Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 9 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Í sumarfríið Peysur, bolir, kjólar og buxur 25% afsláttur af öllum skóm Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 Þri. 1/6: Spínatlasagne Stjána bláa m. fersku salati, hrísgrjón- um og meðlæti. Mið. 2/6: Sætur baunapottur og kartöflubakstur m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Fim. 3/6: Chili sin carne og fylltar pönnukökur m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Fös. 4/6: Moussaka = girnilegur og grískur m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Helgin 5-6/6: Spínatkarrý og buff m. fersku salati, hrísgrjón- um og meðlæti. Matseðill www.graennkostur.is Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Ný sending frá Bankastræti 14, sími 552 1555 Fallegar sumarvörur í úrvali Úrval af sumarbuxum Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Ný sending af náttfötum og undirfötum Margar stærðir Gott verð 50% afsláttur af öllum meðgöngufötum Opið virka daga frá kl. 10–18 laugardag frá kl. 10–14 Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Sumar- fatnaður í úrvali Vorum að taka upp nýjar miniquevörur Glæsilegt úrval Stærðir 42-60 VEIÐI hófst í Blöndu á laugardag en veitt er á fjórar stangir. Fimm laxar veiddust á fyrstu tveimur vöktunum. „Sá minnsti var 12 pund og sá stærsti 20. Þetta er alvöru. Maður sér ekki stærri fiska en hér,“ sagði Stefán Sig- urðsson, sölustjóri hjá Lax-á, sem var einn veiðimannanna. Laxinn var mest að taka maðkinn en menn voru líka að hreyfa hann með Sunray Shadow-túp- um og Snældu. „Vatnið í Blöndu er ekki of mikið núna og mjög tært,“ sagði Stefán. „Laxinn er greinilega að ganga þessa dagana, maður bíður bara, horfir á vatnið þangað til næsti lax birtist og þá er kastað.“ Fiskarnir voru að taka neðst á Breiðunni, í Dammi og í Holunni. Það fréttist af göngum víðar, því allnokkuð hefur sést af laxi í Norðurá og annað hollið sem lauk veiðum þar í ár veiddi 15 laxa. Flestir eða 10 veidd- ust á fossasvæðinu, en einnig gáfu staðir eins og Stokkhylsbrotið og Berghylsbrotið fisk. Sjö tóku maðk- inn, annað eins Frances og einn féll fyrir hits- túpu. Silungsveiðin hefur víða verið góð upp á síð- kastið og ekki bara á þekktum stöðum. Það fréttist af tveimur fé- lögum sem gengu til fjalla í Dalasýslu nú um helgina, vopnaðir veiðistöng- um og fluguboxum. Þar eyddu þeir dagsparti við friðsælt fjallavatn sem „kraumaði af bleikju“ í blíðunni. Afl- inn var um 60 bleikjur, frekar smáar, en afar ljúffengar að sögn annars veiðimannsins. Morgunblaðið/Einar Falur Veiðimaður kastar flugu á Breiðuna í Norðurá. Annað holl sumarsins veiddi fimmtán laxa í ánni og veiddust flestir á fossasvæðinu. Góð byrjun í Blöndu ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur úrskurðað tvo menn á fertugs- aldri í gæsluvarðhald fyrir að hafa 1 kg af amfetamíni og nokkuð af hassi í fórum sínum. Annar var úrskurðað- ur í 3 vikna gæslu og hinn í viku. Málið komst upp fyrir tilviljun þegar lögreglumenn voru að sinna útkalli vegna ótengds máls í húsi í borginni. Hinir handteknu hafa kom- ið við sögu lögreglunnar áður að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlög- regluþjóns. Málið er í rannsókn lögreglunnar í Reykjavík, en þetta er annað fíkni- efnamálið á stuttum tíma þar sem lagt er hald á mikið magn amfeta- míns. Seint í maí var 1 kg af amfeta- míni og annað eins af kókaíni tekið af manni í Leifsstöð og situr hann í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins. Teknir með eitt kg af amfetamíni ÁGÆTAR horfur eru með bókanir á gististöðum í sumar, að sögn fram- kvæmdastjóra Sam- taka ferðaþjónust- unnar, Ernu Hauksdóttur, sem er ásamt starfsfólki sínu í góðu sam- bandi við eigendur hótela og gistiheim- ila um land allt. Á þetta einkum við um höfuðborgarsvæðið en Erna segir eitt- hvað hafa borið á af- bókunum á lands- byggðinni nú í júnímánuði. Eru hópar þá að afbóka sig en að sögn Ernu hefur þróunin orðið sú að fólk ferðast nú meira á eigin veg- um en áður og hópar ferðamanna því ekki eins algengir hótelgestir. Eru sérhópar þá undanskildir sem hingað koma af sérstöku tilefni, fyrirtækjaferð eða ráðstefnu. „Annars eru menn bara nokkuð bjartsýnir fyrir sumarið. Aukning það sem af er ári hefur verið ágæt, eins og nýjustu tölur Hag- stofunnar bera með sér. Við von- umst bara eftir enn meiri aukn- ingu,“ segir Erna og bendir á að komum erlendra ferðamanna til landsins fjölgaði um 15% fyrsta ársfjórðunginn og gistinóttum út- lendinga fjölgaði um 7,5%. „Sumarvertíðin er æði stutt víða á landsbyggðinni. Yfirleitt er full- ur kraftur ekki kominn í þetta fyrr en upp úr 20. júní,“ segir Erna. Hún segir herbergjanýtingu á hótelum í Reykjavík í maímánuði hafa verið heldur betri en í sama mánuði í fyrra, eða ríflega 70%. Nýtingin á landsbyggðinni var heldur verri, en endanlegur tölur um þetta liggja ekki fyrir hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Varðandi afbókanir hópa í júní- mánuði segir Erna að þróunin sjá- ist hvað best hjá bílaleigunum. Þangað snúi ferðamenn sér í aukn- um mæli þegar þeir skipuleggja ferðir sínar um landið. Þeir stoppi hins vegar styttra við ef þeir komi í skipulögðum hópum. Framboð á hótelherbergjum hafi aukist og því hafi nýtingin heldur staðið í stað. Morgunblaðið/Kristinn Ferðamenn ferðast meira á eigin vegum. Ágætar horfur með bókanir á gististöðum AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.