Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 17
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Íbúar Fljótsdalshéraðs eru með ýmislegt á sinni könnu um þessar mundir. Eitt af því er að kjósa á um sameiningu fjögurra sveit- arfélaga samhliða forsetakosningunum. Íbúar hafa fengið senda málefnaskrá og glugga nú í hana. Forsvarsmenn sveitarfé- laganna eru ekki á einu máli um gildi sam- einingar á þessum tímapunkti og íbúar auð- vitað með ýmsar skoðanir á málefninu. Verður því fróðlegt að sjá hvernig fer.    Annað á áðurnefndri könnu er Austurland 2004, atvinnu- og mannlífssýning sem hefst í bænum á fimmtudag. Um 130 fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir hafa munstrað sig til leiks og verða Egilsstaðir sjálfsagt með líflegasta móti þessa daga. Skemmti- legt hvernig Austlendingafjórðungur rís nú upp eins og fuglinn Fönix og ýfir fjaðrirnar með glæsibrag.    Bæjaryfirvöld á Austur-Héraði þýfga Kaupfélag Héraðsbúa um land til kaups. Er um að ræða land frá iðnaðarsvæði bæjarins í austri niður að Hringvegi í vestri. Lög- fræðistofa mat þetta land á 167 milljónir króna en bæjarráð taldi af og frá að sú upp- hæð gæti staðist. Er nú viðræðum fram haldið og deginum ljósara að bæinn vantar land til að mæta stækkun.    Á dögunum var opnuð ný viðbygging Hót- els Héraðs. Hótelið var stækkað um 24 her- bergi og 120 manna ráðstefnusal, en í eldri byggingu eru 36 herbergi, fundarsalir og 110 manna matsalur. Björn Kristleifsson arkitekt hannaði hótelið, en Guðbjörg Magnúsdóttir sá um hönnun innanhúss.    Burðarásar Óperustúdíós Austurlands, þau Keith Reed og Ásta Bryndís Schram, eru þessa dagana að pakka niður og flytja til Reykjavíkur og alls óljóst um framhald á starfsemi Óperustúdíósins, sem flutti tón- listarlíf á Héraði í nýjar víddir. Þá er Magn- ús Magnússon, skólastjóri Tónlistarskóla Austur-Héraðs, að hætta sökum aldurs eft- ir margra áratuga farsælt starf og Jón Guð- mundsson, aðstoðarskólastjóri og mik- ilvirkur tónlistarmaður, einnig að flytja burt. Maður kemur í manns stað, en það er sannast sagna skarð fyrir skildi í tónlistar- lífi bæjarins. Úr bæjarlífinu EGILSSTAÐIR EFTIR STEINUNNI ÁSMUNDSDÓTTUR BLAÐAMANN Íslenski ferðabækling-urinn „Upp í sveit“ erkominn út hjá Ferða- þjónustu bænda og er fá- anlegur á öllum helstu upp- lýsingamiðstöðvum, bensínstöðvum Esso hring- inn í kringum landið og hjá bændum. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um gistingu á 124 ferðaþjón- ustubæjum um land allt. Gistingin er fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, segir í frétt á vefnum bondi.is. Nefnd er bændagisting, sveitahótel, sumarhús og heimagisting. Afþreying er einnig orðin fjölbreytt, þar eru hestaferðir nefndar, golfvellir við bæina eða í nágrenninu, merktar gönguleiðir, fuglaskoðun, bátsferðir, sveitaheimsókn barna og sala á veiðileyf- um. Einnig er sagt frá ferð- um á fjórhjólum og vél- sleðaferðir. Upp í sveit Grímsey | Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Grímseyjar með 40 farþega af mjög blönduðu þjóðerni. Þar mátti sjá Hollendinga, Þjóðverja, Bandaríkjamenn, Ástrali, Kínverja og Dani, auk íslensks leiðsögumanns. Útgerð skipsins sem heitir „Professor Multanovskiy“ er rússnesk en það eru Hollendingar sem hafa það á leigu. Síðasti viðkomustaður skipsins og farþega þess, á undan Grímsey, var Jan Mayen. Það var létt yfir mannskapnum sem gekk Grímsey í nærri fjóra klukku- tíma. Auðvitað stigu allir yfir heimskautsbauginn. Nokkuð rigndi en gestirnir létu veðrið ekkert á sig fá heldur nutu fugla- og mannlífsins. Það hefur aukist undanfarin ár að minni skemmtiferðaskip leggi leið sína til Grímseyjar. Morgunblaðið/Helga Mattína Fyrsta skip sumarsins Vísur bárust „tilPéturs með góðrikveðju“ frá Rúnari Kristjánssyni á Skagaströnd, en undirrit- aður sendi Rúnari ljóða- bréf á föstudag í liðinni viku eftir langa bið: Undrandi ég alveg varð og það færi í letur, þegar yfir skammar skarð skeiðið þreytti Pétur! Fyrst að loks til leiks var mætt, lýsi ég dómi mínum. Pétur hefur brot sitt bætt, bjargað heiðri sínum! Leyst er nú úr langri bið, lífguð gleði í anda. Samskiptanna sálarhlið sé ég opin standa! Leggur þar með birtu um braut bragarvina tveggja. Manndóm auki og minnki þraut málskotsréttur beggja! Bið ég Pétri láns og lífs, legg þá bæn í skeyti, að til skeiðar hann og hnífs hafi að mestu leyti! Svar frá Rúnari pebl@mbl.is Borgarnes | Eitt af því sem nemendur í 10. bekk í Grunn- skóla Borgarness gerðu eftir að samræmdu prófunum lauk var að prófa að vinna við glerlist. Ólöf Davíðsdóttir glerlistakona sem á og rekur bæði glervinnslu og gallerí í Brákarey, bauð krökkunum að koma og leið- beindi hún þeim við gerð á kerta- stjökum fyrir sprittkerti. Hver nemandi gerði tvo kerta- stjaka úr gleri og sá Ólöf Davíðs- dóttir um að setja upphafsstafi hvers og eins á viðkomandi grip. Ólöf var að leiðbeina strákunum þegar myndin var tekin en þeir eru frá vinstri: Þiðrik Örn Við- arsson, Björn Viggó Björnsson og Sölvi G Gylfason. Þessi borgfirska glerlist prýð- ir nú nokkur heimili í sveitarfé- laginu Dragsholm í Danmörku því nemendurnir fóru þangað í vorferðalag og gáfu dönsku gest- gjöfunum sínum kertastjakana í þakklætisskyni fyrir uppihaldið. Morgunblaðið/Guðrún Vala Bjuggu til kertastjaka Glerlist Borgarnes | Sparisjóður Mýrasýslu og Borgarbyggð undirrituðu samning nýlega vegna kaupa Borgarbyggðar á húsi SPM að Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Húsnæðið sem nú hýsir skrifstofur Borgarbyggðar er hinum megin við götuna og er löngu orðið of lítið fyrir starfsemina. Sparisjóðurinn hyggst byggja nýtt húsnæði við Vestur- landsveg hjá Brúartorgi og er reiknað með að það verði tilbúið vorið 2005. Borgar- byggð fær því húsið afhent 1. júní 2005 og eru flutningar áætlaðir þá um haustið. Að mati bæjarstjóra, Páls S. Brynjars- sonar, sómir húsið sér mjög vel sem ráð- hús, það sé fallegt, vel við haldið, vel stað- sett, umhverfið sé fallegt og stærðin hentug. Hægt verði að bæta aðgengi að skrifstofum bæjarins, en á núverandi skrif- stofu er aðgengi fyrir fatlaða slæmt. Kaup- verð hússins er 83 m.kr. og húsið er 1.050 m2. Borgað er fyrir húsið með makaskipt- um á eignum og þær eignir eru núverandi húsnæði bæjarskrifstofa að Borgarbraut 11–13 og jarðirnar Álftarós og Stapasel. Borgarneskjötvörur stækka Við sama tækifæri var undirrituð vilja- yfirlýsing um kaup Borgarbyggðar á eign- um Borgarneskjötvara í Brákarey, en fyr- irtækið hyggst reisa nýtt hús undir starfsemi sína í Borgarnesi. Jafnframt kom fram að Borgarneskjötvörur hafa keypt kjötvinnslu Samkaupa og með þeirri viðbót mun störfum fjölga í fyrirtækinu um 15–20. Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri sagði að með kaupum á þessum eignum væri Borgarbyggð að undirstrika vilja þess efnis að í Brákarey yrði í framtíðinni íbúð- arsvæði og iðnaður færðist þaðan. Borgarbyggð kaupir hús sparisjóðsins Morgunblaðið/Guðrún Vala Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri, Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri og Sigurður Már Harðarson, stjórnarformaður SPM, takast í hendur og innsigla samninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.