Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„FYRST maður átti möguleika á að
ná þessum stóra áfanga þá var ekki
um annað að ræða en að gera það,
og það er gaman að vera búinn að
því. Leikirnir hafa tínst til smám
saman og eru víst orðnir þetta
margir,“ sagði Birkir Kristinsson,
markvörður og fyrirliði ÍBV, sem
frá og með leiknum gegn FH í gær-
kvöldi er markahæsti leikmaður
efstu deildar hér á landi frá upp-
hafi. Hann lék sinn 295. leik í deild-
inni og sló met Gunnars Oddssonar.
Birkir verður fertugur í ágúst en
er ekki með neinar vangaveltur um
hvenær hanskarnir verði lagðir á
hilluna. „Nei, ég er hættur að gefa
einhverjar yfirlýsingar um slíkt. Ég
tek þetta leik fyrir leik, og á meðan
hlutirnir ganga ágætlega fyrir sig,
þá held ég þessu áfram og einbeiti
mér bara að næsta verkefni sem
blasir við,“ sagði Birkir við Morg-
unblaðið.
Birkir lék fyrst í efstu deild sum-
arið 1984, þá með KA. Áður hafði
hann verið varamarkvörður ÍBV og
síðan leikið með Einherja í næst-
efstu deild eitt ár. Hann meiddist
illa í öðrum leik sínum með KA og
spilaði ekki meira það árið. En frá
1985 hefur Birkir leikið hvern ein-
asta deildaleik með sínum liðum
hér á landi, aldrei misst úr leik, og
aldrei fengið gult eða rautt spjald.
Hann lék 54 leiki á þremur árum
með ÍA og 144 leiki á átta árum
með Fram. Síðan lék hann erlendis
í nokkur ár en hefur nú spilað 95
leiki með ÍBV og er þar á sínu sjötta
tímabili. Samtals lék Birkir 43
deildaleiki erlendis og 18 í næst-
efstu deild svo deildaleikir hans eru
samtals orðnir 356 talsins.
Birkir leikjahæstur og
ætlar alls ekki að hætta
Morgunblaðið/Eggert
Birkir Kristjánsson skipar fyrir í leiknum í gær við FH.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Fram - Fylkir............................................ 1:1
Andri Fannar Ottósson 62. - Ólafur Stígs-
son 43.
FH - ÍBV.................................................... 2:1
Tommy Nielsen 7. (víti), Guðmundur Sæv-
arsson 80. - Einar Þór Daníelsson 35.
Keflavík - Víkingur ................................. 1:0
Þórarinn Kristjánsson 71.
KA - Grindavík...............................................
Atli Sveinn Þórarinsson 62. - Grétar Hjart-
arson 6.
Staðan:
Fylkir 5 3 2 0 7:2 11
Keflavík 5 3 1 1 7:5 10
ÍA 4 2 2 0 5:2 8
FH 5 2 2 1 5:4 8
ÍBV 5 1 3 1 6:6 6
Grindavík 5 1 3 1 5:6 6
Fram 5 1 2 2 7:7 5
KR 4 1 1 2 5:7 4
KA 5 1 1 3 4:6 4
Víkingur R. 5 0 1 4 2:8 1
Markahæstir:
Grétar Ó. Hjartarson, Grindavík ............... 4
Atli Sveinn Þórarinsson, KA ...................... 3
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 3
Andri Fannar Ottósson, Fram................... 2
Arnar Gunnlaugsson, KR........................... 2
Björgólfur Takefusa, Fylkir....................... 2
Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV................... 2
Ríkharður Daðason, Fram ......................... 2
Sævar Þór Gíslason, Fylkir ........................ 2
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylkir................. 2
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram ..... 2
1. deild kvenna B
ÍA - Þróttur R. .......................................... 4:2
Noregur
Lilleström - Stabæk ................................. 3:0
KNATTSPYRNA:
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR – ÍBV .................................20
1. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Þór...............................20
Húsavíkurvöllur: Völsungur – Valur........20
Njarðvíkurvöllur: Njarðvík – HK.............20
Valbjarnarvöllur: Þróttur R. – Fjölnir.....20
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Stjarnan....20
2. deild karla:
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Afturelding...20
Selfossvöllur: Selfoss – Víðir.....................20
Sauðárkróksvöllur: Tindastóll – KFS ......20
Dalvíkurvöllur: Leiftur/Dalvík – KS ........20
Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó. – ÍR...........20
3. deild karla:
Gervigrasv. Laugardal: Afríka – Grótta ..20
Þorlákshafnarvöllur: Ægir – Reynir S.....20
Vilhjálmsvöllur: Höttur – Fjarðabyggð...20
Fáskrúðsfj.völlur: Leiknir F. – Sindri .....20
1. deild kvenna:
Bessastaðavöllur: UMF Bess. – Keflavík 20
Víkingsvöllur: HK/Víkingur – Ægir.........20
„JÁ, mér tókst að pota boltanum
í netið og var heppinn því hann
breytti stefnu af varnarmann-
inum. En ég átti alltaf að nýta
þetta færi, boltinn lá vel fyrir
mér og ég hitti hann vel með
vinstri,“ sagði Guðmundur Sæv-
arsson, bjargvættur FH-inga
gegn ÍBV í gærkvöldi.
„Við vorum óstyrkir og sýndum
ekki okkar besta. Eyjamenn
bökkuðu, manni færri, og það var
erfitt að brjóta þá niður. Við vor-
um meira með boltann en sköp-
uðum okkur ekki almennileg
færi. Það vantar einhvern takt í
sóknarleik okkar ennþá, en þetta
var í lagi fyrst við unnum og von-
andi kemur þetta í næstu leikjum.
Við urðum að vinna í kvöld, það
var hrein skylda, ef við ætluðum
okkur að komast í hóp 3–4 efstu
liða, eins og við stefndum að,“
sagði Guðmundur við Morg-
unblaðið.
Boltinn
lá vel
fyrir mér
Mark Guðmundar dugði til aðfleyta FH-ingum upp í efri
hluta deildarinnar en Eyjamenn
urðu hins vegar að
sætta sig við sinn
fyrsta ósigur á
tímabilinu. Þeir
virtust þó lengi vel
ætla að leika sama leik og gegn
KR á dögunum – jöfnuðu metin
manni færri og voru nálægt því að
gera það aftur undir lokin.
„Ég hélt að við myndum hafa
þetta af. Liðið sýndi mikinn styrk,
manni færri, en við þurfum að fara
að sýna það sama þegar við erum
ellefu á vellinum. Alveg eins og
gegn KR tókum við okkur saman í
andlitinu þegar við misstum mann
af velli. En þrátt fyrir tapið er ég
þokkalega sáttur við okkar leik,
mér líður miklu betur með þetta
lið en í fyrra, hópurinn er sterkari
og við getum gert góða hluti,“
sagði Birkir Kristinsson, mark-
vörður og fyrirliði ÍBV.
FH fékk vítaspyrnu í sinni
fyrstu alvöru sókn og Tommy
Nielsen skoraði úr henni, 1:0. Ian
Jeffs var rekinn af velli, öðru sinni
á tímabilinu, fyrir gróft brot á Jóni
Þorgrími Stefánssyni þegar hálf-
tími var liðinn, en Eyjamenn gáfu
þá í. Þeir eru með tvo magnaða
aukaspyrnusérfræðinga í sínu liði,
Bjarnólf Lárusson og Einar Þór
Daníelsson, sem þrumuðu fimm
sinnum á mark FH af 20–30 metra
færi, hittu alltaf á rammann, og
Einar Þór jafnaði á 35. mínútu úr
einni slíkri, 1:1. Mistækir varn-
armenn FH, sem sjaldan hafa ver-
ið eins óöruggir og í gærkvöld,
buðu líka hættunni heim með
mörgum klaufalegum brotum rétt
utan vítateigs. Lið hafa ekki efni á
slíku gegn ÍBV í sumar.
Eyjamenn voru betri aðilinn
þann stundarfjórðung fyrri hálf-
leiks sem þeir voru manni færri en
eftir hlé drógu þeir sig aftar á
völlinn, þéttu miðjuna og skildu
Gunnar Heiðar Þorvaldsson eftir
einan frammi. FH-ingar voru
meira með boltann en komust ekk-
ert áleiðis, og sköpuðu sér ekki
eitt einasta opið færi fyrr en Guð-
mundur brá sér í sóknina og
bjargaði málunum þegar allt
stefndi í óefni.
Það munaði síðan engu að
fimmta hættulega aukaspyrna ÍBV
skilaði liðinu öðru jöfnunarmarki,
fimm mínútum áður en flautað var
til leiksloka. Eftir þrumufleyg
Bjarnólfs, sem Daði Lárusson
varði naumlega, björguðu FH-ing-
ar tvívegis á marklínu áður en þeir
náðu að bægja hættunni frá.
Ef FH-ingar halda áfram að
bíða eftir því að Borgvardt komi
og bjargi sóknarleik þeirra, verða
þeir ekki ofarlega í sumar. Það er
allavega engan getumun að sjá á
þeim og Eyjamönnum, sem spáð
var barningi í neðri hluta deild-
arinnar. Miðað við þennan leik má
ekki á milli sjá hvort þeirra verður
ofar þegar upp verður staðið í
haust.
Morgunblaðið/Eggert
Tommy Nielsen og Eyjamaðurinn Atli Jóhannsson berjast um knöttinn á Kaplakrikavelli.
Bakvörðurinn
bjargaði bitlausri
FH-framlínu
BAKVÖRÐURINN Guðmundur Sævarsson kom bitlausri framlínu
FH-inga til bjargar í gærkvöld þegar hann skoraði sigurmark þeirra,
2:1, gegn tíu Eyjamönnum, tíu mínútum fyrir lok leiks liðanna í
Kaplakrika. Það var því með herkjum að Hafnfirðingarnir náðu að
herja út stigin þrjú, án þess að leika vel gegn liði ÍBV sem var manni
færra í heilan klukkutíma en var alltaf líklegt til að fljúga heim með
eitt eða jafnvel fleiri stig í farteskinu.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
Í KVÖLD
FH 2:1 ÍBV
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeild karla,
5. umferð
Kaplakriki
Mánudaginn 7. júní 2004
Aðstæður:
Milt veður, þurrt,
ágætur völlur
Áhorfendur: 1.143
Dómari:
Egill Már Markússon,
Grótta, 2
Aðstoðardómarar:
Einar Guðmundsson,
Sævar Jónsson
Skot á mark:20(10) -14(11)
Hornspyrnur: 4 - 4
Rangstöður: 3 - 1
Leikskipulag: 4-4-2
Daði Lárusson M
Guðmundur Sævarsson M
Sverrir Garðarsson
Tommy Nielsen
Freyr Bjarnason
Heimir Guðjónsson
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
(Emil Hallfreðsson 62.) M
Baldur Bett M
Jón Þorgrímur Stefánsson
Ármann Smári Björnsson
(Víðir Leifsson 70.)
Atli Viðar Björnsson M
Birkir Kristinsson M
Bjarni Geir Viðarsson
Tryggvi Bjarnason
(Andri Ólafsson 52.)
Matt Garner M
Mark Schulte
Ian Jeffs
Bjarnólfur Lárusson M
Einar Þór Daníelsson M
Atli Jóhannsson
(Jón Skaftason 77.)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson M
Magnús Már Lúðvíksson
(Bjarni Rúnar Einarsson 85.)
1:0 (7.) Atli Viðar Björnsson brunaði inn í vítateig ÍBV, vinstra megin, framhjá
Tryggva Bjarnasyni sem braut klaufalega á honum. Vítaspyrna rétti-
lega dæmd og úr henni skoraði Tommy Nielsen af miklu öryggi.
1:1 (35.) Freyr Bjarnason braut á Atla Jóhannssyni í vítaboga FH, um 18 metra
frá marki. Einar Þór Daníelsson tók aukaspyrnuna og skoraði með
föstu skoti, með jörðinni í hægra hornið.
2:1 (80.) Atli Viðar Björnsson skaut að marki ÍBV en Birkir Kristinsson varði.
Boltinn hrökk til Jóns Þorgríms Stefánssonar sem var í dauðafæri en
Bjarni Geir Viðarsson komst fyrir skotið. Boltinn hrökk út á vítateigsl-
ínu, Emil Hallfreðsson lagði hann snyrtilega fyrir fætur Guðmundar
Sævarssonar sem skoraði með viðstöðulausu skoti, boltinn breytti
stefnu af Andra Ólafssyni og lak í markhornið.
Gul spjöld: Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV (23.), fyrir brot Einar Þór Daníelsson, ÍBV (41.),
fyrir brot Tommy Nielsen, FH (42.), fyrir brot Heimir Guðjónsson, FH
(69.), fyrir mótmæli Bjarnólfur Lárusson, ÍBV (69.), hrinti mótherja Atli
Jóhannsson, ÍBV (71.), fyrir brot Baldur Bett, FH (73.), fyrir brot.
Rauð spjöld: Ian Jeffs, ÍBV (30.), fyrir brot.
SIGURÐUR Jónsson, þjálfari Vík-
ings og fyrrverandi atvinnu- og
landsliðsmaður í knattspyrnu, tók
fram skóna á föstudaginn. Hann lék
þá með 23-ára liði Víkings gegn
Skagamönnum á Íslandsmótinu.
Endurkoma Sigurðar var skamm-
vinn því hann meiddist illa í návígi
við einn leikmanna ÍA. Sigurður
staðfesti við Morgunblaðið í gær-
kvöld að sprunga væri í beini við
ökklann og því ljóst að hann spilar
ekki meira með lærisveinum sínum í
sumar.
Stutt endurkoma Sigurðar