“ – Hvað felst í lækningahúmor? „Það sem við erum að reyna að gera er að breiða út ákveðinn boðskap og á þessu þingi erum við að reyna að höfða einnig til annarra heilbrigðisstétta en lækna. Lækningahúmor er nefnilega ekkert einkamál lækna. Eins vilj- um við vekja athygli almennings á því að lækningahúmor er nokk- uð sem leyfilegt er að hugsa um í samtali við lækna eða inni á heil- brigðisstofnunum. Við finnum nefnilega öll sem störfum í þess- um geira að húmor léttir öllum erfiðar stundir þegar hægt er að koma honum við. Þetta þýðir þó ekki að maður sé stöðugt að segja brandara eða að fíflast, heldur frekar að njóta eigi þeirra ótal augnablika sem gefast í sam- skiptum heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga.“ – Þannig að lækningahúmor á við jafnt á milli á starfsfélaga og milli starfsfólksins og sjúklinga? „Hann á við í báðum tilfellum og maður finnur það sérstaklega þegar maður hefur unnið árum saman með ákveðinn sjúklinga- hóp og er farinn að þekkja fólkið mjög vel. Þetta er líka eitthvað það notalegasta sem til er í sam- skiptum fólks og það er ekki svo sjaldan sem sjúklingar opna á einhverju spaugilegu og gefa læknum og öðru heilbrigðis- starfsfólki þannig í skyn að það sé í lagi að vera líka á léttu nót- unum.“ – Hefur lækningahúmor bara bætandi áhrif í tengslum við mannleg samskipti eða felst í honum raunverulegur lækningamáttur? „Hvoru tveggja má svara játandi. Það hef- ur sýnt sig að það er fátt sem virkar jafn vel og húmor í samskiptum fólks. Það líður yfirleitt öllum vel sem geta glaðst og hlegið. Svo hafa rannsóknir hins vegar líka bent til þess að hlátur hafi heilsubæt- andi áhrif. Frægust er sennilega sagan af Bandaríkjamanninum Norman Cousins sem fékk bólgu- sjúkdóm um miðja síðustu öld og var í kjölfarið lagður inn á sjúkrahús. Cousins ákvað hins vegar, gegn vilja lækna, að út- skrifa sig, en hann hafði veikst undir mjög erfiðum kringum- stæðum og áleit sem svo að ef eitthvað svo neikvætt ylli veik- indunum þá ætti eitthvað jákvætt að geta haft andstæð áhrif. Hann fékk sig útskrifaðan og viðaði svo að sér skemmtiefni. Síðar skrifaði Cousins svo grein um reynslu sína í New England Journal of Medicine sem vakti mikla athygli, en hann var fyrsti leikmaðurinn sem fékk grein birta í því blaði. Talið er að hlátur og létt lund örvi m.a. ónæmiskerfið til varnar gegn sjúkdómum og kvillum.“ – Hvað verður í boði á þinginu? „Þingið sem nú er haldið, er þriðja norræna þingið um lækn- ingahúmor og að þessu sinni er markið sett hátt og við fáum heimsfræga fyrirlesara til liðs við okkur, sem og mjög áheyrilegt fólk bæði frá Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Nefna má Kanadamanninn Rod A. Martin sem er mjög eft- irsóttur fyrirlesari, en Martin er mikill fræðimaður og hefur skrif- að fjölda bóka og greina um tengsl húmors og áhrif hans á streitu og heilsu. Martin verður með tvo fyrirlestra sem annars vegar fjalla um áhrif húmors á heilsuna og hins vegar jákvæð og neikvæð áhrif húmors og þess sem þar skilur á milli. Dr. Madan Kataria frá Bombay á Indlandi, heimilislæknir og stofnandi svo nefndra hlátursklúbba sem starf- andi eru víða um heim, mun þá einnig flytja þrjú erindi, og eins mun Óttar Guðmundsson geð- læknir flytja erindi um um hvernig söguhetjur Íslendingasagna mættu örlögum sínum með glampa í augum. Fjöldi annarra fyrir- lesara tekur þá einnig til máls og má þar nefna Svíann Mats Falk, Pétur Lúðvígsson barnalækni, Hildi Helgadóttur hjúkrunarfor- stjóra sem fjallar um áhrif húm- ors á hjúkrun, Braga Skúlason sjúkrahússprest, norska bæklun- arlækninn Stein Tyrdal og Önnu Pálínu Árnadóttur sem ræða mun um málin frá sjónarhóli leik- manns.“ Bjarni Jónasson  Bjarni Jónasson er fæddur 1949 og Hafnfirðingur í húð og ár. Hann lauk námi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1976 og framhaldsnámi í heimilislækn- ingum í Västerås í Svíþjóð árið 1983. Frá þeim tíma hefur Bjarni starfað sem heimilslæknir við Heilsugæsluna í Garðabæ. Hann er einnig formaður Hins íslenska félags um lækningahúmor. Bjarni er kvæntur Önnu S. Guð- mundsdóttur meinatækni og þau eiga fjögur börn. Húmor léttir öllum erfiðar stundir TUTTUGU fræðsluskilti um sögu byggðar í Viðey voru afhjúpuð á laugardaginn að viðstöddum um hundrað gestum. Skiltin eru við grunna og rústir gömlu húsanna í þorpinu og má þar finna ýmsar upplýsingar um húsin og gamla íbúa, að sögn Örvars Birkis Eiríkssonar, verkefn- isstjóra Viðeyjar. Búið var í þorpinu frá 1907 til 1943 og bjuggu um 140 íbúar í þorpinu þegar mest var en hið svo- kallaða Milljónafélag reisti þorpið og rak útgerð á staðn- um. Uppsetning skiltanna er samstarfsverkefni Árbæj- arsafns og Umhverfis- og heilbrigðisstofu auk þess sem Menningarborgarsjóður styrkir verkefnið. Á laugardaginn var jafnframt opnuð ljósmyndasýning um gamla þorpið í skólahúsinu í Viðey með um sjötíu ljósmyndum. 198 skipverjum bjargað af tundurspilli Seinna um daginn var þess minnst í félagsheimili Við- eyingafélagsins að í ár eru liðin 60 ár frá því að skipverj- um kanadíska tundurspillisins Skeena var bjargað við Viðey. Örvar segir að tundurspillirinn hafi strandað í vondu veðri í októbermánuði árið 1944 og sent út neyð- arkall. „Einar Sigurðsson var þaulkunnugur staðháttum og hann fór á pramma ásamt hópi manna til að stýra björgunaraðgerðum á staðnum. Skipverjar náðu að skjóta línu í land og koma sér þannig í land með hjálp björgunarmanna. Alls björguðust 198 skipverjar á þenn- an hátt en skipverjar voru í talsverðri hættu því skipið var fullt af sprengiefnum og fékk á sig mikla öldu og slóst utan í klettana. Fimmtán skipverjar létust fyrr um nóttina er þeir reyndu að komast af sjálfsdáðum í land,“ segir Örvar. Einar Sigurðsson var sæmdur heiðursorðu breska heimsveldisins fyrir björgunarafrekið. Barnabarn Ein- ars, Sigrún Guðbjartsdóttir, hélt stutta ræðu á minning- arathöfinni og ræddi um afa sinn, einkum út frá því sem amma hennar hefur sagt henni. Örvar segir að afkom- endur skipverjanna sem létust í Viðey fyrir 60 árum stefni að því að koma til landsins í haust. Tuttugu fræðsluskilti um sögu byggðar í Viðey afhjúpuð 60 ár liðin frá björgunarafreki Morgunblaðið/Ómar Fræðsluskilti með upplýsingum um sögu Viðeyjar, gömul hús og íbúa voru afhjúpuð á laugardaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.